Vísir - 06.04.1968, Qupperneq 1
VISIR
58. árg. - Laugardagur 6. ápril 1968. - 78. tbl.
Keflavíkurbær sýknaður
af kröfum landeigenda
□ Hæstiréttur hefur
kveðið upp dóm í
máli landeigenda Ytri-
Njarðvíkurhrepps með
Vatnsnesi gegn bæjar-
stjóranum í Keflavík
f. h. Keflavíkurbæjar og
var stefndi sýknaður af
kröfum landeigendanna,
sem krafizt höfðu kr.
2.298.834.26 ásamt 7%
ársvöxtum frá 1. jan.
1964 í leigugjöld af 71,4
hektara landi í Keflavík-
urbæ.
Dómur í bæjarþingi Keflavík-
urur hafði fallið á þann veg, að
bæjarstjóm Keflavíkur var gert
að greiða landeigendunum rúm-
lega hálfa milljón króna ásamt
vöxtum í leigugjöld af landi
þessu, sem bæjarstjórnin hafði
tekið til ráðstöfunar undir barna
skóla, íþróttasvæði, gagnfræða-
skóla, skrúðgarð og fyrirhugað
ráöhús og undir leikvöill. Báðir
aðilar áfrýjuðu dómnum til
Hæstaréttar.
Með Hæstaréttardómnum er
endir bundinn á mál þetta sem
reis út af rúmlega 71 hektara
landi, sem stór hluti Keflavíkur-
bæjar hefur risið á. I Hæstarétt-
ardómnum telst það til jarða
nokkurra landeigenda, sem í fé-
lagi nefna sig Landeigendur Ytri
Njarðvíkurhrepps með Vatns-
nesi.
Málið var flókið og viðarmikið
og meðal dómsskjala má finna
lóðaleigusamninga og erfðafestu
bréf frá því fvrir aldamót, sem
lögð voru fram í málinu til þess
að sýna með hvaða skilyrðum
jarðirnar höfðu skipt um eig-
endur.
Bæjarstjórnin réttlætti ráðstöf-
un sína á þessum löndum með
því, að þau hefðu verið nauðsyn
leg til almannaþarfa eigi síður
en götur í bænum og í forsend-
um Hæstaréttardómsins eru
þessar aðgerðir bæjarstjórnar-
innar álitnar réttar.
Málskostnaður var látinn falla
niöur.
„Langar til að dansa hér"
— segir Helgi Tómasson ballettdansari
□ Helgi Tómasson, ballett-
dansari er í nokkurra
daga leyfi hér á Islandi ásamt
konu sinni, Marlene og 13
mánaða syni. Helgi er talinn
vera í röð fremstu ballettdans
ara í Bandaríkjunum, en hann
dansar í Harkness ballettin-
um, sem stofnaður var fyrir
rúmum þremur árum. Er
Helgi einn af þremur aðal-
karldönsurum flokksins og
hefur hlotið mjög lofsamlega
dóma í bandarískum blöðum.
Kona hans, sem er bandarísk,
dansar einnig með Harkness
flokknum.
Við hittum Helga á heimili
foreldra hans hér í borginni og
segist hann vera á förum í sýn
ingarferðalag til Evrópu með
konu sína og son.
„Þetta er f fyrsta skipti sem
við getum tekið soninn með í
slíkt ferðalag. Flokkurinn sér
okkur fyrir barnfóstru, og þar
sem við höfum nokkuð langa
viðdvöl í hverri borg, vildum
við ekki skilja hann eftir“.
„Geturðu sagt okkur eitthað
frá Harkness flokknum og starfi
þínu þar?“
„Ég byrjaði að dansa með
þessum flokk, fyrir þremur ár-
um, en áður hafði ég dansað í
Kaupmannahöfn og síðar hér í
Bandaríkjunum. Þessi flokkur er
talinn einn fremsti dansflokkur
Bandaríkjanna ,en hann nýtur
stuðnings frú Harkness, sem er
mjög auðug. Hún dansar raunar
sjálf, en aðallega semur hún þó
tónlist. Flokkurinn hefur ferð
azt mjög víða og sýnt bæði nú-
tíma balletta og sígilda balletta.
Ég dansa sjálfur yfirleitt meira
í sígildum ballettum".
„Heldurðu að við íslendingar
fáum nokkuð að sjá þig dansa á
„Það er ekki gott að segja, en
það er í athugun að flokkurinn
komi hingað. Mig langar mikið
til að dansa hér, það er orðið
svo langt síðan ég hef komið
hér á svið,“ sagði Helgi að Iok-
□ Helgi Tómasson, kona hans Marlene og sonur þeirra Kristinn
Albert á heimili foreldra Helga í Hamrahlíð 35. (Ljósm. Vísis, B. G.).
Morðinginn
ófundinn
■ Reykský huldu Washington,
höfuðborg Bandaríkjanna, f
gær, en þar brutust út óeirðir
vegna morðsins á blökkumanna-
Ieiðtoganum, dr. Martin Luther
King. Svertingjar rændu verzl-
anir og kveiktu í þeim og köst-
uðu flöskum og múrsteinum í
brunaverði, sem reyndu að hefta
útbreiðslu eldsins.
1 fleiri bandarískum borgum hafa
l»-> 10. síða.
Fulltrúar ungmennanna á fundi með Gylfa Þ. Gíslasyni ráðherra á skrifstofu hans í Arnarhvoli. (Ljósm. Vísis Þórunn).
Ungmenni skunda á fund menntamála-
ráðherra með kröfuspjöld og ályktanir
— Framkoma fulltrúa þeirra framúrskarandi
kurteisleg, segir menntamálaráðherra
□ Hópur ungmenna safnaðist saman í miöbænum í gær
með kröfuspjöld til að mótmæla skólakerfi landsins og
krefjast umbóta á því. Fór hópurinn frá Alþingishúsinu upp
í Arnarhvol, þar sem fulltrúar nemenda úr gagnfræðaskóla
Kópavogs, Réttarholts- og Vonarstrætis gengu á fund mennta-
málaráðherra, Gylfa Þ. Gíslasonar. Talsverð ólæti voru í
kringum Arnarhvol meðan á þessum fundi stóð, en hættu
fljótlega.
ýmsu skóla og menntamálaráðu Myndsjáin í dag er af ungling
neytinu." sagði menntamálaráð- unum í miðbænum og uppi
herra. í Arnarhvoli í gær.
rr
Vísir í
vikulokin
fylgir blaöinu i dag
til áskrifenda
Efni m.a:
Allt til páskanna!
Blaðið hafði samband við
Gvlfa Þ. Gíslason og sagði hann
að honum hefði borizt ályktun
frá fulltrúum gagnfræðaskóla-
nemanda og væri hún á þá leið
meðan annars að bæta þyrfti
kennslubækur og gera kennsl-
una meira lifandi.
„Framkoma þessara' ung-
menna sem komu til mín var
mjög til fyrirmyndar á allan
hátt, og þau byrjuðu á því að
afsaka lætin fyrir utan, sem
ýmiss konar „aðskotaunalingar“
stóðu fyrir. Margt, sem þau
sögðu var mjög skynsamlegt og
satt að segja datt mér í hug
meðan á fundinum stóð hvort
ekki ætti að hafa árlegan fund
með fulltrúum nemenda hinna
Ólafsfirðingar í vegasamband
eftir 3 mánaða vegaeinangrun
I KVOLD verður þrigRja mánaða
vegaeinangrun létt af Ólafsfirð-
ingum, en allar Iíkur benda til
þess að vegurinn fyrir Ólafsfjarð
armúla verði opnaður í dag eða
kvöld, eftir því sem Guðmundur
Benediktsson, verkstjóri vega-
gerðarinnar á Akureyri, tjáði
Vísi í gær.
Vegurinn fyrir Múlann milli
Ólafsfiarðar og Dalvíkur hefur
verið lokaður vegna snjóþyngsla
siðan um hátíðar og þótti ekki
fært aö ráðast í að moka veginn
fyrr en nú í vikunni og hefur mokst
ur staðið yfir síðustu daga. Allar
samgöngur til Ólafsfjarðar hafa
farið fram á sjó þennan tíma. —
En Drangur hefur haldið uppi
reglulegum feiðum þangað.
Guðmundur sagði hins vegar, að
ófærðin norðanlands hefði ekki
verið neitt meiri í vetur en þeir
hefðu átt að venjast. Flestallar
leiðir á láglendi eru nú færar norð-
anlands. Fært er austur á Reuf-
arhöfn og austur í Mývatnssveit,
en ekki lengra austur á bóginn og
ekki verður lagt í að ryðja Möðru-
dalsöræfi fyrr en kemur fram á
vorið.