Vísir


Vísir - 30.05.1968, Qupperneq 1

Vísir - 30.05.1968, Qupperneq 1
Bassp VISIR 58. árg. - Fimmtudagur 30. máí 1968. - 117. tbl. Slysavarðstofan flutt í Fossvog í gær var sl-.savarðstofan í HeilsuvemdarstöSinni lögð niður en í stað hennar kemur slysadeild Borgarspítalans. Er nú aðeins eftir í Heilsuverndarstöðinni endurhæf- ingastöð fyrii um 35 sjúklinga. Þessi slysadeild mun starfa : nánu sambandi við handlæknisdeiid Borgarspítalans. Yfirlæknir er Haukur Kristiánsson og sagði hann að aðstaðan væri nú öil önnur en áður og mikiivægt væri, að hægt væri að taka röntgenmyndir með fullkomiTum tækjum. Annars er aðalkosturinn að vera kominn í samband við spitala og þarf þá ekki að flytja sjúklingana á milli. Á nýja staðnum varða skurðstofur fyrir þrjá og mjög full komið gifsherbergi og sérstakt herbergi fyrir þá sem alvarlega eru meiddir, en þar veröur komið fyr ir súrefni. og öllum nauðsynlegum hiutum til mi!:illa aðgeröa. Læknar verða 7, 5 gangastúlkur og II hjúkrunarkonur. Er með þessum áfanga brotið blað í læknaþjónustu hér í Reykja vík og er það ánægjulegt. jSBSPBI * Humphrey og Nixon mumi keppa um forsetatignina // spáir Karl Rolvaag, ambassador Bandarikjanna hér - 0 Rolvaag, ambassador Bandaríkjanna á Islandi, flutti ræðu á aðalfundi ís- lenzk-ameríska félagsins í gærkvöldi og fjallaði um væntanlegar forsetakosning- ar í Bandaríkjunum á hausti komanda. Lýsti hann áliti sínu á hinum ýmsu frambjóð- endum, sem til greina koma. Hann kvaðst telja, að Hubert Humphrey, varaforseti, yrði fyrir valinu af hálfu demó- krata og Richard Nixon fyrir repúblikana. Að vísu væru ekki öll kurl komin til grafar í þessu efni. 1 lok 1967 jukust erfiðleikar Johnsons forseta. Þá var Romney helzti andsteeðingur for setans og naut mikilla vinsaslda. Rolvaag kvaðst persónulega kunnugur Romnev, sem væri hinn hæfasti maður. Romney studdi forsetann að mestu í Víetnam málinu, en breytti skyndilega um skoðun. Kvaðst hann hafa vcrið „heilaþveginn“ á ferðalagi um Suður-Víetnam. Við þetta lækkaði mjög gengi Romneys, þar sem fólk æskti þess ekki, að unnt væri að ,,heilaþvo“ væntanlegan forseta. Auk þess lýsti hann því yfir að bændur í Bandaríkjunum hefðu fyrir löngu verið „keyptir“ af ríkisstjórninni, sem olli mikilli gremju meðal þeirra. Romney dró sig í hlé, er honum varð ljóst, að hann mundi stórtapa í prófkosningum. Um Rockefeller rikisstjóra sagði ambassadorinn, að hann nyti mikilla vinsælda, en ekki í hópi leiðtoga repúblikana- flokksins. Þeir teldu hann of frjálslyndan. Eftir miklar vanga 10. síða. Karl Rolvaag. 1 Wi’WrM ! t|É Læknarnir í hinni nýju slysadeild Borgarspitalans. BjargaSi manni úr höfninni „Við sáum hann liggjandi á floti f sjónum á milli bátanna, þegar við á Sæfinni vorum að leggjast að,“ sagði Ingólfur Karlsson, sá sem stakk sér kná- lega til sunds í gær eftir manni, sem fallið hafði í höfnina. „Við vorum að færa bátinn til eftir löndun og þarna við bryggj- una lágu nokkrrr bátar og lögðumst við þriðji eða fjórði bátur utan á þá. >á sáum við manninn." Ingólfur, sem er til heimilis að Hraunbæ 168, vildi sem minnst úr öllu gera, þegar kom þar að í frá- sögninni, að hann stakk sér eftir manninum. „Sáuð þið nokkuö lifsmark með manninum?“ „Nei! Mér datt ekki í hug, að hann væri lifandi." „Þú hikaðir samt ekkert við að demba þér út í eftir honum?“ „Nú, það var náttúrlega alltaf „sjens“ á“því, að eitthvert Iifsmark leyndist með honum.“ Ovíst, að De Gaulle segi af sér — Dularfult „hvarf" hans i gær eykur óvissuna, en hann mun hafa heimsótt herstöðvar 9 Fréttir árdegis hermdu, að óvíst væri, að de Gaulle segi af sér. Hann hvarf í gær í um eða 'rfir 4 klukkustundir að minnsta kosti og ekkert um hann vitað, annað en að bann lagði af stað í þyrlu til landseturs síns, sem er rúmlega 200 km. fyrir austan París. Til landsetursins fór hann til þess að íhuga í næði hina ör- lagaríkustu ákvörðun, og var boðað, að um ákvörðunina myndi verða kunnugt að loknum stjórnarfundi í dag og að Pompi- dou forsætisráðherra myndi flytja þar ræðu, sem útvarpað yrði. Um gervalla París var ekki um annaö meira rælt en j>aö, hvort de Gaulle væri að hugleiða að segja af sér. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar á þingi ræddust við. Mitterand gaf til kynna, að hann væri fijs til þess að veita bráðabirgðastjórn forustu. Síðar kom Mendes-France fyrrv. forsætisráðherra með sams konar yfirlýsingu fyrir sitt leyti. Kommúnistaleiötogar, sögðu að stjórn án þátttökú þeirra yrði mátt- laus og gagnslaus, og við forustu kommúnista var farin mikil ganga um götur Parísar og þess krafizt, að de Gaulle segði af sér. Leiðtogar Gaullista i i'ranska þjóðþinginu skoruðu í gær á de Gaulle forseta og Pompidou for- sætisráðherra að mynda þjóðstjórn og efna til nýrra kosniriga I>e Gnutle í orðsendingu til de Gaulle og Pompidou í gærkvöldi segir, að leiðtogarnir, Henry Ray og Ray- rnond Mondon, treysti því, að for- setinn og forsætisráðherrann taki sér frumkvæði i hendur til mynd- unar þjóðstjórnar undir forustu Pompidou og verði svo efnt til kosninga undir eins og allt sé komið í venjulegt horf í landinu. Tillaga þeirar fékk stuðning leið- toga óháðra, Jean Royers. í landinu ríkti sama öngþveiti. Allt eins og undir fargi vegna verkfallanna. Alþjóðabankinn í Basel, sem annast. hjálparaðgerðir vestrænna |>jóða á sviði gjaldeyrismála hljóp í gær þriðja daginn í röð undir bagga með frankanum, sem hefir fallið seinustu dagana, vegna öng- þveitisins og óvissunnar, sem dreg- > 10 síðu. Lögreglunni var tilkynnt um at- burðinn og þegar hún kom á stað- inn var búið að bjarga manninum upp úr höfninni. Kom þá í ljóst, að hann var á lífi og hjamaði fljótt við. En enginn vissi, hvernig maður- inn. hafði fallið í höfnina. Hann var fluttur á slysavarðstofuna, þar sem honum var séð fyrir aöhlynn- ingu. „Treystum á góða veiði og betra verð" segir Loftur Bjarnason vib upphaf hvalvertiðar ■ Ákveðið er, að hvalveiði- vertíðin hefjist skömmu eftir hvítasunnu og munu fjórir bátar verða gerðir út, eins og í fyrra. Það hefur ríkt mikil óvissa um það, ’hvort hval- veiði skyldi stunduð f sumar, og kom þar til hið slæma verð, sem verið hefur [ að undanförnu á sjávarafurð- um. - En við teflum í þá tvísýnu, að veiði verði góð og að við fáum sæmilegt verð fyrir aflann, sagði Loftur. Bjarnason útgerðarmaður, er t við ræddum við hann í gær. Um sextíu menn munu sldpa áhöfn þessara fjögurra hvalveiðibáta, en alls munu starfa við útgerðina 145 manns. Einnig sagði Loftur, að aflinn í fyrra hefði verið 406 hvalir og vonumst við til að geta bætt einhverju við þá tölu í ár.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.