Vísir - 27.07.1967, Síða 5

Vísir - 27.07.1967, Síða 5
 5 VI SIR . Fimmtudagur 27. júlí 1967. Vöxtur og vaxtarleysi Einn stærsti liöfuöverkur kon unnar í gegnum aldimar hefur löngum veriö að halda sér i hæfilegum holdum. Líklega lenda allar konur einhvemtima í því aö þurfa að grenna sig eða fita, þó aö hið fyrmefnda sé stórum algengara nú á dög um. Það er orðið æöi langt síð- an það var í tízku að vera hold- ugur og í dhg berjast allar tízku dömur og raunar allflestar ung- ar konur meira eða minna við að líkjast unglingspilti í vexti. Þetta er mikil og erfið barátta og ófá ráð hafa konum verlð gefin til að ná árangri. Að vlsu hafa hinar svokölluðu kynbomb ur alltaf haft leyfi til að hafa dálítið meira hold en tízku- dömurnar, enda munu margir karlmenn ekki vera alls kostar hrifnir af unglingspiltavextin- um. Hér á íslandi heyjum við líka þessa baráttu fyrir lfnunum og þær eru æði margar, sem ekki voga sér að mæta á bikini í sólbað, nema vera vissar um að enginn sjái tiI.Við lesum ógrynni af matarkúrum og mörgum tekst að ná árangri við að grenna sig, en þær eru samt ófáar, sem hafa gefizt upp við þetta allt saman og sitja heima óánægðar og leiöar og bryðja sælgæti sér til dægrastyttingar. Þær reyna kannski f nokkra daga, en gefast siðan upp og allt sezt f sama farið. Auðvitaö er stærsta orsökin í flestum tilfellum hreinlega skort ur á viljastyrk ,en traust á sjálfum sér og vissa um að þetta takist er undirstaða til að ná Hinn konunglegi enski skósmiður, Edward Rayne, hefur sent á markaðinn þykksólaöa kvenskó, eins og þá, sem voru I tízku á áratugnum milli 1940—1950. Þessir skór eru gulllitir með hálfháum hæl og munu kosta sem svarar um 1800.00 krónum fslenzkum. Hr.Rayne segir að þ?ssir skór séu sérstaklega gerðir vlð stuttu tízkuna. Hér til vinstri sjáum við þessa nýju skó, en til hægri eru skór frá 1948. árangri. Það er merkilegt að flestar konur, sem geta einu sinni grennt sig, verulega geta það oftast nær aftur. Hræðslan við að fitna verður þess oft vald andi ,að konur hugsa sí og æ um mat og smám saman fer matarræðið að hafa óeðlilega mikla þýðingu f lífi konunnar og árangurinn verður offita. Þessum konum skal ráðlagt að reyna að gera allt sem þær geta til að hugsa ekki um mat. Telja ekki hvern matarbita, sem þær láta ofan í sig, heldur reyna að beina huganum á önnur svið. Það er ekki tilviljun að flest- ar konur grennast þegar þær hafa eitthvað að glíma við sem tekur hugann, hvort sem það er skemmtilegt eða ekki. Ný áhugamál, tómstundaiðja eða einhverjar breytingar á lifnaðar háttum er æskilegt til að venja sig af ofátinu. Allir ósiðir, svo sem að kaupa sér sælgæti í hvert sinn sem skroppið er út að verzla, eða að taka ævinlega heilan nestis pakka með sér f rúmið, verða ag víkja, auk alls narts á milli mála. Ef ykkur tekst þetta, þá er hreint ekki vfst að þið þurfið svo mikið að hugsa um línum- ar, það sem eftir er. Kostirnir við svona megrun eru því mjög miklir, þar sem venjulegir mat arkúrar standa helzt ekki yfir nema nokkrar vikur, og þá er konan oft svo fegin að þessu er lokið og svo ánægð yfir að vera orðin grönn, að hún tekur til við átið ákafari en nokkru sinni fyrr. Ásamt þessari megr un, sem við vorum að tala um, er ágætt að stunda einhverjar lfkamsæfingar eða íþróttir, því þær gera það sem enginn kúr getur gert, þær styrkja og stæla vöðvana, auk þess sem góðar æfingar geta fegrað vaxtarlag og hreyfingar til mikilla muna. Það er ekki tilviljun, aö all flestar ballettdansmeyjar og leikfimikonur eru vel vaxnar, Uppáhaldsréttur ungfrú fsland Fyrir skömmu birtust í ensku blaði myndir af þremur feg- urðardrottningum og fylgdu myndunum uppskriftir af uppá- haldsréttum þeirra. Stúlkumar voru ungfrú England, ungfrú Indland og ungfrú fsland, Guð- rún Pétursdóttir. Þær eru allar sammála um að réttur matur sé mjög þýðingarmiklll fyrir út litið og heilsufarið og hér kem ur uppáhaldsréttur ungfrú ís- land: „OFNSTEIK f POTTI“ 3y2 lbs. neðri hluti hryggjar (útbeinaö). 1 tesk. salt. 14 tesk. garlic salt. Nýmalaður pipar. 2 bollar kjötseyði, niðursoð- iö eða seyði af 3 súputen- ingum. 3/i bolli chili sósa. 1V2 tsk. soyasósa. 4 þunnar lauksneiðar. Hitið ofninn í 425 gr. Látið kjötið í þungan pott og setjið í ofninn i 30 mínútur. Takið út og setjið kryddið, laukinn, kjötseyðið og sósumar saman wjlpfnr1; "• í isSBÉIiiÖa:: ' ::|1|| ■■ r' - jlp Kynþokki hefur sjaldan veriö eins í hávegum hafður og á síöustu tímum. Oft ganga tákn hans út i öfgar eins og við sjáum á vaxtarlagi nýlátnu kvikmynda- dísarinnar, sem myndin er af. Eins má minna á Twiggy, sem er hin andstæðan, en vöxt- ur hennar eða rétt- ara sagt vaxtarleysi hefur verið mikiö til umræðu. — Hvað sem tizkan kann þó aS heimta hverju sinni, hlýtur per- sónuleikinn þó alltaf að skipta mestu máli og segja miklu meira um konuna heldur en ummál og þyngd. þó að sumar séu að vísu heldur vöðvamiklar. Að öðru leyti má segja um megrun, að hver kona veröi að finna sér sína eigin aöferð við að grenna sig eftir hennar eig- in skaphöfn, sumar eru bráðar og nenna ekki að biða vikum saman eftir árangri, aðrar eru meira hægfara og taka þessu með ró og þolinmæöi. Það er líka ákaflega mismunandi hvern un, og margar konur hafa hceint ekki taugakerfi fyrir slíkt, að maður tali ekki um vinnugleð- ina, og lífskraftinn, sem gjama dvína stórlega imdir strongum kúr. Finnið ykkar eigin aðferð og vissan um að hún sé örugg og að þiö getið gripið til hennar hvenær sem þið þurfið á að halda, veröur til þess aö þiö þurfið aldrei að nota hana aftur. ig konur þola t.d. snögga megr Neyzla tómata fer sífellt vax- andi hérlendis og þeir seljast yf irleitt jafnóðum og þeir koma í verzlanir. Reynt hefur verið að frysta tómata og geyma til vetr- arins, en eftirspum er svo mikil eftir þeim, að ekki er gert ráð fyrir að neinar birgðir verði eft ir í haust. Tómatar eru mikið notaðir sem álegg og með ýms um kjöt- og fiskréttum, en þeir eru lfka mjög góðir bakaðir i ofni eða sterktir á pönnu, t.d. með eggi og bacon. Hreint tómatsalat er gert á eftirfarandi hátt: Tómatsneiöar eru settar £ skál ásamt smátt brytjuðum lauk og út á það er sett sósa úr 1 tsk. af frönsku sinnepi, salti og pipar og blöndu af ediki og olíu (einn hluti af ediki á móti 4 — 6 hlut- um af olíu). Bezt er að geyma salatið á köldum stað í nokkra tíma áður en það er borið fram. Ungfrú Island, Guðrún Péturs- dóttir. við, látið lok á pottinn og setj- ið í 374 gr. heitan ofn í 2^í klst. Snúið kjötmu nokkrum sinnum. Gerið sósu úr soðinu eftir að aukafita hefur verið fjarlægð. Borðist með bökuðum kartöfl- um. Nægir fyrir 4—6 manns. KENNARA VANTAR að Gagnfræðaskóla Húsavíkur. Aðalkennslu- greinar: erlend mál. Uppl. eru veittar hjá skólastjóra og Ingvari Þórarinssyni, formanni fræðsluráðs.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.