Vísir - 14.07.1967, Page 2
GuSmundur bætti metið í
kúíuvarpi enn í gærkvöldi
— n'iunda sinn á árinu sem hann bætir jboð
Stigakeppni Reykjavíkurfélaganna í frjálsum íþróttum, Meist-
aramót Reykjavíkur, virðist eftir öllu að dæma helzt eiga að fara
fram fyrir luktum dyrum. Mótið hófst f gær og var vægast sagt
langdregið, enda virtust KR og ÍR leggja mikla áherzlu á að hafa
sem flesta þátttakendur og margir gengu á miili greina, seinkuðu
framkvæmdinni og eyðilögðu þá skemmtun, sem mótið hefði
eflaust getað veitt að öðrum kosti.
Guðmundur Hermannsson
brást ekki fremur en fyrri
daginn, setti nú 9. Islandsmetið
sitt á þessu ári í kúluvarpinu,
— lengsta kast hans að þessu
sinni var 17.81, en annar f þess-
ari grein var Amar sonur hans,
náði einnig sínum bezta árangrl
til þessa, 15,07, en keppinautur
hans Erlendur Valdimarsson
varpaði 14.98. Til gamans má
geta þess að Guðmundur varð
meistari á þessu móti f fyrra,
varpaði 15.05. í fyrrahaust leið-
rétti hann stíllnn og árangurinn
hefur sannarlega ekki látið á
sér standa.
Önnur skemmtileg grein var
800 metra hlaupið, en vegna seink-
unar á öllu mótinu féll það ónota-
'lega í skuggann af minni háttar
viðburðum. Það var gaman að
fylgjast með Þorsteini Þorsteins-
syni í þessu hlaupi, sem hann vann
léttilega, og var vart hægt að
greina aö hann væri fyrir örfáum
klukkutímum kominn heim til
landsins úr erfiðu keppnisferðalagi.
Þorsteinn hljóp á 1.54.4 mín., sem
er ekki sem verstur árangur. Hall-
dór Guðbjörnsson varð annar á
1.58.5, þó hann væri þá nýlega
búinn að „skokka“ 5000 metra
hlaúp einn og yfirgefinn.
Þorsteinn og Halldór urðu ann-
ars báðir sigurvegarar nokkuö ó-
vænt í greinum, Þorsteinn renndi
sér fram úr Valbirni í 200 metra
hlaupinu og fengu báðir tímann
22.7 sek., og Halldór skellti sér í
'400 metra grindahlaup og sigraði
á góöum tíma, 56.0 sek. og hafa
byrjendur í þessari grein eflaust
sjaldan gert það svo gott. Þórarinn
Arnórsson, ÍR, var skæðasti keppi-
nauturinn í þessari grein, hljóp á
57.2 sek. Halldór vann 5 km.
hlaupið á 16.21.3.
En svo talað sé um óvænt úrslit
verður að geta sigurs Jóns Þ. Ól-
afssonar í langstökkinu, þar náði
hann sínum bezta árangri, 6.76 og
vann hann þar Ólaf Guðmundsson,
sem stökk 6.72 metra. Hástökkið
vann Jón, stökk 1.93 metra og
hætti síðan og í spjótkasti varð
Jón annar á eftir Valbirni Þorláks-
syni. Jón kastaði 53.50, en Val-
björn 60.26 metra. Þá var Jón í
boðhlaupssveit ÍR f 4XÍ00 metr-
unum. Hvað vakir fyrir Jóni yfir-
leitt er ráðgáta, — hvort það er
hástökk eða tugþraut, sem verður
aðalgrein Jóns veit enginn.
Skemmtilegra væri þó aö sjá Jón |
reyna við hæðir eins og 2.15 eða |
þaðan af hærra í hástökkinu en
meðalmennsku í nokkrum greinum.
Fjórar kvennagreinar fóru fram
í gærkvöldi og verður það að segj-
ast eins og er að fæstar áttu stúlk-
Verðlaun afhent fyrir kúluvarp,
Viðbragðið f 800 m hlaupinu.
urnar nokkurt erindi fram fyrir
áhorféndur, sem voru allmargir í
gærkvöldi, kunnu of lítið og voru
greinilega sendar fram í þeim til-
gangi einum að afla félögum sín-
um stiga.
I 100 metra hlaupinu var hörð
keppni milli ÍR-stúlknanna Berg-
þóru Jónsdóttur og Önnu Jóhanns-
dóttur, báðar hlutu sama tíma,
13.9 sek., en Bergþóra sjónarmun
á undan. f hástökki sigraði Fríða
Proppé, ÍR, stökk 1.40 metra. Fríður
Guðmundsdóttir, ÍR, vann kúlu-
varp meö 8.50 metra kasti og Fríð-
ur vann einnig kringlukastið, kast-
aði 30.61 metra.
Stigakeppni félaganna stendur
nú þannig, þegar keppni fyrri dags
er lokið að KR hefur 160.5 stig,
ÍR hefur 150.5 stig og Ármann 19
stig.
f kvölc. verður keppt í 100" metra
hlaupi, 400 metra hlaupi, 1500
metra hlaupi, 110 metra grinda-
hlaupi, stangarstökki, þrístökki,
•kringlukasti, sleggjukasti, 4x400
metra boðhlaupi, 200 m. hlaupi
kvenna, spjótkasti kvenna og 4X
100 metra hlaupi kvenna.
Einbýlishús
Einbýlishús á eignar-
landi til sölu á góðum
stað. 6 hektarar lands
i með trjágróðri. Útborg-
un 650 þús. Skipti koma
til greina.
Fasteignasalan
Sími 15057
Kvöldsími 15057
Selfoss—Breiðablik í 2. deild í
knattspyrnu á Selfossi kl. 20.30.
Leikurinn kann að hafa áhrif í riðl-
inum í deildinni, en Þróttur hefur
þar beztu stöðuna eins og er og er
einna líklegasta liðið f úrslitin i ár.
BIFREIÐ
TIL SÖLU
Ford Country Squere ’55 station
til sölu. Bíllinn er með 8 cyl.
vél með bilaða sjálfskiptingu,
gírkassi getur fylgt. Bíllinn er til
sýnis að Hólmgarði 35. Tilboð
sendist augld. Vísis merkt „Ford
Country Squere’* fyrir hádegi
laugardag.
LESENDUR TELJA K.R.-INGA
SIGURSTRANGLEGA í t. DEILD
Lesendur Vísis virðast á þvi
að KR farl með fslandsbikarinn
f knattspymu að þessu sinni.
Rétt um hundrað sendu inn get-
raunaseðla, sem birtust í einu
tölublaði Vfsis fyrir skömmu
og voru 62 þeirra á þvf að KR
mundi vinna að þessu sinni, —
enda ekki ólíklegt þegar þess er
gætt að í „ár er KR-ár“, þ.e.
KR hefur sigrað frá 1957 á
tveggja ára fresti og samkvæmt
því ætti KR að sigra, — og
sannarlega er KR meö í kapp-
hlaupinu aö þessu sinni ásamt
hinum Reykjavikurfélögunum,
Val og Fram.
Valsmenn fengu 18 atkvæði
f getrauninni og Framarar 16, en
Keflvíkingar fengu 3 atkvæði.
Um helgina heldur 1. deildin
áfram. Á sunnudaginn munu
Skagamenn reyna við KR hér
syðra, og væntanlega fara þeir
að verða erfiöari en verið hefur
að undanförnu á helmavelli
þeirra á Skipaskaga, enda þurfa
þeir sannarlega að halda á spöð-
unum, ætli þeir aö halda sér
uppi, en ennþá er sá „fræðilegi
möguleiki“ fyrir hendi, en það
mundi líklega aöeins gerast með
þeim hætti að þeir ynnu alla 4
leikina, sem eftir eru. Hins veg-
ar er vitað mál að KR-ingar
gefa ekkert eftir og munu leggja
sig alla fram við að ná sigri.
Hinn leikurinn á sunnudaginn
er leikur Akureyringa og Kefl-
víkinga nyrðra. Eflaust lenda
Keflvíkingar þarna í erfiöleik-
um. Þaö er komið fram 5 miðjan
júli og þá er ekkl að sökum
aö spyrja, norðanmenn komnir
i sitt bezta „form“ og illsigran-
legir ef að líkum lætur, ekki
sízt á heimavellinum.
Á mánudaginn verður loks
þriöji leikuripn t Laugardal.
Það eru Fram og Valur, sem
kljást þá fyrst fyrir alvöru um
toppsætið í 1. deildinni. Það er
ekki nokkur vafi á aö þar verð-
ur hörð barátta um stigin og
verður leikurinn væntanlega
skemmtilegur og spennandi.