Vísir - 24.05.1967, Side 1
VÍSIR
- ■ • +
57. árg. - Miðvikudagur 24. maí 1967. - 115. tbl.
Stefán Jónsson arkitekt við líkan af verzlunarmiðstööinni og nán-
asta umhverfi hennar. Fremst á myndinni er menningarmiðstööin
sýnd í grófum dráttum. Sérkennilega húsið fremst á myndinni er
kirkja. Verzlunarmiðstööin sjálf er fyrir ofan veginn. Göngubrú
á að liggja yfir áuðurlandsveginn gamla milli verzlunar- og menn-
ingarmiðstöövarinnar.
Egill Benediktsson.
Ásgeir Einarsson.
Finnur Th. Finnsson.
Minningarathöfn um flugmenn-
ina er fórust í Vestm. eyjum
Minningarathöfn um flugmenn-
inga þrjá sem fórust í Vestmanna-
eyjum 3. maí s.l. er Douglasflugvél-
in Austfirðingur rakst á svokallaða
Stakkabót i Kervikurfialli, verður í
Dómkirkjunni næstk. laugardag.
Flugmennirnir voru þeir Egill
Benediktsson, Ásgeir Einarsson og
Finnur Th. Finnsson. Mlnningarat-
höfnin um þá hefst kl. 10.30 og
veröur henni útvarpaö. Dómkirkju-.
prestamir sr. Jón Auðuns, dóm-l
prófastur og sr. Oskar Þorláksson
flytja minningarræður en félagar
úr Fóstbræðrum fiytja sönginn.
Athöfnin fer fram á vegum Flug-
sýnar h.f., sem átti flugvél þá er
mennimir voru í.
Fullkomnasta verzlunarmiðstöð
landsins byggð í Árbæjarhverfi
Innan tíðar munu hefjast í
Árbæjarhverfi framkvæmdir
við fullkomnustu verzlunar-
miðstöð, sem reist hefur ver-
ið eða skipulögð hér á landi.
Ve^zlunarmiðstöðin mun rísa
upp í miðri blokkaröðinni
vinstra megin við steypta
hluta Suðurlandsvegarins,
sem nú hefur verið lagður nið
ur sem slíkur. Hinum megin
við götuna hefur verið skipu-
lögð menningarmiðstöð með
skólum, kirkju, samkomu-
húsi (kvlkmyndahús, félags-
heimili o. s. frv.), heilsu-
gæzlustöð með lækningastof
um o. m. fl. — Árbæjarhverf-
ið var skipulagt sem aðgreint
5000 manna hverfi, sem á að
vera sjálfu sér nógt og hefur
því verið lögð mikil áherzla
á það, að „miðbær“ hverfis-
ins sé í sem beztum tengsl-
um við alla hluta hverfisins.
Vinnulíkan af verzlunarmið-
stöðinni hefur nýlega verið sam
þykkt í borgarráði og er nú
Framhald á bls. 10.
Tundurdufl í Akabaflóa
Egyptar hafa lagt tundurduflum í Akabaflóa og lagt bann
við siglingum olíuskipa um flóann og komið upp tollskrif-
stofu við innsiglinguna í flóann, til eftirlits með, að ekki
verði fluttar hernaðarlegar vörur eða afurðir til Eilath í lsrael.
Um þessar r.uknu ráðstafanir fréttist að sögn brezka útvarps-
ins í morgun rétt eftir að Johnson Bandaríkjaforseti hafði
lýst yfir, að ákvarðanir Nassers Egyptalandsforseta varðandi
siglingar um Akabaflóa væru ólöglegar og stefndu friðinum
í hættu. Johnson forseti hvatti alla aðila til þess að fara
með gát. Jafnframt var þess getið í fréttum frá Washington,
að Bandaríkjastjórn reyndi að komast að raun um hver væri
raunverulegur ásetningur Nassers.
FL YTJA INN FYRIR AND VIRÐI
HÁLFRAR LlTILLAR BIFREIÐAR
x
Húsnæðismálastofnunin auglýsir eftir umsóknum
i ibúðir og einbýlishús
Húsnæðismálastofnun
ríkisins hefur nú auglýst
eftir umsóknum um 260
íbúðir í fjölbýlishúsum
og 23 einbýlishús í Breið
holtshverfi eða nær all-
ar íbúðir, sem Fram-
kvæmdanefnd bygging-
aráætlunarinnar reisir í
1. áfanga áætlunarinnar
í Breiðholti.
Samanlagður fjöldi ibúöa í
fjölbýlishúsum verður 312, en
öll einbýlishúsin hafa verið
auglýst laus til umsóknar. —
Áætlað verð íbúðanna er 655
—970 þús. kr. fyrir 2—4 her-
bergja íbúðir í fjölbýlishúsunum
og 900—1040 þús. kr. fyrir ein-
býlishúsin-(101 og 116 fermetr-
ar). Ibúðunum og einbýlishús-
unum verður ýthlutag til lág-
launafólks í verkaiýðsfélögum
og til kvæntra iðnnema. —
Greiðsluskilmálarnir eru þeir,
að 5% af áætluðu andvirði i-
búðanna er greitt ári fyrr en
þær eru afhentar og síðan 5%
á ári næstu 3 ár, þannig að 20%
af andvirði íbúðanna er greitt á
4 árum, en 80% er iánað til 33
ára meg 4y2% vöxtum*
Þetta þýðir, að þ|ir sem fá
úthlutað, komast inn í íbúðirnar
í fjölbýlishúsunum fyrir 65—
97 þús. kr., en greiða sömu upp-
hæð tvö fyrstu árin, sem þeir
búa í þeim. Þetta samsvarar
kaupum á lítilli bifreið, keyptri
með þægilegum greiðsluskilmál-
um. Vextir af eftirstöðvunum
veröa 23.600—35.900 kr. á ári
miðað við núverandi verölag, en
afborganir af láninu 16—24 þús.
kr. Samanlagðar greiðslur ár-
Iega munu því nema u. þ. b. 40
—60 þús. kr., sem verður að
teljast mjög hagstæð húsaleiga
í Reykjavik nú, eins og húsa-
leigukjörum er nú háttað. Skil-
málarnir á einbýlishúsunum eru
svipaðir og á stærri íbúðunum.
Byggingarmáti fjölbýlishús-
anna, sem einbýlishúsanna, er
nokkuð frábrugðinn því sem
tíðkazt hefur hér á landi. —
Burðarveggir fjölbýlishúsanna
verða allir innveggir og veröa
þeir og loftin steypt í stálmót-
um. Útveggir aörir en gaflar og
kjallaraveggir, eru framleiddir í
verksmiðju og koma á bygging-
arstað fullfrágengnir og tilbúnir
til uppsetningar.
íbúðunum verður skilað full-
frágengnum og tilbúnum til í-
búðar. Öll gólf íbúðanna önnur
Framhald á bls. 10.
•tirumiw
Útlitsteikning af einu fjölbýlishúsinu í Breiðholti.
Rétt þar áður hafði Eshkol
forsætisráðherra ísraels h.vatt
stórveldin til þess að tryggja
frjálsar siglingar um Akabaflóa
og lýst aðgerðum Nassers sem
ofbeldi.
Þá var sagt í fréttum frá
Kairo, að Egyptar hefðu opnað
tollstöð við innsiglinguna til
Akabaflóa og bannað siglingar
olíuskipa um flóann.
Stjómmálaleiðtogar allra höf-
uðborga hafa stöðugt samband
sín í milli vegna hættuástands-
ins og í New York hefir Örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna ver-
ið kvatt saman til fundar, eftir
að krafa hafði verið borln
fram um aukafund af Kanada
og Danmörku, en Lester Pear-
son forsætisráðherra Kanada
hefir lagt til að Eftirlitsnefnd
Sameinuðu bióðanna verði flutt
frá Jerúsalem til Ghasasvæð-
isins.
Brezk herskip á Miðjarðar-
hafi hafa fengið fyrirskipun um
að vera viðbúin hverju sem fv:
ir kann að koma. Eitt þeirrá
er flugvélaskipið Victorius, sem
var á siglingaleið 1 nánd vió
hættusvæðið, er horfumar
versnuðu.
U Thant framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna er í Kairo
og hershöfðingjamir sem
starfa á vegum Sameinuðu þjóð
anna í löndunum fyrir botni
Miðjarðarhafs, þeir Odd Bull
yfirmaður Eftirlitsnefndarinnar,
norskur, og Rickie, yfirmaður
gæzlufiðsins, indverskur.
U Thant haföi, er síðast frétt
á Ms. 10.
I