Vísir - 27.07.1967, Side 7
iTÍSIR . Fimmtudagur 27. júlí 1967,
7
orgtin
útlönd í morgun
útlönd í morgun , útlönd :
De Gaulle komim heim
hætti við Ottawa heimsóknina
De Gaulle kom til Parísar
í morgun og var hress og
kátur. Pompitlou og um 20
ráðherrar aðrir voru við-
staddir komuna.
DE GAULLE Frakklandsforseti
hætti í gær við Ottawaheimsðkn-
ina og flaug til Parísar. Kom sú
ákvörðun með öllu á óvart eftir
það, sem á undan var gengið. —
John Diefenbaker leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar sagði, að yfirlýsing
Pearsons forsætisráðherra hefði
ekki getað gert flugu skelkaða, —
og ákvörðunin (um að fljúga heim)
hefði verið „eigin ákvörðun de
Gaulle". Fulltrúi skilnaðarmanna á
Boumedienne.
HERVÆÐING
í ALSÍR
Fréttir frá Alsír í gær herma,
að hervæðing sú sem Boumedienne
fyrirskipaði fyrir nokkru, nái til 8
milljóna manna.
I opinberu málgagni í Algeirs-
borg segir, að hervæðingin sé alger
og nái til allra karla og kvenna í
landinu og þúsundir sjálfboöaliða
hafi gengið aftur í herinn, en þessir
sjálfboðaliðar hafi flestir tekið þátt
í frelsisstríðinu. — Allir piltar og
stúlkur á 16—20 ára aldri veröa
kvödd til hernaðarlegrar þjálfunar.
Hervæðing fer fram á grundvelli
tilskipunar Boumedienne, en hún
var birt eftir að styrjöldin hófst
milli ísraels og nágrannaríkja þess.
þingi, Gilles Gregore, segir hins
vegar, að Pearson hafi knúið hann
til þess að fara.
□ i gær var hert á öryggisráöstöf-
unum de Gaulle vegna, þar sem
orðrómur var á kreiki um, að
7 OAS-menn væru komnir til
Montreal í þeim tilgangi að ráða
de Gaulle af dögum.
Robert Winters viðskiptamála-
ráöherra Kanada sagöi í gær, að
mörgum Kanadamönnum myndu
vonbrigði að því, að ekki varð af
Ottawa-heimsókn de Gaulle.
I blöðum víða um heim, Kanada,
Bandaríkjunum, Bretlandi, Hol-
landi, og heimalandi hans Frakk-
landi og víðar, er framkoma hans
enn rædd og harðlega gagnrýnd.
1 Parísarfréttum i gær segir, aö
framkoma forsetans muni án efa
veröa tekin fyrir, er þingið kemdr
saman í haust. Meöal fyrstu áhrifa
kunni aö verða nýir erfiöleikar á
aðild Bretlands að EBE. Enginn
hafði búizt við, segir í þessum frétt
um, að de Gaulle mundi koma þann
ig fram sem reyndin varð, en yfir-
leitt var búizt við að hann mundi
leggja mikla áherzlu á skyldleiká
og tengsl Frakka og frö.nskumæl-
andi Kanadamanna.
France-Soir kom út í risaupp-
fréttina um heimferð de Gaulle, en
fréttina um heimferö de aGulle, en
sagði ekkert um hana frá eigin
brjósti. Beðið var heimkomunnar
meö umsögn um ákvörðunina. Sagt
var að það væri sem farg á skoðun
um manna á því, að forsetinn
skyldi komast í þá aðstöðu að finna
sig til þess knúinn aö fresta opin-
berri heimsókn. ÁÖur höföu jafnvel
vinveitt blöö forsetanum látið í
Ijós áhyggjur af því, að framkoma
forsetans myndi baka Frakklandi
tjón og álitshnekki.
Opinberlega viðurkennt í
Peking, að hersveitir /
Whuan hafi gert uppreisn
1 fréttum frá Hongkong í gær
segir, að það hafi verið opinber-
lega viðurkennt í Peking, að her-
sveitir í iðnaðarbænum Wuhan hafi
gert uppreist gegn Mao tse Tung.
1 útvarpinu í Peking voru upp-
reistarmenn kallaðir „hinir nýju
fjandmenn menningarbyltingarinn-
ar“ og herinn hvattur til þess að
sýna Mao hollustu.
Viðurkenningin kom sólarhring
eftir að jámbrautarsamgöngur
höfðu rofnað í fyrrinótt milli Hong
Kong og Canton og komu strax
fram tilgátur um, að það væri
vegna liðflutninga, en sambandið
var rofið I 4 klukkustundir.
Blað alþýðunnar í Peking segir
forsprakka andspymunnar f Wuh-
an vera misyndismenn í hernum.
Hvatning um hoHustu viö Mao
var birt í málgagni hersins.
Páll páfi kominn til
Rómar frá Tyrklandi
Fréttir frá Rómaborg í gær
hermdu, að Páll páfi væri kominn
heim að aflokinni Tyrklandsheim-
sókninnl.
Tilgangurinn meö ferðinni var að
koma á nánari tengslum milli róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar og rétt-
trúnaðarkirkjunnar svo að jöfnuð
yrði níu alda misklíö. Fyrir burt-
förina kvaðst hann hafá auknar
vonir um kristilega einingu og
kvaðst mundu biðjast guðs bless-
unar fyrir samstarfi í þá átt og
fyrir Tyrkland og stjóm þess og
þjóð.
Páfinn bað Sunai Tyrklandsfor-
seta beita áhrifum sínum til frið-
ar í Austurlöndum nær. Hann
ræddi við æðstu kirkjunnar menn
og heimsótti Efesus og rústir Jó-
hannesar-basilikunnar, sem reist
var yfir grafir postulanna á 6. öld
og litla kapellu, þar sem sagnir
herma aö jómfrú María hafi látizt.
Páfi flaug heim í bandarískri
leiguþotu. Meðal viðstaddra við
komu hans voru þeir Aldo Moro
forsætisráöherra og Fanfani utan-
ríkisráðherra.
Heimshorna milli
K AUPMANN AHÖFN:
Margréti prinsessu, ríkisarfa i
Danmörku, og maka hennar Hinrik
prins, var í dag afhent brullaups-
gjöf að upphæö 135.000 kr. frá
42.000 gefendum, er þau geta varið
á hvern þann hátt sem þau óska
sér.
MOSKVA:
Lýsingar 'á óeirðunum £ Newark
og myndir voru mikið fréttaefni
í bláöinu Pravda í gær. Fyrirsögn-
in var: Detroit í björtu báli. —
Blöðin birta ýtarlegar frásagnir
bandarískra blaða um hvernig
þjarmað hefir verið að blökkufólk-
inu og telj.. þaö skýringuna á, að
óeirðirnar blossuöu upp.
Sambandsstjórn Nígeríu segir frá
hörðum bardögum við landamæri
Nígeríu, en Ojukwu leiðtogi Aust-
ur-Nígeríu eða Biafra segir, að
gagnsókn sé hafin gegn sambands-
hersveitum er sóttu suður á bóginn
og séu þær hraktar til baka.
Fyrirhugaðri Rúmeníuferð
de Gaullc frestað
Rúmenfuferö de Gaulle Frakk-
landsforseta, sem ákveðin var í
október, hefir verið frestaö til
næsta árs. Frestunin stafar af tíma
skorti til aö ljúka öllum fyrirhug-
uðum heimsóknum. Heimsókn til
Póllands var frestaö vegna styrj-
aldarástandsins í Austurlöndum
nær og fer fram í september.
TILKYNNING
um framlagningu skattskráa Reykjanesum-
dæmis og útsvarsskráa eftirtalinna sveitar-
félaga:
Kópavogskaupstaðar
HafnarfjaröarkaHpstaöar
Keflavíkurkaupstaöar
Grindavíkurhrepps
Hafnarhrépps
Miöneshrepps
Geröahrepps
Njarövíkurhrepps
Garöahrepps
Seltjarnarneshrepps
Mosfellshrepps
Skattskrár allra sveitarfélaga og Keflavíkurflugvallar
í Reykjanesumdæmi, ásamt útsvarsskrám ofan-
greindra sveitarfélaga, liggja frammi frá 27. júli til 9.
ágúst, að báöum dögum meðtöldum.
Skrárnar liggja frammi á eftirgreindum stöðum:
í KÓPAVOGI:
Á skrifstofu Kópavogsbæjar og hjá umboðsmanni f Fé-
lagsheimilinu. Skrifstofa umboðsmanns verður opin
alla daga, nema laugardaga kl. 4 til 7 e. h.
í HAFNARFIRÐI:
Á skrifstofu Hafnarfjarðarbæjar og á skattstofunni.
I KEFLAVÍK:
Á skrifstofu Keflavíkurbæjar og hjá umboðsmanni á
skrifst. Keflavíkurbæjar.
Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI:
Hjá umboðsmanni Guðmundi Gunnlaugssyni á skrif-
stofu Flugmálastjórnarinnar.
í HREPPUM:
Hjá umboðsmönnum og á skrifstofu fyrrgreindra
sveitarfél.
í skattskrám alls umdæmisins eru eftirtalin gjöld:
1. Tekjuskattur
2. Eignaskattur
3. Námsbókagjald
4. Almannatryggingagjöld
5. Slysatryggingargjald atvinnurekenda
6. Lífeyristryggingargjald atvinnurekenda
7. Atvinnuleysistryggingargjald
8. Iönlánasjóðsgjald
9. Launaskattur (ógreiddur)
10. Iðnaðargjald.
í skattskrá umdæmisins verða einnig kirkjugjöld og
kirkjugarðsgjöld, þar sem sóknarnefndir og kirkju-
garðsstjórnir hafa óskað þess.
I þeim sveitarfélögum, er talin eru fyrst upp í auglýs-
ingu þessari, eru eftirtalin gjöld til viðbótar áður upp-
töldum gjöldum:
1. Tekju- og eignaútsvar
2. Aðstööugjald.
Innifalið í tekju- og eignaskatti er 1% álag til Bygg-
ingarsj. ríkisins.
Kærufrestur vegna tekju- og eignaskatts, útsvars, að-
stöðugj., iðnlánasjóösgjalds og launaskatts er til loka
dagsins 9. ágúst 1967.
Kærur vegna útsvara skulu sendar viökomandi fram-
talsnefnd en vegna annarra gjalda til Skattstofu
Reykjanesumdæmis, Hafnarfirði, eöa umboðsmanns í
heimasveit.
Kærur skulu vera skriflegar og skulu hafa borizt rétt-
um úrskurðaraöila í síðasta lagi að kvöldi 9. ágúst
1967.
Álagningarseðlar, er sýna gjöld og gjaldstofna, hafa
verið sendir til allra framteljenda. Jafnframt liggja
" frammi á Skattstofu Reykjanesumdæmis f Hafnarfirði
skrár um álagðan söluskatt í Reykjanesumdæmi árið
1966.
Hafnarfirði, 26. júlí 1967.
SKATTSTJÓRINN í REYKJANESUMDÆMI