Vísir - 06.05.1968, Blaðsíða 1
1968. - 97. tbl.
Peningakassa stolið
Enginn varð til þess að hindra
för tveggja manna, sem af furðu
legri biræfni og ósvífni rændu
peningakassa úr Brauðbæ við
Þórsgötu á laugardagskvöld.
Það hafði verið fátt um við-
skiptavini síðari hluta kvöldsins og
því enginn staddur frammi í af-
greiðslunni, þegar þessa tvo ná-
unga bar að garði. Afgreiðslufólk-
ið var inni i herbergi einu á bak
við.
Mennirnir gerðu sér lítið fyrir
og þrifu peningakassann af borðinu
og hlupu með hann út, en af-
greiðslufólkið áttaði sig ekki á því,
hvað gerzt haföi fyrr en allt var
orðið um seinan og mennirnir á
bak og burt.
1 kassanum voru milli 15 og 16
þúsund krónur eftir viðskipti dags-
ins.
Lögreglan leitar nú mannanna
tveggja, en peningakassinn fannst
í nágrenni fyrirtækisins og hafði
þá verið tæmdur.
1 anddyri Hótel Sögu í gærkvöldi: Frá vinstri Jóhann Hafstein ráðherra, frú Rostoft og
Sverre W. Rostoft ráðherra.
Norski iðnaðarmálaráðherrann við kontuna í gœrs
„Reynsla NorBmanna af
íFTA er góð"
Hefur hlakkað lengi til oð heimsækja Island
— Lengi höfum við hjón-
in hlakkað til þess að heim-
sækja Sögueyjuna. — sagði
Sverre W. Rostoft, iðnaðar-
málaráðherra Noregs, við
komu sína hingað í gærkvöldi
Ráðherrahjónin komu til
Keflavíkurflugvallar um kl.
18.15 í gærkvöldi með flug-
vél F.Í., en þar var staddur
Jóhann Hafstein, iðnaðar-
málaráðherra, og tók á móti
þeim.
,,Af þeim fjölda landa, sem
ég hef heimsótt, hef ég aldrei
komið til íslands áður,“ sagði
Sverre Rostoft, ráðherra, þegar
blaðamaður Vísis hitti hann að
máli í anddyri Hótel Sögu við
komuna í gær.
Hann kvað sér lítast vel á
landið við fyrstu sýn og hefði
hann haft mikla ánægju af öku-
ferðinni sunnan af Keflavíkur-
velli.
Ráðherrahjónin koma hingað
sem gestir rikisstjómarinnar og
munu dveljast hér til næstkom-
andi föstudags, en á þeim tíma
munu þau kynnast mönnum og
málefnum i iðnaði og stjórn-
sýslu og landinu að nokkru.
Til þessa heimboðs var stofn-
að eftir að Jóhann Hafstein ráð-
herra og kona hans höfðu veriö
gestir norsku rikisstjórnarinnar
á s.l. hausti. I opinberri frétta-
tilkynningu segir, að til grund-
vallar báðum heimsóknunum
liggi, að efna til aukinna per-
sónulegra kynna og samstarfs
milli ráðamanna landanna.
Sverre Rostoft ráðherra mun
flytja fyrirlestur í Sjálfstæðis-
húsinu kl. 16 í dag og mun
hann fjalla um ýmsa þætti
norsks iðnaðar, þ. á m. reynslu
B--V 10. síða
Dr. Gunnar Thoroddsen
er kominn til landsins
Stuðningsmenn beggja frambjóðenda
undirbúa blaðaútgáfu -
Dr. Gunnar Thoroddsen sendi-
herra kom á laugardaginn til
landsins til þess að taka þátt
f undirbúningi forsetakosning-
anna og mun dveljast hér fram
yfir kjördag. Myndin var tekin
af hjónunum, Völu og dr. Gunn-
ari, við komuna tii landsins.
Senn fer að færast líf í und-
irbúninginn fyrir forsetakosn-
ingarnar 30. júní. Stuðnings-
menn beggja frambjóðeiida hafa
opnað skrifstófur í Reykjavík
og eru að vinna að skipulagn-
ingu kosningastarfsins um allt
land. Báöir aðilar eru að vinna
ar blaðaútgáfu í tilefni kosning-
anna. Þá hafa rúmlega 300 kunn-
ir borgarar birt í dagblöðunum
áskorun til kjósenda um að veita
Gunnari Thoroddsen brautar-
gengi í kosningunum.
Næturgestur raskar svefnró borgara:
Laumaðist inn um glugga og
sta! 7000 krónum
Kveikti Ijós og vakti ibúa með spjalli
9 í húsi einu i Austurbænum
vaknaði kona í nótt við það,
að í svefnherbergi hennar hafði
verið kveikt ljós og yfir henni
stóð einhver ókunnugur maður. —
Klukkan var rétt að verða fjögur.
Þegar maðurinn sá, að konan brá
svefni, forðaði hann sér út, áður
en húsbóndinn gæti handsamað
hann. Kom í ljós, að piltur hafði
komizt inn um glugga og látið í
HAFIS HINDRAR SIGLINGAR TIL
AUSTFJARÐAHAFNA
Mikill ís tyrir Langanesi og Sléttu
Mikill ís liggur nú fyrir landi,
og fsinn úti fyrir Ausfjörðum virð-
ist vera aö mjakast nær landi. Biik-
ur sendi út hafísfregn af þeim slóð-
um kl. 7.30 f morgun. Frá Pap-
ey sést mikill is sunnan Austfjarða,
er Iokar siglingaieið til Breiðdais-
víkur, Stöðvarfjarðar og Fáskrúös-
fjarðar. Mjó renna er í ísnum, 10
mílur austur af Papey norður að
Skrúð, en þaðan ér samfeildur ís
eins langt og séð verður í norður
og austur, er lokar siglingaleiðum.
Veðurfræðingar Veðurstofunnar
tjáðu blaðinu þó. að ekki væri á-
stæða til að óttast, að ísinn legð-
ist að landi úti fyrir Suðursveit eða
Öræfasveit, bar eð mjög lítil hreyf-
ing væri á honum, eins og verið
hefur undanfarnar vikur. Hann
ýmist rekur hægt að landi eða á
haf út. Hægviðri er á þessum slóð-
um, og virðist einkum gæta sjávar-
falla í sambandi við hreyfinguna á
ísnum.
Fyrir Norður- og Vesturlandi
hefur orðiö lítil brevting á hafísn-
um. Isfregn barst frá togara í gær,
en hann var á Siglingu fvrir Horn.
í fregninni segir, að þéttleiki (ss á
Óðinsboða sé 7-8/10. en það býð-
ir, að siglingar á því svæði eru
mjög erfiðar eða næstum útilokað-
ar.
Frá Grímsey barst sú frétt. að
þar væri hafís um allan sjó, og
væri smáhreyfing á honum ■ eftir
'iávarföllum.
Mestur mun ísinn vera úti fyrir
Langanesi og Sléttu, og hefur þar
lítil breyting orðið á að undan-
förnu.
íbúðinni rétt eins og hann væri
heima hjá sér.
Meðal annars hafði greinilega tar
ið í ísskápinn og nartað í harðfisk,
en engu öðru hafði hann stolið
nema 20 kr. húsbóndans.
Rétt um kl. 6 f morgun barst
lögreglunni aftur tilkynning úr
| öðru húsi í þessu sama hverfi. þar
i sem pilturinn haföi komið við. Þar
vaknaði piltur, sem svaf í kiallara
hússins, við það, að maður vat
staddur inni í herbergi hjá honum
og var að tala við hann. Áður en
hann næði að átta sig til fulls, var
kauði horfinn út.
Þegar’athugað var nánar, kom f
ijós að næturgesturinn hafði kom-
izt inn um glugga á þvottahúsi i
kjallara og farið inn í herb. móður
niltsins. Þar hafði hann stolið
veski með 7000 krónum í og f
rólegheitum tæmt bað inni i þvotta-
húsi, en líklega síðan farið og vak
ið piltinn.
Sjónarvottar hafa gefið þá lýs
ingu á þessum nátthrafni, að hann
sé ungur maður, 17—20 ára gamall
meðalmaður á hæð, með ljóst og
liðað, stuttklippt hár og vel klædd-
ur.
Þegar blaðið fór í prentun, hafði
lögreglan orðið ákveðinn mann i
huga, en var ekki búin að ná
honum.