Vísir - 23.04.1968, Page 6

Vísir - 23.04.1968, Page 6
6 V í S IR . Þriðjudagur 23. aprfl 1968. TÓNABIO — Islenzkur texti. Heimsfræg og afbragðs vel gerð, ný. ensk sakamálamynd í algjörum sérflokki. Myndin er gerð eftir samnefndri sögu hins heimsfræga rithöfundar ianFlemmings sem komið hef- ur út á Islenzku. Myndin er i litum. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 14 ára. GAMLA BIO Blinda stúlkan (A path of blue) Bandarísk kvikmynd. Aðalhlutverk: Sidney Poitier. Elisabcth Hartman Sýnd kl. 5 og 9. , Bönnuð börnum únnan 12 ára BÆJARBÍÓ Simi 50184. Engin sýning i dag SAMSÖNGUR Karlakórsins Þrestir í Hafnarfirði kl. 9. STJÖRNUBÍO Lord Jim Ný amerisk stórmynd með: Peter OToole — tslenzkur textl. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð börnum innan 14 ára. LAUGARÁSBÍÓ Maður og kona Sýnd kl. 9. íslenzkur texti. Bönnuð börnum innan 14 ára. Hver var Mr. X Njósnamynd í litum og Cin- emascope. Sýnd kl. 5 og 7. Bönnuð börnum innan 12 ára. Miðasala frá kl. 4. NÝJA BÍÓ Ofurmennið Flint fOur Man Flint) íslenzkur texti. Bönnuð yngri en 12 ára. Sýnd kl. 5 7 og 9. HAFNARBÍÓ FLUFFY Sprenghlægileg og fjörug, ný litmynd með: Tony Randali Shiriey Jones — tslenzkur texti. Sýnd kl. 5 7 og 9. inning hans leiddi til 1000 annarra uppfinninga TV'ótt eina í septembermánuði 1966 reis ungur verkfræð- ingur, Donald Wilkes að nafni, úr rekkju sinni og hélt út í bíl- skúr, þar sem hann átti safn verkfæra, en hann fann, að hon- um yröi ekki svefnsamt, fyrr en hann væri búinn að reyna í verki hugmynd, sem hann hafði brotið heilann um alla nóttina. Nokkrum klukkustundum siö- ar hélt hann í höndum sínum á einhverri merkilegustu uppgötv- un aldarinnar, sem vísindamenn hafa skipað á bekk meö upp- finningum á borð við hjólið, vog- arstöngina og aðrar slíkar. Á Donalds tungu hefur þessi uppfinning veriö kölluð Rola- mite, sem er eitt af þessum orðum, sem ógjörningur er að þýða, en hægt er að kalla öllum nöfnum, m.a. rúlluverkið. Þaö er byggt upp af tveim rúllum, eða sfvalningum, sem haldiö er á ákveðnu spori, eða á ákveð- inni braut með renningi úr fjaðrastáli — S-laga. Sívalning- arnir renna fyrirhafnarlaust á braut sinni, vegna þess að renningurinn hreyfist með þeim — algerlega átakalaust. Enginn kraftur fer í það t.d. að sívaln- ingarnir togi í renninginn, né á sér þarna stað nokkur þrýst- ingur innbyrðis. Þetta verk hefur slíkt alhliöa notkunargildi, að það má nota í slökkvara, dælur, ventla, í stór rafmagnsöryggi, hitarofa, i skiptingartengsli, hraöastilla, hemla, höggdeyfa og fleira og fleira. Eiginlega allt, sem kann að koma í hug mönnum. Þegar uppfinning Donalds var kynnt vakti hún gífurlega at- hygli og hugvitssemi hans vakti aödáun. Menn, spurðu, hvernig í óksöpunum stæði á því, að engum hefði komið þetta í hug fyrr. „Það er nú þaö,“ sagöi Don- ald. „Það merkilegasta við þetta er það, að jafnvel hellisbúi stein- aldarinnar hafði allt sem með þurfti, til þess að hrinda hug- myndinni í framkvæmd." Donald Wilkes starfar viö eld- flaugarannsóknir og hann fékk hugmyndina, þegar hann var að vinna í Sandía. Hann var þá með hugann allan bundinn við alls konar höggvara-verk og hvernig höggdeyfar virka. Fyrsta rúlluverkiö bjó hann til úr þjálfum málmrenningi sem hann festi milli tveggja samsíða, sléttra flata, og lét hann renn- inginn liggja I S, en þetta reynd- ist alltof hreyfanlegt og um nóttina, þegar hann lá andvaka datt honum í hug að setja sí- valninga í lykkjurnar á S-inu. Það var einmitt það, sem hann reyndi úti í bílskúrnum sínum, og þegar hann sá árang- urinn, var hann ekki seinn á sér, en dreif sig niður á verk- stæöi rannsóknarstofunnar, þar sem hann vann. Spurningin var sú, hvort sívalingarnir myndu renna innan í lykkjunum, eöa myndi renningurinn færast til með sívalningunum og ekkert rennsli eiga sér stað? Nánari rannsóknir leiddu í ljós, að renningurinn færðist meö sívalningunum og enginn núningur átti sér staö, sem dregiö gæti úr hreyfingum renningsins og sívalninganna. Renningurinn er haföur úr fjaörastáli og leitast við aö rétta úr sér og vinda lykkjurnar af sér. Þegar sivalningarnir hreyfast, vindur renningurinn ofan af öörum en upp á hinn um leiö og leysir þannig í raun- inni sjálfur úr læöingi kraft, sem nægir til þess að færa sí- valningana. Hvort tveggja fær- Hér sést Donald með módeiið, sem hann útbjó nóttina 1966, þegar hann skauzt út í bílskúr. ist meö sama hraða, renningur- inn og sívalningarnir, svo engin mótstaöa myndast af núningi og hreyfingin verður svo til á- takalaus. Lykkjurnar í S ýinna hvor gegn annarri og ef þær eru jafnsterkar haldast sívalning- arnir í kyrrstöðu. Sé til dæmis tekið úr öörum enda renningsins og hann gerð- ur þannig viöaminni og þar af leiðandi veigaminni, þá leitast sterkari endinn við að ýta sí- valningunum í áttina til þess veikari. Sá endinn vindur ofan af sér yfir á veikari endann. Meö þvi svo að hafa sívaln- ingana misstóra og svera, fleiri en tvo og fleiri en þrjá — allt eftir hentugleikum — þá var unnt aö nota rúlluverkið til margs konar ólíkra þarfa. Rúll- urnar þurfa ekki nauðsynlega að vera sivalningar. Unnt er að l\afa þær líka þríhyrndar. fer- kant-ðar, marghyndar jafnvel — allt eftir hentugleikum og þörfum. Þannig myndu sívalningamir liggja í renningnum milli tveggja samsíðra flata og renna upp og niður. AUSTURBÆJARBÍÓ (Spies strike silently) — íslenzkur texti. Mjög vel gerö og örkuspenn- andi. ný, itölsk-amerfsk saka- málamynd f litum, er fjallar um vægðarlausar njósnir í Beir ut. Lang Jeffries. Sýnd kl. 5-15. Bönnuð börnum innan 16 ára. Ný „Angelique-mynd:“ Angelique / ánauð Áhrifamikil, ný, frönsk stór- mynd. — ísl. texti. Michéle Mercier Robert Hossein Bönnuö börnum. Sýnd kl. 5 og 9. HASKOLABIO Slm' 22140 Gamanmyndasafn MGM (M.G.M. big Parade of Comedy) Þetta eru kaflar úr heimsfræg- um kvikmyndum frá fyrstu tíð. Fjölmargir frægustu leikarar heims, fyrr og sfðar koma fram í myndinni, sem hvar- vetna hefur hlotiö metaðsókn. Sýnd kl. 5, 7 og 9. WÓDLEIKHIÍSIÐ <§síautefíuff<m Sýning miðvikudag kl. 20. Z> Sýning fyrsta sumardag kl. 15. /7?7óFð/77?t ~!&77Fi Sýning fyrsta sumardag kl. 20. Aðgöngumíðasalan opin frá kl. 13.15 til 20. Simi 1-1200 LEIKHÉLML JEYKJAyÍKDR^ SUMARIÐ '37 Sýning miðvikudag kl. 20.30. Síðasta sýning. O D Sýning fimmtudag kl. 15. Allra síðasta sýning. Hedda Gabler Sýning fimmtudag kl. 20.30. Sýning föstudag kl. 20.30. Fáar sýningar eftir. Aðgöngumiðasalan Iðnó er opin frá kl 14 Simi 13191

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.