Vísir - 30.05.1967, Page 3
Tft&SR . Þriöfudagur 30. mai 1967.
3
v -
. ' IGi '■". ■... »^
Viðbúir, tilbúnir, nú! Viðbragðiö í björgunarsundinu. {
(
Sjómannadagur-
inn í Reykjavík
Hátíðahöld Sjómannadagsins
í Reykjavik fóru í þetta sinn
fram með líku sniði og áður.
Þó ber að geta keppinnar i
stakkasundi og björgunarsundi
sem fram fór í hinni nýju og
glæsilegu sundlaug í Laugar-
dalnum að viðstöddu fjölmenni.
Keppni þessi fór mjög vel fram
og skemmtu áhorfendur sér hiö
bezta. Björgunaræfingin, sem
fram fór á sama stað tókst
ekki eins vel og á hefði verið
kosið, en slíkt getur að vísu
alltaf hent í sambandi við fram
kvæmd viöamikillar dagskár.
Hátíðablær var yfir höfuðborg-
inni, fánar blöktu við hún bæði
við íbúðarhús og á skipunum og
mikill fjöldi fólks var á götum
1967
úti. Bömin gerðu og sitt til
að stemningin væri sem full-
komnust, bæði þau, sem fylgd-
ust með skemmtiatriðunum og
svo einnig þau fjölmörgu, sem
seldu blað dagsins og merki,
vonandi með góðum árangri.
Sjálf hátfðahöldin hófust á
laugardagseftirmiðdag. Kl. 17
hófst kappróöur á Reykjavfkur-
höfn. Að sjálfsögðu safnaðist
mikill fjöldi fólks saman til að
fvlgjast með keppninni eins og
alltaf á sjómannadaginn. Sveit
sjóskáta úr Reykjavík bar sigur
úr býtum í keppninni í þetta
sinn, en nr. tvö var áhöfn á
Mb. Gróttu í Reykjavík. I flest
skipti hefur áhöfnin á Reykja-
borgu RE 25 sigrað í þessari
keppni undir forustu skipstjóra
síns Haraldar Ágústssonar. Hef
ur sú sveit sigrað f kappróðr-
inum í sex skipti f röð. f þetta
sinn tók sveitin ekki þátt i
keppninni, því eins og komið
hefur fram í fréttum, er Reykja-
borgin á síldveiðum langt aust-
ur í hafi,
Á sunnudaginn hófust hátíða-
höldin kl. 11 f. h. með hátíða-
messif f Laugarásbíói. Sóknar-
presturinn í Ásprestakalli, séra
Grímur Grímsson predikaði.
Var messa þessi fjölmenn og
mikill hátíðabragur yfir henni.
Ki. 13.30 hóf Lúðrasveit Reykja
víkur leik sjómanna- og ætt-
jarðarsöngva utan við hiö glæsi
lega heimili aldraðra sjómanna,
Hrafnistu, en þar hafði mikill
mannfjöldi safnazt saman. Að
því loknu kl. 14 hófst síðan
minningarathöfnin, þar sem
séra Ingólfur Ástmarsson
minntist drukknaðra sjómanna
og Guðmundur Jónsson söng
einsong. Þá voru ræöur fluttar
og afhent voru heiðursmerki.
Voru þar tveir sæmdir æðsta
merki Sjómannadagsins og
fimm aðrir hlutu heiðursmerki.
Að athöfninni við Hrafnistu
lokinni hófust skemmtiatriðin ,
Laugardalslauginni nýju. Var
þar einnig saman kominn mik-
ill fjöldi fólks, sem skemmti sér
hið bezta, ekki síður en þeir,
sem þátt tóku í skemmtiatrið-
unum. Aöstaða öll til slíkrar
keppni er með allra bezta móti
þama í hinni nýju sundlaug og
gerir framkvæmd slíkra atriða
auðveldari.
Á sunnudagskvöldið gekkst
Sjómannadagsráð síðan fyrir
fjölbreyttum skemmtunum í
fimm samkomuhúsum borgar-
innar. Aðalhátíðin fór fram á
Hótel Sögu, en þar hófst sjó-
mannahóf kl. 19.30 og voru þar
flutt mörg skemmtiatriöi, svo
sem danssýning, gamanþáttur
og einsöngur. Þá má og geta
þess, að barnaskemmtun var I
' Laugarásbíói um miðjan dag-
inn svo og unglingadansleikur
í Lídó með góðri þátttöku,
sömuleiðis um miðjan daginn.
í heild má segja að Sjómanna
dagurinn í Reykjavík hafi verið
aðstandendum hans til mikils
sóma og flest atriði hans hafi
farið hið bezta fram.
Áhöfn Gróttu RE 128 með „Fiskimanninn“, sigurlaunin í kappróðrinum um áraraðir.
Hér er komið „að landi“ úr björgunarsundinu. Lítil þreytumerki er að sjá á sundmanninum, enda
cinmonn nr^laaTSir fvrir hrnvcti.
Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs Reykjavíkur, afhendir Kristjáni H. Oddssyni, forystumanni £ röðum sjómanna um áaabil,
heiðursmerki Sjómannadagsins, úr gulii.