Vísir


Vísir - 03.08.1967, Qupperneq 2

Vísir - 03.08.1967, Qupperneq 2
2 V1 SIR . Fimmtudagur 3. ágúst 1967. mn a Varamaðurínn sem kom skoraði sigurmark Akureyrar © — og nú eiga Akureyringar mikla m'óguleika á að vinna Islandsbikarinn / ár — Akureyri — Valur 2:1 Akureyringar eru nú fyrir alvöru með í kapphlaupinu um íslandsmeistara- bikarinn í ár eftir að þeir unnu Valsmenn í gærkvöldi á heimavellinum, með 2 mörkum gegn einu. Hér á Akureyri var mikil eftirvænting allan daginn og á götu- hornum ræddu menn spumingu dagsins, — Tekst okkar mönnum að sigra topp- liðið Val ? © Eins og greina mátti á útvarpslýsingu í gærkvöldi var þetta harður baráttu- leikur, stemningarieikur, og raunar mátti vart greina hvort liðið var heimaliðið, svo ákaft var hrópað með Valsmönnum. Áhugann á leiknum má bezt sjá af því, að rútubílar komu fullir af fólki frá Húsavík, Siglufirði og nágrannasveitunum. Leikurinn hófst með léttu og fall- egu spili Akureyrarliðsins, sem ógn aði þegar á fyrstu mínútu og yfir- höndinni í leik héldu Akureyringar fyrstu 15—20 mínúturnar, án þess þó að geta skorað. Á 18. mín. eiga Valsmenn sitt fyrsta góða tækifæri. Það var Reyn ir Jónsson, sem gaf vel fyrir mark ið til Ingvars, sem klúöraði. ► Og aðeins 2 mínútum síðar smellur knötturinn í marki Ak- ureyringa frá Hermanni, sem notfærði sér vel tækifæri, sem bauðst óvænt. Knötturinn kom fyrir markið frá hægri, skali á vamarvegg Akureyringa og til Haukadalsskóli 40 ára Á þessu árl eru 40 ár liðin síðan Iþróttaskólinn í Haukadal var stofnaður. Hefur skólinn starfað á hverjum vetri síðan og er nemendahópurinn, sem þar hefur verlö viö nám um 800, auk þeirra pilta sem dvaiið hafa í skólanum stuttan tíma, á ýmiss konar námskeiðum. Sigurður Greipsson hefur frá upphafi verið skólastjóri íþrótta skólans, enda stofnaði Sigurður skólann og hefur starfrækt hann á sínu heimili, svo sem kunnugt er. í tilefnl af 40 ára afmæli skól- ans, er ákveðiö aö efna til nem- endamóts að Haukadal þriðju- daginn 22. ágúst n.k. en þann dag verður Sigurður Greipsson 70 ára. / Gert er ráð fyrir að þeir Hauk dæiir sem koma á mótið, mæti í Haukadal kl. 14 og dvelji þar fram til kvölds — rifji upp göm ul kynni — „verði unglr í ann- að sinn“. Um kvöldið verður efnt til samsætis i Aratungu, tll heið- urs Sigurði Greipssynl og eigin konu hans Sigrúnu Bjarnadótt- ur. Er þaö Héraðssambandið Skarphéöinn, sveitungar þeirra Haukadalshjóna og nemendur Haukadalsskóla, sem gangast fyrir samsætinu. Þeir nemendur skólans sem ætla að mæta í Haukadal 22. ágúst eru beðnir að tilkynna það til Kjartans Bergmanns Guðjónssonar, Bragagötu 30, sími 21911 eða Hjálmars Tóm- assonar, Rauðalæk 55, Reykja- vík sími 33125 eða 10700 eða Hafstelns Þorvaldssonar, sími 1545 (eða 1554) Selfossi, fyrir 10. ágúst n.k. sem skaut hörku- hjá Samúel mark- Hermanns, skoti fram veröi. Það var eins og fjörkippur kæmi í Valsliðið við þetta og það sem eft- ir var hálfleiksins voru það Vals- menn, sem áttu meira í leiknum. Hins vegar var vörn Akureyringa vel á verði og átti góðan leik, sér- staklega þó Jón Stefánsson, sem gætti þó erfiðs manns, Hermanns Gunnarssonar, en átti þó í fullu tré við hann. Rétt fyrir hálfleik kenndi Kári Árnason sér meins í hné, togn aði illa, og varö að yfirgefa völlinn. Inn kom fyrir hann ungur og efni- legur nýliði, Rögnvaldur Reynis- son, maðurinn, sem átti eftir að færa liði sínu sigurinn, — og von- ina um Islandsbikarinn í ár. í síðari hálfleik byrjuöu Akur- eyringar leikinn á leiftursókn. Þeg ar á 1. mínútu skall hurð nærri hæl um í tvö skipti. Valsteinn átti gott tækifæri, en skaut hárfínt fram hjá marki og Skúli átti þrumuskot, en Sigurður Dagsson varði af prýði. ► Á 2. minútu var mark ekki umflúið. Sending Valsteins þvert yfir til Þormóðs á hinum kantin um var mjög góð, og Þormóður sendi rakleitt til Magnúsar Jónat anssonar, sem skallaði inn mjög laglcga, 1:1 Talsvert meira jafnvægi kom nú á leikinn og sótt á víxl. Baráttan var þó söm og jöfn. Akureyringar áttu þó kannski íviö meira í leikn um, ekki sízt fyrir það hve vel Guðni Jónsson stóð sig sem tengi- liður varnar og sóknar. Framlínan var og óvenju heilsteypt og þaö ó- venjulega geröist hjá Akureyri að kantarnir voru vel nýttir. Hins veg ar var sóknarleikur Valsmanna ekki sem beittastur. SIGURMARKIÐ. Nýliðinn ungi skoraði þetta mark, sem olli miklum fögnuöi á Akureyri í gærkvöldi. Rögnvaldur fékk laglega sendingu Valsteins Jóns sonar fyrir markið frá vinstri, og skailaði Rögnvaldur gjörsam lega óverjandi í netið ofarlega í markhomið. Þetta gerðist á 23. mín. síðari hálfleiks. Eftir þetta mark hörfaði Akureyr ariiðið og hugðist verjast það sem eftir var leiksins. Fengu þeir allri hættu bægt frá, — eða svo gott sem, en Hermann Gunnarss. átti eft ir að hrella menn, því 6 mínút- um fyrir leikslok komst hann loks f gegn einn og átti aöeins Samúel markvörð eftir. Það reyndist þó of mikið, því Samúel varði vel, fékk boltann rétt í fingurgómana og lyfti honum yfir markið. Var þá ekki laust við að Akureyringar önd uðu léttara. Leiknum lauk því með sigri Ak- ureyrar, 6. sigurinn í röö, — tvö dýrmæt stig bættust við í safniö og nú eru stigin orðin 12, og Akureyri reyndar toppliðið (ásamt Val) og með hagstæðustu markatöluna. Eft ir er einn leikur gegn KR, og fer leikurinn fram á Akureyri. Þetta var baráttuleikur eins og fyrr seg- ir, og leikurinn var mjög jafn, gat farið á hvom veginn sem var. Hins vegar er ég á því að betra liðið hafi hér farið með sigur af hólmi. Beztu menn Akureyrar voru þeir Guðni Jónsson, Jón Stefánsson og framlínan í heild sinni. Hjá Val voru þeir beztir, Þorsteinn Frið- þjófsson, báðir útherjamir og Berg sveinn Alfonsson. Hins vegar fannst mér Hermann verða undir í keppninni við Jón Stefánsson. Dómari var Magnús Pétursson. Áhorfendur munu hafa verið tæp 3000 talsins. — s.b. ! Staðan! í 7. deild er nú þessi: *► Akureyri—Valur 2:1 (0:1) o Akureyri • Valur oFram 0 Keflavík ;kr o Akranes o 21:11 17:1" 10:8 7:9 13:15 9:19 12o 12* 1°J 8o 6! 4: o o o o o Fram—KR í Laugardal 28. ágúst j ^ Akureyri—KR 3. september á * j Akureyri. £ o Fram—Akranes 9. september í J ^ Laugardal. o 2 Valur—Keflavík 10. september " o í Laugardal. « J LEIKIR, SEM EFTIR ERU: Víkingur vann Breiðoblik í bikarnum Víkingur vann Breiðablik úr Kópa- vogi í gapr með 3:2 í spennandi leik í bikarkeppninni. í hálfleik var staðan 1:1, en í síðari hálfleik skor uðu Víkingar fyrst, en Kópavogs- menn jafna 2:2 og Víkingar skora loks sigurmarkið 3:2. Selfoss vann hins vegar b-lið Víkings með 1:0. Hermann Gunnarsson og Jón Stefánsson eru hér í einu einvígja sinna í leiknum í gærkvöldi.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.