Vísir - 22.05.1968, Qupperneq 2
VlSIR . Miðvikudaí*i*r 22. n***f
Afmælisleikur Fram á morgun
Fyrsti leikur sumarsins i Laugardal
@ Á undan afmælisleik Fram á
Laugardalsvellinum á morgun,
fer fram leikur á milli „old boyis“
Fram og KR. Eru liöin skipuð
þekktum lcikmönnum frá fyrri tíö
og má þar þekkja marga fræga
landsliðsmenn eins og t.d. Garðar
Árnason, Hreiöar Ársælsson og
Örn Steinsen frá KR og hjá Fram
Reyni Karlsson, Guðjón Jönsson,
Skúla Nielsen og fleiri.
Lið Fram veröur skipað þessum
leikmönnum:
Guöjón Jónsson, Haukur Bjarna-
son, Guöm. Guömundsson, Reynir
Karlsson, Steinn Guðmundsson,
Halldór Lúövíksson, Kari Berg-
mann, Guöm. Óskarsson, Dagbjart-
ur Grímsson, Hinrik Lárusson og
Skúli Nielsen.
LiÖ KR verður skipað þessum
leikmönnum: Gísli Þorkelsson,
Reynir Schmith, Garðar Árnason,
Hörður Felixson, Helgi V. Jónsson,
Leifur Gíslason, Örn Steinsen,
Þorbjörn Friðriksson, Gunnar Guð-
mannsson og Atli Helgason.
Þessi leikur hefst kl. 3 á morgun,
en strax á eftir leika 1. deildarlið
Fram og úrvalslið, sem íþrótta-
blaðamenn hafa valið. Verð að-
göngumiða er kr. 25 fyrir börn,
stæðismiðar kr. 60 og stúkumiöar
kr, 75 (Ath. aðeins eitt verð).
Ármann J. Lárusson
vann fjórðungs-
glímumót Sunn-
lendingafjórðungs
Fjórðungsglimumót Sunnlend-
ingafjórðungs fór fram í umsjá
Ungmennasambands Kjalarnes-
þings, í íþróttahúsinu i Kópavogi
sunnudaginn 19. maí s.l.
Keppendur voru 7 frá tveimur
samböndum, 5 frá Héraðssamband-
inu Skgrphéðni og 2 frá Ungmenna-
sambandi Kjalarnesþings.
Gestur Guðmundsson formaður
UMSK setti mótið. Glímustjóri var
Lárus Salómonsson, yfirdómari
Sigtryggur Sigurðsson, meðdómar-
ar Lárus Lárusson og Garðar Er-
lendsson, ritarar Ómar Úlfarsson
og Rögnvaldur Gunnlaugsson,
tímaverðir Elías Árnason og Hlyn-
ur Þórðarson, læknir Kjartan J.
Jóhannsson, fánaberi Ármann J.
Lárusson.
Keppt var um glímuhorn það
sem Mjólkurbú Flómamanna gaf í
þessa keppni fyrir þremur árum.
Ármann J. Lárusson frá Ungmenna
sambandi Kjalarnesþings vann
j>essa glímu nú í þriðja sinn f röð
og vann því til eignar þetta glímu-
horn.
Úrslitin voru þessi:
Ármann J. Lárusson, UMSK
6 vinningar.
Steindór Steindórsson, HSK
4 + 1=5 vinningar.
Guðm. Steindórsson, HSK 4 v.
ívar Jónsson, UMSK 3y2 vinn.
Skúli Sfeinsson, HSK 2l/2 vinn.
Þórarinn Öfjörð, HSK 1 vinn.
Einar Magnússon, HSK engan v.
Markhæstu menn
í Reykjavíkur-
mótinu í
knattspyrnu:
Hennann Gunnarsson, Val,
og Eyleifur Hafsteinsson, KR,
urðu markhæstir á Reykjavíkur-
mótinu í knattspymu, skoruðu
báðir 4 mörk, Gunnar Felixson,
KR, og Hafiiöi Pétursson, Vík-
ing, skoruðu báöir 3 mörk.
Þeir sem áttu flestar sending-
ar á menn, sem skoruðu voru
Theódór Guðmundsson, KR,
sem átti fjórar slíkar sendingar,
Baldur Scheving, Fram, átti 3 GUNNAR FELIXSON, KR —
og Gunnar Felixson og Reynir 3 mörk og 2 siðustu sendingar
Jónsson, Val, áttu 2 hvor. á leikmann sem skoraði mark.
16 ára golfmaður
vakti mikla athygli
— vann keppni með forgjöf um Arnesonskjöldinn
Keppnistfmabil golfmanna í
Reykjavík hófst síðastliöinn laug-
ardag 11. maí með 18 holu höggleik
með forgjöf, er háð var um svo-
nefndan Amesonskjöld.
Veður til keppni var sæmilegt til
að byrja með en undir lokin var
kominn noröanstrekkingur með
éljagangi. Leikið var á öllum 18
brautum vallarins og mæltist það
mjög vel fyrir meðal keppenda,
sem voru 35 að tölu. Augljóst er
að golfíþróttin er stöðugt að vinna
á hér á landi hvað vinsældir snert-
ir. Fjölmargir nýir félagar bætast
á þessu vori í hóp kylfinga í G.R.,
er hafa hinn glæsilega golfvöll i
Grafarholtslandi til umráða. Eins
og vænta mátti varð árangur al-
menn í lakara lagi í keppni þess-
arri. Einkum var það þó kulda-
nepjan, sem háði mönnum enda
kemur völlurinn mun betur undan
vetri nú en í fyrra. Úrslit urðu
annars sem hér segir:
W est Bromwich
vann bikarinn
BIKARINN í Englandi fór að
þessu sinni til West Brom-
wich Albion, sem sigraði í
heldur daufum Ieik gegn Ev-
erton á Wembley s.I. laugar-
dag með 1:0. Nærri 110 þús.
áhorfendur horfðu á leikinn,
en honum iauk með jafntefli
0:0 eftir venjulegan leiktíma,
en í framlengingu skoraði
West Brom og var Ken Astle
þar að verki skoraði af löngu
færi með föstu skoti eftir að-
eins 3 mínútur.
Astle er bezta skytta West,
Brom. og hefur t.d. skorað
mörk í öllum leikjum liðsins í
bikarkeppninni að þessu sinni,
alls eru það 6 leikir, sem hann
hefur skorað í.
Úrslitin komu á óvart og
segja má að Everton hafi verið
betri aðilinn í þessum leik, yg
sannarlega voru Everton-menn
óheppnir að skora ekki mark í
seinni hálfleik leiksins, en þá
skallaði einn framherjanna yfir
markið í mjög góðu færi.
Barizt um fall í
3. deild í kvöld
Siglufjörður og isafjörður leika á Melavellinum
Það er oft skammt milli
skins og skúra i knattspym-
unni. Þetta sannast e.t.v. bezt
á liðunum, sem í kvöid leika
á Melavellinum f Reykjavík.
Þetta eru tvö lið, sem bæði eru
iangt að komin, og berjast um
að halda sæti sinu í 2. deild.
Liðin koma frá ísafirði og
Siglufirði, en bæði voru betur
sett fyrir nokkrum árum og
hugsuðu ekki um 3. deild held-
ur þá fyrstu. ísfirðingar voru
nokkur ár í 1. deild, en féllu
niður og virtist knattspyrna þar
vestra gjörsamlega falla saman
við þetta. Siglfirðingar voru
ekki langt frá 'því að komast
í úrslit 2. deildar, og 1. deildin
var það sem þeir hugsuðu um
þá.
Liðið, sem kom upp úr 3.
deild er FH, sem einnig lék í
1. deild fyrir nokkrum árum,
þegar Albert Guðmundsson
þjálfaði liðið og lék með því.
Siglfirðingar og ísfirðingar
mætast kl. 8 í kvöld. Eflaust
verður leikur þeirra fjörugur,
og líklega fjölmenna Siglfirðing-
ar og ísfirðingar hér í Reykja-
vík til að hvetja lið sín.
Með forgjöf:
L—2. Ólafur Skúlason og Sveinn
Gíslason báðir á 72 höggum.
3. Einar Guðnason á 73 höggum.
Ólafur og Sveinn féku 18 holur
til úrslita og sigraði Ólafur glæsi-
lega á 72 h. gegn 87. Ólafur er
aðeins 16 ára og er ört vaxandi
golfieikari, sem mikils má af
vænta.
Án forgjafar:
1. Einar Guðnason 81 högg. -
2. Ólafur Skúlason 89 högg.
3. Eiríkur Helgason 91 högg.
Hafsteinn Þorgeirsson, sem lék
með sem gestur, lék á 87 höggum
án forgjafar.
BELTI og
BELTAHLUTIR
áBELTAVÉLAR
BERCO
Keðjur Spyrnur Framhjól
Botnrúllur Topprúllur
Drifhjól Boltar og Rær
jafnan fyrirliggjandi
BERCO
er úrvals gæðavara
ó hagstæðu verði
EINKAUMBOÐ
ALMENNA
VERZLUNARFÉLAGIÐ f
SKIPHOLT 15 —SÍMI 10199
jfiEaei