Vísir - 06.05.1968, Síða 1

Vísir - 06.05.1968, Síða 1
 1968. - 97. tbl. Peningakassa stolið Enginn varð til þess að hindra för tveggja manna, sem af furðu legri biræfni og ósvífni rændu peningakassa úr Brauðbæ við Þórsgötu á laugardagskvöld. Það hafði verið fátt um við- skiptavini síðari hluta kvöldsins og því enginn staddur frammi í af- greiðslunni, þegar þessa tvo ná- unga bar að garði. Afgreiðslufólk- ið var inni i herbergi einu á bak við. Mennirnir gerðu sér lítið fyrir og þrifu peningakassann af borðinu og hlupu með hann út, en af- greiðslufólkið áttaði sig ekki á því, hvað gerzt haföi fyrr en allt var orðið um seinan og mennirnir á bak og burt. 1 kassanum voru milli 15 og 16 þúsund krónur eftir viðskipti dags- ins. Lögreglan leitar nú mannanna tveggja, en peningakassinn fannst í nágrenni fyrirtækisins og hafði þá verið tæmdur. 1 anddyri Hótel Sögu í gærkvöldi: Frá vinstri Jóhann Hafstein ráðherra, frú Rostoft og Sverre W. Rostoft ráðherra. Norski iðnaðarmálaráðherrann við kontuna í gœrs „Reynsla NorBmanna af íFTA er góð" Hefur hlakkað lengi til oð heimsækja Island — Lengi höfum við hjón- in hlakkað til þess að heim- sækja Sögueyjuna. — sagði Sverre W. Rostoft, iðnaðar- málaráðherra Noregs, við komu sína hingað í gærkvöldi Ráðherrahjónin komu til Keflavíkurflugvallar um kl. 18.15 í gærkvöldi með flug- vél F.Í., en þar var staddur Jóhann Hafstein, iðnaðar- málaráðherra, og tók á móti þeim. ,,Af þeim fjölda landa, sem ég hef heimsótt, hef ég aldrei komið til íslands áður,“ sagði Sverre Rostoft, ráðherra, þegar blaðamaður Vísis hitti hann að máli í anddyri Hótel Sögu við komuna í gær. Hann kvað sér lítast vel á landið við fyrstu sýn og hefði hann haft mikla ánægju af öku- ferðinni sunnan af Keflavíkur- velli. Ráðherrahjónin koma hingað sem gestir rikisstjómarinnar og munu dveljast hér til næstkom- andi föstudags, en á þeim tíma munu þau kynnast mönnum og málefnum i iðnaði og stjórn- sýslu og landinu að nokkru. Til þessa heimboðs var stofn- að eftir að Jóhann Hafstein ráð- herra og kona hans höfðu veriö gestir norsku rikisstjórnarinnar á s.l. hausti. I opinberri frétta- tilkynningu segir, að til grund- vallar báðum heimsóknunum liggi, að efna til aukinna per- sónulegra kynna og samstarfs milli ráðamanna landanna. Sverre Rostoft ráðherra mun flytja fyrirlestur í Sjálfstæðis- húsinu kl. 16 í dag og mun hann fjalla um ýmsa þætti norsks iðnaðar, þ. á m. reynslu B--V 10. síða Dr. Gunnar Thoroddsen er kominn til landsins Stuðningsmenn beggja frambjóðenda undirbúa blaðaútgáfu - Dr. Gunnar Thoroddsen sendi- herra kom á laugardaginn til landsins til þess að taka þátt f undirbúningi forsetakosning- anna og mun dveljast hér fram yfir kjördag. Myndin var tekin af hjónunum, Völu og dr. Gunn- ari, við komuna tii landsins. Senn fer að færast líf í und- irbúninginn fyrir forsetakosn- ingarnar 30. júní. Stuðnings- menn beggja frambjóðeiida hafa opnað skrifstófur í Reykjavík og eru að vinna að skipulagn- ingu kosningastarfsins um allt land. Báöir aðilar eru að vinna ar blaðaútgáfu í tilefni kosning- anna. Þá hafa rúmlega 300 kunn- ir borgarar birt í dagblöðunum áskorun til kjósenda um að veita Gunnari Thoroddsen brautar- gengi í kosningunum. Næturgestur raskar svefnró borgara: Laumaðist inn um glugga og sta! 7000 krónum Kveikti Ijós og vakti ibúa með spjalli 9 í húsi einu i Austurbænum vaknaði kona í nótt við það, að í svefnherbergi hennar hafði verið kveikt ljós og yfir henni stóð einhver ókunnugur maður. — Klukkan var rétt að verða fjögur. Þegar maðurinn sá, að konan brá svefni, forðaði hann sér út, áður en húsbóndinn gæti handsamað hann. Kom í ljós, að piltur hafði komizt inn um glugga og látið í HAFIS HINDRAR SIGLINGAR TIL AUSTFJARÐAHAFNA Mikill ís tyrir Langanesi og Sléttu Mikill ís liggur nú fyrir landi, og fsinn úti fyrir Ausfjörðum virð- ist vera aö mjakast nær landi. Biik- ur sendi út hafísfregn af þeim slóð- um kl. 7.30 f morgun. Frá Pap- ey sést mikill is sunnan Austfjarða, er Iokar siglingaieið til Breiðdais- víkur, Stöðvarfjarðar og Fáskrúös- fjarðar. Mjó renna er í ísnum, 10 mílur austur af Papey norður að Skrúð, en þaðan ér samfeildur ís eins langt og séð verður í norður og austur, er lokar siglingaleiðum. Veðurfræðingar Veðurstofunnar tjáðu blaðinu þó. að ekki væri á- stæða til að óttast, að ísinn legð- ist að landi úti fyrir Suðursveit eða Öræfasveit, bar eð mjög lítil hreyf- ing væri á honum, eins og verið hefur undanfarnar vikur. Hann ýmist rekur hægt að landi eða á haf út. Hægviðri er á þessum slóð- um, og virðist einkum gæta sjávar- falla í sambandi við hreyfinguna á ísnum. Fyrir Norður- og Vesturlandi hefur orðiö lítil brevting á hafísn- um. Isfregn barst frá togara í gær, en hann var á Siglingu fvrir Horn. í fregninni segir, að þéttleiki (ss á Óðinsboða sé 7-8/10. en það býð- ir, að siglingar á því svæði eru mjög erfiðar eða næstum útilokað- ar. Frá Grímsey barst sú frétt. að þar væri hafís um allan sjó, og væri smáhreyfing á honum ■ eftir 'iávarföllum. Mestur mun ísinn vera úti fyrir Langanesi og Sléttu, og hefur þar lítil breyting orðið á að undan- förnu. íbúðinni rétt eins og hann væri heima hjá sér. Meðal annars hafði greinilega tar ið í ísskápinn og nartað í harðfisk, en engu öðru hafði hann stolið nema 20 kr. húsbóndans. Rétt um kl. 6 f morgun barst lögreglunni aftur tilkynning úr | öðru húsi í þessu sama hverfi. þar i sem pilturinn haföi komið við. Þar vaknaði piltur, sem svaf í kiallara hússins, við það, að maður vat staddur inni í herbergi hjá honum og var að tala við hann. Áður en hann næði að átta sig til fulls, var kauði horfinn út. Þegar’athugað var nánar, kom f ijós að næturgesturinn hafði kom- izt inn um glugga á þvottahúsi i kjallara og farið inn í herb. móður niltsins. Þar hafði hann stolið veski með 7000 krónum í og f rólegheitum tæmt bað inni i þvotta- húsi, en líklega síðan farið og vak ið piltinn. Sjónarvottar hafa gefið þá lýs ingu á þessum nátthrafni, að hann sé ungur maður, 17—20 ára gamall meðalmaður á hæð, með ljóst og liðað, stuttklippt hár og vel klædd- ur. Þegar blaðið fór í prentun, hafði lögreglan orðið ákveðinn mann i huga, en var ekki búin að ná honum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.