Vísir - 03.04.1968, Side 1

Vísir - 03.04.1968, Side 1
ISIR 58. árg. - Miðvikudagur 3. aprfl 1968. - 75. tbl. McCorthy fékk 57% í Wisconsin □ NTB-frétt í morgun hermdi, að þegar búið hafi verið að telja 94% atkvæða í forkosning- unum í Wisconsin hafi atkvæði staðið þannig: Demokratar: McCarthy 390.204 (57%) Johnson 241.866 (35%) Kennedy 40.700 (6%) m-> 10. sfða a*i Húsvíkingar fengu kalt bað við höfrungadráp í gær Drápu 23 höfrunga — Margir fóru í sjóinn milii jaka Fjöldi Húsvíkinga flykkt- ist út á ísinn á Axarfirði í gær, en ákveðið var að gera út leiðangur að höfrungavöð- unni, sem er lokuð inni í lít- illi vök þar í ísnum úti á firð- inum og skjóta eitthvað af þeim í stað þess að láta þá veslast þarna upp. Ferðin út á ísinn var æði æv- intýraleg og fengu margir bað í jökulköldum sjó. Krapið á milli ísjakanna, er ákaflega mistraust og voru sumir nokkuð fljótir á sér og duttu niður á milli ís- skara og fengu þar hrollkalt bað. Krapinn á milli jakanna er mjög viðsjárverður og máttu menn skríða á fjórum fótum að síðustu til þess að komast yfir hann þurrum fótum, þar sem verst var. 1 vökinni úti á firðinum voru miklu fleiri höfrungar, en gert hafði veriö ráð fyrir í upphafi og voru skotnir 23, en sá þó varla högg ái vatni. Höfrungarn ir voru svo dregnir til Húsa- víkur og kjötið af þeim hirt. Vökin sem höfrungarnir voru í var farin að þrengjast ískyggi lega í gær og þótti því rétt að fækka skepnunum. Veður er fagurt á Húsavík og búast bæjarbúar allt eins við ferðamönnum þangað norður til þess að líta á „landsins foma fjanda" sem er æði hrikalegur þar úti á firðinum. Norskur selfangari hætt kominn i isnum — Sigldi áfram til Noregs til viðgerðar eftir að eldur kom upp Norskur selfangari var að veiö- um f ísnum skammt frá Jan Mayen, er stórir haffsjakar rákust harka- á skipið, með þeim afleiöing- um, að ákveöið var að leita hér til hafnar til að fá gert við skemmd irnar. Selfangarinn heitir einmitt Jan Mayen og er á fjórða hundrað tonn. Er skipið var í morgun kom- ið suður fyrir Seyðisfjörð kom upp eldur í lúkarnum, svo að áhöfnin bjargaðist naumlega út á nærklæð- unum. Skipsmönnum tókst þó að ráða niöurlögum eldsins, og þegar sýnt var að skemmdirnar voru það miklar, að ekki yrði gert við þær á skömmum tíma, var ákveðiö að taka stefnuna til heimahafnar í Noregi, Álasunds. Er skipið nú á Ieið þangaö. ....................... : •JÚrfHWH'ÍL'i iii , m ■ jSiíWH , ::*r" : . '•;. )%•••. . .. IIH|f— >1.^ ; w.. Th ! u •::»;... i:..w .. .»». ... ....... rthut " "" ml„‘“ " "*•' au. 4MHMÍÍH:"1.... . -t.——, ... •■'!;.. -n.: "• ..«!{■_• ■ “ ,„U *£♦“*• 'i ’ -»••• ** :u, ■ i Wm'W 'm*‘ ' "Si , :**'”*<f..............iMWMfjrf .............. ... •w,“ '» , ...-miuami- • ""••• ... Jh... L • •»i|,,i^Si((g^'>3^ nrffiuk„ „ j™,, ■ , llliii'- gjBjWfl; 1 i - ii''- ■’ ,jk 1:....^ jSL * ■ i u............. ..... ........Pm , Vf ’TC*. '-''uiLalÍMr . , . 01 -rpJi Þessi mynd er tekin eftir að Drangur hafði siglt fyrir Ólafs- fjarðarmúlann í gærdag, en skömmu síðar lokaðist siglinga- leiðin alveg. Liggur nú samfelldur ís fyrir mynni fjarðarins. (Ljósm. Vísis Þórunn). isinn víða landfastur við Norðuriand Siglingaleiðir lokast — frostið fór í 21 stig nyrðra í nótt □ Isinn er orðinn landfastur við Straumnes og allt á milli ósa Jökulsár í Axarfirði og Skjálfandafljóts, en gengið var á fjörur milli ósanna i gær, og var ísinn alveg samfelldur og sá varla í vök. Lítil hreyfing var á ísnum í nótt, enda vindur hægur. Norðanátt var víðast hvar á landinu í nótt, og komst frostið í 21 stig á Grímsstöðum, 20 stig á Raufarhöfn og 18 stig á Egilsstöðum. Enn er spáð norðanátt, og er gert ráð fyrir 5 — 8 stiga frosti í Reykjavík í nótt. Póstbáturinn Drangur, fór í gær morguij af stað frá Akureyri áleiðis til Ólafsfjaröar, en komst ekki nema rétt út á Akureyrarpoll, þar festist hann í ísnum. Um hádegi tókst honum að komast út úr ísn- um og kom til Ólafsfjarðar kl. hálf fimm í gær. Var hann ekki fyrr kominn inn á höfnina, en fjörð urinn lokaðist alveg, og samkvæmt upplýsingum frá Ólafsfirði í morg un er fjöröurinn nú fullur af ís svo langt sem augað eygir, og | Drangur því lokaður inni í höfn- inni. Samkvæmt upplýsingum hafnar varðarins á Neskaupsstað er mikill ís fyrir myni fjarðarins, en vindátt hefur vamað því að ísinn bærist inn fjörðinn. Þó sést einn og einn jaki á reki. Siglingaleiðin mun vera fær ennþá, en gera má ráð fyrir að hún lokist strax og breyt ir um vindátt. 1 isfregn frá Árvakri i morgun segir að ísspangir séu frá Rit að 10. síða. ISKYGGILEGA M0RG SL YS A REYKJANESBRA UT í FYRRA Árið 1967 urðu 52 árekstrar á Reykjanesbraut. í þessum umferðaróhöppum slösuðust 28 og 3 biðu bana. Þessar upplýsingar er að finna í nýju tölublaði af Öku- manninum, sem gefinn er út af Fræðslu- og upplýsingaskrif- stofu Umferðarnefndar og lögreglunni f Reykjavík. Reykjanesbrautin er fyrsta hraðbrautin, sem tekin var í notkun á íslandi. Hún liggur úr Engidal norðan við Hafnarfjörð suður að bæjarmörkum Keflavík urkaupstaðar. Við athugun á skýrslum lög- reglunnar um umferðaróhöpp á Reykjanesbraut, á verulegur hluti þeirra sér stað, er ísing myndast skyndilega, sérstaklega á haustin. Eru það einkum tveir staðir, sem eru hættulegir og viðkvæmir fyrir ísingu, við Þorlákstún ofan Hafnarfjarðar og í Kúageröi, sunnar á vegin- um. ísmyndun á Reykjanesbraut er mikið umferðarlegt vandamál, einkum fyrst á haustin, eins og áður segir. Þá er oft eins og leggist á akbrautina grá héla, samlit steinsteyptri akbraut- inni, sem mjög erfitt reynist fyrir ökumenn að koma auga á. Jafnvel þó að rigning sé úr lofti er stundum eins og sú úrkoma myndi ísingu, er regnið snertir hina steyptu akbraut. Þægilegastur er aksturinn á hraðbraut eins og Reykjanes- braut, þegar jöfnum ökuhraða er haldiö. Þá verður feröin örugg- u$t og þægilegust, enda tíma- spamaður lítiil sem enginn við að síbreyta ökuhraða, aka oft fram úr bifreiðum o. s. frv. Slíkur akstur orsakar óþarfa taugaspennu, sem setur hugsun ökumannsins úr jafnvægi og stuölar að óþarfri slysahættu.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.