Vísir - 10.05.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 10.05.1967, Blaðsíða 1
VISIR 57. árg. — Miðvikudagur 10. mai 1967. — 104. tbl. Fannst drukknaður í Kópavogi í gær Lík drukknaðs manns fannst í Kópavogi í gærdag. Böm sem voru að leik í fjörunni skammt frá ösku haugunum í Kópavogi, fundu líkið, þar sem það lá í flæðarmálinu. Gerðu þau yfirvöldunum viðvart um fundinn og sögðust þau hafa séð manninn fyrr, þegar hann kom Flugsýnarslysið: r Arnngurslaus leit í gær var kafaö við slysstað- inn í Vestmannaeyjum, þar sem flugvélin Austfiröingur fórst á dögunum. Ekki urðu leitarmenn annars varir en ýmissa hluta úr flugvélinni sjálfri, en flakið er mjög illa farið vegna sjó- gangs. Ennfremur var leitað með ströndinni umhverfis Heimaey, en án árangurs. Leitað hefur verði daglega með ströndinni og hafa bæði Vestmannaeying- ar og menn á vegum Flugsýnar tekið þátt í þeirri leit. Sem kunnugt er keypti flug- félagið Flugsýn tvær vélar af Douglas gerð í fyrra. Fyrir skömmu var önnur þeirra send utan til skoðunar, en er nú komin heim að nýju. í fjöruna um kl. 1. Þóttust þau hafa veitt því eftirtekt að hann hefði farið úr fötunum og lagt til sunds út á voginn. Mál Þorvalds Ara á lokastigi Rannsókn í máli Þorvalds Ara, lögfræðingsins sem stakk konu sína til bana, fer nú senn að Ijúka. Undirbúningi málsins af hálfu saka- dómara, söfnun og rannsókn gagna, er að mestu lokið, en greinargerð um niðurstööur geðrannsóknarinn ar, sem Þorvaldur Ari var úrskurð aður í, liggur enn ekki fyrir. Eins og kunnugt er, var Þorvaldur Ari úrskurðaður í geðrannsókn fljót- lega eftir að rannsókn málsins fór af stað og um mánaðamótin jan. febr. mun hún hafa verið hafin. Henni lauk hins vegar ekki fyrr en í siðasta mánuði, fyrir einum þrem vikum. Niðurstöðu geð- rannsóknarinnar er þó að vænta nú undir helgina. Ekki er þó víst að neinn skriður komist á mál Þorvalds fyrir því, þar eð ekki er búið að skipa honum verjanda. Má vænta þess, þegar það hefur verið gert, að verjandanum verði gefinn frestur til að undirbúa vöm ina. Kommúnistar reyna að stöðva útkomu málgagns Hannibalista Listi Hannibalista kemur fram i kvöld á fundi Hannibalslistinn í Reykjavik verður tckinn til endanlegrar af- greiðslu á fundi nýs félags, sem Hannibalistar í Reykjavík eru að stofna og verður fundurinn í kvöld. Málgagn Hannibalista, Alþýðubandalagsblaðið, kom út í gær í fyrsta sinn og mun það koma áfram út a. m. k. til kosn- inga. Kommúnistar munu reyna að bregða fæti fyrir útkomu þess meö því að krefjast lög- banns við útkomu og dreifingu blaðsins. Ekki er vitað með vissu hvern ig listi Hannibalista verður skip aður en Hannibal Valdimarsson, alþingismaður, forseti Alþýðu- sambands íslands, mun eins og kunnugt er skipa efsta sætið. Vésteinn Ólason stud. mag. að öllum líkindum skipa annað sæti. Þá er vitaö aö Sigurður Guðnason, fyrrum formaður Verkamannafélagsins Dagsbrún- ar, um margra ára skeiö, og einn virtasti maður verkalýðs- hreyfingarinnar mun skipa heið- urssætið svokallaða, eöa neðsta sætið. Talaö er um að Jón Maríusson, formaður samtaka veitingaþjóna og Einar Jónsson, framkvæmdastj. Múrarafélags- ins verði einnig á listanum. í gær var borgarfógeti látinn vita um að lögbanns yrði kraf- izt við útkomu málgagns Hanni- balista, Alþýðubandalagsblaðs- ins. Lögbannskrafan hafði ekki komið fram í morgun. Listi kommúnista í Alþýðu- bandalaginu var lagður fram hjá yfirkjörstjórn í gær og með listanum samþykkt Alþýðu- bandalagsfélagsins i Reykjavík, um að aðrir listar séu félaginu óviðkomandi. Þá voru einnig lögð fram lög Alþýöubandalags- ins og lög Alþýðubandalagsfé- lagsins í Reykjavík. Til gamans má geta þess að með lögbannskröfu sinni um Al- þýðubandalagsblaðiö hyggjast Framhald á bls. 10. Mun betri afli hjá togur- unum en í fyrra Fimm landa hér i næstu viku Togaramenn láta nú óvenjuvel |- felldur reytingsafli hjá þeim i allan j af aflabrögðum og hefur verið sam 1 vetur ýmist hér á heimamiðum eða' --------------------------—---við A-Grænland. Vísir átti f gæri I i liýtt baðhús úti á Grandagarði Það mun hafa farið fram hjá j mörgum að hafnaryfirvöidin í [ Reykjavík opnuðu síðast í febrú-1 ar nýtt baðhús úti á Grandagarði. j Gamla baðhúsið, sem var til húsa [ í gömlu verbúðunum var ekki i lengur talið þjóna nægilega til-! gangi sínum, erfitt að fullnægja j ströngustu hreinlætiskröfum i við- haldl þess og töluvert úr leið fiski- manna, sem flestir orðið leggja að úti á Grandagarði. Með opnun þessa nýja baðhúss, sem er hið snyrtilegasta og til mesta sóma, hvar sem á það er litið, varð mikil breyting til hins betra. Frá bryggjunum, sem bát- arnir leggja að, er stuttur gangur fyrir sjómennina í baðhúsið, sem er við enda verbúðanna úti á Grandanupi- Geta þar 19 komizt að í búningsklefunum í einu, sem eru með læstum skápum. Auk þess sem menn geta þarna fengiö léð rakáhöld, er þarna einnig verzlað með vinnuvettlinga og tóbak sokka og nærföt. Slíkt er til mikils hag- ræðis fyrir þá sem skarama við- dvöl eiga í landi. j tal við Hallgrím hjá togaraafgreiðsl i unni og sagði hann að von væri ! á þremur togurum til löndunar hér nú í vikunni. Ingólfur Arnarson væri væntanlegur í dag með 150 tonn og Júpíter á íimmtudaginn. Þrír togarar komu af veiðum í vik- unni sem leið, Karlsefni með 170 lestir eftir 9 daga útivist, Þorkell máni með 220 tonn, sem hann land ! aöi í Reykjavík og Mai landaðij 360 tonnum í Hafnarfirði. — Þetta; hefur veriö mun betra hjá þeim í vetur, en undanfarin ár sagði Hallgrímur. Góðviðrí fram yfir helgi — segir Veðurstofan □ Ungir sem aldnir njóta vorsins og sólskinsins, enda hefur ekki gefizt annar eins blíðviðrisdagur og í gær þetta árið. Talaðl þlaðið við Veðurstofuna i morgun og fékk þær fregnir frá Jónasi Jakobs- syni veðurfræðingi, að ekki væri annað að sjá en að góða veðrið gæti haldizt nokkra daga ennþá — jafnvel fram yfir heigi. □ Myndin er úr Nauthólsvík í gærdag og er sannkölluð sólar- stemmning. Á baksíðu eru flelri sólskinsmyndir. AÐEINS 6 FL YTJA TIL ÁSTRALlU 50-60 spurðust fyrir um landvist þar — Sextiu Sviar hafa flúið fyrirheitna landið á stuttum tima Milli fimmtíu og sextíu íslendingar komu að máli við sendiráðsritara við ástralska sendiráðið í Stokk- hólmi, en hann var hér á ferð í apríl í vor til þess að tala við væntanlega Ástralíufara. Fæstir munu þó hugsa sér að flytjast til Ástralíu og mun aðeins fimm eða sex hafa verið útvegað leyfi til farar- innar, en búizt er við að Ástralíufarar haldi utan nú í vor. Fáeinir íslendingar hafa jafn- an flutzt til Ástraiíu, 2—3 ann- að hvert ár eða svo. Brezka sendiráðið hafði áður milii- göngu um þessa flutninga, en ástralska sendiráðið i Stokk- hólmi hefur algjörlega tekið þessi mál í sínar hendur. Brian Holt, hjá brezka sendi- ráðinu hér, sagði Visi nýlega, að á þeim 17 árum, sem hann hafi verið hér við brezka sendi- ráðið, hafi hann afgreitt tíu leyfi fyrir islenzka Ástralíufara, af þeim hefðu sex komið heim aft- ur. Mest hefði þetta verið fólk í ævintýraleit. Sænska dagblaðið Expressen segir frá þvi á mánudaginn, að sænskur prestur i Melbourne hafi nú hjálpað 60 Svíum til þess að komast heim aftur frá Ástr- alíu nú á stuttum tima. Þetta fólk hefði veriö f reiðuleysi í Ástralíu, litið að gera og kaupið þykir Svíunum lágt. En það er í Viktoríu, þar sem laun eru hæst i Ástralíu, innan við tvö þúsund á viku meðallaun, segir sænska blaðið (220 sænskar). — í viðtali við blaðið segir sænski sjómannapresturinn, að auk þessara sextíu, sem hann hafi hjálpað heim, mestmegnis með sænskum skipum, sem komið hafa til Ástralíu, viti hann um marga, sem Iangar heim, en hafa ekki tækifæri til þess. Margir Svíar komi til Ástraliu í þeirri trú, að þeir fái góðar möttökur, vegna þjóðernis síns, en það sé mesti misskilningur, segir hann og t.d. reynlst erfitt að fá sænsk próf viðurkennd i Ástralfu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.