Vísir - 08.05.1968, Blaðsíða 7
V fS IR . Miðvikudagur 8. maí 1968.
7
morgun
útlönd í morgún
útlönd í morgun
útlönd í morgun
litlönd
Kennedy sigraði / Indiana, en ekki
eins glæsiiega og báizt var við
McCarthy ekki úr keppnlnni — Getur enn
reynzt Kennedy og Humphrey hættulegur
Robert Kennedy sigraðl i for-
kosningum demokrata eins og
búizt var við, en ekld eins glæsi
lega og búizt hafði verið viö.
McCarthy mun verða áfram í
keppninni.
Þegar búið var að telja 53 af
hundraðl atkvæða haföi Robert
Kennedy fengið 190.000 atkvæði
og þeir McCarthy og Branigin
ríkisstjóri Indiana um 130.000
atkvæði hvor um sig.
Hið mikla fylgi McCarthys
kemur flestum á óvart og er
ljóst, að McCarthy getur reynzt
báðum erfiður, Kennedy og
Humphrey, „Minnesota-maður-
inn McCarthy er maður, sem
taka veröur tillit til“, segir einn
stjórnmálafréttaritara, og annar,
„Öldungadeildarþingmaðurinn
frá Minnesota lætur ekki að sér
hæða“.
Robert Kennedy hafði gert sér
vonir um að fá að minnsta kosti
50% atkvæða og skortir þar all-
mikið á. Á hinn bóginn verður
að teija það mikilvægt, að Kenn-
edy bar sigur úr býtum.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem fyrir hendi eru mun Kenn-
edy hafa fengiö 42% atkvæða,
McCarthy 29 og Branigin rík-
isstjóri einnig 29 af hundraði.
Nixon var einn á lista repu-
blikana.
Barizt heiftarlega
í úthverfum Saigon
Barizt hefur verið Jieiftarlega í
úthverfum Saigon og segjast Banda-
rfkjamenn hafa fellt um 200 her-
manna kommúnista, en þeir höfðu
verið króaðir inni í verksmiðju í
Cholon, kínverska borgarhlutanum.
Fyrri fregnir hermdu, aö lið komm-
únista í Saigon væri eiginlega ein-
angrað og reyndi lið Norður-Viet-
nama utan borgarinnar af fremsta
megni að ná á sitt vald leiðum til
þess að koma því til aðstoðar.
Bandaríkjastjórn hefur fyrirskip-
að 6 manna sendinefnd, sem fer
til Parísar, og er Averill Harriman,
sérlegur sendimaður Johnsons for-
seta, aðalsamningamaður. Cyrus
Vance er, annar helzti maður samn-
inganefndarinnar. Hann hefur farið
margra sérlegra erinda fyrir Banda-
ríkjastjórn f viðræöu og samninga
skyni.
Sumir fulltrúa Norður-Vietnams
eru komnir til Parísar, og komú
þeir þangað f sovézkri flugvél.
Jomo Kenyatta veikur
Fregn frá Nairobi í Kenya herm-
ir, að Jomo. Kenyatta forseti hafi
verið lasinn undangengna 3 daga.
Var einkalæknir hans borinn fyrir
'•'í'SSU.
Orðrómur hefir veriö á kreiki
um að Kenyatta, sem er 76 ára,
hafi fengiö slag s.l. laugardag, en
Kenya-stjórn segir oröróminn ó-
sannan. Hann hjaðnaöi þó ekki
vegna þess, að tveir hjartasérfræð-
ingar voru til hans kvaddir.
Jomo Kenyatta var einn af sjálf-
stæðisleiötogum landsins. Hann
varö fyrsti forsætisráðherra lands-
ins (19631, en ári síðar. er landið
varð lýðveldi, varð hann ríkisfor-
seti.
Robert Kennedy.
Deilan harðnar
um Gibraltar
Umræöa fór fram í gær og gær-
kvöldi í neðri málstofu brezka
þingsins um Gibraltar og hvöttu
þingmenn af öllum flokkum stjórn-
ina til þess að standa með íbúum
Gibraitar.
Tekinn við
embætti
Sargent Shriver, hinn nýi am-
bassador Bandaríkjanna í París, hef
ur tekið við embætti sínu viku
fyrr en áformað var, vegna við-
ræðnanna um frið í Víetnam, en
vonazt er til, að ekkert veröi til
hindrunar, aö þær geti hafizt á
föstudag í þessari viku, eins og
áformað er.
Yfirmnður Afp í
Peking ger
lundrækur
Yfirmanni frönsku fréttastofunn-
ar Afp (Agence France-Press) í
Peking, Jean Vincent, var í gær
vísaö úr landi.
Hann á aö vera á burt úr land-
inu innan þriggja daga.
Vincent, sem hefir verið í Pek-
ing frá 11. des. 1966, var kvaddur
í utanríkisráðuneytið, þar sem les-
in var yfir honum löng yfirlýsing,
þar sem m.a. var sagt, að hann
hefði í éngu skeytt um margar aö-
varanir vegna vissra fréttasend-
inga, sem væru „bláber lygi“.
George Thomson samvefdismála-
ráðherra sagði, aö með lokun ianda-
mæranna gegnt Gibraltar hefði
spánska stjórnin „skellt aftur hurð-
inni“ eins og hann kvað að oröi,
og tilgangsiaust þess vegna að
reyna að ná samkomulagi eins og
sakir stæðu. Hann kvað stjórnina
viðbúna að grípa til nauðsynlegra
ráðstafana. Þingmenn fögnuöu þess
um yfirlýsingum. — Yfir 2 millj-
bnir brezkra manna heimsóttu Spán
árið sem leiö, en aðeins hálf milljón
fyrir 10 árum. Er nú mjög bvatt
til þess, að menn leggi leið sína til
Gibraltar og hæiti við áformaðar
sumarleyfisferðir til Spánar.
Hert eftirlit með
megrunarlyfjum
í Svíþjóð
Frétt frá Stokkhólmi í gær segir,
að hert verði eftirlit með sölu
megrunarlyfja af ýmsum tegundum.
Heilbrigðisstjórnin birti um þetta
yfirlýsingu, þess efnis, að fram-
vegis fái menn ekki skammt af
megrunarlyfjum þessum néma
einu sinni á lyfseöil, enda hafi lyf-
in ekki þau áhrif að draga úr mat-
arlyst nema í byrjun megrunar-
tímabils, — eftir það hafi þau eng-
in áhrif til að gera fólk grennra.
Til þéssara ráöstafana hefir verið
gripið vegna misnotkunar lyfjanna,
sem hafa örvandi áhrif líkfc og eit-
urlyf.
Hinar nýju reglur ganga í gildi
15. maí.
• í fyrradag bárust fregnir um
að farizt hefði farþegaþota í innan-
landsflúgi milli Houston og Dallas
í Texas og meö henni 84 menn.
Hún hafði flogiö inn í þrumuský,
varð sprenging f henni og hrapaði
hún til jarðar í björtu báli.
• Suður-Áfríkuþing hefur sam-
þykkt lagafrumvarp sem sviptir
kynblendinga rétti til þess að eiga
fulltrúa á þjóöþinginu. Þeir eiga
þess í stað að fá sitt eigið þing
(legislative council) með kjörnum
og skipuðum fulltrúum.
0 Sovétstjórnin og Bandaríkja-
stjórn hafa gert meö sér sáttmála
um að skiptast á ræöismönnum.
0 í Peking hefir ekkert verið sagt
enn um samkomulagiö um París
sem viöræðustað til þess að leiða
Vietnamstyrjöldina til lykta.
Chen Yi utanríkisráðherra Kína
sagði í. fyrri viku, aö deilan yrði
ekki leyst nema á vígvöllunum.
London: Um 50 erlend flugfélög
féllust á það í fyrradag, en með
tregðu, að greiða hærri flugvalla-
gjöld á Bretlandi, en þau vóru
hækkuö fyrir skemmstu, og hefir
staðið í stappi síðan, þar til sam-
komulag náðist nú, .eftir að erlendu
flugfélögunum hafði veriö hótað
málsókn.
Washington: Fjárhagsnefnd full-
trúadeildar þjóðþings Bandaríkj-
anna samþykkti loks með 17 at-
kvæðum gegn 6 tillögur Johnsons
um 10% viöauka-tekjuskatt, eftir
að hafa dregið á langinn í 9 mán-
uði að afgreiöa málið. Johnson var
nýbúinn að lýsa yfir, að til öng-
þveitisástands myndi koma, ef
aukaskatturinn fengist ekki sam-
þykktur.
Prag: Josef Pavel innanríkisráö-
herra Tékkóslóvakíu sagði, að hætt
verði að trufla útvarpssendingar
vestrænna landa.
Prag: Skaðabætur til þeirra sem
voru dæmdir sem „pólitískir af-
brotamenn" á árunum eftir 1950
eða ættingar þeirra hafa nú verið
samþykktar og kunna þær að
nema yfir 30 milljörðum króna.
Montgomery, Alabama: Laureen
Wallace, ríkisstjóri í Alabama er
látin, af völdum krabbameins.
sem hafði þjáð hana í 3 ár Hún
tók við af manni sínum sem ríkis-
stjóri, er hann haföi verið svo oft
ríkisstjóri, að lög fðu ekki. að
hann yrði áfram í kjöri. — Wallace
hýggst nú bjóða sig fram í for
setakosningunum í haust. Laureen
Wallace var 41 árs. Hún varð rík-
isstjóri í nóvember lð66. Hún var
eini kvenríkisstióri Bandaríkjanna
Hún var aðeins 16 ára, er Wallace
gekk að eiga hána. Þau áttu fjögur
börn.
Hanoi: Aðalsamningamaður Norð
ur-Vietnam í París Xuan Thuv
lagði af stað í fyrradag með við-
komu í Peking og Moskvu.
Briissel: Baudoin Bélgíukonung-
ur bað í gær Paul van den Boyen-
ants fyrrverandi forsætisráðherra
að gera tilraun til stjórnarmynd-
unar. — Samsteypustjórn hans féll
7. febrúar út af tungumáladeild-
unni og fóru nýjar kosningar fram
3l. febr. til 3. .,arz. Tilraunir hafa
verið gerðar hvað eftir annaö til
stjórnarmyndunar en hafa mistek-
izt til þessa.