Vísir


Vísir - 05.04.1968, Qupperneq 1

Vísir - 05.04.1968, Qupperneq 1
ólögmæt? Eru hjónaböndin Skoriö ör athyglisverðu deilumáli í Hæstarétti 1 morgun kl. 10 var „hjóna- bandsmálið“ svonefnda tekið fyrir í Hæstarétti, en á því máli ríkir að vonum mikill áhugi meðal almennings. Nú mun væntanlega fást úr því skorið, hvort stór hluti af hjóna- böndum hér á landi sé ógildur, en því hafa menn haldið fram, að ó- gildar séu hjónavígslur fram- kvæmdar af prestum, sem komnir eru á eftirlaun, prófessorum við guöfræöideild og prestum, sem ekki eru þjónandi í ákveðnu presta- kalli. Ef dómur verður kveðinn upp um ógildingu hjónabanda, er erfitt aö gera sér grein fyrir hversu ví$- tæk áhrif og afleiðingar dómsins verða, því að mikill fjöldi fólks hefur verið gefinn saman af t. d. É4»- 10. síða. hjá girðingunni — segir bóndinn á Gunnarsstöðum „Ég held aö þetta hljóti að hafa verið bjarndýr* ‘,sagöi Óli Halldórsson, bóndi á Gunnars- stöðum í viðtaii við Vísi í morg un. En skammt frá bænum fund ust sporin eftir dýrin tvö. „Viö höfum nú verið að athuga slóð- ina betur og styrkzt i þelrri skoðun að betta hafi verið bjarn dýr, m.a. vegna þess aö dýrin hafa snúið við við girðinguna hérna. Ef þetta hefðu veriö minni dýr, svo sem refir eða hundar, eins og sumir hafa hald ið fram, þá hefðu þau auðveld- lega komizt þar í gegn. Dýrin hafa svo farið yfir girðinguna þar sem hún var á kafi undir snjó. Það er greinilegt á sporun- um að þessi dýr hafa klær, og þá er ekki ööruni stórum dýrum til að dreifa, en biarndýrum. „Eruð þið heimamenn á Gunn arsstöðum ekkert hræddir við að dýrin kunni að ganga á land aftur og gera einhvern usla?“ „Nei, við erum ekkert smeyk ir við bað. Ég hef nú verið að lesa bjarndýrasögur og get hvergi fundið að bjarndýr hafi orðið mönnum að bana hér á Iandi.“ „Þið hafið ekkert revnt að fara út á ísinn o>r leita dýranna 'Teí, fsinn er mjög illur yfir- ' og ósléttur. Hins vegar var flogið hér yfir í fyrradag, en þá mun ekkert hafa sézt til dýranna. Þau eru sjálfsagt kom- inn langt út á ísinn núna“, sagði Óli að lokum. IKviknaði í > Neskirkju s í morgun gat að líta óvenju- ? lega sjón í Neskirkju. Þegar v blaðamaður Vísis kom þar að S stóð lögregluþjónn i kirkjudyr f um en inni við kórinn stóð ann- v ar lögreglumaður á vakt. Það S hafði kviknaö inn í vegg í kirkj f unni, og í kirkjunni var þykkur < reykjarmökkur, en slökkviliðið > hafði þá nýlokið við að slökkva í eldinn. \ Rjúfa þurfti gat á tvær vegg- / klæöingarplötur, en að sögn c varðstjóra slökkviliðsins var S reynt að nota eins lítið vatn og / mögulegt var til að forðast frek c ari skemmdir. S Þaö var umsjónarmaður kirkj / unnar, sem varð eldsins var í < morgun þegar hann kom í kirkj- S una og gerði hann ^lökkviliði > begar aðvart. Eldsupptök munu < hafa verið vegna rafmagnsút- S leiðslu. > /wwwwvwwwvwv Lögreglumenn standa á verði á svölum mótelsins, þar sem blökkumannaleiðtoginn dr. Martin Luther King var skotinn til bana. Ein kúla hæfði dr. King, þar sem hann stóð á svölum mótels- ins í miðborg Memphis. (Símsend mynd frá UPI). Innlendum tilboðum tekið, þótt hærri séu B Á fundi borgarstjómar í gær var samþykkt tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um, að tekið veröi tilboöi innlendra aðila í verk á vegum borgarinnar, þótt tilboöin séu 5—10% hærri en erlendra tilboðsgjafa. B Tillagan var samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum, en full- trúar Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins sátu hjá, einnig ann- ar fulitrúi Framsóknar, en Einar Ágústsson greiddi atkvæði með tillögunni. B Guðmundur Vigfússon fulltrúi Alþýðubandalagsins, hafði bor-< ið fram breytingartillögu um, aö innlenlum tilboðum yröi tekið, | þótt þau væru 5—15% hærri, en hún var felld. Tveir piltar handteknir fyrir innbrot , | Lögreglan handtók í gærkvöldi tvo pilta, sem hún hafði grunaða i um að ha-fa brotizt inn f Botns- skálann í Hvalfiröi, en um það hafði henni borizt tilkynning fyrr um kvöldið. Þaðan hafði verið stoliö 1200 krónum í peningum, en annars var j ekki saknað. Athygli lögreglunnar var vakin á tveim piltum sem þar höfðu verið á ferð í bifreið, og náðust þeir, þegar þeir voru komn ir. í bæinn. Yfirheyrzlu þeirra var "Uki lokið, þegar blaðið fór ntun. MARTIN LUTHER KING SKOTINN TIL BANA í MEMPHIS Óeirðlr, íkveikjur og ran í Memphis, Washington og fl. borgum. Opinber rannsókn fyrirskipuð út af morðinu ® Kunnasti blökku- mannaleiðtogi heims, aðalleiðtogi bandarískra blökkumanna, dr. Mart- in Luther King, sem ár- ið 1964 hlaut friðarverð- Iaun Nóbels, var skot- inn til bana í gærkvöldi í Memphis, Tennessee, er hann stóð á svölum gistihúss. Þegar fréttist um morðið barst til Washington frestaði Johnson forseti áformaðri ferð sinni til Honolulu (sjá frétt á bls. 7) þar til í dag, og dóms- málaráðherra Bandaríkjanna fyr irskipaði opinbera rannsókn út af morðinu. Til óeirða kom í mörgum borgum, þegar er frétt- ist um morðiö. f Memnhis var kveikt í á mörgum stöðum og skotiö á slökkviliðsmenn að slökkvistörfum, en í Washing- ton lokaöi lögreglan alveg fimm borgarhverfum og var engum levft að fara inn í bau. Fréttir frá Memphis herma, að morðinginn hafi lagt á flótta, þegar er hann hafði skotið' dr. King og varpað frá sér automat- riffli af Browning-gerð. Sjón- aukamið var á rifflinum. f þeirri frétt var sagt, að víðtæk leit væri hafin að morðingjanum, og einnig að bláum bíl af Mustang gerð. Aðeins tveir prestar voru sjónarvottar að bví sem gerðist. Þeir voru á leið til fundar við dr. King. Blaðið New York Times segir í morgun í ritstjórnargrein, að mikill harmleikur hafi gerzt — og öll þjóðin sé harmi lostin. Dauði dr. Kings sé mikið áfall, og þaö sé kaldhæðni örlaganna, að myrtur hafi verið kunnasti talsmaður Bandaríkianúa, sem boðaði réttindabaráttu án ofbeld is. Blaðið segir ennfremur, að morðið sýni heigulshátt og spill ingu heirra. sem hata blökku- menn og vilja ekki unna þeim þess, að nióta mannréttinda iafnt og aðrir borgarar landsins. f nánari fregnum um óeirðirn- ar í Washington, segir að þegar fregnin barst um blökkumanna- hverfin hafi blökkumenn farið um götur í hópum, brotið rúður, kveikt f húsum og haft annað of- Dr. Martin Luther King. beldi í frammi. Þegar búið var að Ioka öllum götum sem fara þarf um til þess að komast inn í þessi hverfi fékk ekki einu sinni fólk, sem á þar heima, leyfi til þess að fara þangað. , 10. síða. Dýrin snéru við

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.