Vísir - 17.04.1968, Side 1
58. árg. - Miðvikudagur 17. apríl 1968. - 83. tbl.
Varð með höndina á
milli skips og bryggju
■ Það gerist ekki oft, að öku-
menn hringi af sjálfsdáðum til
lögreglunnar og segi henni, að
þeir hafi á tilteknum tíma ekið
jrfir löglegum hraða um götur
borgarinnar, eins og einn gerði
í gærdag.
Vafalítið hefur lögreglumaður-
inn, sem tók í móti tilkynningunni,
haldið í fyrstu, að þama væri um
gabb að ræða, þegar maðurinn við
hinn enda Iinunnar sagðist vilja
skýra lögreglunni frá því, að hann
hefði ekið hratt eftir Ægisgarði þá
fyrr um daginn — hraðar en lög-
iegt hámark leyfir. <
Smám saman skýrðist málið þó,
þvi hinn hafði haft ærna ástæðu
til þess að flýta sér. Hann var á
//
//
\
Lóart er
komin...
— og hefur kveðið
burt
leið til læknis með dreng, sem hafði
verið niður á Ægisgarði, þegar tog-
ari lagðist þar að Ibryggju. Lenti
drengurinn með höndina milli skips
og bryggju og klemmdist iila.
Líklega verður ökumanninum
ekki legiö á hálsi fyrir þetta.
Myndin er frá togarabryggjunni í Reykjavík í mo rgun. Þar var líf og fjör eins og annars staðar við
^höfnina. Verkamennirnir eru að snúa til vinnu að afloknu kaffihléi.
Fjörkippur í utvinnulífínu
— Bátar og togarar afla vel — unnið
ab krafti ab gatnabreytingum
Geysimikil vinna er nú í ver- í Reykjavík hefur vinna verið
stöðvum hér sunnan- og vestan-
lands. Afli togaranna og bátanna
hefur verið geysimikill undan-
farið og því mikil vinna hjá þeim
mjög mikil í hinum fjórum
frystihúsum, sem starfrækt eru,
togararnir Ianda miklum og góð-
um afla daglega, og einnig virð-
sem vinna að frystiiðnaðinum.' ist mikill fjörkippur vera í gatna
snjomn
□ Á örfáum dögum hefur borg-
in gerbreytt um svip, snjóa hefur
leyst, sólin tekið að skína, og
hægur sunnanandvari blæs um
götumar, sem efu fullar af sumar-
klæddu fólki. Sundlaugarnar fyll-
ast strax á morgnana og fóik er
jafnvel komið i sólbað áður en sól-
in kemur upp. Lóan söng sitt
fyrsta „dírrindí“ austur í Árnes-
sýslu laugardaginn fyrir páska og
á páskadag var hún komin alla
leið í Skerjafjörðinn og farinn að
syngja fyrir íbúana þar.
□ Það er ekki lítil breyting að
fá yfir 10 stiga hita eftir 16 stiga
frost aðeins tveimur vikum áður,
enn eins og fólk rekur minni til
var fyrsta aprílnóttin í ár sú kald-
asta sem komið hafði áratugum
saman. Á Lama tíma og frostið í
Reykjavík var 16 stig (20—30 stig
víða úti á landi) var 25 stiga hiti
í Berlín, en nokkrum dögum síðar
iafnaðist þetta upp (rétt fyrir
páskana) og voru bá 11 stig bæði
í Reykjavik og Berlín.
□ Hafísinn, sem var á góðri leið
með að einangra Norður- og Aust-
urland er nú á undanhaldi, og hafa
fáar hafísfregnir borizt undanfarna
daga. Ein kom þó í morgun frá
Dísarfelli sem var statt á miöjum
Héraðsflóa á leið frá Norðfirði til
Vopnafjarðar, og sagði að einstaka
ísiakar væru á þessari siglinga-
leið, einkum út af Borgarfirði.
□ Og Veðurstofan spáir áfram-
haldandi hægviðri og 10 stiga hita
í dag.
framkvæmdum borgarinnar. —
Þrátt fyrir þessa miklu atvinnu
og að all víða sé jafnvel um
vinnuaflsskort að ræða, eru
nokkrir á skrá sem atvinnulaus-
ir hjá Ráðningastofu Reykjavík-
urborgar, eftir því sem þar
fékkst upplýst í morgun.
í morgun var verið að vinna að
löndun úr togaranum Narfa í
Reykjavíkurhöfn, en afli togarans
er um 270 lestir. Á mánudag land-
aði Þorkell máni 320 lesturþ. I
síðustu viku lönduðu 3 togarar hér
í Reykjavík um^ 800 lestum alls.
Allur þessi afli fer til vinnslu í
frystihúsum borgarinnar.
Gatnaframkvæmdir á vegum
borgarinnar eru nú allmiklar.
Vinna stendur nú yfir af fullum
krafti við framlengingu Kringlu-
mýrarbrautar suður i Fossvog, og
eru þar að störfum fjöldi stórvirkra
vinnuvéla, stórra vöruflutningabif-
reiða og að auki verkamenn. Unnið
er nú að breikkun Hverfisgötu inn-
an viö Snorrabraut, en með til-
komu H-umferðar, verður tvístefnu
akstur á Hverfisgötu á kaflanum
milli Snorrabrautar og Þverholts.
Verður Hverfisgatan því breikkuð,
og þar verða 4-5 akreinar, en
breikkun er lokið. Það er því lff-
legt um að litafet í borginni þessa
dagana, sannarlega vorilmur i lofti.
Oxulþungi víðu
takmarkaður
— til að koma i veg fyrir skemmdir
af völdum aurbleytu
Fjölmennt hefur verið í sundlaugum borgarinnar í gær og í dag.
Þessir hraustlegu strákar voru að baða sig í Sundlaugunum i
morgun, þegar ljósmyndarinn átti leið framhjá.
Talsverð aurbleyta er víða á þjóð
vegum og hefur Vegagerðin látið
takamarka öxuiþunga við 5 og 7
tonn á allmörgum þjóðvegum til
að koma í veg fyrir skemmdir af
völdum aurbleytunnar. 7 tonna öx-
ulþungi er leyfður á leiðinni frá
Reykjavik að Dalsmynni og frá
Vegamótum að Borgarnesi. Á Aust
fjörðum og Vestfjörðum er há-
marksöxulþungi víðast hvar 5 tonn.
Ekki er vitað um neinar skemmd
ir á vegum vegna vatnavaxta í ám,
en talsverðar skemmdir af völdum
aurbleytu urðu á veginum milli
Múlakots og Foss á Síðu, en mikil
umferð var þar yfir páskana. Fóru
margir þungir bílar þar yfir, sem
voru á leið austur yfir Skeiðarár-
sand og í gær festust mjólkurbíl-
arnir í aurbleytunni á veginum.
Tókst þeim þó að komast leiðar
sinnar eftir stutta töf og var þegar
í stað hafizt handa um að gera við
veginn á þessum kafla.
900 T0NN TIL EYJA
Einhver mesti afli það sem
af er barst á land í Vest-
mannaeyjum í gær — alls um
900 tonn. Hjá Vinnslustöð-
inni leggja upp 25 bátar, og
komu 18 þeirra inn í gær með
afla sinn eftir frá eins dags
til þriggja sólarhringa úti-
vist.
Þar voru vegin um 300 tonn.
Fiskurinn er afbragðsgóður,
þótt hann sé frekar smár og eru
menn að vonum ánægðir.
Hjá Fiskiðjunni voru lögð upp
eitthvað á fjórða hundrað tonn.
Hraðfrystistöðin tók einnig á
móti miklum afla, svo að gera
má ráð fyrir að afli Vestmanna
eyjabáta hafi veriö um 900 tonn
samtals.
Ekki var landað á Akranesi
frá því á skírdag þar til í gær,
en frá í gær og til hádegis í dag
höfðu bátarnir landað um 500
tonnum af fiski, en hann var orð
inn gamail .og nokkuð morkinn,
4-5 nátta fiskur. Bátarnir voru
með góðan afla eða frá 30 og
upp í 60 tonn, en gæðin voru
ekki þau sem menn sækjast eft-
ir.
Haröur
árekstur
Harður árekstur varð á gatna-
mótum Laugavegár og Nóatúns
i fyrrad., en þar rákust saman fólks
bíll, sem var á leið noröur Nóatún,
og strætisvagn, sem ók niður
Laugaveg. Farþegi í fólksbílnum
slasaðist á höfði og var fluttur á
slysava. ðstofuna.
Þarna á gatnamótunum eru götu-
vitar, en ekki hefur verið rannsak-
að til fullnustu, hvort önnur bif-
reiðin hafi farið þarna yfir gatna-
mótin á rauðu Ijósi, eða hvernig
áreksturinn hefur getað orðið, en
lögreglan vinnur enn aö rannsókn
málsins.