Vísir - 30.05.1967, Page 8

Vísir - 30.05.1967, Page 8
oo H V I S I R . Þriöjuclagur 30. mai 1007. VISIR Utgefandi: Blaðaútgáfan VfSIR Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands I lausasölu kr. 7.00 eintakiö Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Þrisvar 2000 milljónir Einkennileg tilviljun er, að tvö þúsund milljónir króna skuli á þremur veigamiklum sviðum einkenna viðreisnartímabilið. Aflað hefur verið gjaldeyrisvarasjóðs, sem nemur tæpum 2000 milljónum króna. Keyptur hefur verið fiskiskipafloti fyrir 2000 millj- ónir króna. í fyrra voru keyptar vélar og tæki til atvinnuveg- anna fyrir rúmar 2000 milljónir króna. Gjaldeyrisvarasjóður er forsenda öryggis í viðskipt- um við önnur lönd. Hann er forsenda þess, að við getum búið við frjálsa verzlun og að við höfum getað kastað út haftakerfinu. Framsóknarmenn telja það til ávirðingar nýsköpunarstjórninni í stríðslokin að hafa varið gjaldeyrisvarasjóði þjóðarinnar þá til þess að kaupa togaraflota, nýja báta, landbúnaðar- vélar og önnur slík verðmæti. Þeir virðast ekki vilja skilja, að allt þetta vantaði okkur eftir styrjaldarárin. Þau verðmæti, sem við áttum áður, höfðu ekki aðeins gengið úr sér, heldur voru nú komnir nýir tímar með nýjar kröfur, nýja tækni og nýjar vinnuaðferðir. Það var því mikið lán, þegar hinn framsýni stjórnmála- maður, Ólafur Thors, hafði forustu um nýsköpunar- stjórn og nýsköpunarstefnu á árunum 1944—1946. Og þessi framsýni endurspeglaðist í framleiðsluaukn- ingu þjóðarinnar næstu árin. 1 Þegar þetta er haft í huga, er gaman að minnast þess, að einn þingmanna Framsóknar sló því fram í sjónvarpsþætti í vetur, að nú ætti endilega að grípa til gjaldeyrisvarasjóðsins í skyndingu og kaupa fyrir hann vélar og tæki fyrir atvinnuvegina. Blað Fram- sóknarmanna hampaði þessari tillögu sem einstökum vísdómi, birti forustugreinar og sunnudagshugvekjur um „tillögu Helga Bergs“. Framsóknarmönnum var á það bent, að sannarlega hafði ekki verið vanrækt að kaupa vélar og tæki til atvinnuveganna. Raunveruleg verðmætisaukning þeirra hafði orðið yfir 50% á viðreisnartímanum, árið 1966 höfðu verið keyptar vélar og tæki til atvinnu- veganna fyrir meira én 2000 milljónir króna, eða sem svaraði öllum gjaldeyrisvarasjóðnum, — og er það helmingi meira í raunverulegum verðmætum en gert hafði verið á vinstristjórnartímanum, þegar Fram- sókn hafði forsæti í ríkisstjórn. Datt þá niður talið um „tillögu Helga Bergs“. Til viðbótar hefur svo verið á það minnt, að á við- reisnartímabilinu hafa verið keypt ný fiskiskip með betri búnaði og tækjum en áður þekktust fyrir um 2000 milljónir króna. Að öllu þessu býr þjóðin í dag. Vegna þessara þrisvar sinnum 2000 milljóna króna í gjaldeyrisvara- sjóði, vélum og tækjum, og nýjum fiskiskipum, er- um við þess betur umkomin en ella að mæta and- streymi, sem stafar af lélegri og erfiðri vetrarvertíð og verðfalli útflutningsafurða. Birgir Kjaran ( VARANLEG VELMEGUN Jslenzkur þjóðarbúskapur er einhæfur. í raun og veru er- um við enn sem komið er aö mestu veiðimanna- og hirðingja- þjóð; lifum fyrst og fremst á fiskveiðum og sauðfjárbúskap. Slíkir búskaparhættir gera okk- ur algerlega háð kenjum nátt- úrunnar og veðurfari. Gæfta- laus vertíð, kalt vor og vot- veðrasamt sumar geta án fyrir- vara orsakað kreppuástand í heilum landsfjórðungum og jafn vel um land allt. Svo hefur atvikazt, að síðasta áratuginn hefur hér verið góö- æri og þjóðin lifaö við lífskjör, sem sambærileg eru við hin beztu vestan hafs og austan. En framtíðin er ótrygg; góðum ár- um getur fylgt harðæri vegna afla- og uppskerubrests. Ef vig viljum tryggja okkur varanlega, þá velmegun, sem við nú búum við, verður að grípa til nýrra ráða. Stofna til nýrra atvinnuvega, sem árviss- ari eru, við hlið þeirra gömlu. Þessi sannindi hafa forustu- mönnum Sjálfstæðisflokksins lengi veriö ljós, og þess vegna stefnt að Iausn vandans. Úrræð- ið er meðal annars nýsköpun í iðnaði landsmanna, — stóriðja. Sagt er, að ísland sé rýrt af náttúruauðæfum, en það er þó enn órannsakað mál. Viðurkennt er, að nokkrar auðsuppsprettur eigum við fortakslaust, þær eru: vatnsaflið, fiskimiðin, gróður- moldin og vel verki farið fólk. Því má svo bæta viö að lega landsins er hagstæð meö tilliti til flutninga. Það liggur miöja vegu milli efnalega háþróuðustu mannabyggða heims, Ameriku og Evrópu, og flutningar á sjó eru ennþá ódýrasta leiðin. Á þessum forsendum byggj- ast áform Sjálfstæðismanna um stórvirkjanir og iðnvæðingu: alúmíníumframleiðslu, kfsilgúr- vinnslu og fleira. Þessi stóriöja, sem fyrst og fremst er miðuð við útflutning, á að renna stoö- um undir atvinnuöryggi þjóðar- innar. En samtímis verður að hlúa að smáiðnaðinum, því að engin stóriðja fær staðizt nema við hlig hennar sé öflugur smá- iðnaður, sem annast viðgerða- þjónustu, þjálfar iðnlært fólk og vinnur að hluta úr hráefm því, sem stóriðjan skilar frá sér Hagvyxtur hefur verið örari hér á liðnum áratug en nokkru sinni fyrr, og meiri en viðast hvar í nágrannalöndum okkar. Viöskiptakjör hafa hins vegar nú snúizt á þá sveif, að búast má við að nokkuð kunni aö draga úr hraðanum um stund- arsakir. Þess vegna þurfum viö á komandi tímum að fóta okkur og tryggja það sem áunnizt hef- ur og takast á við ný verkefni. Það gerum við bezt með því að stofna til stóriöju á traustum grundvelli. Hlutverk Sjálfstæðismanna, sem áður áttu frumkvæðið að Nýsköpun og Viðreisn, er nú, að vinna að varanlegri velmegun allrar þjóðarinnar. Minnisblað__kjp_senda_ Jafnvægi í byggð landsins? í fyrra var stofnaður öflugur At- vinnujöfnunarsjóður með 364millj ón króna stofnf é, til þess að stuðla fjárhagslega að jafnvægi í byggð landsins. Sjóðurinn mun hafa miklar, fastar tekjur af álbræðslunni við Straums vík. Ráðstöfunarfé sjóðsins mun fyrstu tíu starfsárin nema 700 milljónum króna af eigin fé, auk víðtækra lántökuheimilda. Framkvæmdir við Vestf jarðaáætl- un hófust 1965, og verður samtals veitt til hennar 200 milljónum króna árabilið 1965-1968. Verkefni hennar eru fyrst og fremst í sam- göngumálum, — vegir, flugvell**' og hafnir. Unnið er að gerð Norðurlandsá- ætlunar og er þar lögð höf uðáherzl an á atvinnumál. Ráðgert er f ramhald slíkra byggða áætlana.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.