Vísir - 27.04.1968, Side 1

Vísir - 27.04.1968, Side 1
VISIR 58; árg. - Laugardagur 27. april 1968. - 91. tbl. íslenzkar friðarsveitir? — ungur sænskur prestur kynnir slika starfsemi Friðarsveitir hafa verið ís- lendingum ókunnugar til þessa, en hér er nú staddur ungur sænskur prestur, séra Jonas Jonsson, sem hyggst kynna starfsemi og tilgang siíkrar starfsemi fyrir Islend- ingum. Blaðamenn fengu að spjalla við séra Jonas á blaða mannafundi með séra Árelí- Viðskiptamálaráðherra á blabamannafundi: „Stofnun norræns tollabandalags gerír íslendingum aðild að EFTA nauðsynlegrí" — Gætum ekki orðið aðilar að ,Tollabandalagi Norðurlandanna' Áhugi hinna fjögurra Norðurlandanna á stofn- un norræns tollabanda- lags, eða jafnvel nor- ræns efnahagsbanda- lags, hlýtur að ýta undir okkur að hraða athugun á möguleikum til þess að ganga í EFTA, — sagði Gylfi Þ. Gíslason, við- skiptamálaráðherra, á fundi með blaðamönn- um í gær. Ráðherrann var nýkominn heim af ráðherrafundinum í Kaupmannahöfn, sem forsætis-, utanríkis- og viðskiptamálaráð- herrar Noröurlandanna sóttu. Skýrði hann blaðamönnum svo frá, að eitt mál hefði verið athyglisverðast á ráðherrafund- inum — frá bæjardyrum Islend- inga séð — en það hefðu verið umræðurnar um stofnun norræns tollabandalags, nor- ræns efnahagsbandalags og fjár festingarsjóðs Norðurlandanna. „Dönum, Norömönnum og Sví um, sem allir hafa sótt um að- ild að Efnahagsbandalaginu, þyk ir dragast nokkuð á langinn, aö þeim verði veitt aðild, og telja að langur tími muni líða, áöur en af þvi veröur“ sagði Gylfi Þ. Gíslason. „Því vilja þeir gera eitthvað á eigin spýtur og einkum hafa Danir knúið á um það, að at- huguð veröi stofnun „Tolla- bandalags Norðuriandanna", eöa jafnvel „Efnahagsbandalags Norðurlandanna". Þar er um að ræða að taka upp þráðinn, þar sem frá var horfið fyrir 10 ár- um, en þá var rætt um þetta í fu'llri alvöru." Hugmyndin er sú, að Norður- löndin taki upp einn sameigin- legan toll gagnvart öðrum lönd- um, en felli tolla á iðnaðar- og landbúnaðarvörum innbyrðis. „Engin endanleg ákvörðun var tekin á ráðherrafundinum um þetta, en hins vegar komu hin Norðurlöndin sér saman um það að setja á laggirnar embætt ismannanefnd, sem skyldi at- huga þessi mál og jafnframt hugmynd um stofnun „Fjárfest ingarsjóðs Norðurlandanna". 1»-*- 10. síða. usi Níelssyni sem er formað- ur Bandalags æskulýðsfélaga í Reykjavik, frú Herdísi Tryggvadóttur. sem var aðal- hvatamanneskja að komu séra Jonasar hingað, auk ým- issa annarra sem hafa áhuga á þessu máli. Séra Árelíus sagði blaðamönn um að mikill áhugi fyrir friðar sveitum hafi kviknað hér á landi hjá ýmsum aðilum, og kvaðst hann sjálfur hafa farið utan til að kynna sér slika starfsemi. Fyrir tilstilli séra Jóns Bjarm- an og þá einkum frú Herdísar, var séra Jonas fenginn hingað til lands, en hann starfar þó ekki á vegum friðarsveitanna sænsku, heldur á vegum sænsku kirkjunnar. Hann þekkir hins 10. síða. Iðnaðurinn fái að fylgjast náið með" // — segir i ályktun iðnrekenda um EFTA Ársþingi iðnrekenda 1968 lauk i gær. Lokafundurinn hófst með hádegisverði að Hótel Sögu. Fundarstjóri var kjörinn Sveinn B. Valfells og fundarritari Þor- varður Alfonsson, framkvæmda- stjóri Félags ísl. iðnrekenda. Jón as Haralz forstjóri Efnahags- stofnunarinnar flutti ræðu um atvinnuþróun á Íslandi og gerði grein fyrir atvinnuskiptingunni eftir starfsgreinum eins og hún hefði verið og eins og líklegt væri að hún yrði á næstu tveim- ur áratugum. Jafnframt gerði Jónas Haralz grein fyrir sam- hengi þessarar þróunar við mark aðsbandalögin í Evrópu og þá sérstaklega Fríverzlunarbanda- lagið. Að lokinni ræðu Jónasar Haralz voru fjölmörg hagsmunamál iðnað- arins tekin til umræðu þ. á m. afstaðan til Fríverzlunarbandalags- ins. Goðafoss seldur Smiði þriggja nýrra skipa fyrir E. I. undirbúin Eftirfarandi ályktun var gerð: „Ársþing iðnrekenda 1968 telur nauðsynlegt, að fram fari á því rækileg athugun, hvernig framtíö- ar hagsmunir íslenzks atvinnulífs verði bezt tryggðir með ti'lliti til þeirrar þróunar, sem átt hefur sér stað á undanförnum árum á sviði alþjóðaviðskipta og þá einkum við myndun markaðsbandalaga í Evr- ópu. Með tilvísun til yfirlýstrar stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum efnum leggur ársþing'ð áherzlu á, að samtökum iðnaöarins verði gef- inn kostur á að fylgjast náið með þeim athugunum, sem fram fara nú á hugsanlegri aðlid að EFTA og jafnframt að fyllsta tillit verði tekið til þeirra sjónarmiða er fram koma frá iðnaðinum. i Felur ársþingið stjórn Félags ís- ! lenzkra iðnrekenda að fylgiast vel ' með framvindu þessara mála og j kynna þau félagsmönnum, svo sem ; kostur er." Ársþinginu var slitið um kl. 17.00 af formanni Félags íslenzkra iðn- rekenda Gunnari J. Friörikssyni. Mesta kjarnorku- sprenging nedan- jarðar til þessa — i gær i Nevada- auðninni. Styrkleikinn 1,2 milljónir lesta ■ Kjarnorkustofnun Bandaríkj- anna lét í gær framkvæma mestu kjarnorkusprengingu til þessa dags í Nevadaauðninni. Styrkleikinn var 1,2 milljónir lesta. Kjarnorkuráðið hafði birt aðvar- anir þess efnis, að áhrifanna kynni að gæta í allt að 400 km. fjarlægð. Starfsmenn i stjórnarturninum 160 km. vegarlengd frá staðnum, þar sem sprengingin átti sér stað, urðu ekki varir neinna hræringa. í Las Vegas sveigðust veggir skýjakljúfa 10—12 sentimetra en engar fréttir bárust um verulegt tjón. Sprengjunni var komið fyrir 1200 metra í jörðu niðri. M.s. „GOÐAFOSS" elzta skip Eimskipafélagsins, byggt hjá skipa- smíðastöð Burmeister & Wain í Kaupmannahöfn 1948, hefur verið á sölulista um nokkurt skeið. Hafa nú tekizt samningar um sölu á skipinu ti'I skipafélagsins Cape Horn Shipping Development Cor- poration í Monroviu í Líberíu. Verð ur skiþið væntanlega afhent kaup- endum í síðari hluta júnímánaðar. Félagið hefur nú í undirbúningi smíði tveggja nýrra frystiskipa og eins skips til almennra vöruflutn- inga. Er gert ráð fyrir, að byggingu þeirra megi Ijúka á árunum 1970 og 1971. Skipin munu verða útbúin öllum nýtízku tækjum, sjálfvirkni í vélarúmi og verða lestar og lest- arútbúnaður gerður með það fyrir augum að tryggja fljóta fermingu og affermingu. Varanieg merk- ing gatnanna í fyrradag var byrjað á því að merkja götur borgarinnar á nýjan og endingarbetri hátt en gert hefur verið áður. Hingað var fengin vélasamstæða frá Danmörkn sem fræsir mnlbikið upp og síðan er settur hvítur massi í raufamar. í gær var verið að merkja Borgartúnið á þennan hátt. Gert er ráð fyrir, að véla- samstæða þexsi verði notuð við merkingar þessar í nokkurn tima, og vonazt til, ef veður leyfir, að merkingum gatna verði komið nokkuð áleiðis, er umferðarbreytingin verður 26. maí n. k. v\ • *V, vvv v

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.