Vísir - 03.04.1968, Blaðsíða 1
ISIR
58. árg. - Miðvikudagur 3. aprfl 1968. - 75. tbl.
McCorthy fékk
57% í Wisconsin
□ NTB-frétt í morgun hermdi,
að þegar búið hafi verið að
telja 94% atkvæða í forkosning-
unum í Wisconsin hafi atkvæði
staðið þannig:
Demokratar:
McCarthy 390.204 (57%)
Johnson 241.866 (35%)
Kennedy 40.700 (6%)
m-> 10. sfða
a*i
Húsvíkingar fengu kalt bað
við höfrungadráp í gær
Drápu 23 höfrunga — Margir fóru í sjóinn milii jaka
Fjöldi Húsvíkinga flykkt-
ist út á ísinn á Axarfirði í
gær, en ákveðið var að gera
út leiðangur að höfrungavöð-
unni, sem er lokuð inni í lít-
illi vök þar í ísnum úti á firð-
inum og skjóta eitthvað af
þeim í stað þess að láta þá
veslast þarna upp.
Ferðin út á ísinn var æði æv-
intýraleg og fengu margir bað í
jökulköldum sjó. Krapið á milli
ísjakanna, er ákaflega mistraust
og voru sumir nokkuð fljótir á
sér og duttu niður á milli ís-
skara og fengu þar hrollkalt
bað.
Krapinn á milli jakanna er
mjög viðsjárverður og máttu
menn skríða á fjórum fótum að
síðustu til þess að komast yfir
hann þurrum fótum, þar sem
verst var.
1 vökinni úti á firðinum voru
miklu fleiri höfrungar, en gert
hafði veriö ráð fyrir í upphafi
og voru skotnir 23, en sá þó
varla högg ái vatni. Höfrungarn
ir voru svo dregnir til Húsa-
víkur og kjötið af þeim hirt.
Vökin sem höfrungarnir voru
í var farin að þrengjast ískyggi
lega í gær og þótti því rétt að
fækka skepnunum.
Veður er fagurt á Húsavík og
búast bæjarbúar allt eins við
ferðamönnum þangað norður til
þess að líta á „landsins foma
fjanda" sem er æði hrikalegur
þar úti á firðinum.
Norskur selfangari hætt
kominn
i isnum
— Sigldi áfram til Noregs til
viðgerðar eftir að eldur
kom upp
Norskur selfangari var að veiö-
um f ísnum skammt frá Jan Mayen,
er stórir haffsjakar rákust harka-
á skipið, með þeim afleiöing-
um, að ákveöið var að leita hér
til hafnar til að fá gert við skemmd
irnar.
Selfangarinn heitir einmitt Jan
Mayen og er á fjórða hundrað
tonn. Er skipið var í morgun kom-
ið suður fyrir Seyðisfjörð kom upp
eldur í lúkarnum, svo að áhöfnin
bjargaðist naumlega út á nærklæð-
unum.
Skipsmönnum tókst þó að ráða
niöurlögum eldsins, og þegar sýnt
var að skemmdirnar voru það
miklar, að ekki yrði gert við þær á
skömmum tíma, var ákveðiö að
taka stefnuna til heimahafnar í
Noregi, Álasunds. Er skipið nú á
Ieið þangaö.
....................... :
•JÚrfHWH'ÍL'i
iii
, m
■ jSiíWH
,
::*r" : . '•;. )%•••. . .. IIH|f—
>1.^ ; w.. Th ! u •::»;... i:..w .. .»». ...
.......
rthut " "" ml„‘“ " "*•' au.
4MHMÍÍH:"1.... .
-t.——, ... •■'!;.. -n.: "• ..«!{■_•
■ “ ,„U *£♦“*• 'i ’ -»••• ** :u, ■ i Wm'W 'm*‘ ' "Si
, :**'”*<f..............iMWMfjrf .............. ... •w,“ '»
, ...-miuami- • ""••• ... Jh...
L • •»i|,,i^Si((g^'>3^
nrffiuk„ „ j™,,
■ ,
llliii'-
gjBjWfl;
1 i - ii''- ■’ ,jk
1:....^
jSL * ■ i u.............
..... ........Pm , Vf ’TC*. '-''uiLalÍMr . , . 01 -rpJi
Þessi mynd er tekin eftir að Drangur hafði siglt fyrir Ólafs-
fjarðarmúlann í gærdag, en skömmu síðar lokaðist siglinga-
leiðin alveg. Liggur nú samfelldur ís fyrir mynni fjarðarins.
(Ljósm. Vísis Þórunn).
isinn víða landfastur við Norðuriand
Siglingaleiðir lokast — frostið fór í 21 stig nyrðra í nótt
□ Isinn er orðinn landfastur
við Straumnes og allt á milli
ósa Jökulsár í Axarfirði og
Skjálfandafljóts, en gengið var
á fjörur milli ósanna i gær, og
var ísinn alveg samfelldur og
sá varla í vök. Lítil hreyfing
var á ísnum í nótt, enda vindur
hægur. Norðanátt var víðast
hvar á landinu í nótt, og komst
frostið í 21 stig á Grímsstöðum,
20 stig á Raufarhöfn og 18 stig
á Egilsstöðum. Enn er spáð
norðanátt, og er gert ráð fyrir
5 — 8 stiga frosti í Reykjavík í
nótt.
Póstbáturinn Drangur, fór í gær
morguij af stað frá Akureyri áleiðis
til Ólafsfjaröar, en komst ekki
nema rétt út á Akureyrarpoll, þar
festist hann í ísnum. Um hádegi
tókst honum að komast út úr ísn-
um og kom til Ólafsfjarðar kl.
hálf fimm í gær. Var hann ekki
fyrr kominn inn á höfnina, en fjörð
urinn lokaðist alveg, og samkvæmt
upplýsingum frá Ólafsfirði í morg
un er fjöröurinn nú fullur af ís
svo langt sem augað eygir, og |
Drangur því lokaður inni í höfn-
inni.
Samkvæmt upplýsingum hafnar
varðarins á Neskaupsstað er mikill
ís fyrir myni fjarðarins, en vindátt
hefur vamað því að ísinn bærist
inn fjörðinn. Þó sést einn og einn
jaki á reki. Siglingaleiðin mun
vera fær ennþá, en gera má ráð
fyrir að hún lokist strax og breyt
ir um vindátt.
1 isfregn frá Árvakri i morgun
segir að ísspangir séu frá Rit að
10. síða.
ISKYGGILEGA M0RG SL YS A
REYKJANESBRA UT í FYRRA
Árið 1967 urðu 52 árekstrar á Reykjanesbraut. í þessum
umferðaróhöppum slösuðust 28 og 3 biðu bana.
Þessar upplýsingar er að finna í nýju tölublaði af Öku-
manninum, sem gefinn er út af Fræðslu- og upplýsingaskrif-
stofu Umferðarnefndar og lögreglunni f Reykjavík.
Reykjanesbrautin er fyrsta
hraðbrautin, sem tekin var í
notkun á íslandi. Hún liggur úr
Engidal norðan við Hafnarfjörð
suður að bæjarmörkum Keflavík
urkaupstaðar.
Við athugun á skýrslum lög-
reglunnar um umferðaróhöpp á
Reykjanesbraut, á verulegur
hluti þeirra sér stað, er ísing
myndast skyndilega, sérstaklega
á haustin. Eru það einkum tveir
staðir, sem eru hættulegir og
viðkvæmir fyrir ísingu, við
Þorlákstún ofan Hafnarfjarðar
og í Kúageröi, sunnar á vegin-
um.
ísmyndun á Reykjanesbraut
er mikið umferðarlegt vandamál,
einkum fyrst á haustin, eins
og áður segir. Þá er oft eins og
leggist á akbrautina grá héla,
samlit steinsteyptri akbraut-
inni, sem mjög erfitt reynist
fyrir ökumenn að koma auga á.
Jafnvel þó að rigning sé úr lofti
er stundum eins og sú úrkoma
myndi ísingu, er regnið snertir
hina steyptu akbraut.
Þægilegastur er aksturinn á
hraðbraut eins og Reykjanes-
braut, þegar jöfnum ökuhraða er
haldiö. Þá verður feröin örugg-
u$t og þægilegust, enda tíma-
spamaður lítiil sem enginn við
að síbreyta ökuhraða, aka oft
fram úr bifreiðum o. s. frv.
Slíkur akstur orsakar óþarfa
taugaspennu, sem setur hugsun
ökumannsins úr jafnvægi og
stuölar að óþarfri slysahættu.