Vísir - 22.05.1967, Síða 1

Vísir - 22.05.1967, Síða 1
VISIR 57. árg, - Mánudagur 22. maí 1967. - 113. tbl. Kanna möguleika á geymslu matvæla með geislun Hér á landi eru staddír tveir geislunarsérfræðingar dr. Proost og dr. Sorschline frá Alþjóðakjam- orkumálastofnunni í Vín og hafa þeir að undanfömu unnið að könn- un á möguleikum til að beita geisl- un við geymslu sjávarafurða hér- lendis. Sérfræðingar þessir eru hér í boði ríkisstjómarinnar og hafa þeir að undanförnu ferðazt um ver- stöðvar { fylgd með Islendingum, sém eru þeim til aðstoðar og leið- beiningar, Þeir hafa dvalið hér u.þ.b. vikutfma. Niðurstöður af könnun jseirra munu ekki liggja Framh. bis. 8 Smíðar skeifur fyrir Is- lendinga og Dani Fjöldaframleiðsla á skeifum er nýjung í verksmiðjurekstri hér á landi, en slíkt fyrirtæki er að hefja framleiðslu sína um þessar mundir í Kópavogi. Blaðamaður og ljósmyndari iögðu leið sína út á Kársnes í morgun, en þar er verksmiðjan staðsctt. Við hittum fyrir Birgi Kristjánsson eiganda verksmiðj- unnar og lögðum fyrir hann nokkrar spumingar. — Þú ert ekki byrjandi í skeifnasmíðinni, Birgir? — Nei, ég hef fengizt við þetta í 40 ár. — Hvað kemuröu til með að framleiða margar skeifur á dag, með hinum nýju tækjum. — Ætli framleiðslan geti ekki orðið 2000 skeifur á dag, þegar mannskapurinn er orðinn þjálf- aður. — Og markaðurinn? — Til að byrja með framleið- um við eingöngu fyrir innlend- an markað, en síðar meir mun- um við einnig framleiða skeif- ur fyrir danskan markað, en — Stigin eru 14 eins og er. Fyrst fer efnig í klippun, síðan í ofn sem glóðhitar það. Síðan Framh. á bis. 8 Ryðvamarverkstæðið logaði glatt eins og sjá má. STORTJÓN I BRUNA Á SKÚLAGÖTU IMORGUN í morgun brunnu tveir bragg- ar við Skúlagötu í Reykiavík. I öðrum bragganum hafði Ryð- vöm aðsetur, en þaö fyrirtækí ryðver bifreiðir með svokallaðri Tectyl-ryðvörn. ■ ■( Svo vel vildi til að engin bif- reið var í stöðinni þegar eld- urinn kom upp, en tæki þau sem notuð em við ryðvömina munu hafa eyðilagzt. Hinn bragginn muri hafa ver- ið notaður sem geymsla og hafði Emanúel Mortens (Hjól- barðaverkstæðið Barðinn) bragg ann á Ieigu, en notaði hann ekki sem lager eftir því sem næst verður komizt. Hafnarbfó og málningarverksmiðjan Harpa voru í hættu lengi vel en var :ÍsSS- bjargað, Harpa er lengst til vinstri en bragginn h. megin er bíóið. Báðir eru braggamir gjör- ónýtir eftir brunann, en slökkvi liðinu tókst að verja nærliggj- andi byggingar, svo sem Hafnar bíó og Málningarverksmiðjuna Hörpu, en lagerbygging verk- smiðjunnar er staðsett við enda bragganna, og er ekki nema á.a.g. metri á milli, en slökkvi- Hðiö setti segl á milli sem síð- an var dælt vatni á. Samkvæmt upplýslngum lög- regluþjóns, sem á staðnum var Framh. á bls. 8 Auðar síður Lesendur Visis eru beðnir af- sökunar á þvi, að auðar síður eru í blaðinu í dag. Blaðið átti að vera 24 síður í tvennu lagi en því miöur gekk slíkur pappir upp og varð því að notast við pappír, sem gerður er fyrir 32 síðna blaö. Auöu síðurnar standast á, svo auðvelt er aó kippa þeim úr blaðinu. Vonum við, að lesendur blaðsins verðí ekki fyrir óþægintium vegna þessa.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.