Vísir - 22.05.1967, Blaðsíða 1
VISIR
57. árg, - Mánudagur 22. maí 1967. - 113. tbl.
Kanna möguleika á geymslu
matvæla með geislun
Hér á landi eru staddír tveir
geislunarsérfræðingar dr. Proost og
dr. Sorschline frá Alþjóðakjam-
orkumálastofnunni í Vín og hafa
þeir að undanfömu unnið að könn-
un á möguleikum til að beita geisl-
un við geymslu sjávarafurða hér-
lendis.
Sérfræðingar þessir eru hér í
boði ríkisstjómarinnar og hafa þeir
að undanförnu ferðazt um ver-
stöðvar { fylgd með Islendingum,
sém eru þeim til aðstoðar og leið-
beiningar, Þeir hafa dvalið hér
u.þ.b. vikutfma. Niðurstöður af
könnun jseirra munu ekki liggja
Framh. bis. 8
Smíðar skeifur fyrir Is-
lendinga og Dani
Fjöldaframleiðsla á skeifum
er nýjung í verksmiðjurekstri
hér á landi, en slíkt fyrirtæki
er að hefja framleiðslu sína um
þessar mundir í Kópavogi.
Blaðamaður og ljósmyndari
iögðu leið sína út á Kársnes í
morgun, en þar er verksmiðjan
staðsctt. Við hittum fyrir Birgi
Kristjánsson eiganda verksmiðj-
unnar og lögðum fyrir hann
nokkrar spumingar.
— Þú ert ekki byrjandi í
skeifnasmíðinni, Birgir?
— Nei, ég hef fengizt við
þetta í 40 ár.
— Hvað kemuröu til með að
framleiða margar skeifur á dag,
með hinum nýju tækjum.
— Ætli framleiðslan geti ekki
orðið 2000 skeifur á dag, þegar
mannskapurinn er orðinn þjálf-
aður.
— Og markaðurinn?
— Til að byrja með framleið-
um við eingöngu fyrir innlend-
an markað, en síðar meir mun-
um við einnig framleiða skeif-
ur fyrir danskan markað, en
— Stigin eru 14 eins og er.
Fyrst fer efnig í klippun, síðan
í ofn sem glóðhitar það. Síðan
Framh. á bis. 8
Ryðvamarverkstæðið logaði glatt eins og sjá má.
STORTJÓN I BRUNA Á
SKÚLAGÖTU IMORGUN
í morgun brunnu tveir bragg-
ar við Skúlagötu í Reykiavík. I
öðrum bragganum hafði Ryð-
vöm aðsetur, en þaö fyrirtækí
ryðver bifreiðir með svokallaðri
Tectyl-ryðvörn.
■ ■(
Svo vel vildi til að engin bif-
reið var í stöðinni þegar eld-
urinn kom upp, en tæki þau
sem notuð em við ryðvömina
munu hafa eyðilagzt.
Hinn bragginn muri hafa ver-
ið notaður sem geymsla og
hafði Emanúel Mortens (Hjól-
barðaverkstæðið Barðinn) bragg
ann á Ieigu, en notaði hann
ekki sem lager eftir því sem
næst verður komizt.
Hafnarbfó og málningarverksmiðjan Harpa voru í hættu lengi vel en var
:ÍsSS-
bjargað, Harpa er lengst til vinstri en bragginn h. megin er bíóið.
Báðir eru braggamir gjör-
ónýtir eftir brunann, en slökkvi
liðinu tókst að verja nærliggj-
andi byggingar, svo sem Hafnar
bíó og Málningarverksmiðjuna
Hörpu, en lagerbygging verk-
smiðjunnar er staðsett við enda
bragganna, og er ekki nema
á.a.g. metri á milli, en slökkvi-
Hðiö setti segl á milli sem síð-
an var dælt vatni á.
Samkvæmt upplýslngum lög-
regluþjóns, sem á staðnum var
Framh. á bls. 8
Auðar
síður
Lesendur Visis eru beðnir af-
sökunar á þvi, að auðar síður
eru í blaðinu í dag. Blaðið átti
að vera 24 síður í tvennu lagi
en því miöur gekk slíkur pappir
upp og varð því að notast við
pappír, sem gerður er fyrir 32
síðna blaö. Auöu síðurnar
standast á, svo auðvelt er aó
kippa þeim úr blaðinu. Vonum
við, að lesendur blaðsins verðí
ekki fyrir óþægintium vegna
þessa.