Vísir - 13.07.1967, Page 2
V I S IR . Fimmtudagur 13. júlí 1967.
Vestmannaeyingar unnu
Hauka / gœr, 3:2
og Þróttur vann Breiðablik, 4:2
Einn þýðingarmikill leikur i B-
riöli 2. deildarkeppninnar var
leikinn í Vestmannaeyjum í gær-
kveldi. Vestmannaeylngar slgruðu
þar Hauka úr Hafnarfirði með 3
mörkum gegn 2 1 jöfnum og mjög
spcnnandi lelk. í hálflelk var stað-
an 2—0, Vestmannaeyingum f vil.
I fyrri hálfleik voru Vestmanna-
eyingar sterkari aðilinn, eins og(
markatalan i hálfleik gefur til |
kynna, en Haukar sóttu sig í slðari
hálfleik. Þeir skoruðu fyrra mark
sitt úr vítaspyrnu, 2—1, en Vest-
mannaeyingar svöruðu með 3—1,
einnig úr vítaspymu. Síðan skoruðu
Haukar annað mark sitt, 3—2, og
undir lokin sóttu Haukar nokkuð
og áttu tækifæri til að jafna, en
tókst ekki.
Á þriðjudagskvöld var leikinn
einn leikur í A-riðli 2. deildar-
keppninnar í Kópavogi. Léku þar
heimamenn, Breiðablik, gegn Þrótti
úr Reykjavík. Þeim leik lauk með
verðskulduðum sigri Þróttar, 4—2,1
en í hálfleik var staðan 2—1,1
Þrótti í vil. Þróttarar vom allan I
tímann betri aðilinn í leiknum og
komust í 4—1, en Breiðablik skor-
aði síðasta mark leiksins rétt í lok-
in, þannig að endanleg úrslit urðu
4—2 fyrir Þrótt.
Staðan i riðlunum í 2. deild er
nú þessi:
A-riðill:
Þróttur 4 3 10 10—5 7
Breiöablik 4 2 11 7—5 5
Selfoss 3 1 0 2 2—5 2
Siglufjörður 3 0 0 3 2—8 0
Næsti leikur er á föstudag, en þá
leika á Selfossi heimamenn við
Breiðablik. Á sunnudag leika á
Siglufirði heimamenn við Þrótt, og
verður sá leikur kl. 16.00.
B-riöill.
1 B-riðli er staðan nú þessi, að
loknum leiknum í Vestmannaeyj-
um i gærkveldi.
Vestm.eyjar 3 2 1 0 6—4 5
Vfldngur 4 2 11 12—5 5
Haukar 3 2 0 1 6—4 4
Isafjörður 4 0 0 4 3—14 0
Næsti leikur í þessum riðli er
á sunnudaginn kemur. Þá leika í
Reykjavík, Melavelli, kl. 16.00
Víkingur og Vestmannaeyjar, en
það er ieikur, jem ræður miklu um
úrslit þess riöils, eins og taflan
gefur til kynna.
Þorsteinn, Guð-
mundurHog JónÞ
— meðcr/ keppenda á Meistaramótinu i kvöld
3. flokkur
til
Dunmerkur
Knattspyrnuflokkur frá Þór í
Vestmannaeyjum er nú á förum
til Danmerkur. Er þetta flokkur
3. flokksdrengja félagsins, sem
mun endurgjalda Söborg Bold-
klub helmsóknina til íslands í
fyrra.
Hópurinn fer utan 25. iúli og
kemur aftur 8. ágúst, en flogið
verður báðar leiðir.
e
«
e
Aðalhluti Meistaramóts Reykja-
víkur í frjálsum iþróttum hefst á
Laugardalsvellinum í kvöld kl.
20.30. Keppninni mun síöan ljúka
annað kvöld. Flestir beztu frjáls-
íþróttamenn höfuðborgarinnar taka
þátt í þessu móti, og að auki
nokkrir góðir gestir úr nágrenni
borgarinnar.
1 kvöld má búast viö skemmti-
legri keppni. Má t.d. benda á 800
m hlaupið, en þar munu þeir Hall-
dór Guðbjörnsson og Þorsteinn
Þorsteinsson bítast um sigurinn, en
Þorsteinn er væntanlegur ásamt
Erlendi, Arnari og Sigurði Hjör-
leifssyni úr keppnisferðinni til
Noregs með hinni nýju þotu Flug-
félagsins kl. 16.00 í dag og munu
þeir þvi fara beint í keppnina hér
f kvöld.
Guðmundur Hermannsson keppir
í kúluvarpi, og ef honum tekst vel
upp, eru 18 metramir ekki iangt
framundan hjá honum.
Jón Þ. Ólafsson er meðal kepp-
enda i hástökki, og nú má búast
við aö har. fari yfir 2 metrana í
fyrsta skipti úti á árinu, en að-
hlaupsbrautin í hástökkinu á Laug-
ardalsvellinum er nú fyrst að
komast í samt lag eftir veturinn.
Þá verður og keppt í mörgum fleiri
skemmtilegum greinum, en keppnin
hefst eins og fyrr segir á Laugar-
dalsvellinum kl. 20.30 i kvöld, og
lýkur á sama tíma annaö kvöld.
Nýjasta sundstjarna Frakka
er 17 ára stúdent
ALAIN MOSCONI heitir 17
ára gamall franskur sundkappi,
sem skotizt hefur fram í svlös-
ljósið á stuttum tíma. Hann
setti nú nýverið glæsilegt heimS-
met í 400 m skriðsundi á franska
stúdenta sundmeistaramótinu
Þetta er Alain Mosconi, hin nýja
sundstjama Frakka.
og synti á hinum frábæra tima
4.09,2 mfn., en gamla metiö, sem
hann átti sjálfur ásamt Banda-
rfkjamanninum Spltz var 4,10,6
mfn., svo að sjó má að hér er
um geysilega framför að ræða.
hjá hinum franska sundkappa,
þvf að hann hafði jafnað heims-
mctlð aðeins tveimur dögum
fyrr.
Það má með sanni segja, að
hinn ungi franski sundmaður
verðskuldaði metið, þvf að í októ
bermánuði tók hann þátt f sund-
móti því, sem fór fram f sam-
bandi við reynslu-olympíuleik-
ana í Mexfkó, sem þá voru
haldnir, og setti þá glæsiiegt
heimsmet í 400 m skriðsundi,
en við nánari athugun kom í
ljós að brautin var 48 cm of
stutt, þannig að metið var tekið
af honum. Sfðan hefur Mosconi
tekið æfingar sínar mjög alvar-
lega og árangurinn hefur ekki
látið á sér standa, eins og að
framan segir.
Auk þess að hafa sett fyrr-
greint met f 400 m skriðsundi,
stórbætti Mosconi metið í 800
m skriðsundi úr tímanum 8.47,3
mfn. f 8.46,8 mín. sem nú
var að vísu bætt enn frekar sl.
sunnudag. Og hver er hans
heitasta ósk í dag? Að verða
olympíumeistari. Og hann horfir
bjartsýnum augum til Olympfu-
leikanna í Mexíkó á næsta ári
og menn telja hann mjög lík-
legan sigurvegara í 400 m skrið-
sundi, ef ekkert óvænt kemur
fyrir.
Hér á eftir fer skrá yfir
heimsmetin og methafana f 400
m skriðsundinu undanfarin ár:
1956: 4.27.0 mín.
Murray Rose, Ástralía.
1958: 4.25,9 mín.
John Konrad, Ástralía.
1958 4.21,8 mín.
John Konrad, Ástralía.
1959: 4.19,0 mín.
John Konrad, Ástralía.
1959: 4.16,6 mín.
Ymananaka, Japan.
1960: 4.15,9 mín.
John Konrad, Ástraiía.
1962: 4.13,4 mín.
Murray Rose, Ástralía.
1964: 4.12,7 mín.
Don Schoilander, USA.
1964: 4.12,2 mfn.
Don Schollander, USA.
1966: 4.11,8 mín.
Nelson, USA.
1966: 4.11,6 mín.
Don Schoiiander, USA.
1966: 4.11,1 mín.
Frank Wigand, A.-Þýzkaland.
1967: 4.10,6 mín.
Spitz, USA.
1967: 4.10,6 mín.
Alain Mosconi, Frakkland.
1967: 4.09,2 mín.
Alain Mosconi, Frakkland.
Þegar Valur vann KR...
Þessi skemmtilega mynd er tekin úr hinum afdri farfka Ieik milli KR og VALS á mánudagskvöidið.
Það er Eyleifur Hafsteinsson, bezti leikmaður KR, sem þarna er aö spyrna í átt að markinu, en Vals-
maðurinn Bergsveinn Alfonsson ber hönd fyrir an dlit sér til aö forðast aö fá knöttinn í andlitið. —
Nokkru aftar má sjá Baldvin Baldvinsson, KR, o g Valsmanninn Sigurjón Gíslason. (Ljósm. Bjaml.).