Vísir - 17.05.1968, Síða 1

Vísir - 17.05.1968, Síða 1
Lögreglan á þyrlum ehir H-dag? ■ Réynsla lögreglunnar af notkun þyrlu við lög- gæzlustörf, sem hún fékk um verzlunarmannahelgina í fyrra, var svo góð, að hún hefur nú farið þess á leit við Landhelgisgæzluna, að lögreglan fái afnot af þyrlunni fyrstu dagana eftir H-dag. „Að undanförnu hcf ég leitað samkomulags við forstjóra Land- helgisgæzlunnar um afnot af þyrl- unni fyrstu 10 dagana eftir H-dag- inguna og hef fengið góðar undir- tektir um það, en engin ákvörðun hefur bó verið tekin endaniega um það mál.“ sagði Iögreglustjóri Sig- urjón Sigurðsson, í símtali við fréttamann Vísis í morgun. „Við höfum góða reynslu af notk un hennar í fyrra um verzlunar- mannahelgina og þyrlan yrði til mikils hagræöis til þess að flytja lið á milli staöa ,auk bess sem þaö er staðreynd að hún hefur varnað- aráhrif á vegfarendur.“ „Verður einhver skipulagsbreyt- ing á löggæzlunni vegna breyting- arinnar, lögreglustjóri?“ „í sannleika verður engin breyt- ing. Lögreglustjórar annast sjálfir skipulagningu umferðar, hver í sínu umdæmi, eins og hátturinn hefur verið. Mér hefur að vísu ver ið ætlað að hafa nokkurs konar yfir lit yfir þessi mál. Hins vegar hefur vegalöggæzlan alltaf verið f I höndum lögreglustjóraembættisins í Reykjavik og á undanförnum ár- I um höfum við haft þrjá flokka i vegalöggæzlunni, en nú verður hún stóraukin.“ Saltvík rekin í sumar með svipuðu sniði Unglingar úr vinnuskólanum munu starfa Jbar # Ákveðið er, að staður unga fólksins, Saltvik á Kjalarnesi, opni 8. iúní n.k. Blaðið sneri sér til Baldvins Jónssonar, sem ver- ið hefur framkvæmdastjóri stað- arins, og bað hann að skýra frá fyrirhugaðri starfsemi í Saltvík í sumar. Baldvin sagði, að líklega yrði ••mnm Reyna að brjótast gegnum ísitttt á Hánaflóa Litlafell og Stapafell hafa ver- ið að reyna að brjótast í gegn- um ísinn á Húnaflóa frá því snemma í gær og gengið erfið- lega, eftir bví sem Hjörtur Hjart ar hjá Skipadeild SÍS sagði blaðinu í morgun. KI 9 í morg- un voru þau ekki komin í gegn en þau ætluðu að reyna að halda áfram es komast fyrir Horn í dag, cn áttu mjög erf- iðan kafla eftir sem er skammt austur af Horni. Þoka er á þess um slóðum, og gerir bað sigl- inguna enn erfiðari. Arnarfellið er að reyna að komast austur um fyrir Korn og átti i morgun eftir um 15 sjómílur ófarnar að Skalla. Var sigling mjög erf- ið á þessum slóðum. Drangey frá Sauðárkróki og báturinn Hafliði voru á Húnafióa í gær að reyna að komast vestur um, og er álitið að þau hafi kom- izt vestur fyrir Horn í nótt. staðurinn rekinn með svipuðu sniði og í fyrra, þ.e. unga fólkið fær aðstöðu til að dvelja þar um helgar og ýmislegt væri til skemmtunar og reynt yrði að auka á fjölbreytnina. Um 30 unglingar hafa nú boðizt til starfa til að undirbúa staðinn sem bezt. Einnig munu unglin: ar úr Vinnuskóla Reykjavíkur starfa þar í sumar flesta daga vikunnar, en staðurinn verður opinn almenningi frá föstu- degi til mánudags. Baldvin er mjög ánægður með áhuga unga fólksins og reynt verður að fá fleiri til starfa, því að þá er markinu náð. „Vísir í vikulokin fylgir blaðinu á morgun' til áskrifenda Umferðarkortinu dreift í 55.000 eintökum á höfuðborgarsvæðinu Skátar byrjuðu í fyrrakvöld að dreifa umferðarkorti því, sem gatnamálastjórinn í Reykjavík gefur út í tilefni af breytingunni yfir í H-akstur. Gefin eru út 55 þús. eintök af kortinu og á bað að berast hverri einustu fjölskyldu á höfuðborgarsvæð- inu, þ. e. í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Mosfellssvéit, Garðahreppi, Hafnarfirði og Grindavík. Bók þessi, Umferð í Reykjavík, er mjög vönduð að öllum frégangi, en prentun hefur farið fram í Kassagerð Reykjavíkur, en setning í Ingólfsprenti og Lithoprenti. Eins og fyrr segir er það gatnamála- stjóri í Reykjavík, sem gefur út, en í samvinnu við Umferðarnefnd Reykjavíkur og framkvæmdanefnd. í bókinni eru 17 sérkort af stöð- um í Reykjavík, sem mest breytast eftir H-dag. Að auki fylgir stórt heildarkort af Reykjavík, sem ætti að koma í góðar þarfir í framtíö- inni. Hoen tryggir enn nðstöðunn Norðmaðurinn Hoen treysti enn aðstöðu sína á Norðurlanda- mótinu í skák, eða aukaúrslit- um þess sem fara fram á Akur- eyri þessa dagana. Hoen vann í gær Ianda sinn Fredensborg í 4. umferð en Freysteinn vann Júlíus Bogason. En staðan þá bannig að Hoen hefur 4 vinninga, cn Freysteinn hef ur fengið 3 vinninga, Fredensborg og Júlíus Bogason hafa hvorugur hlotið vinning, en eiga sína hvora biðskákina. Á morgun fer 5. umferð fram og tefla þeir þá saman Freysteinn og Fredensborg og Júlíus oe Hoen. Sfðasta umferð verðúr svo tefld á sunnudaginn og tefla þeir þá Frey- steinn og Hoen. ***» '-J | > - f iVS/}sSStS//SS/Sf,r/&-ASt,V&SS/l/.''/SS/SSS/S%‘/k'JÍÍ&&*tísí/S.Y. Ljósmyndari Vísis hitti þessa ungu blómarós úti í Nauthólsvík í gær, þar sem hún var að sig í sólinni. Stúlkan heitir Guðrún Guðjónsdóttir og la"k prófi frá Verzlunarskólanum i Hún sagðist vona að sólskinið héldist og sem flestir gætu notið sólarinnar í Nauthólsvík. baða vor. Nóbels- skáldið I fljúgandi / i fyrsta sinn i & Á dögunum þegar Krónprins < Frederik stöðvaðist af völd- < um verkfalls í færeyjum með 40 | ísl. farþega gerðist talsvert < merkur atburður, — Nóbels-'1 skáldið Halldór Laxness geröist | flugfarþegi en eins og allir vita < hefur skáldið til þessa ekki feng 1 izt til að stíga fæti inn í flug- \ vél hvað þá meira. < # En nú gerðist það sem sé.1 Hann fór ásamt íslenzka | larþegahópnum til flugvallarins < i Vogi og flaug baðan með1 ^okker Friendship flugvél Flug-J élags íslands til Kaupmanna- < hafnar og er skáldið nú ytra. 1 9 Flugstjórinn, Bjarni Jens-| son, sagði að ekki hefði borið á < öðru en skáldið væri hið ánægð1 asta með ferðina. 58. árg. - Föstudagur 17. maí 1968. - 107. tbl. ^VSAAAAAAAAA^AAAAAAA

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.