Vísir - 30.05.1967, Blaðsíða 10

Vísir - 30.05.1967, Blaðsíða 10
10 V í SIR . Þriðjudagur 30. maí 1967. Borun á Akranesi bar ekki áranqur NORÐURLANDSBORINN svo- nefndi er nú kominn á Seltjamar- nes eins og skýrt var frá í frétt hér f blaðinu. Blaöið rabbaði við ísleif Jónsson, verkfræðing hjá jarðhitadeild Raforkumálaskrifstof- unnar í því tilefni. — Er hætt við boranir á Akra- nesi? , — Þeir voru komnir eins djúpt og borinn komst, eða 1400 metra. — Fékkst vatn úr þeirri holu? — Það kom mjög lítið rennsli úr holunni, an hitinn var kominn yfir 150 stig þegar síðast var mælt. — Hvar er verið að bora á Sel- tjarnarnesinu? — Norðurlandsborinn var á Sel- tjanarnesi i tyrra, eða nánar til- tekið við Bygggarð, norðan á nes- inn. Nú er hann aö dýpka holu við Bakkavör, sunnan á nes- inu, en þar hefur hitinn mælzt nokkru meiri en á samsvarandi dýpi að norðanveröu. Úr borhol- unni við Bygggarð renna nú fjórir lítrar á sekúndu af 80 stiga heitu vatni. — Hvaö er annars helzt að frétta af framkvæmdum á vegum jarð- hitadeildarinnar? — Nú fara rannsóknarboranir að hefjast vítt um landið. Það má segja að boranir gangi nú oröið allt áriö, en mestu framkvæmdirn- ar eru þó alltaf á sumrin. Katlarnir í kyndistöð Árbæjarhverfis komnir Katlarnir ■' kyndistöðina í Árbæjarhverfi eru nýlega komnlr til landsins. Þeim hefur þegar verið komið fyrir að einhverju levti í húsnæði kyndistöðvarinnar, en kyndistöð Joan Littlewood Franh. at bls. 1 er héJt héðan í morgun. Það hef- ur nú veHð staðfest, aö Joan Littlewood, enska leikhúsmann- eskjan mun ekki koma á nám- skeiðið, en hennar hafði verið von og átti hún þá að flytja er- indi. Bandíiissg kvennn 50 nrn Bandalag Kvenna í Reykjavík war stofnað 30. maí 1917, og er því 50 ára í dag. Tilgangurinn með stofnun þess var tvíþættur, annars vegar aö fá hin ýmsu kvenfélög bæjarins til að vinna sameiginlega að þeim þjóðþrifa og menningarmálum, sem bau gátu orðið sammála um, og hins vegar að auka kynningu og samstarf kvenna. Bandalagið hefur haft afskipti af fjölda mörgum þjóðþrifa og menningarmálum, og komið mörgum þeirra meira eða minna áleiðis, en önnur eru í deiglunni. Ríkisútvarpið hefur sýnt samtök- in á að vera tilbúin t5I notk- unar fyrir haustið. Katlarnlr hafa samanlagt sömu afkastagetu og stærri ket- illinn í varastöðinni við Elliða- ár. unum þá vinsemd að leyfa Banda- laginu að segja frá starfi sínu í út- varpinu í kvöld. Verður fyrst sögð saga þéss í fáum orðum. en síðan munu nefndir skýra frá sérmálum sínum. Er hér tækifæri fyrir al- menning að kynnast þessu merka starfi. Sovézk herskip á Miðjorðarhofi? Blaðið A1 Ahram i Kairo, sem er hálfopinbert málgagn, segir að sézt hafi til sovézkra herskipa á austurhluta Miðjarðarhafs, í fyrsta sinn síðan styrjaldarhættan för að magnast á landamærum ísraels. Blaðiö segir, að til herskipa 6. flotans bandaríska, sem hefir bæki- stöðvar á ftalíu, sjáist oftar og víð- ar en áður, og einnig virðist tals- vert meira um að vera en áður í flotastöðvum Breta á Kvpur og Mið iarðarhafi. Blaðið getur ekki heimilda. Talsmaður sjötta Bandaríkjaflot- ans sagði í lapoli í gær, að sér væri ekki kunnugt um auknar ferð ir ba”darískra herskina á Miðjarð- arhafi. Síðasta málverka- uppboðið Síðasta málverkauppboð Sigurð- ar Benediktssonar að sinni verður haldið í dag í Súlnasal Hótel Sögu kl. 5 síðdegis. Verða þar til sölu 46 málverk og 'ein höggmynd, „Eva yfirgefur Paradís", eftir Ásmund Sveinsson. 'Meðal málverkanna, sem verða á uppboöinu eru 14 Kjarvalsmálverk þar af þrjú ný, fjórar myndir eftir Ásgrím Jónsson, eitt málverk eftir Tryggva Magnússon og mörg fleiri eftir ýmsa listmálara. BIFREIÐASTJÓRI Karl eða kona gétur fengið starf nú þegar við skeytaútsendingu ritsímans. I Upplýsingar í síma 22079. Ritsímastjóri • t Við flytjum innilegar alúðarþakkir ykkur öllum, sem með margvíslegum hætti auðsýndu okkur samúð og vin- áttu við fráfall elskulegs iginmanns míns, sonar okkar, tengdasonar, bróður og tengdabróður, EGILS BENEDIKTSSOM, flugstjóra. Steinunn E. Jónsdóttir. Benedikl Gíslason, Geirþrúöur Biarnadóttir, Jón Pálsson, Kr'stín Þórðardóttir, systkin og tengdasystkin. Radarmælmg — Framhald ai bls. 16. Benzinn sé nokkurri ferð. Mæl- irinn sýnir 60 km. „60 km.“, segir Jón við Þor- stein. „Hvítur Benz á 60. Stöðvið hann!“ kaliar Þorsteinn í ..labb- rabb“tæki, sem hann heldur á. Viö lítum upp og reynum að koma auga á þá, sem Þorsteinn var að kalla í. Innar á Lauga- veginum sjáum við 2 lögreglu- þjóna á bifhjólum. Um leið heyrist í „labb-rabb“-tækinu: „Hvítur Benz, já. Hver var hraðinn á honum?“ ,,60“, endurtekur Þorsteinn. „60“, heyrist í tækinu haft upp eftir Þorsteini. „Hvað eruð þið búnir að stöðva marga hér?“ spyrjum við. „Við skulum sjá “ Þorsteinn athugar línuritið. „Við erum búnir að stöðva nokkra á þess- um klukkutíma. 18 hafa ekið á um og yfir 60 km. hraða, þar af 5- yfir 70 km hraða. — Ann- ars, eins og þú sérð hér, eru langflestir á hraöanum 40—45 km.“ „Blár Landrover á 60 km. Stöðv- iö hann.“ Þorsteinn hefur komið auga á annan til viðbótar. sem ekur á 60 km. hraða. Við yfirgefum Þorstein og Jón og hröðum okkur til lögregluþjón- anna á bifhjólunum. „Það var fylgzt með hraða yðar á radar, hér rétt neðar. Þér ókuð á 60 km. hraða yfir merkta gang- braut og fram hjá strætisvagna- biðgkýii." Þeir eru búnir að stööva öku þórinn og eru aö spjalla við hann. Hann svarar fáu og nafn hans, bíl- númer og ökuskírteinisnúmer er skrifaö niður. síðan má hann aka burt. Það eru þeir Guðmundur Sigurðs- son nr. 123 og Sævar Gunnarsson nr 113, sem þarna eru að verki. .„Þið eruð allir frá umferðardeild- inni, er það ekki? „Jú, það erum við.“ „Stöðviö ,-auða Benzinn. sem kemur þarna á . .!“ gellur í „labb- rabb“-tækinu. Jón og Þorsteinn eru greinilega vel á verði. Þeir ganga út á brautina og j stöðva rauðan Benz, sem kemur j aðvífandi. i „Hvað er að?“ kveður við i öku- ; manninum. Hann snýr sér að j þriðja lögreglumanninum. sem kom ið hefur að í þessu. Það er Magnús i Einarsson í umferðardeildinni. — 1 „Hvern fjandann meinarðu Magn- ús? F.g var nákvæmlega á 35 km. og ekki oroti úr km. ylir þaö.“ Þetta er auðs.iáanlega gamal kunn ungi. sem þarna e> á l'erö. ,Þaö þýðir sko ekkert fyrir þig að þræta fyrir betta X. Þú mæld- ist vera á . . “ og við heyrum ekki hvað Magnús segir meira. „Hvernig taka menn þvi. þegar þið stöðvið þá?‘ spyrjum við Guð muníl ofe Sævar | „Þeir taka oessu oftast meö; Imest.u ró og spekt. i inn sagði þó við okkur áðan, að fólki færi bráð-" lega .að verða illa við okkur og þess væri aö vænta, að eitthvaö yrði „gert í því“ Ég vissi nú ekki,^ hvað hann hafði í huga. En viö leiðum slíkt hjá okkur eftir beztu getu.“ Magnús er nú kominn aftur og sá á rauða Benzanum farinn. „Þetta var kunningi okkar, gam- all.“ „Hefur verið mikið að gera?“ spyrjum við?“ „Já. Það er búin að vera mikil törn hjá strákunum í umferðardeild inni undanfarna daga. Ekki aðeins á vöktunum, heldur líka stöðugar aukavaktir." Nú gellur í „labb-rabb“-tækinu á ný og innan stundar eru þeir Guð- mundur og Sævar búnir að stöðva eina 3 bíla, hvern á eftir öðrum. Aherzla — Framh. af bls. 16. undirbúningstíma sínum og sagði hann upp af þeim sökum, en tveir hafa sagt upp af öryggisástæöum, ef í embætti skattarannsóknar- stjóra veldist maður, sem ekki hefði þá menntun er veitti þeim réttindi til undirbúnings prófi í lög- giltri endurskoöun. Þótt erfitt sé að missa góða og þjálfaða starfsmenn munu nýir ráðnir þegar í stað og áherzla á það lögð að hin mikilvæga starf- semi skattarannsóknardeildar lam- ist ekki á neinn hátt. Má af framan greindu vera ljóst, að uppsagnir starfsmanna eiga sér eðlilegar or- sakir og benda ekki til glundroða eða stefnubreytingar í skattaeftir- /iti“. Fyrirlestur — Framhald at b>s 16 ára skeið og hefur á undanförnum árum verið ráðunautur bankans varðandi áætlunargerö. í þvi sam- bandi hefur hann heimsótt fjölda landa bæði til að kynna sér áætl- unargerð og í leiðbeiningarskyni. Eftir hann liggja nokkrar bækur um efnahagsþróun og áætlunar- gerð. Öllum er heimill aðgangur að fyrirlestrinum. Hægri ukstur — framh. af bls. 16. var tillagan kolfelld.. Síðustu skoðanakannanir benda til þess að nú sé 75% Svía fylgjandi ’ breytingum. Gert er ráð fyrir aö 90%Svía verði orðnir einhuga með breytingunni á H-daginn sjálfan. — Hvernig skipuleggur um- ferðarnefndin starf sitt? — Það er ekki gott að lýsa því í stuttu máli. En skrifstofur henngr skiptast í fimm déildir, lögfræðideild, umferðarverk- fræðideild. deild sem sér um upp byggingu á sporvagnakerfi, strætisvagnakerfi o.s.frv. rann- sóknardeild, sem framkvæmir víðtækar rannsóknir I sambandi við það sem er að gerast og um ferðaröryggisdeild, sem er lang stærsta deildin. Alls vinna rúm lega 50 manns á vegum fram- kvæmdanefndarinnar í aðalstöðv um hennar. — Hvað á brevtingin að kosta samkvæmt áætlun? — Um 600 milliónir sænskra króna. Þar af er vinnulauna kostnaður aðeins lítill hluti eða um 9 milljónir sænskra króna Ein ástæðan er sú að mikill fjöldi einstaklinga og samtaka vinnur í þágu hægri um ferðar sem sjálfboðaliðar. Skól- ar, kirkjan, og vnnis umferðar- málasamtök og fleiri aðilar taka virkan þátt í undirbúningi að breytingunni í hægri umferð. BORGIN BELLA „Heldurðu, að þú verðir ekki svo vænn að lána mér nýja bíl- inn þinn yfir helgiha. Ég lofa þér því, að ég skal ekki fara meö hann, eins og ég ætti hann sjálf“. VEÐRIÐ I OAG Sunnan gola og bjart með köflum en hætt við smá skúrum síödegis. Suðaustan gola ! og bjartviöri í nótt. TILKYNNINGAR Fyrirlestur í Háskólanum. Mr Albert Waterston, aðalsér- fræðingur Alþjóðabankans í á- ætlunargerð, sem er hingað kom- inn í boði Efnahagsstofinunarinn- ar, flytur fyrirlestur á vegum Viðskiptadeildar Háskóla Islands og Hagfræðafélags Islands í dag. þriðjudaginn 30. maí, kl. 17.15, í fyrstu kennslustofu Háskólans. ’Fyrirlesturinn mun fjalla um gerð efnahagsáætlana og þá reynslu, sem fengizt hefur af áætlunargerö á umliðnum áratug- um. Kvenfélag Óháða safnaðarins. Fimmtudagskvöldið 1. júní verðut farið í heimsókn til Kvenfélags- ins í Keflavík. Upol. í síma 34465 og 34843. Basarinn verður laugardaginn 3. júní, Tekið veröur á móti bas- armunum föstudag, 2. júní kl. 4—7 og laugardag, 3. júní kl. 10 —12. í Kirkiubæ. Kvennaskólinn í Reykjavík. Þær stúlkur, sem sótt hafa um skólavist i Kvennaskólanum í Reykjavík eru beðnar að koma til viðtals í skólanum fimmtudag inn 1. júní kl. 8 síðdegis og hafa með sér prófskírteini. Skólastjórinn. EI TT8 tzXm R líruiri HH Tapab — Fundib 6 kr. í peningum (einn 5 kr. seðill og einn 1 kr.) tönuðust í gær. Skilist gegn fundarlaunum á al'greiðslu Vísis. 30. maf 1917. HMBnnHHWSVXM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.