Vísir - 22.05.1968, Blaðsíða 16
VTSIR
Miðvikudagur 22. maí 1968.
ÞorgeSr Þorgeirs-
son sýnir Ijos-
myndir á Moklcn
Þessa dagana stendur yfir sýn-
ing á tuttugu Ijósmyndum Þorgeirs
Þorgeirssonar á Mokka.
Þorgeir hefur þessar myndir úr
þremur kvikmyndum sínum: Að
byggja, Maður og verksmiðja og
Grasnlandsflug. Myndimar hafa
verið stækkaðar og unnar, og það
verk hefur Myndin sf. leyst af
hendi.
Myndirnar á þessari sýningu eru
til sölu og kosta fimm hundruð
krönur hver, og er það nokkur
nýlunda, að haldin sé sölusýning
á ljósmyndum hérlendis.
, Ovíst hvort ísbrjótur kemur
uðgugnií þessum miklu ís'
segir samgöngumólarádherra
■ Ríkisstjórnin hefur ákveð
ið að fara þess á leit við yfir-
völd í Bandaríkjunum að hing
að verði fenginn sterkur ís-
brjótur, til þess að hægt verði
að koma á samgöngum við
þær fjölmörgu hafnir norðan
lands og austan, sem nú eru
lokaðar vegna hafíss.
Blaðið hafði samband viö
samgöngumálaráðherra, Ingólf
Jónsson í morgun og staðfesti
hann þessa frétt og sagði jafn-
framt að fyrr í vor heföi þetta
mál verið tekið til athugunar,
en um síðustu máhaðarmót
hefði allt útlit verið fyrir að ís-
inn væri á förurn, og því hefði
ríkisstjórnin ekki taliö ástæðu
til að hefjagt handa .Nú hefði
hins vegar sýnt sig, að ísinn
hrevfðiát lítið og hefði síður
en svo fjarlægzt, og því hefði
þessi ákvöröun verið tekin í
gær.
„Við gerum fastlega ráð fyrir
að geta fengið hingað ísbrjót
mjög fljótlega, en hins vegar er
óvíst hvort hann kemur aö ís sem hér er“ — sagði Ingólfur
gagni í þessum mikla og þétta Jónsson ennfremur.
WSWÆ
......
Mmí
vmfímíffiíiw.
Nýstárleg ísvél fyrir
bátana vekur athygli
— Margir útgerðarmenn hafa i hyggju að fá sér
slikar vélar fyrir sumarsildveiðarnar til að koma
meiru i salt
IE Allmargir útgerðarmenn og síldarskipstjórar eru nú að hug-
leiða að kaupa nýstárlega ísvél, sem hafið var að framleiða í
Bandaríkjunum s.l. haust. Mun ætlun þeirra vera að kaupa vélina
fyrir síldveiðarnar, er* með því að hafa ísvél um borð í veiðiskip-
unum er hægt að sigla e? síldina í a. m. k. þrjá sólarhringa og
salta hana eftir þann tíma. - ísvél um borð í aflaskipinu Gísla
Árna, varð tii þess í fyrrasumar að unnt reyndist að salta 11.000
uppsaitaðar tunnur úr skipinu, sem bjargaði vertíð skipsins.
Isvélin í Gísla Árna er fyrirférðar
nikil, dýr og kostnaöarsamt að
setja hana upp. Þrátt fyrir það er
enginn efi, að mikill hagur hefur
vérið vélinni. ísvélin, sem útgerð-
S— > 1(, siöa
FASTAFLOTI NATO TIL
REYKJAVÍKUR Á H-DAG
• Fimm herskip frá Noregi,
Þýzkalandi, Hollandi, Bret-
landi og Bandaríkjunum, sem eru
í fastaflota NATO munu heim-
sækja ísland á sunnudag, 26. maí,
að því er Frank B. Stone, aðmír-
áll, yfirforingi NATO á íslandi til-
kynnti í gær.
1 fastaflotanum eru norski
tundurspillirinn Narvik, þýzka
M.R. sett upp í íþöku
■ Á síðasta ári átti bók-1 eins og hann var upphaflega, og
hlaða Menntaskóians í I kvaðst vona, að næsta öld f sögu
Reykjavík, íþaka, aldar- hússins yrði til jafnmikils gleöi- og
menningarauka og sú, sem liðin
er.
afmæli. I því tilefni færðu
júbilárgangarnir 1967 skólan-
um gjafabréf að upphæð 200.
000 krónur. Þessu fé hefur
nú verið varið til kaupa á
upptöku- og hljómburðartækj
um, sem hafa nú verið sett
upp í íþöku.
Viggó Maack, skipaverkfræöing-
ur, afhenti gjöfina formlegá í gær.
Tækin eru útvarpstæki, piötuspil-
ari og stereófónísktseguibandstæki
meö hátölurum ,.g heynartólum.
Sveinn Guðmundsson verkfræðing-
ur hefur annazt uppsetningu.
Tæki og uppsetning kostuöu um
130 þús., en afgangurinn verður
notaður til kaupa á hljómplötum
og t.d. keypt allt það af töluðu
oröi, sem til er á íslenzkum plöt-
um.
Að gjöfinni standa júbilárgangar
skólans. Elztir eru séra Sigurbjörn
Á. Gíslason, sem er 70 ára stúdent
og Sigfús Johnsen, sem er 60 ára
stúdent.
Einar Magnússon, rektor Mennta
skólans í Reykjavík, veitti gjöfinni
viðtöku og þakkaði geféndum.
Hann sagði, að nú væri veriö að
breyta íþökusalnum í lestrarsal
//
.Grillið"
opnar aftur
„Grillið" svokallaða á Hótel
Sögu, sein varð fyrir skernmdum
af bruna nýiega og hefur verið
lokað síðan, verður væntanlega
opnað að nýju um helgina. Konráð
Guðmundsson, hótelstjóri á Sögu,
hefur boðað til blaðamannafundar
kl. sex í dng og mun þá væntan-
lega skýru nánár frá þessu máli
freigátan Köln, hollenzki tundur-
spillirinn Holland, brezka freigátan
Brighton og bandaríski tundur-
spillirinn Holder. Eftir heimsókn-
ina til Reykjavíkur heldur flota-
deildin til Noregs.
Fastafloti NATO er fyrsti fasta-
floti, sem settur er á stofn, með
þátttöku margra þjóða á friðar-
tímum. Kemur fastaflotinn 1 stað
Matchmaker flotadeildarinnar,
sem stofnuð var í æfingaskyni, og
hefur starfað með góðum árangri
undanfarin þrjú ár. Hinn nýi
fastafloti mun veröa til reiðu til
þeirra starfa, sem Atlantshafsráðið
felur honum.
Yfirmaður flotans er G. C
m->- io. síðu.
Nýtt og fullkomið íþrótta-
hús i smiðum i Njarðvikum
Um næstu áramót munu
Njarövíkingar taka í notkun
glæsilegt íþróttahús, sem verið
er að byggja. Talsverð stöðvun
hefur þó oröið á verkinu, þar
sem fjárhagserfiðleikar hafa
verið talsverðir.
Jes E. Þorsteinsson teiknaöi
húsið og byrjað var á fram-
kvæmdum vorið 1966 og er á-
ætlaður byggingarkostnaður 25
milljónir króna/ Grunnflötur
hússins er 1268 ferm., en aðal-
byggingin er 968 ferm. í kjallar-
anum verða sundlaug, búnings-
herbergi og lítill íþróttasalur.
Á efri hæö verða stór salur, en
stærð hans veröur 32.75 X
17.90 m, böð, búningsherbergi
og gufubað. Salnum veröur síð-
an hægt aö skipta í tvennt,
þannig tvöföld kennsla geti far-
ið fram.
Húsið er steinsteypt meö
strengjasteypubitum og plötum.
Sundlaugin er ætluð sem
kennslulaug og veröur stærð
hennar 12,5x8 m. í fyrrahaust
var kostnaðurinn orðinn 8,5
milljónir króna og var þá fram-
lag ríkisins af því £ milljónir,
en Njarðvíkingar eru ekki á-
nægðir með þá upphæö. Bygg-
ingarfulltrúi Njarðvíkurhrepps
er Hilmar Sigurðsson.