Vísir - 30.04.1968, Síða 1
VISIR
58. árg. — Þriðjudagur 30. aprfl 1968. - 93. tbl.
Skipverjar á Ásmundi hlutu
3ja og 4ra mánaða fangelsi
og 950 þúsund kr. sekt hver
— Dómur fallinn i smyglmálinu
Hola í veginum á
fjarðarheiði kom
upp um smyglið
■ Oft veltir lítil þúfa
þungu hlassi. - en stór
hola í þjóðvegi yfir Fjarðar-
heiði varð til þess að upp
komst um tilraun til smygls
skipverja á m.s. Mánafossi,
eftir að skipið hafði tvisvar
farið í gegnum toilskoðun,
án þess að smyglvarningur
þessi fyndist.
Maður frá Egilsstöðum haföi
af góðsemi sinni tekið að sér
að fara með nokkra pakka frá
Seyðisfirði ti! Egilsstaða og
koma þeim í flugvél, en send-
ingu þessa átti skipverji um
borð f Mánafossi, sem hafði
komið við á Seyðisfirði.
Á leiðinni yfir Fjarðarheiði til
Egilsstaða kastaðist farangur-
inn til í bíl mannsins og gaus
um leið upp mikill áfengisþefur
í bílnum. Grunaði hann þá ým-
islegt og hélt sem leið lá til
hreppstjórans á Egilsstöðum,
sem rannsakaði pakkana. Voru
það 7 pappakassar og 5 ferða-
töskur.
I þeim fundust 95 genever-
brúsar, 114 vindlingalengjur, 3
bílaviðtæki og_12 brúsar af hár-
lakki — að verðmæti á annað
hundrað þúsundir króna.
Málið er nú i rannsókn í
höndum sýslumannsins f S,-
Þingeyjarsýslu og tollgæzlu-
stjóra.
Það hefur heldur lifnað yfir baðstöðum borgarinnar þessa fyrstu sumardaga, enda hefur gefið til þess £
sólskininu. Tími sólbaðanna fer i hönd, og brátt má sjá fólk á húsasvölum og 1 görðum að sækja sér
sólroða á hörundið. — Ljósmyndari Vísis skyggndist undir vatnsborðið í Sundiaug Vesturbæjar £ gær og tók
þessa mvnd í gegnum laugargluggann. Stúlkan á myndinni er raunar kunn sundmær, Matthildur Guðmundsd.
Áhættuminna að fara til
tt
Spánar / skólaferðalag"
segir fararstjóri verzlunarskólanemanna,
sem voru 32 tima yfir tvær heiðar
■ Verzlunarskólanemarnir 80,
sem urðu að gista á Holta-
vörðuheiði £ fyrrinótt, eru nú
komnir heilu höldnu i bæinn
eftir miklar svaðilfarir. Voru
þau á fjögurra daga ferð til Ak-
ureyrar, og hrepotu hið versta
veður. Tók nær 8 tíma fyrir þau
að komast yfir Öxnadalsheiði,
og slasaðist þar einn piltanna
og varð að flytja hann í sjúkra-
bfl til Akureyrar, og ferðalagið
vfir Holtavörðuheiðina tók sam-
tals 24 tíma, og lenti önnur rút-
Stjórn Laxárvirkjunar vill
taka að sér bygginr-j f /rstu
pfuaflstöðvarinnar
an út af og varð að skilja hana
eftir.
Blaðið haföi samband viö Þor-
stein Magnússon, kennara, sem
fór með nemendunum norður,
og sagði hann að þetta hefði ver-
ið hin mesta ævintýraferð.
„Krakkarnir stóðu sig mjög vel,
og þetta heföi aldrei lánazt svona
vel ef rúturnar hefðu verið fullar
af fullorðnu fólki,“ sagði Þorsteinn.
Við báðum Þorstein að segja okkur
ferðasöguna í stuttu máli.
„Ferðin gekk vel norður á Ak-
ureyri, en á föstudag byrjaði að
snjöa og á laugardag kl. 3 lögðum
við upp á Öxnadalsheiði. Var
skyggni þá siæmt, og er viö kom-
um inn að Bakkaseli, var alger-
iega ófært lengra. Þegar við vor-
um að reyna að ýta bílnum, meidd-
ist einn piltanna, og héldum við
hann fótbrotinn. — Var kallað á
sjúkrabíl frá Akureyri, en hann
komst ekki alla leið upp á heið-
ina, og fengum við þá starfsmann
10. siða
Hjartasjúkling
urinn í París
lézt árdegis
Hjartasjúklingurinn í Paris,
CIovis Roblain, er látinn. Hann
komst aldrei til meðvitundar eft-
Ir að aðgerðin var gerð á honum.
Maurice Mercadier, yfirlækn-
ir skurðlækningadeildarinnar til-
kynnti það með þessum orðum:
„Það, sem við óttuðumst mest,
hefur gerzt.“ (Roblain lézt kl.
10.30).
QB Stjórn Laxárvirkjunar sam-
þykkti á fundi sfnum i lok
sl. viku að taka að sér bygg-
!ngu gufustöðvarinnar í Náma-
skarði, en ráðgert hafði verið að
Rafmagnsveitur ríkisins stæðu
að gerð þessarar fyrstu gufu-
aflstöðvar á Islandi.
Stjórn Laxárvirkjunar mun hafa
komizt að þeirri niðurstöðu, að
heppilegra væri, að tveir aðilar
ræðu ekki að rafmagnsframleiðslu
I á sama aflsvæðinu ,en einnig væri
mikill sparnaður fyrir Laxárvirkj-
j un að geta nýtt þegar í stað raf-
| orkuna, sem frá þessari gufuafl-
stöð fengist, þar sem ekki þyrfti
að kynda topporkustöðina að sama
skapi, eftir að gufuaflstööin er
komin í gagnið.
Ef Laxárvirkjun tekur að sér
byggingu gufuaflstöðvar. er áætlað
að hún verði komin í gagnið fvfir
næsta haust og mun því nýtast
Laxárvirkjunarsvæðinu þegar
næsta vetur.
Gufuaflstöðin verður reist við
Námaskarð. Hún verður tiltölu-
lega lítil tilraunarafstöð, sennilega
urn 2500 kw.
Umfangsmiklar virkjanir höfðu
verið áætlaðar i Laxá. — Ef af
því verður, að Laxárvirkjun tekur
að sér bvggingu gufuaflstöövarinn
ar, mun það a.m.k. dragast 1-2 ár,
að ráðizt verði í virkjanirnar, en
einnig er hugsanlegt að aldrei verði
ráðizt í að virkja Laxá frekar, ef
gufuaflstöðin gefur góða raun.
Full atvinna er aðal-
krafa 1. maí ávarpsins
Höfuðkrafan í 1. maí ávarpi
fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna
í Reykjavík er um fulla atvinnu,
— að atvinnuieysi verði bægt
frá.
í ávarpinu er einnig krafa
um uppbyggingu íslenzks at-
vinnuiífs. Þá er neitað umfangs
mikÞli opnun hagkerfisins fyrir
samkeppni fvrir erlenda aðila.
Ennfremur er þar krafa um, aö
dagvinnutekjur nægi til lífs-
viðurværis.
Loks er lýst stuðningi við fá-
tæka albýðu erlendis, undirok-
aðar bjóöir, þróunarlönd og
undirokaöa kynþætti, frið í Ví-
etnam og aukið lýðræði f heim-
inum.
Kröfugangan 4 Reykjavik
hefst^ kl. 2 hjá Iðnó. Á útifund-
inum á L.ækiartorgi tala Guð-
mundur J, Guðmundsson og
Hiimar Guðlaugsson.
■ Kveðinn var upp í sakadómi
Reykjavíkur í dag dómur í
máli ákæruvaldsins gegn skip-
verjum á m. b. Ásmundi GK-30
og hlaut hver skipverja 3 mán-
aða fangelsi, en skipstjóri báts-
ins 4 mánuði. Að auki var hver
hinna ákæ/ðu dæmdur í 950 þús-
und kr. sekt og áfengið, sem
nam að verðmæti um 5,2 millj-
ónum kr., var gert upptækt til
ríkissjóðs og einnig báturinn,
m. b. Ásmundur.
Hinir kærðu, Harry Steinsson,
skipstjóri, Halldór Sigurjón Sveins
son, stýrimaður, Guöjón Sigurjóns-
son, Sigurður Magnússon og Kristj
án Óskarsson, voru taldir sannir
að sök um að hafa flutt ólöglega
til iandsins með bátnum 11 þús-
und lítra af genever, sem ætlaður
var til sölu, og nokkurt magn af
öðru áfengi. Það var talið sannað,
að einn ákærðu hefði selt 48 lítra
af genever eftir komuna hingað til
landsins.
Þá þótti einnig sannað, að þeir
hefðu haft meðferðis til Belgíu kr.
440 þús. í íslenzkum peningum,
10. síða.