Vísir


Vísir - 08.05.1968, Qupperneq 5

Vísir - 08.05.1968, Qupperneq 5
5 VÍ SIR . Mlðvikudagur 8. msá ISS&. Tjað er ekki á hverjum degi, sem óþekktri „pop“-hljóm- sveit te~kst að komast í efsta sæti brezka vinsældalistans. Engu að síður tókst „Love Affair“ að halda lagi sínu „Ever- lasting Love“ í efsta sætinu í þrjár vikur. The Love Affair hafa með öllu verið óþekktir í heimi tónlistarinnar, þar til þeir sendu frá sér fyrrnefnt lag. Félagar í hljómsveitinni eru: Stevie Ellis, 17 ára, Mo Bacon, 16 ára, Mick Jackson, 18 ára, Lynton Guest, 16 ára, og Rex Brailey, 19 ára. „Ásamt The Herd og Treme- loes erum við þeir einu, sem reynum að gera yngstu kyn- slóðinni til hæfis,“ segir Mick Jackson. „Félagar flestra ann- arra hljómsveita eru fimm eða sex árum eldri en við, og kepp- ast þeir við að drótta heimspeki að táningunum á einn eða ann- an hátt. Það eru Bítlarnir einir, sem eru hæfir til þess að flytja boöskap, sem hægt er að skilja.“ Sviðsframkoma The Love Affair er mjög villt. Þegar þeir leggja undir sig sviðið, segjast þeir einfaldlega dáleiðast af eigin hljómlist. „Við viljum ekki hindra þá framför, sem á sér stað í hinni stöðugt batnandi hljómlist," segja þeir í Love Affair. „Við leikum aðeins hressandi tónlist, sem allir geta þolaö og skilið. Okkur hefur heppnazt vel með nýju plötuna okkar. Hún var okkar skerfur. Við vonum bara, að okkur takist að halda áfram á sömu braut“. Hljómar með nýja fjögurra laga hljómplötu Tjað er ekki of sterkt til orða tekið, þó þvi sé haldið fram, að engin íslenzk • hljóm- plata hafi vakið aðra eins at- hygli og fólf laga plata Hljóma, sem út kom í nóvember 1967. Hljóðfæraleikur og söngur á þeirri plötu tók öllu öðru fram, sem heyrzt hafði á íslenzkri hljómplötu. Þetta var þriðja platan, sem Hljómar léku inn á fyrir SG-hljómplötur. Hin fyrsta kom út tveimur árum áður, en þá var hinn frábæri söngvari, Engilbert Jensen, í hljómsveit- inni. Á þeirri plötu voru lögin „Augun þin blá“ og „Fyrsti kossinn." Hún seldist algjörlega upp á örfáum mánuðum og var ekki gefin út aftur, þar til nú, að hún hefur verið sett á mark- aðinn sökum hinna miklu vin- sælda Hljóma og mikillar eftir- spurnar á eldri plötum þeirra. Þegar næl'ta plata þeirra kom út á vegum SG-hljómplatna, hafði Pétur Östlund tekið sæti Engilberts. Þetta var fjögurra laga plata, en á henni var m.a. lagið „Ertu með?“, sem náði hvað mestum vinsældum. Hins vegar vöktu hin rólegu lög plöt unnar ekki eins mikla athygli, þó þau væru jafnvel betri. Þetta er fjórða plata Hljóma fyrir SG-hljómplötur, og þó að tólf laga platan hafi tekizt vel, þá er þessi jafnvel enn athyglis verðari. Hér bæta Hljómar nokkrum hljóðfærum við til að gefa lögunum meiri fyllingu og hinn rétta blæ, og varla þarf aö taka það fram, að hljóðfæra leikur og söngur þeirra sjálfra hefur aldrei verið betri en nú. Þau fjögur lög, sem plötuna prýða eru: „Þú varst mín", „Bara við tvö“, „Vertu ekki hrædd“ og „Kvöld eftir kvöld“. .. /V\AAAAAAAAAAAAAAAA/\AAAAAAAAAA/WW\AAAAAAAA/\AAAAAAAAAAAAAAAAA/ Bótagreiðslur almanna- trygginganna í Reykjavík Greiðslur ellilífeyris hefjast að þessu sinni FIMMTUDAGINN 9. MAÍ. í ! P Tryggingosfofnun ríkisins Laugavegi 114 LÖGTÖK - Seltjarnarneshreppur Að beiðni innheimtumanns sveitarsjóðs Sel- tjamarneshrepps, úrskurðast hér með lögtök vegna ógreiddra fasteignagjalda 1968 og ó- greiddrar fyrirframgreiðslu útsvara 1968, auk vaxta og kostnaðar. Lögtök fara fram að 8 dögum liðnum frá birt- ingu þessa úrskurðar. Hafnarfirði, 19/4 ’68 Skúli Thorarensen, fulltr. MELAVÖLLUR REYKJAVÍKURMÓTIÐ í knattspyrnu: í kvöld leika FRAM OG ÞROTTUR Mótanefndin Reyndur sölumaður sem hefur góð sambönd við sína viðskipta- menn gernr bætt við sig ýmsum góðum vúr- um. Tilboð sendist augld. Vísis merkt — „Reyndur sölumaður 1656“. FÉLAG ÁHUGALJÓSMYNDARA: FUNDUR í kvöld í Tjarnarbúð uppi kl. 8.30. Fundarefni: Svarað verður spurningum fundarmanna um ljósmyndavélar þéirra ef óskað er. Félagar eru hvattir til að koma með vélar sínar. Fulltrúi Búnaðarfélagsins kemur á fundinn og ræðir við fundarmenn um myndir fyrir landbún- aðarsýr inguna. i Fulltrúi fræðslunefndar H-nefndar mætdr á fund- inum og ræðir umferöarmál. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Nýir félagar velkomnir. STJÓRNIN 1

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.