Vísir - 22.05.1968, Side 3
3
Lögreglan sleppur ekki viö hægri breytinguna og hér ganga þeir í „Bros-skólann“.
H-alvarlegur undirbúningur að H-tíð
laugardagskvöldið
fyrir H-dag
Litið inn á æfingu hjá sjónvarpinu
l\/f"yndsjáin í dag er frá stuttri
1 heimsókn til sjónvarpsins,
en þar standa nú yfir æfingar
á mikilli H-tíð, sem flutt verður
beint úr sjónvarpssal n.k. laug-
ardagskvöld. Skemmtidagskrá
þessi er í tilefni umferðarbreyt-
ingarinnar og $r allur kostnaö-
ur greiddur af Framkvæmda-
nefnd hægri umferðar.
Telja má víst, að aldrei hafi
jafnstórkostleg og fjölbreytt
skemmtun verið samansett til
flutnings í sjónvarpinu fyrr. Má
segja, að valinn maður sé í
hverju rúmi, en meðal þeirra
sem fram munu koma eru allt
frá bítlum til óperusöngvara,
þannig að sem flestir ættu að
fá eitthvað, við sitt hæfi. Kynn-
ir verður Steindór Hjörleifsson,
en auk hans munu birtast á sjón-
varpsskerminum þetta kyöld
Bessi Bjarnason, Brynjólfur Jó-
hannesson, Guömundur Jónsson,
Hljómar, Jón Júlíusson, Krist-
inn Hallsson, Ólafur Þ. Jónsson,
Ómar Ragnarsson, Ragnar
Bjarnason og hljómsveit, Ríó
tríóið, Róbert Arnfinnsson, Stina
Britta Melander, Þóra Friðriks-
dóttir o. fl. Stjórn þessarar veg-
Iegu H-tíðar er í höndum þeirra
inu sínu við glúntasöng.
Þátttakendur i þessari skemmti
dagskrá verða milli 40 og 50 aö
sögn Andrésar Indriðasonar,
enda lítt til sparaö. Það ber aö Hljómar frá Keflavík flytja allnýstárlegt tónverk eftir Gunnar Þóröarsou.
þakka Framkvæmdanefnd hægri
umferðar af heilum hug þetta
skemmtilega framlag þeirra á
þessum merku tímamótum.
Að lokum vill Myndsjáin
hvetja fólk til aö hafa a. m. k.
■ tvennt hugfast um næstu helgi,
H-tíðina á laugardagskvöld og
„hægri breytingu“ á sunnudag.
„Og nú veröiö þið aö brosa, piltar.“
Tage Ammendrup og Andrésar
Indriðasonar.
Það er ekki vandalaust verk,
að setja saman skemmtidagskrá
og framkvæma hana svo snurðu
laust sé, enda var mikið um að
vera 1 sjónvarpssal, því ekkert
má út af bregða, er á hólminn
verður gengið.
LÁTIÐ OKaUR INNHEIMTA...
Það sparar yður tima og ót>3egindi
INNHEiMTUSKRIFSTOFAN
Tjarnargötu 10 — III hæð -Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3linur)