Vísir - 17.04.1968, Síða 1

Vísir - 17.04.1968, Síða 1
 58. árg. - Miðvikudagur 17. apríl 1968. - 83. tbl. Varð með höndina á milli skips og bryggju ■ Það gerist ekki oft, að öku- menn hringi af sjálfsdáðum til lögreglunnar og segi henni, að þeir hafi á tilteknum tíma ekið jrfir löglegum hraða um götur borgarinnar, eins og einn gerði í gærdag. Vafalítið hefur lögreglumaður- inn, sem tók í móti tilkynningunni, haldið í fyrstu, að þama væri um gabb að ræða, þegar maðurinn við hinn enda Iinunnar sagðist vilja skýra lögreglunni frá því, að hann hefði ekið hratt eftir Ægisgarði þá fyrr um daginn — hraðar en lög- iegt hámark leyfir. < Smám saman skýrðist málið þó, þvi hinn hafði haft ærna ástæðu til þess að flýta sér. Hann var á // // \ Lóart er komin... — og hefur kveðið burt leið til læknis með dreng, sem hafði verið niður á Ægisgarði, þegar tog- ari lagðist þar að Ibryggju. Lenti drengurinn með höndina milli skips og bryggju og klemmdist iila. Líklega verður ökumanninum ekki legiö á hálsi fyrir þetta. Myndin er frá togarabryggjunni í Reykjavík í mo rgun. Þar var líf og fjör eins og annars staðar við ^höfnina. Verkamennirnir eru að snúa til vinnu að afloknu kaffihléi. Fjörkippur í utvinnulífínu — Bátar og togarar afla vel — unnið ab krafti ab gatnabreytingum Geysimikil vinna er nú í ver- í Reykjavík hefur vinna verið stöðvum hér sunnan- og vestan- lands. Afli togaranna og bátanna hefur verið geysimikill undan- farið og því mikil vinna hjá þeim mjög mikil í hinum fjórum frystihúsum, sem starfrækt eru, togararnir Ianda miklum og góð- um afla daglega, og einnig virð- sem vinna að frystiiðnaðinum.' ist mikill fjörkippur vera í gatna snjomn □ Á örfáum dögum hefur borg- in gerbreytt um svip, snjóa hefur leyst, sólin tekið að skína, og hægur sunnanandvari blæs um götumar, sem efu fullar af sumar- klæddu fólki. Sundlaugarnar fyll- ast strax á morgnana og fóik er jafnvel komið i sólbað áður en sól- in kemur upp. Lóan söng sitt fyrsta „dírrindí“ austur í Árnes- sýslu laugardaginn fyrir páska og á páskadag var hún komin alla leið í Skerjafjörðinn og farinn að syngja fyrir íbúana þar. □ Það er ekki lítil breyting að fá yfir 10 stiga hita eftir 16 stiga frost aðeins tveimur vikum áður, enn eins og fólk rekur minni til var fyrsta aprílnóttin í ár sú kald- asta sem komið hafði áratugum saman. Á Lama tíma og frostið í Reykjavík var 16 stig (20—30 stig víða úti á landi) var 25 stiga hiti í Berlín, en nokkrum dögum síðar iafnaðist þetta upp (rétt fyrir páskana) og voru bá 11 stig bæði í Reykjavik og Berlín. □ Hafísinn, sem var á góðri leið með að einangra Norður- og Aust- urland er nú á undanhaldi, og hafa fáar hafísfregnir borizt undanfarna daga. Ein kom þó í morgun frá Dísarfelli sem var statt á miöjum Héraðsflóa á leið frá Norðfirði til Vopnafjarðar, og sagði að einstaka ísiakar væru á þessari siglinga- leið, einkum út af Borgarfirði. □ Og Veðurstofan spáir áfram- haldandi hægviðri og 10 stiga hita í dag. framkvæmdum borgarinnar. — Þrátt fyrir þessa miklu atvinnu og að all víða sé jafnvel um vinnuaflsskort að ræða, eru nokkrir á skrá sem atvinnulaus- ir hjá Ráðningastofu Reykjavík- urborgar, eftir því sem þar fékkst upplýst í morgun. í morgun var verið að vinna að löndun úr togaranum Narfa í Reykjavíkurhöfn, en afli togarans er um 270 lestir. Á mánudag land- aði Þorkell máni 320 lesturþ. I síðustu viku lönduðu 3 togarar hér í Reykjavík um^ 800 lestum alls. Allur þessi afli fer til vinnslu í frystihúsum borgarinnar. Gatnaframkvæmdir á vegum borgarinnar eru nú allmiklar. Vinna stendur nú yfir af fullum krafti við framlengingu Kringlu- mýrarbrautar suður i Fossvog, og eru þar að störfum fjöldi stórvirkra vinnuvéla, stórra vöruflutningabif- reiða og að auki verkamenn. Unnið er nú að breikkun Hverfisgötu inn- an viö Snorrabraut, en með til- komu H-umferðar, verður tvístefnu akstur á Hverfisgötu á kaflanum milli Snorrabrautar og Þverholts. Verður Hverfisgatan því breikkuð, og þar verða 4-5 akreinar, en breikkun er lokið. Það er því lff- legt um að litafet í borginni þessa dagana, sannarlega vorilmur i lofti. Oxulþungi víðu takmarkaður — til að koma i veg fyrir skemmdir af völdum aurbleytu Fjölmennt hefur verið í sundlaugum borgarinnar í gær og í dag. Þessir hraustlegu strákar voru að baða sig í Sundlaugunum i morgun, þegar ljósmyndarinn átti leið framhjá. Talsverð aurbleyta er víða á þjóð vegum og hefur Vegagerðin látið takamarka öxuiþunga við 5 og 7 tonn á allmörgum þjóðvegum til að koma í veg fyrir skemmdir af völdum aurbleytunnar. 7 tonna öx- ulþungi er leyfður á leiðinni frá Reykjavik að Dalsmynni og frá Vegamótum að Borgarnesi. Á Aust fjörðum og Vestfjörðum er há- marksöxulþungi víðast hvar 5 tonn. Ekki er vitað um neinar skemmd ir á vegum vegna vatnavaxta í ám, en talsverðar skemmdir af völdum aurbleytu urðu á veginum milli Múlakots og Foss á Síðu, en mikil umferð var þar yfir páskana. Fóru margir þungir bílar þar yfir, sem voru á leið austur yfir Skeiðarár- sand og í gær festust mjólkurbíl- arnir í aurbleytunni á veginum. Tókst þeim þó að komast leiðar sinnar eftir stutta töf og var þegar í stað hafizt handa um að gera við veginn á þessum kafla. 900 T0NN TIL EYJA Einhver mesti afli það sem af er barst á land í Vest- mannaeyjum í gær — alls um 900 tonn. Hjá Vinnslustöð- inni leggja upp 25 bátar, og komu 18 þeirra inn í gær með afla sinn eftir frá eins dags til þriggja sólarhringa úti- vist. Þar voru vegin um 300 tonn. Fiskurinn er afbragðsgóður, þótt hann sé frekar smár og eru menn að vonum ánægðir. Hjá Fiskiðjunni voru lögð upp eitthvað á fjórða hundrað tonn. Hraðfrystistöðin tók einnig á móti miklum afla, svo að gera má ráð fyrir að afli Vestmanna eyjabáta hafi veriö um 900 tonn samtals. Ekki var landað á Akranesi frá því á skírdag þar til í gær, en frá í gær og til hádegis í dag höfðu bátarnir landað um 500 tonnum af fiski, en hann var orð inn gamail .og nokkuð morkinn, 4-5 nátta fiskur. Bátarnir voru með góðan afla eða frá 30 og upp í 60 tonn, en gæðin voru ekki þau sem menn sækjast eft- ir. Haröur árekstur Harður árekstur varð á gatna- mótum Laugavegár og Nóatúns i fyrrad., en þar rákust saman fólks bíll, sem var á leið noröur Nóatún, og strætisvagn, sem ók niður Laugaveg. Farþegi í fólksbílnum slasaðist á höfði og var fluttur á slysava. ðstofuna. Þarna á gatnamótunum eru götu- vitar, en ekki hefur verið rannsak- að til fullnustu, hvort önnur bif- reiðin hafi farið þarna yfir gatna- mótin á rauðu Ijósi, eða hvernig áreksturinn hefur getað orðið, en lögreglan vinnur enn aö rannsókn málsins.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.