Vísir - 16.04.1968, Page 4
Hann hefur
■
Engin 36 kvénna í kokktéilveizlu
í Stockton í Kalíforníu lét sér
bregða, þðtt tveir vopnaðir raen-
ingjar réðust inn á þaér og heimt
uðu af þeim skartgripi þeirra.
Þær skelltu bara upp úr og
veinuðu af hlátri.
Ræningjariiir fóru af þeirra
fundi, tómhentir og ráðvilltir, þar
sém þeim reyndist gjörsamlega
ómögulegt að sannfæra konurnár
um það, að þéim hefði verið full
alvara.
Konurnar voru víst eitthvað
við skál, enda í kokkteilveizlu,
eins og áður er getið.
Sú var tíðin að eina merki list-
hnéigðar hjá Mafíunni, glæpa-
hringnum alræmda sem menn
urðu varir við, var falskur 100
dollara seðill, en tímarnir hafa
breytzt.
Þegar glæpahringur nú á tím-
um þvingar peninga út úr t.d.
klúbbeigendum, þá er eins líklegt
að klúbbeigandanum verði afhent
um leið oliumálverk — segir I
skýrslu hins opinbera ákæranda í
Kaliforníu.
Þetta er gert til þess, að fórnar
lambið geti gert grein fyrir pen-
ingunum, ef spurt er af lögregl- *
unni. Þarfleysa er, að taka það •
fram, en málverk þessi eru auðvit
að verðlaus.
en kötturinn
Jim Branner, staðgengill i kvikmyndum
Sagt er, að k,ötturinp hafi sjö
líf, en kunnúgir segja, að Jim
Jóganum Maharishi Mahesh ætl
ar að haldast illa á bítlunum, nem
endum sínum, en fyrir nokkrum
vikum yfirgaf Ringó Starr læriföð
ur sinn og snéri aftur til Englands
með konu sinni.
Paul McCartney og vinkona
hans Jane Asher hafa nú einnig
yfirgefið jógann, og eru nú á leið
inni heim. Paul lét þau orð falla
að honum hefði fundizt dvölin
lærdómsrík og ágæt í alla staði,
en þau hafi bara ekki ætlað sér
að vera lengur en mánuð og nú
séu þau búln að vera f 5 vikur.
Hins vegar kvaðst hann hafa tap
að áhuganum fyrir austurlen'zkri
héim'rxaki.
Það hefur heyrzt, að þau Jane
.tli að gifta sig á næstunni.
Jim Branner mundar sig til
þess að stökkva ofan af hús-
þaki.
Branner hafi að minnsta kosti 12
þúsund.
Þessi dökkhærði, fertugi Amerí
kani með liðaða hárið og yfirvara
skeggið er einhver bezti stað-
gengill í Hollywood. Varaskeifa,
sem lætur slá sig þversum í gegn
um hari, í gegnum glerrúður, svo
glerbrotum rignir í kringum hann,
lætur sig detta af póstvögnum.
dregnum af fjórum hestum.
Það er hann, sem við sjáum
detta af húsþaki í stað kvik-
myndahetjunnar frægu. Það er
hann, sem fellur með hestinum til
jarðar og gerir ótal margt annað
sém varaskeifur eru fengnar til
þess að gera þar sem kvikmynda
stjörnumpi þykir ekki óhætt.
Jim Branner telst svo til að
hann hafi verið tekinn af lífi rúm-
lega 12 þúsund sinrtum, en hann
er ekki af baki dottinn og alls
ekki á því að hætta, þótt þessar
svaðilfarir hafi óneitanlega ein-
hverjar v að minnsta kosti verið
honum dýrar. í einni missti hann
framan af vísifingri, þegar fest
var á filmu mynd af sprengingu.
í annarri brotnuðu f honum nokk
ur rifbein, þegar bestur sparkaði
í hann f miðri Indíánaárás, og ó-
talin eru þau skipti, sem eitthvað
hefur brákazt, eða farið úr liði.
■Sérhver góður staðgengili, sem
er fastráðinn við kvikmyndaupp-
töku. fær um 4000 krónur á dag,
jafnvel þótt ekkert sé unniö ein
hverja daga. Jim Branner starfar
að öðru leyti eftir ákveðnum verð
Iista, sem lítur þannig út:
Fall af hraðlest kr 17.000
Slagsmál og fall af hesti kr.
15.000.
Stökk úr hrapandi flugvél kr.—
27.000
Farþegi f bíl sem lendir á kletta
vegg kr. 14.000
Slagsmál á bar kr. 5.000
Ökumaður f árekstri kr. 15.000
Fall af hestbaki kr. 10.000
Fal) af hestbaki f fljóti eða vatni.
kr. 12.500.
„Víst eru þetta góð laun‘\ við
urkennir Jim sjálfur. „En samt eí
Leikstjórinn hefur verið svo hugulsamur að lájta koma fyrir fjað-
urmögnuðum dýnum niðri, svo Jim lendir mjúkt í þetta sinn.
ég alltaf jafn hræddur í hvert
sinn, sem leikstjórinn biður mig
að stökkva ofan af þaki á járn-
brautarlest. Oft biður hann um,
að maður láti sig falla á
ákveðinn blett innan um stórgrýti
og kletta, svo þetta lfti sem bezt
út á filmunni, en það verða of
mörg dauðsföll í minni stétt, ef
krafizt er of mikillar áhættu.
Því hafa menn tekið upp á því
í ríkari mæli að nota dýnur við
slíkar aöstæöur og yfirleitt, þar
sem þeim verður við komiö.
Erfiðast af þessu er líklega fall
af hesti f meiriháttar bardaga, þar
sem hleypt er af skammbvssu og
löörungum er útbýtt til hægri og
vinstri. Hestarnir fælast og mað-
ur á alltaf von á aö fá hófana í
höfuðið meðan maður liggur og
þykist vera dauður.“
*
Hann hefur fleiri líf en kött-
urinn.
Bréf um snjómokstur
„Ágæti Þrándur f Götu!
Þú ert einn þeirra, ég vil
segja fáu, i dagblöðum borgar
innar, er eiga þar pistla, sem
eru almennt lesnir næst á eft
ir almennum fréttum. Það er
margt sem þiö komið inn á i
daglegu lífi borgaranna og þörf
er á að hreyfa við. Þú minntist
nýlega á snjómokstur 1 dálkum
þfnum og varst hvetjandi þess
að fólk tæki sig til og hreinsaði
snjó af gangstéttum við hús
sín. Meðal annars lagðir þú til
að bankar og önnur fyrirtæki
létu starfsfólk sitt moka fyrir
framan hjá þeim, það hefði gott
af hreyfingunni og tilbreyting-
unni frá lýjandi setum daglangt.
Þetta tek ég undir og oft hef
ég tekið til skóflunnar og mok-
að sn]ó. En hér er persónuleg
spuming: Tekur þú stundum til
skólfunnar hjá Vísi?
Nú vil ég geta hér litils dæm
Is af snjómokstri i hverfi því
sem ég bý i. Ég hef tekið eftlr mokaö honum á fætur þessa spuming um hvort ég taki til
því að nágranni minn hér við manns. Hvað viltu segja um skóflunnar hjá Vfsi. Það geri
Fálkagötu, er einn af þejm fáu þetta? Hvað er hér til ráða? ég ekki, því að þar er ég ekki
hér í kring sem hefur mokað Grímsstaðahyltingur“. fastur „morgunmaður", en þar
JífaubðiGotfi
fyrir framan hús sitt af gang-
stéttinni nokkrum sinnum í vet
ur. Þetta er fullorðinn maður
og er sjálfsagt af gamla skól-
anum hvað þetta snertir. Nú,
hvað skeöur. Ekki hefur hann
fyrr verið búinn að hreinsa stétt
ina en nágranni hans, leigjandi
í húsi við hliöina á honum. er
búinn aö moka snjónuni aftur
upp á stéttina og hefur jafrivel
Ég þakka vissulega bréfið. —
Um síðustu spurningamar í bréf
inu eru fá ráð að gefa. Það er
eilíft vandamál í sambýli fólks
hvað sumir einstaklingar eru til-
litslausir og erfiðir í nábýli. —
Yfirleitt er fátt til ráða ef kurt
eisar samræður um vandamál
nábúa ekki leysa málin.
Og svo er hin „viðkvæma"
er vissulega mokað frá, án þess
að borgarstarfsmenn komi til,
og eftir því sem ég bezt veit,
þá er það húsvörður sem það
gerir, enda þarf ekki að klofa
snjóinn til að komast inn. Hins
vegar stunda ég snjómokstur og
er mjög hvetjandi að hver geri
hreint fyrir sínum dýrum.
Yfirleitt þarf fólk að gera
meira af því að gera hreint fyrir
sínum dyrum heima fyrir og
einnig þurfa hinar ýmsu stofnan.
ir að gera slíkt, enda gera þær
það sumar hverjar.
Þrándur í Götu.
„Þrándur í Götu“.
í dálkum yðar 4. þ.m. birtist
kvörtun frá einhverjum ónefnd
um um það, að Coca-Cola sé
ekki eins gott hér og í Ameríku.
Hér er um hreina fjarstæðu að
ræöa. Drykkurinn er búinn til
nákvæmlega á sama hátt hér
og í Ameríku, undir ströngu eft
irliti Coca-Cola félagsins. Því
má og bæta við, að hér á landi
er notaö vatn, sem talið er með
því tærasta og bezta sem bekk-
ist við framleiðslu gosdrykkja.
Verksmiðjan Vífilfetl hf.
Reykjavík.
Við þökkum snara áréttingu
Vifilfells.
I Þrándur í Götu.
t
i