Vísir - 03.05.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 03.05.1968, Blaðsíða 1
Skattskráin mánuði fyrr en venjulega Stefnt er að því að Skatt- skráin í ár komi nokkru fyrr en vanalega, eða um mánaðamót- in maí-jiini. Er ekki endan- lega ljóst hvenær lokið verður við skrána, en samkvæmt upp- lýsingum sem blaðið frékk hjá Skattstofunni í morgun, standa vonir til að henni verði lokið.l. júní. Yfirleitt hefur Skattskrá- in komið nokkru seinna, en í fyrra kom hún í júlímánuði. SÍÐASTA ÁÆTLUNAR- FLUGSEXUNNAR — Loftleiðir segja skilid við traustar og farsælar flugvélar ■ Loftleiðir sendu í morgun „Sexu“ í síðasta skipti í áætl unarflug yfir Atlantshafið, en héðan í frá verða eingöngu notaðar RR-400 fiugvélar í öllu áætlunarflugi félagsins. Það var Þorfinnur karlsefni, sem fékk þann heiður að segja skilið við merkan kafia í sögu Loftleiða, en hann var sendur til London og Glas- gow f morgun undir stjórn Fróða Björnssonar. Loftleiðir segja nú skilið viö tæplega 9 ára dygga þjónustu DC-6b flugvélanna, sem hafa flutt tugi ef ekki hundruð þús- unda farþega yfir Atlantshafið og hafa malaö hægt en örugg- lega gull fyrir félagið og þá jafnframt fyrir þjóöina á umliðn um árum, án þess að nokkurn tíman hafi komið til óhappa á hinni erfiðu leið yfir N-Atlants- hafið. Loftleiðir hafa lengi haft hug á því að leggja niður áætlunar- flug með „Sexunum", enda hafa þær sífellt orðið óhagkvæmari í rekstri, en um alllangan tíma fékkst ekki leyfi flugferðayfir- valda í Bretlandi og Skandi- navíu til að fljúga RR-400 í á- ætlunarflugi þangað. I marz sl. fékkst loks leyfi til að fljúga RR-400 til Skandi- navíu og í byrjun apríl fékkst samsvarandi leyfi I Bretlandi. Loftferðasamningar við þessi lönd voru fram til þess tíma bundnir þvf skilvrði, að ein- göngu væru flogið með hinum gömlu hægfara DC-6b þangað á lægri fargjöldum, en tiðk- ast hjá IATA-flugfélögunum. Um miðjan þennan mánuð fá Loftleiðir nýja RR-400, sem nota á í áætlunarflugi til Norð- urlanda. Hún veröur að því leyti frábrugðin öðrum RR-400 flugvélum Loftleiða, að hún verður ekki lengd. Mun hún þvi „aðeins“ taka 160 farþega en hinar flugvélarnar taka 189 farþega. Skotarnir komnir. Leikurinn verður spennandi! — segir form. brezka bridgesambandsins um landsleikinn i kv’óld — Þið Islendingar, eigiö góöa inga, unnið Camrosemótið, sem hald bridgespilamenn og ég veit, aö þess ir leikir verða skemmtilegir, —- sagði Louis Shenkin, formaður brezka bridgesambandsins. viö komu skozku spilamannanna í gær- kvöjdi. Hann og sex aðrir beztu spila- menn Skota eru komnir hingaö til þess aö splla landsleik i bridge viö Island í kvöld í Sigtúni kl. 8 og verður leikurinn sýndur á sýn- ingartöflu, svo að áhorfendur geti sem bezt fylgzt meö. „Já, við þekkjum þá, spilamenn- ina ykkar. Viö kynntumst þeim í Dublin, bar sem þeir komust í annað sætið rétt i síöustu um- ferðunum. Þar stóöu þeir sig vel, en ég er sannfærður um, aö þeir heföu getað gert betur. En ég kynntist þeim betur, þegar þeir heimsóttu okkur til Skotlands fyrir það mót, og því veit ég, að bessi leikur verður skemmtilegur." Louis Shenkin er fyrrverandi for seti skozka bridgesambandsins og hefur víða komið — „Island er eitt af þeim fáu löndum, sem ég hef ekki komið til áður“, — —og mörg um spilamönnum kynnzt, bæði við hridgeborðið og á annan hátt. Hann segir, að í SkotUndi einu =éu um 10.000 bridgespilarar á skrá. en Skotar hafa lengi búið við góða bridgemenn og þar færist nú 'huginn á soilimi enn í aukana. Skotar hafa einir utan Englend- ið er árlega á Bretlandseyjum, en þar eigast við Engl., Wales, Skot- iand og Irland. Þeir sjömenningarnir munu fara héðan aftur á mánudag, en auk leiksins í kvöld munu þeir spila við A-sveit Norðurlandafaranna á sunnudag í Sigtúni og hefst sá leik- ur kl. 1.30 og verður sýndur á sýningartöflu. Á morgun gefst mönnum tækifæri til þess að kynn- ast þeim af eigin raun við spila- borðið, en þá munu þeir spila í hraðsveitarkeppni 22ja sveita í Skozku spilamennirnir fyrir utan Hótel Sögu í gærkvöldi. Frá vinstri: J. R. Allan, Louis Shenkin, Domus Medica, sem hefst kl. 2. John MacLaren, I. M. Morrison, Archie Winetrobe, J. G. Shearer, Charles Bowman fyrirliði. NEYÐARÁSTAND YFIRV0FANDI HJÁ BÆNDUM VEGNA KULDANNA — Margur orðinn heylitill — Skepnur komast ekki á beit fyrr en kemur fram á sumar „Það horfir nú þunglega fyrir bændum, einkum á Norð-Austurlandi,“ sagði Guðmundur Jósafatsson, fulltrúi hjá Búnaðarfélag- inu í morgun, er við spurð- Smjörframleiðslan 1967 jókst um 16,8% Smiörframleiðslan á árinu 1967 var 1365 tonn og osta- framleiðslan 1145 tonn. Þetta kom fram á ársfundi Osta- og smjörsölunnar s.f., sem hald- inn var 30. apríl s.I. og hef- ur smiörframleiðslan aukizt á árini: um 16,8%. Heildarsala á smjöri á árinu várð 1101 tonn, en af osti seld- ust 535 tonn. Útflutningur mjólkurvara varð sem hér segir: Ostur 404 tonn Nýmjólkurduft 671 — Kasein 250 — Smjör 2 — Heildarvelta fyrirtækisins á árinu 1967 varð 354 milljónir króna. Heimasala mjólkursam- laganna í unnum vörum nam um 94,7 milljónum. Samanlagt söluverðmæti vinnsluvara mjólk uriðnaðarins á árinu varð því röskar 448 milljónir. Dreifingar og sölukostnaður fyrirtækisins varð á árjnu 10,6 milljónir, eöa um 3%. Endurgreidd umboðslaun til mjólkursamlaganna námu kr. 4.499.127.64. Framkvæmdastjóri upplýsti á fundinum, að búið væri að greiða 'mjólkursamlögunum allt andvirði seldra vara á árinu 1967. um hann um útlitið varð- andi vorkomuna hjá bænd- um, en óvanalega mikil frost hafa verið undan- farna daga, einkum nálægt Raufarhöfn, en þar var 12 stiga frost s.l. nótt. ísfregn ir hafa borizt í morgun frá mörgum stöðum á Norður- og Austurlandi, og virðist ísinn stöðugt færast nær landinu. ísbreiðan virðist samfelld allt vestur til Grænlands. „Við vitum hvað það þýðir, þeg- ar ísinn liggur aö landinu i maí,“ sagði Guðmundur ennfremur. — „Bændur eru kvíðafullir. enda orðnir heylitlir eftir erfiðan vetur. Flestir bændur hafa drýgt hey meö fóðurbætisgjof, en ef þeir geta ekki hleypt skepnunum út áður erj langt um líður, þá er hætt við að mjög margir verði heylausir. Enn- þá er víðast hvar tilgangslaust að setja skepnur út, nema þá helzt kindur, þar sem aðeins er hægt að beita á sinu. Yfirleitt er ekkert farið að grænka, og þar sem ísinn liggur að ströndum á allur gróður mjög erfitt uppdráttar.“ ísinn er nú landfastur við Gríms- ey og Skoruvík. og víða eru land- fastar ísspangir. ísinn við Dala tanga hefur færzt nær og í ísfregn 10. síöu Ræöismann- inum vikið frá Ræðismanni íslands i Rotter- dam, Jóhannesi Petrus Seewuen hefur fyrir riokkru verið vikið frá störfum. Það var vitnisburður skipverja á Ásmundi GK-30, sem nýlega voru dæmdir í Sakadómi Reykjavíkur til refsingar fyrir á- fengissmygl, sem orsakaði það, að honum var vikið úr starfi. Báru skipverjar þaö, að ræðis- maðurinn hefði annazt milligöngu um kaup þeirra á áfenginu, þegar þeir voru staddir erlendis. Enn sem komið er, hefur enginn verið skipaður ræðismaður í hans stað.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.