Vísir - 22.05.1968, Síða 7
VlSÍR . Miðvikudagur 22. maí 1968.
morgun •" útlönd il i morgun útlönd i í raorgun lítlönd í raorgun útlönd
De Gaulle kann að boða þjóðar-
atkvæði þegar / næsta mánuði
Enn horfur á, að stjórn hans haldi velli, en
miklar breytingar gerðar á henni i næstu viku
Parfs í morgun.
1 gær og gærkvöldi var mikið
um það rætt, að í ræðu sinni
á föstudagskvöld mundi de
Gaulle ef til vill boða þjóðar-
atkvæði — og ef til vill þegar
f næsta mánuði — um tillögur
hans til þess að koma til móts
við kröfur þær, sem fram hafa
verið bomar til umbóta af stúd-
entum og verkamönnum, en for-
setinn hefur að því að taiið er
endurskoðað afstöðu sína, og
þess vegna hefir verið byrjað
á náðun stúdenta, og næsta
skrefið aukin áhrif verkamanna
á stjórn fyrirtækja og rekstri
þeirra og í arði.
Horfurnar voru enn þær, er
síðast fréttist, að stjórnin kynni
að halda velli við atkvæðagreiðsl
una um vantraustið, en sú at-
kvæöagreiösla fer fram í kvöld
eða næstu nótt — gæti jafnvel
dregizt fram undir morgun.
Erfiðleikar voru enn vaxandi
í Frakklandi í gær vegna verk-
falianna. Brezka útvarpið segir
7 miiljónir manna í verkföllum,
í sumum öðrum fregnum segir
um 10 milljónir. .
Líklegt er, þótt stjórnin haldi
velli, að þær breytingar, sem
forsetinn kann að gera á henni,
verði allvíðtækar.
Ekki kom til átaka í gær, en
menn sem fylgja hægri flokkun-
um að málum ætluöu að ganga
fylktu liði að húsi kommúnista-
blaðsins L’Humanité voru stöðv-
aöir af lögreglunni.
Franska stjómin hefír fallizt ó
fruavarp um algera néðan stádenta
De Gaulie mun boða lýðræðislegra fyrirkomulag á vinnuvetfvangi landsins
— Forsefinn á unt þrennt að velja, fcslli núverandi ríkisstjórn
París í gær.
■ De Gaulle forseti hefur nú gert
fyrstu gagnráðstöfun sína vegna
Suharto.
verkfallanna, sem 10 milljónir
manna taka þátt i, eða helmingur
allra starfandi manna í landinu,
um sama leyti sem vantrauststil-
laga stjómarandstöðunnar var lögð
fram formlegá, og Unifæðan hófst
um hana í fulltrúadeildinni, en það
veltur á úrslitunum í atkvæða-
greiðslunni um hana hvort Gahll-
ista-stjórnin á nokkra framtíð fyrir
sér.
1 gær fengu menn nokkru gleggri
hugmynd um hvaða gagnráðstafanir
de Gaulle hefur f huga. Og fyrsta
ráðstöfun hans er að friða stúdent-
ana, sem fyrir þremur vikum gerðu
uppreist gegn yfirvöldunum, en það
leiddi aftur til verkfallanna, sem
hafa komiö öllu í strand.
Á stjórnarfundi, sem stóð 15 mín-
útur, var fallizt á lagafrumvarp,
um algera náðun allra handtekinna
stúdenta. Fulltrúadeildin fær nú
frumvarpið til meðferðar, en það
er eina krafan, sem stúdentar nú
halda til streitu, að öllum handtekn
um stúdentum verði sleppt úr haldi
og gefnar upp sakir. Barátta stúd-
entanna Iiggur að öðru leyti niðri
vegna forustu verkalýðssamtak-
anna og verkfallanna.
Litið er á þessa ákvöröun sem liö
í baráttu de Gaulle til þess að
halda velli er vantrauststillagan
kemur til atkvæða. Hann mun og
íhuga að lofa þjóðaratkvæði, en
þjóðaratkvæði er pólitískt vopn,
sem hann oft hefir beitt.
Þá er það ætlun margra, að í
útvarpsræðunni á föstudagskvöld
muni hann'gera grein fyrir áformi
um lýciræðislegra fyrirkomulág' S
atvinnuvettvanginum. Hann er
sagður hafa verið sannfærður um
það Iengi, að ef verkamenn fengju
skilyrði til aukinna stjórnmálalegra
áhrifa og meiri hlutdeild f rekstri
fyrirtækjanna muni sambúð öll fara
Johnson biður um
fjóra milljarða fil
hernaðarþarfa
Johnson Bandaríkjaforseti fór í
gær fram á, að þjóðþingið veitti
4000 milljónir dollara til hernað-
arlegra þarfa í Suðaustur-Asíu.
Mestur hluti fjárins gengur til
þess aö standa straum af kostnað-
inum við hernaðinn f Vietnam, en
nokkur hluti fer til stuðnings Suð-
ur-Kóreu, vegna aukinnar hættu,
sem stjórn Iandsins telur því stafa
af Noröur-Kóreu. ' . 1
<3>-
mjög batnandi milli atvinnurekenda
og verkamanna.
Gert er ráð fyrir breytingum á
stjóminni, þótt stjórn de Gaulle
lifi af vantraustið, og muni breyt-
ingarnar veröa allvíðtækar og um
þær verða kunnugt f næstu vikm
Falli stjórnin er de Gaulle talinn
hafa um þrennt aö velja:
1. Mynda nýja stjórn við eða án
forustu Pompidou.
2. Rjúfa þing og bdða til nýrra
kosninga.
3. Nota sér lagaheimild til þess að
Iýsa yfir undanþágu- eða hættu-
ástandi á grundvelli 16. gr.
stjórnarskrárinnar, og stjórna
um tíma með tilskipunum.
Einnig var sagt f París, og sagð-
ar samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum, að de Gaulle mundi fela
Pompidou myndun nýrrar ríkis-
stjórnar verði vantrauststillagan
felld.
B BIAFRA: Zambía viðurkenndi f
gær Bíafra og er fjórða Afríkuland-
ið, sem það hefur gert. Hin eru
Tanzanía, Gabon og Fílabeinsströnd
in. Utanríkisráðherra Zambíu, Reub
en Kamanga, skýrði frá þessu á
fundi með fréttamönnum og kvað
m. a. svo að orði, að það hefði vakiö
skelfingu, að saklaus almenningur
hefði verið brytjaður niður, og
beiskjan, sem borgarastyrjöldin
hefði vakiö, ætti sér án efa svo
djúpar rætur, að engin skilyrði
væru fyrir hendi til þess, að Biafra
gæti aftur sameinast Nigeríu-sam-
bandsríkinu.
■ ÁLBRÆÐSLUR: Brezki við-
skiptamálaráðherrann, Anthony
Crossland, var væntanlegur til Osló
í dag til viðræöna við Kaare Will-
och viðskiptamálaráðherra Noregs,
en ágreiningur er milli Bretlands og
Noregs út af áformum Breta um
að setja á stofn álbræðslur.
■ MOSKVUFERÐ: Nefnd finnskra
jafnaðarmannaleiðtoga meö Rafael
PAASIO í fararbroddi hélt heim í
fyrrad. úr Moskvuferð. Rætt var við
ritara Kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna Mikhail Suslov og Boris Pon-
omarjov. Viðræðurnar áttu sér stað
í aðalskrifstofu Kommúnistaflokks-
ins. Búizt er viö, að tilkynning
um þær hafi verið birt f gær í
Pravda.
■ EBE: Fregn frá Briissel herm-
ir, að menn álíti að átökin í Frakk-
landi muni verða til þess að tor-
velda, að samkomulag náist um
landbúnaðarstefnu bandalagsins. —
Landbúnaðarráðherrar bandalags-
ríkjanna koma saman á fund í
næstu viku og samkomulag getur
því aðeins'náðst, aö um tilslakanir
verði að ræða af Frakka hálfu.
Sennilegt þykir, að fundinum verði
frestað þar til kyrrð kemst á í
Frakklandi.
Ojukwu, leiðtogi Biafra,
setur tvö höfuðskilyrði
— sem Gowon hefir þegar hafnað
Samsæri i Indónesiu:
Myrða átti Suharto forseta
og nokkra hershöfðingja
Frétt'ir frá Jakarta í gær
hermdu, aö komizt hefði upp um
samsæri til þess að myrða Su-
harto forseta og nokkra hers-
höfðingja og hafa nokkrir liðs-
foringjar og blaöaménn verið
handteknir.
I" tilkynningu um þetta segir. að
kapteinn í hernum hafi játaö, að
áformað hafi verið að myröa for-
setann er hann var viðstaddur trú-
arathöfn 2. janúar. Kapteinninn
var handtekinn nokkrum dögum
áður. Hann er sagöur hafa haft
samskipti við hina kommúnistísku
byltingarforsprakka í byltingunni
1965. f hinni opinberu tilkynningu
eru nafngreindir hershöfðingjar,
sem einnig átti að myrða.
Ojukwu, ieiðtogi í Biafra,
sagði i gær, að Biafra myndi
setja tvö skilyrði, er ráö-
stefnan um frið yrði sett i
Kampala í Uganda á morgun.
1. Að forseti ráðstefnunnar
yröi óháður — og stakk
Skiptafundur
verður haldinn i þb. Húsgagna-
verzlunar Austurbæjar h.f.,
Skólavörðustfg 16, sem úrskurð
að var gjaldþrota 24. f. m„ föstu
daginn 24. þ. m. kl. 2 e. h. í skrif
stofu borgarfógetaembættisins
að Skólavörðustig 12
Ákvöröun verður tekin um
ráðstöfun eigna búsins.
Skiptaráðandinn í Reykjavík,
20. 5. 1968.
Siguröur M. Helgason.
Ojukwu upp á dr. Obota,
forseta Uganda.
2. Að vopnahlé yrði gert þeg-
ar i staö.
Gowon ofursti — æðsti maður
hernaðgrlegu stjórnarinnar —
hafnaöi þessum kröfum, :.ð þvi
er útyarpið í Lagos sagði i gær-
kvöldi.
ÍSPiS
Ojukwu.