Vísir - 16.04.1968, Page 7
)
rtf S I R . Þriðjudagar 1«. april 1968.
morgun
útlönd.í morgun
útlönd í morgun
útlönd í moréun
útlöndi
Mjög vaxtmdi áhyggjur i V-Þýzka-
landi át af stádentaóeirðunum
— i V-Berlm létu fylkingar sfúdenta ekki undan
siga fyrr en riðandi lögregla réðst gegn l>eim
— óeirðir daglega frá jbv/ á skirdag
EKKeIrT 1ÁT hefur orðið á
stúdentaóeirðunum í Véstur-
Þýzkalandi, en hörðust átök
hafa orðið milli stúdenta og lög-
reglu í Vestur-Berlín, þar sem
leiðtoga róttækra stúdenta, Rudi
Dutschke, va sýnt banatilræði
á skírdag. Gerði það maður að
nafni Josef Bachmann. Dutschke
særðist hættulega og var flutt-
ur í sjúkrahús og tvær kúlur
teknar úr höfði hans, en Bach-
mann var svo mikið særður, að
honum var vart líf hugað. Hann
særðist í viðureign við lögregl-
una.
I fyrradag urðu hörðustu átökin
í Vestur-Berlín milli stúdenta og
lögreglunnar frá þvl á skírdag.
Ganga stúdenta hófst sem venju-
leg páskaganga og friðsamlega, en
átokin hófust er iögreglan bað þátt-
takendur um að dreifa sér. Því
var neitað. Greip lögreglan þá til
þess ráðs að beina vatnsbunum að
fylkingunni, en það haföi ekki til-
ætluð áhrif, og var þá ríðandi lög-
regla send fram og kom fjölmennt
lögreglulið í kjöifar hennar vopnað
kylfum. Stúdentar köstuðu nú
grjóti og karfjflum í lögregluna, en
nú riðluðust fylkingar þeirra. Marg-
ir voru handteknir og margir menn
meiddust bæði af lögreglumönnum
og stúdentum. Kurfiirstendam, þar
sem átökin urðu, var sem vígvöll-
ur eftir átökin, að sögn frétta-
manna.
Sfðar kom til átaka sama dag fyr-
ir framan 3 lögregluskála, en stúd-
entar hö.fðu safnazt saman þar fyr-
ir utan, og biðu þess, að sleppt væri
Átök við eina af prentsmiðjum Axels Springers.
„Rauði Rudi“ ávarpar stúdenta.
úr haldi 140 stúdentum, sem hand-
teknir voru s.l. iaugardag, og var
þeirra meðal Peter Brandt, sonur
Willy Brandts, utanríkisráöherra og
varakanslara.
í fréttum í gær segir, að um gerv-
allt Vestur-Þýzkaland hafi menn nú
vaxandi áhyggjur af stúdentaóeirð-
unum. — Ávarp, sem dr. Kiesinger
flutti, en hann hótaði harðari að-
gerðum gegn stúdentum, virðist
ekki hafa haft áhrif. — í kröfu-
göngunum hafa verið bornir rauðir
| fánar og kjörorö sem þessi voru:
Rudi Dutschke — Ho Chi Minh.
(Um átökin : gær sjá síðar).
Or fyrri fréttum um óeirðirnar:
í fréttum frá Frankfurt á laug-
ardag var sagt, að á föstudagskvöld
og iangt fram á nótt hafi stúdent-
ar og ungmenni hafið umsátur um
prentsmiðjur Axels Springers blaða
kóngs til þess að mótmæla bana-
tilræöinu, sem Dutschke var sýnt
og fréttaflutningi blaða hans.
I Frankfurt var varp'að grióti á
bygginguna þar sem útbreiddastá
blað V.-Þ. Bild Zeitung er prentað.
j og 600 stúdentar hindruðu út-
i keyrslu bíla frá nrentsmiöjunni
J Wolfgang Lefebreve, leiðtogi soci-
alistiska stúdentasambandsins
(SVD) í Vestur-Berlín, kallað í frétt
um ágengasta og bezt skipulagða
stúdentasambandið sem hlítir for-
Harðari sprengjuárásir á
Norður Vietnam
— sama togstreita um viðræðustað
Fréttir frá Saígon í gær hermdu,
að á páskadag hafi bandarískar
sprengjuflugvélar gert harðari
sprengjuárásir á Norður-Víetnam
en á undangengnum 3 mánuðum.
Er þetta haft eftir hernaðarleg-
um talsmanni í Saígon. Þessar árás-
ir Voru gerðar, segir í NTB-frétt,
samtímis sefh stjórn Bandaríkjanna
og stjórn Norður-Víetnam héldu á-
fram togstreitunni um hvaða borg
skyldi valin fyrir undirbúningsvið-
ræður, — ,,án þess aö eins og sakir
standa hilli undir neitt samkomú-
lag“.
í seinustu fréttum er þó sagt, aö
N.-V.-stjórn íhugi Nýju Ðehli-sem
viðræðustað.
Áður hafði verið sagt — en á
þvi fékkst ekki staðfesting — að
Bandaríkjastjórn kynni að fallast
á Varsjá, ef N.-V. héldi íil stxeitu,
að viðræðurnar færu fram þar.
Blöðin í Hanoi ráðast harkalega á
Johnson forseta, og minna á, að
hann hafi margsinnis lýst yfir, að
hann væri reiöubúinn að fara „hve-
nær sem væri og hvert sem væri“,
ef það gæti orðiö til þess að sam-
komulagsumleitanir yrðu hafnar
um frið í Víetnam.
Á páskadág fóru 143 bandarískar
sprengjufíugvélar til árása — eöa
fleiri en nokkurn tíma síðan 6.
janúar. -óg var sprengjum m.a.
varpað á skotmörk nálægt 19.
breiddarbaug. Bandanska beitiskip-
ið St. Paul skaut einnig á staði á
strömdinni.
Tilkynnt er, að bandarískir fall-
hlífarmenn hafi tekið mikilvæga
hæð nálægt Khe Sanh að undirgeng
inni mikilli sprengjuárás, og var
manntión Norður-Víetnama 106 og
munu flestir hafa fallið í sprengju-
regninu. Manntjón Bandaríkja-
manna var 6 fallnir og 12 særöir.
Fyrmefndur talsmaður taidi iík-
legt, að vegna sprengjuárásanna
mvndu Norður-Víetnamar verða aö
hörfa úr stöðvum sönurn næst Khe
Sanh.
SKÓGAREI.DAR Á
MF.KONG-ÓSASVÆÐINU
I fréttum frá Saigon er sagt frá
miklum skógareidum á Mekong-
ósasvæðinu. Talið er, að þeir muni
hafa kviknað. þar sem Víetcong-
liðar voru að leggja veg um skóg-
inn.
ustu Dutschke, fyrirskipaði sams
konar aðgerðir og í Frankfurt í
Essen, Hannover og Miinchen. í
öllum borgunum voru „vatnskanón-
ur“ teknar í notkun til að dreifa
stúdentum, sem kölluðu: Nazistar,
morðingjar!
í framhaldsfréttum var sagt, að
prentsmiðjubyggingar Axels Spring
ers væru eins og virki í umsátri
í mörgum borgum. Stúdentar köst-
uöu grjóti og reyksprengjum.
Um prentsmiöjubyggingar Axels
Springers var sett þreföld gadda-
vírsgirðing og voru hundruð lög-
reglumanna þar á verði.
Á föstudaginn ianga urðu blóðug-
ust átök á John F. Kennedy-torgi
fyrir framan ráðhúsið í Vestur-
Berlín. — Þann dag fréttist, að
Rudi Dutschke — oft kallaður
Rauði Rudi — væri kominn til
meövitundar og var hann sagður
í hægum bata eftir skurðaðgeröina,
sem fyrr var að vikið. Hann varð ,
fyrir þremur skammbyssuskotum á I
götu út.i í V--B. Þrjár kúlur hæfðu
hann í höfuðið og fór ein inn í
heila. Josef Bachmann, 23 ára aö-
dáandi Hitlers, varð fyrir 3 skot-
um. Það er sannað, aö hann skaut
Rudi Dutschke, „af því að hann er
kommúnisti", eins og hann hefur
játað.
Lögreglan í V.-B. leggur þó á-
herzlu á, aö eins og sakir standi
liggi-ekkert fyrir um að nein stjórn-
málasamtök hafi staðið hér aö baki.
Enn kom til óeiröa í gær í
Vestur-Beriín, Munchen, Hamborg
og fleiri borgum og reyr.du stúdent-
ar m. a. að hindra dreifingu blaða
Axels Springers blaðakóngs.
Tuttugu og sex menn meiddust
í óeirðunum í Frankfurt í gær. Að
minnsta kosti þrír bíiar frá Spring-
er-forlaginu voru eyðilagöir og
margir laskaðir þar og í Munchen.
■ Heath, bandaríski ambassador-
inn f Stokkhólmi, er kominn þangað
aftur Hann var kvaddur heim 12.
marz vegna afstöðu Svíá^til Viet-
namstyrjaldarinnar.
B Bandarískir iandgönguliðar
hafa fellt um 500 Norður-Vietnama
og Vietcongliða nálægt Hue þar
sem bandaríska liðið hefur verið
aö uppræta lið andstæðinganna.
Um. 75.000 manna lið Bandaríkja-
manha og Suður-Vietnama er við
sams konar aðgeröir í héruðunum
næst Saigon.
H Norska flugkonan fráega Ingrid
Pedersen lauk í gær seinasta áfanga
flugs síns, frá Grænlandi til Sval-
barða, og var hún 16 klst. á leiöinni.
Ferðin frá Anchorage til Longye-
ar-bæjar er alls 7000 km. Tilgang-
urinn var aö finna hentuga flug-
ieið um þessar norðlægu slóöir fyr-
ir litlar flugvélar. Og hún sagði við
komuna: „Ég held aö ég hafi fund-
ið hana“. Hún leggur af stað í næsta
mánuði sömu leið til baka í eins
hreyfils Cessnaflugvél. — I dag flýg
ur hún til Tromsö.
Johnson konnn
til Howni
Johnson Bandaríkjaforseti er
kominn til Honolulu, til fundar við
Park forseta Suður-Kóreu.
Fundur þeirra er taiinn hinn mik
ilvægasti, einkum nfeð tiliiti til
varna Suður-Kóreu, en Bandaríkin
hafa þar 50.000 manna lið. Þess er
og að geta, aö Suður-Kóreumenn
eru meðal þeirra þjóða, sem eru
bandamenn Bandaríkjamanna í Suö
ur-Vietnam.
Johnson forseti hvatti í gær
stiórn Norður-Vietnams til þess að
faliast á heiðariegt samkomulag um
viðræðustað' í hlutlausu landi.
F.nn er nú frekast rætt um Nýiu
Dehii, sem þá borg, er báðir aðilar
heirf ..tu ;sæjtt sig við.
Áður en Johnson forseti fór tii
Hawaii var hann þrjá daga sér til
hvíldar og hressingar á búgarði sín-
um í Texas.
Auk þess sem forsetinn ræðir i
Honolulu við Chung Hee Park for-
seta .Suður-Kóreu mun hann ræða
viö Ulyssés Grant Sharp flotafor-
ingja ' "irmann alls herafla Banda-
ríkjanna á Kyrrahafssvæðinu.
Meö Johnson forseta fóru til
Ha;aii Earl Wheeler hershöfðingi,
vfirmaöur hins sameinaða herfor'
ingjaráðs Bandarikjanna, William
Bundy aðstoðar-utanríkisráöherra.
Cyrus Vance,. sem fór til Suður-
Kóreu sem sérleeur sendimaður for-
setans, eftir bandaríska könn-
unarsklpið var ha"tekið og flutt til
liafnar i Norður-Kóreu í janúar s.I
2 Kosmos-gervihnettir sam-
tengdir fjarstýrt úti í geimnum
Fjarstýrð samtenging tveggja
sovézkra gervihnatta átti sér stað
í gær úti í geimnum.
Hér er um að ræða gervihnettina
Kosmos 212 og Kosmos 213. .Fyrsta
slík tilraun Sovétmanna var gerð
f október í fyrra. Hér er talið vera
um mik'ilvægt skref að ræða til að
setja á loft geimferðamiðstöð, sem
yrði notuð sem mi.Mistöð í leiðöngr-
um til tunglsins og reikistjarnanna
Bandarískir geimfarar hafa fram-
kvæmt samtengingar gervihnatta
úti í gc nnum 12 sinnum, en hafa
ekki reynt. fjarstýrða samtengingu
Ef til vill verður reynt aö teng.ia
þriðja geimfarið við þau tvö, sem
samtengd hafa verið.
mFvt
imusKRu?-**" •’-TSSST