Vísir - 11.05.1968, Page 1

Vísir - 11.05.1968, Page 1
58. árg'. — Laugardagur 11. maí 1968. - 102. tbl. H Sléttanesið, sem lenti í fyrradag í árekstri við brezka togar- fum Ross Rodney, kom til Reykjavíkur í gær við illan leik og má telja lán að slcipið gat siglt, svo stórskemmt sem það var, alla Ieið til Reykjavíkur. Myndin er tekin af Sléttanesinu, er það var kom- ið í slipp í Reykjavík í gær, og má glögglega sjá skemmdirnar, sem urðu á skipinu við áreksturinn. Sést m. a. inn í vélarrúmið. m x A M' W'lpH ' ifítLuÍh wfj'WÍ * w * íú 150 milljón króna tjón, þegar Borgarskólinn brann ■ — Lauslega áætlað hefur tjðnið í brunanum í vöruskemmu Eimskipafélags- ins (Borgarskála) numið um 150 milljónum króna, sagði forstjóri Almennra Trygg- inga h.f., Baldvin Einarsson, við fréttamenn í gær. „Eftir því sem tryggingarfé- lögin hafa komizt næst — með því aö styðjast við farmskrár Eimskipafélagsins — virðist það vera útkoman. 50 til 60 milljón króna verð- mæti af því var tryggt hjá innlendum tryggingarfélögum." Vöruskemman sjálf var tryggð fyrir 17 milljónir. Þetta er í fyrsta skipti, sem opinberlega kemur fram, hvert tjónið hefur verið í brunanum í Borgarskála, en eins og menn muna, var áiitið, að ekki væri allt vátryggt, sem þar brann inni. „Við vitum ekki, hve mikið af þessu var vátryggt hjá erlend- um tryggingarfélögum," sagði Baldvin, en talið hafði borizt að þessu efni, þegar hann rifjaði upp vegna 25 ára afmælis Al- mennra Trygginga helztu tjón félagsins á starfsferli þess. Fé- lagið átti áhættu í einhverjum hluta þess varnings, sem þar brann inni. Liggur beinast við að ætla, að allt að 90 til 100 milljón króna verðmæti hafi brunnið þar inni í vöruskemmunni ó- vátryggt. Flutt inn í Breiðholti ■ Fjórar fyrstu fjölskyldurnar , fluttu inn í fyrstu blokkina í Breiðholtshverfinu í gærdag, eða eru að flytja. Eggert G. Þor- steinsson félagsmálaráðherra af- henti þrem húsráðendanna lykla I að íbúðum sínum við stutta við- j höfn, þar sem fjölskyldurnar i voru filmaðar í bak og fyrir. „Við vorum einmitt að borga útborgunina,“ sögðu kornung , hjón, sem voru gefin saman um síðustu jól, Jón Guðjónsson, ' tækjamaður í Borgarskála, og , frú María Jónsdóttir, sem eign- j ast nú íbúð að Ferjubakka 2. „Útborgunin var 43330 krónur, svo maður sé nákvæmur,“ sagði María, „en þinglýsingin kostaði um 17.000 krónur.“ Á næstu ár- um verður árleg afborgun um bað bil 43 þús. krónur hjá ungu hjónunum, — þ. e. miðað við nú- verandi vítitölu. „Á því Ieikur enginn vafi, að framkvæmdir byggingaráætlunar- innar í Breiðholti eiga óbeinan þátt í því, að íbúðarverð í Reykjavík hefir ekki hækkað á undangengn- um misserum. Þessar framkvæmdir hafa orðið öðrum byggingaraðilum hvatning til aukinnar hagsýni og lækkunar á framleiðsluverði og er það vel. Síðast en ekki sízt skal það und- irstrikað, að hin sérstöku lánakjör, sem kaupendur þessara íbúða verða aðnjótandi, gera mörgum láglaunamönnum fært aö eignast íbúð, sem þeir aö öðrum kosti hefðu engin tök á.“ Þetta segir í greinargerð fram- kvæmdanefndar byggingaáætlun- ar, sem blaðamenn fengu upp í hendurnar í gærdag, enda þótt allir verði ekki á sama máli og bendi á þann verulega samdrátt sem átt hefur sér stað og myndað sölutregðu og minni eftirspum á fasteignamarkaðinum. Framkvæmdanefndin hefur nú reiknað út endanlegt kostnaðarverð íbúðanna 312, sem þarna er ver- ið að byggja í 6 fjölbýlishúsum, en þeim er skilað fullfrágengnum að innan og utan og frágenginni lóð, parketti á gólfum, vélum í sameig inlegum þvottahúsum, dyrasíma 10. sfða Ungu hjónin opna dyr íbúðar sinnar í Breiðholtshverfinu nýja. Ætlaði að selja 20 þús. einseyringa á 113 þús. kr. til erlendra myntsafnara ■ Útlendingurinn, sem hafði vakið grunsemdir lögreglunn- ar fyrir að rogast um á al- mannafæri með fulla ferða- tösku af smápeningum, reynd ist hafa komizt yfir þá með heiðarlegum hætti. ■ Hann hafði skipt í banka á beinhörðum dollurum og tuttugu þúsund einseyring- um - 20.000 — og 4100 kr. f 10 króna-myntinni nýju og eitthvað af túköllum, krónu- peningum, 25-eyringum og 5-eyringum. Maðurinn, sem er bandarískur að þjóðerni, er nefnilega mynt safnari og kom hingað fyrir nokkrum árum og keypti ís- lenzka smámynt, sem hann hafði með sér út og seldi. Hagn aðist hann svo á þeim viðskipt um þá að hann sá sér í þessu arðbæran viðskiptamáta. Ætlaði hann sér að fara með þetta fé út með sér núna og hef ur lfklega verið ókunnugt um það bann, sem gildir við slík- um útflutningi á íslenzkum pen ingum. 1 hans augum er einseyringur inn meira virði, en peningurinn almennt er hér heima, því að þessa 20.000 einseyringa, sem hann keypti hér í banka fyrir tæpa fjóra dollara, ætlaði hann að selja úti öðrum mynt- söfnurum fyrir 2000 dollara, eða 113 þúsund íslenzkar krón- ur. Lögreglan benti Ameríkanan um á það, að þetta mætti hann ekki samkvæmt íslenzkum lög- um. Varð hann að fara með alla myntina í banka aftur og skipta henni yfir í erlendan gjaldeyri, nema þeim 1500 krónum ís- lenzkum, sem hann lögum sam- kvæmt má taka með sér. Auðvitað kaus hann að halda 1500 krónum eftir í einseyring- um að mestu og var það góður slatti í poka. Hve margir eru með H-akstri? • Skoðanakönnun VfSIS verftur í blaftinu á mánudag. Að þessu sinni er kannað, hver breyt- ing hefur oröið á afstöftu fólks til hægri-breytingarinnar frá þvf, aö VÍSIR kannaöi þaft mál fyrir rúm- um þremur mánuðum síðan. Þá voru 47% fylgjandi hægri- breytingunni og 53% á móti. 1 VlSI á mánudaginn er skýrt frá því, hvemig tilsvarandi tölur eru núna. Nú hefur þar að auki verið tekin upp sú nýbreytni, að fram- kvæma skoðanakönnunina einnig á Akureyri, svo að hún nær yfir fbúa Reykjavíkur, Seltjarnamess, Kópa- vogs, Garðahrepps, Hafnarfjarðar og Akureyrar. Hversu mikið er fylgi hægri- breytingarinnar? Það sýnir skoð- anakönnun VlSIS á mánudag.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.