Vísir - 25.05.1967, Blaðsíða 7

Vísir - 25.05.1967, Blaðsíða 7
V í SIR . Fimmtudagur 25. maí 1967, 7 útlönd í morgun útlönd í raorgun lít^önd í raorgun George Brown í ræðustól íMoskvu Ræddi hættulegar horfur fyrir botni Miðjarð- arhafs og önnur heimsvandamál af djörfung og hreinskilni George Brown flutti ræðu í gær í Moskvu, þar sem saman voru komnir trúnaðarmenn Kommúnista flokksins og fréttamenn. Lýsti hann því sem harmleik, aö gæzlulið Sameinuðu þjóðanna yrði flutt frá Ghazasvæðinu — en horfurnar gætu batnað, ef það yrði þar um kyrrt. Brown var oninskár í ræðu sinni, en hann fiutti hana eftir Hussein hefir lýst yfir styrjaldarástandi vegna glæpaafferlis Sýrlendinga Hussein Jórdaníukonungur hefir ávarpað þjóðina í útvarpi og hvatt leiðtoga Arabaþjóða til þess að leggja deilumálin til hliðar, en sam- tímis réðst hann á sýrlenzka vald- hafa og sakaði þá um glæpsamlegt atferli gagnvart Jórdaníu. Hann lýsti yfir styrjaldarástandi í landinu og kvaö Saudi-Arabíu og að hafa rætt í eina og hálfa klukkustund við Gromiko utan- rikisráöherra Sovétríkjanna. Brown hvatti eindregið til þess að lausn vandamálsins yröi í hönd um Sameinuðu þjóðanna. „Vér von um, að sovétstjórnin styöji þetta“ sagði Brown. Kjarnorkuvopnin — Vietnam. Brown geröi einnig grein fyrir afstööu brezku stjómarinnar til fyr irhugaðs sáttmála til þess aö hindra frekari útbreiöslu kjarnorkuvopna. Hann endurtók fyrrir till. um að ríkisstjórnir Bretlands og Sovét- ríkjanna boði til Genfarráðstefnu í framhaldi af ráðstefnunni 1956, en sú uppástunga fær vart hljóm- grunn £ Moskvu nú frekar en fyrri daginn. Varði leiðtoga V.Þ. Þá sagði Brown, að þaö væri rangt að „endurskoðunarmenn og hernaöarsinnar‘‘ hefðu nú forust- una í V-þýzkalandi, og vakti það töluveröa alhygli, aö hann skyldi verja leiðtoga V.Þ. í ræöu fluttri í Moskvu. „Ég þekki marga þeirra persónulega og þeirra pólitíski bak- hjarl er hinn sami og minn“, sagöi hann. EBE. Þá varöi hann afstöðu stjómar sinnar að sækja um aðild að EBE. írak hafá veriö leyft að senda liö til landsins. Lið frá Saudi-Arabíu J er þegar komið til landsins. Eins og áöur var getið í fréttum hefir Jórdanía rofið stjórnmála- tengslin við Sýrland og sent heim ambassador þess vegna hermdar- verksins um fyrri helgi., BÍLAKAUP - BÍLASKIPTI i!!! Listmunaviðgerðir Innrömmun (erlendir rammalistar), — úrval góðra tækifærisgjafa, málverkaeftirprentanir. Kaupum og seljum gamlar bækur, málverk og antik-vörur. — Vöruskipti og afborgunarkjör. MÁLVERKASALAN TÝSGÖTU 3 Sími 17602 HJÓLBÖRUR Hinr landskunnu hjólbörur vorar ávallt fyrir- liggjandi. Skoðið bílona, geríð góð kaup — Óvenju glæsilegt úrval Vel með farnir bilar í rúmgóðum sýningarsal. UmboSssala Vi8 tökum velútlítandi bila í umboðssölu. Höfum bifana tryggSa gegn þjófnaði og bruna. SYNIMCARSALURIMH SVEIHN EGILSSON H.F. LAUGAVEG 105 SÍMI 22466 George Brown. 1000 kr. gjöf E L D H U S lækkar byggingarkostnað yöar. Nýju Lipp eldhúsin eru 20% ódýrari. Athugið- ennfremur: Kaupandi fær 1000 kr. í gjöf. Nánari uppi. eru aðeins gefnar að Suðuriandsbraut 10. SKORRI HF. Suðurlandsbraut 10 — Símar: 3 85 85 og 1 81 28. Brown á fundi George Brown utanríkisráð- herra Bretlands hóf í morgun viöræður við Gromiko um hættuástandið. Rétt áður birti Sovétstjórnin vfiriýsingu og kenndi ísrael um ástandiö og segir í henni, að ef til árásar kæmi á Arabaríkin myndu Sovétríkin styðja þau, — en Sovétstjórnin bað alla aöila a5 fara með gát. 'mBÉMwíB Börurnar eru í þremur stærðum (garðbörur og steypubörur) 60, 120 og 250 ltr. Nýja Blðkksmiöjan h.f. Ármúla 12 — Símar 81104 og 81172. ÞIÐ TAKIÐ MYNDINA VIÐ FRAMKÖLLUM. C^gjr IVSLT* Sími 23843. — Laugav. 53 Bruninn mikli í Brussel Myndin er frá brunanum mikla i Briissel, en þar kom upp eldur í kjörverzlun sem kunnugt er af iréttum, og er vitað, að yfir 320 manns fórust, en eldurinn kom upp á einni hinna efri hæða hússins og átti fólk sér ekki undankomu auðið þaðan.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.