Vísir - 06.04.1968, Page 1

Vísir - 06.04.1968, Page 1
VISIR 58. árg. - Laugardagur 6. ápril 1968. - 78. tbl. Keflavíkurbær sýknaður af kröfum landeigenda □ Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm í máli landeigenda Ytri- Njarðvíkurhrepps með Vatnsnesi gegn bæjar- stjóranum í Keflavík f. h. Keflavíkurbæjar og var stefndi sýknaður af kröfum landeigendanna, sem krafizt höfðu kr. 2.298.834.26 ásamt 7% ársvöxtum frá 1. jan. 1964 í leigugjöld af 71,4 hektara landi í Keflavík- urbæ. Dómur í bæjarþingi Keflavík- urur hafði fallið á þann veg, að bæjarstjóm Keflavíkur var gert að greiða landeigendunum rúm- lega hálfa milljón króna ásamt vöxtum í leigugjöld af landi þessu, sem bæjarstjórnin hafði tekið til ráðstöfunar undir barna skóla, íþróttasvæði, gagnfræða- skóla, skrúðgarð og fyrirhugað ráöhús og undir leikvöill. Báðir aðilar áfrýjuðu dómnum til Hæstaréttar. Með Hæstaréttardómnum er endir bundinn á mál þetta sem reis út af rúmlega 71 hektara landi, sem stór hluti Keflavíkur- bæjar hefur risið á. I Hæstarétt- ardómnum telst það til jarða nokkurra landeigenda, sem í fé- lagi nefna sig Landeigendur Ytri Njarðvíkurhrepps með Vatns- nesi. Málið var flókið og viðarmikið og meðal dómsskjala má finna lóðaleigusamninga og erfðafestu bréf frá því fvrir aldamót, sem lögð voru fram í málinu til þess að sýna með hvaða skilyrðum jarðirnar höfðu skipt um eig- endur. Bæjarstjórnin réttlætti ráðstöf- un sína á þessum löndum með því, að þau hefðu verið nauðsyn leg til almannaþarfa eigi síður en götur í bænum og í forsend- um Hæstaréttardómsins eru þessar aðgerðir bæjarstjórnar- innar álitnar réttar. Málskostnaður var látinn falla niöur. „Langar til að dansa hér" — segir Helgi Tómasson ballettdansari □ Helgi Tómasson, ballett- dansari er í nokkurra daga leyfi hér á Islandi ásamt konu sinni, Marlene og 13 mánaða syni. Helgi er talinn vera í röð fremstu ballettdans ara í Bandaríkjunum, en hann dansar í Harkness ballettin- um, sem stofnaður var fyrir rúmum þremur árum. Er Helgi einn af þremur aðal- karldönsurum flokksins og hefur hlotið mjög lofsamlega dóma í bandarískum blöðum. Kona hans, sem er bandarísk, dansar einnig með Harkness flokknum. Við hittum Helga á heimili foreldra hans hér í borginni og segist hann vera á förum í sýn ingarferðalag til Evrópu með konu sína og son. „Þetta er f fyrsta skipti sem við getum tekið soninn með í slíkt ferðalag. Flokkurinn sér okkur fyrir barnfóstru, og þar sem við höfum nokkuð langa viðdvöl í hverri borg, vildum við ekki skilja hann eftir“. „Geturðu sagt okkur eitthað frá Harkness flokknum og starfi þínu þar?“ „Ég byrjaði að dansa með þessum flokk, fyrir þremur ár- um, en áður hafði ég dansað í Kaupmannahöfn og síðar hér í Bandaríkjunum. Þessi flokkur er talinn einn fremsti dansflokkur Bandaríkjanna ,en hann nýtur stuðnings frú Harkness, sem er mjög auðug. Hún dansar raunar sjálf, en aðallega semur hún þó tónlist. Flokkurinn hefur ferð azt mjög víða og sýnt bæði nú- tíma balletta og sígilda balletta. Ég dansa sjálfur yfirleitt meira í sígildum ballettum". „Heldurðu að við íslendingar fáum nokkuð að sjá þig dansa á „Það er ekki gott að segja, en það er í athugun að flokkurinn komi hingað. Mig langar mikið til að dansa hér, það er orðið svo langt síðan ég hef komið hér á svið,“ sagði Helgi að Iok- □ Helgi Tómasson, kona hans Marlene og sonur þeirra Kristinn Albert á heimili foreldra Helga í Hamrahlíð 35. (Ljósm. Vísis, B. G.). Morðinginn ófundinn ■ Reykský huldu Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, f gær, en þar brutust út óeirðir vegna morðsins á blökkumanna- Ieiðtoganum, dr. Martin Luther King. Svertingjar rændu verzl- anir og kveiktu í þeim og köst- uðu flöskum og múrsteinum í brunaverði, sem reyndu að hefta útbreiðslu eldsins. 1 fleiri bandarískum borgum hafa l»-> 10. síða. Fulltrúar ungmennanna á fundi með Gylfa Þ. Gíslasyni ráðherra á skrifstofu hans í Arnarhvoli. (Ljósm. Vísis Þórunn). Ungmenni skunda á fund menntamála- ráðherra með kröfuspjöld og ályktanir — Framkoma fulltrúa þeirra framúrskarandi kurteisleg, segir menntamálaráðherra □ Hópur ungmenna safnaðist saman í miöbænum í gær með kröfuspjöld til að mótmæla skólakerfi landsins og krefjast umbóta á því. Fór hópurinn frá Alþingishúsinu upp í Arnarhvol, þar sem fulltrúar nemenda úr gagnfræðaskóla Kópavogs, Réttarholts- og Vonarstrætis gengu á fund mennta- málaráðherra, Gylfa Þ. Gíslasonar. Talsverð ólæti voru í kringum Arnarhvol meðan á þessum fundi stóð, en hættu fljótlega. ýmsu skóla og menntamálaráðu Myndsjáin í dag er af ungling neytinu." sagði menntamálaráð- unum í miðbænum og uppi herra. í Arnarhvoli í gær. rr Vísir í vikulokin fylgir blaöinu i dag til áskrifenda Efni m.a: Allt til páskanna! Blaðið hafði samband við Gvlfa Þ. Gíslason og sagði hann að honum hefði borizt ályktun frá fulltrúum gagnfræðaskóla- nemanda og væri hún á þá leið meðan annars að bæta þyrfti kennslubækur og gera kennsl- una meira lifandi. „Framkoma þessara' ung- menna sem komu til mín var mjög til fyrirmyndar á allan hátt, og þau byrjuðu á því að afsaka lætin fyrir utan, sem ýmiss konar „aðskotaunalingar“ stóðu fyrir. Margt, sem þau sögðu var mjög skynsamlegt og satt að segja datt mér í hug meðan á fundinum stóð hvort ekki ætti að hafa árlegan fund með fulltrúum nemenda hinna Ólafsfirðingar í vegasamband eftir 3 mánaða vegaeinangrun I KVOLD verður þrigRja mánaða vegaeinangrun létt af Ólafsfirð- ingum, en allar Iíkur benda til þess að vegurinn fyrir Ólafsfjarð armúla verði opnaður í dag eða kvöld, eftir því sem Guðmundur Benediktsson, verkstjóri vega- gerðarinnar á Akureyri, tjáði Vísi í gær. Vegurinn fyrir Múlann milli Ólafsfiarðar og Dalvíkur hefur verið lokaður vegna snjóþyngsla siðan um hátíðar og þótti ekki fært aö ráðast í að moka veginn fyrr en nú í vikunni og hefur mokst ur staðið yfir síðustu daga. Allar samgöngur til Ólafsfjarðar hafa farið fram á sjó þennan tíma. — En Drangur hefur haldið uppi reglulegum feiðum þangað. Guðmundur sagði hins vegar, að ófærðin norðanlands hefði ekki verið neitt meiri í vetur en þeir hefðu átt að venjast. Flestallar leiðir á láglendi eru nú færar norð- anlands. Fært er austur á Reuf- arhöfn og austur í Mývatnssveit, en ekki lengra austur á bóginn og ekki verður lagt í að ryðja Möðru- dalsöræfi fyrr en kemur fram á vorið.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.