Vísir


Vísir - 30.05.1967, Qupperneq 16

Vísir - 30.05.1967, Qupperneq 16
miMfllll.ltHllllllM VI s IR Þnðjudagur 30. maí 1967. Waferston flytur fyrirlesfur í dag Albert Waterston, aðalsérfræð- ingur Alþjóðabankans í áætlunar- gerð, sem hingað er kominn í boði Efnahagsstofnunarinnar, flytur fyr- irlestur á vegum Viðskiptadeildar Háskóla Islands í dag kl. 17.15 í 1. kennslustofu. Fyrirlesarinn mun fjalla um gerð efnahagsáætlana og þá reynslu, sem fengizt hefur á umliðnum ára- tugum. — Waterston hefur starfað við Alþjóðabankann um tuttugu Framhald á bls. 10. „HvíturBenz á 60, stöðii Lögreglan i radarmælingum á hin- um „teppalögðu" götum (Bj „Um leið og malbikið hefur verið lagað, þá eykst hrað- inn“, sagði Jón Gunnarsson, lögregluþjónn nr. 141 við Vísi í gær. Hann og Þorsteinn Steingrímsson, lögregluþjónn nr. 78, sátu í lögreglubifreið gegnt skrifstofum Vísis við Lauga- veg 178 og mældu hraða umferðarinnar inn Laugaveginn og Suðurlandsbrautina. Við höfðum fylgzt með þeim félögum út um gluggann hjá okkur á Vísi nokkra stund, en stóðumst að endingu ekki mátið og gengum út til þeirra til skrafs og ráðagerða. „Hvað er á seyði hjá ykkur?“ „Við erum aö mæla hraðann á bílunum, hér á nýmalbikaöa kaflanum. Notum til þess rad- arinn, sem þú sérö hér.“ Það var Jón Gunnarsson, sem varð fyrir svörum, og um leið benti hann á apparat fyrir fram- arb sig, undir mælaboröinu á bílnum. Þetta var lítill kassi með nokkrum tökkum, mæli- skífu og vísi, sem slóst til og frá. Skífan sýndi tölur frá 0 og upp í 160 km. „Getið þið lesiö beint af mæl- inum hraöa bílanna?" „Já. Svo höfum viö sjálfrita aftur í bílnum. Hann gerir línu- rit af umferðinni jafnóðum. Það er hægt aö sjá hraða bílanna af honum líka.“ Þorsteinn Steingrímsson sat undir stýri lögreglubifreiðarinn- ar og beinir athygli okkar að hlut, sem var ekki óáþekkur ljóskastara 1 útliti. „Þetta er appara^.ið, sem bein- ir radargeislanum í þá átt sem við viljum." „Hvaö er geislinn breiður?" „Hann er ekki breiður fyrst, en breikkar fljött þegar lengr? dregur, og er orðinn geysibreið- ur á 10 metrum.“ Þorsteinn hefur haft auga með umferðinni á meðan og segir nú snöggt: „Þarna kemur hvítur Mecedes Benz á tals- veröri ferð,“ Viö fylgjumst með í mælitæk- inu og ekki ber á öðru, en Framhald á bls. 10. Magnús Einarsson hjá sjálfritaranum. Svíarnir þóttu tii lítils sóma Lítill sómi var frændum okkar Svíum að komu tundurspillisins Hallands hingað til Reykjavíkur. Dátamir þar um borð virtust ekki búa við mikinn aga, ef dæma má eftir framkomu þeirra í landi. Hvar vetna blöstu við mönnum niðri í bæ fullir sjóliðar á föstudags- og laug- ardagskvöld, og framkoma sumra beirra með mestu endemum. Sáust veir kasta af sér vatni utan við hús á almannafæri, og einn mann léku þeir svo illa að það stór sér á hon- um á eftir. Hittu þeir hann á götu báðu hann um eld í sígarettu og begar hann hafði gefið þeim það, -lógu þeir hann. Fékk hann glóð- ’.rauga á bæði og marbletti og hrufl ur. Þetta vom verstu dæmin, en drykkjulæti sjóliðanna vöktu al- ■nenna athygli. Það er orðið langt síðan sjóliðar á herskipum sém hingað hafa komið í heimsókn, hafa Enri meðvifuEid- arlous Stúlkan sem slasaðist austur við Skógafoss á miðvikudaginn í síð- ustu viku, er enn meðvitundarlaus, samkvæmt þeim upplýsingum, sem Vísir fékk á Landakotsspítala í morgun. Hefur hún ekki komið til rneðvitundar frá því að slysiö varð. sézt á götunum svona ölvaðir al- mennt. á að starf- semin iamist ekki Haldið áfram á sömu braut i skattarannsóknum Guðmundur Skaftason skatta- rannsóknarstjóri hefur sagt starfi sínu lausu, svo og þrír aðrir starfs- menn skattarannsóknardeildar. — í yfirlýsingu frá fjármálaráðuneyt- inu segir: „Meö stofnun Skattarannsókna- deildar var ákveðið að gera skipu- lagsátak til að uppræta skattsvik. Hefur þegar orðið mikill árangur af starfi deildarinnar, sem er fyrst og fremst að þakka skynsamlegum vinnubrögðum skattarannsókna- stjóra. Það hefur verið mikið og erfitt verkefni að leggja grundvöll að þessari nýju starfsemi og því ánægjulegt að jafn hæfur og vel menntaður maður og Guðmundur Skaftason fékkst til að vinna þetta brautryðjendastarf. Harmar ráðu- neytig að fá ekki notið starfskrafta hans áfram. Ekki hefir verið um ágreining að ræða milli ráðuneyt- isins og skattarannsóknarstjöra. — Hefur ráðherra ítrekað leitað eftir að fá hann til að falla frá lausnar- beiðni sinni og hefur af þeim sök- um dregizt að staðan væri auglýst. (Hún hefur nú verið auglýst). Um uppsagnarfrest þriggja starfs manna deildarinnar er það að segja að menn þessir réðu sig fyrst og fremst með þaö í huga að undirbúa sig undir að fá réttindi sem löggiltir endurskoöendur. Einn hpfur lokifi Framb. á hls 10 StöBug fjölgun þeirra, sem eru hlynntir hægri akstri / Svíþjóð Rætt v/'ð Pétur Sveinbjarnarson umferðarfulltrúa, sem er ný- kominn úr heimsókn til sænsku hægri nefndarinnar □ Það dylst engum, sem kcmur til Svíþjóðar um þessar mundir, hvað í vændum er. Hvarvetna getur að líta augiýs- ingar sem snerta þá fyrirætlun Svía að breyta úr vinstri um- ferð yfir í hægri umferö 3. september nk. Hin víðtæka upp- lýsingaherferð framkvæmdanefndar hægri umferðar i Sví- þjóð setur og mikinn svip á dagskrá útvarps og sjónvarps og lesefni blaðanna. Það er lögð inikil áherzla á að fræða sænskan almenning, ekki aðeins um hægri umferð, heldur um umferðarmál almennt, sagði Pétur Sveinbiarnarson, um ferðarfulltrúi umferðarnefndar Reykjavíkur í stuttu samtali við Vísi í gær. Pétur hefur undanfarinn hálf- an mánuð dvaliö í Svíþjóð til að kynna sér starfsemi fram- kvæmdanefndar hægri umferð- ar Megintilgangurinn ineð ferðinni var tvíþættur, sagði Pétur. Annars vegar fór ég til að kynnast starfsemi sænsku framkvæmdanefndarinnar. Hins vegar til að kynnast upplýsinga og fræðslustarfsemi í sambandi við breytinguna í hægri umferð. Þá fór ég til borgarinnar Norr- köping til að kynna mér hvern- íg ein borg vinnur úr heildár- áætlun framkvæmdanefndarinn ar miðað við sína sérstöku stað hætti. Undirbúningurinn í Svfþjóð hefur skipzi í fimm sjálfstæða meginþætti sem. allír eiga þó eitt sameiginlegt: Kynningu á umferðarmálum almennt. Jafn- framt þessu hefur orðið ger- breyting á umferðarfræðslu f útvarpi, sjónvarpi og blöðum. T.d. vinna 40 manns h.iá sænska sjónvarpinu, eingöngu við það að búa til umferðarþætti Aðal- herferöin fyrir H-daginn 3. sept. hefst nú upp úr miöjum ágúst og nær hámarki sínu á H-dag- inn sjálfan. Daginn áður en breytingin tekur gildi kemur handbók um hægri umferð inn á hvert einasta heimili í'Svfþióð. — Hvemig eru viðhorf al- mennings til hægri umferðar? — Þegar fram fór þjóðarat* kvæðagreiðsla fyrir 10 árum Framhald á bls. 10.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.