Vísir - 31.05.1968, Blaðsíða 2

Vísir - 31.05.1968, Blaðsíða 2
435horfðu á, „hægum sunnun sjö" Landslið — M.W. 2:4 i Laugardal i gærkvöldi — Þórólfur meiddist illa lundsleik"í MIKLAR hetjur eru þær 435 sálir, sem lögðu leið sína á Laugardalsvöll í gær kvöldi til að horfa á óopin- beran landsleik, sem leik- inn var í „hægum“ sunnan- sjö eins og sagt hefur ver- ið. Já, 435 borguðu sig inn þrátt fyrir veðrið, þar af 218 börn og 217 fullorðnir, en veðrið var slíkt, að marg ur hefði notað slíkt sem af- sökun fyrir að nenna t. d. ekki út í mjólkurbúð, en knattspyrnan hefur sem sé aðdráttarafl og virðist veð- ur ekki hafa teljandi áhrif á suma áhangendur þess- arar íþróttar. Leikurinn bar öll einkenni veður lagsir(s eins og gefur að skilja, leikmenn liðanna náðu litlu sem engu úr leik sínum. Bretarnir léku undan veðrinu í fyrri hálfleik og skoruðu 3 mörk gegn engu. Fyrst kom sjálfsmark Guöna Kjartans- sonar, eins bezta manns fsl. liðs- ins á 1. mínútu, þá þrumuskot Colletts á 30. mín sem lenti uppi undir þverslá algjörlega óverjandi og loks á 43. mín klaufamark sem reiknast á vörnina. í seinni hálfleik byrjuðu M.W. á að skora. Fay skoraði með hörku- skoti á ská við markið. Þórólfur Beck, sem hafði verið iangbezti maður ísienzka liðsins í fyrri hálfleik lék ekki með seinni hálfleik og veikti það að vonum lið ið mjög. Inn kom í staðinn Gunn- ar Gunnarsson. Hermann skoraði 4:1 á 12. mínútu með góðu skoti utan vitateigs, og á 43 mín skoraði Guðmundur Eyjólfsson úr Breiða- bliki 4:2, sendingin kom frá Eyleifi og skoraði Guðmundur örugglega úr góðu færi. Hannes Þ. Sigurösson dæmdi leikinn og gerði það vel. Þórólfur fór eins og fyrr segir af leikvelli í hálfleik. Hann hlaut slæman skurð á annan fótinn og verður e.t.v. frá knattspyrnu um nokkum tíma af þessum sökum aö þvi er iþróttasiðan frétti seint í gærkvöldi. GUÐMUNDUR GISLASON Hefursett 100 Islamfsmet! Þeir eru sannarlega ekki margir íþróttamennirnir í heiminum, sem geta státað af þvf að hafa sett 100 sinn- um landsmet. Þetta getur Guðmundur Gíslason, sem í fyrrakvöld setti sitt hundr- aðasta met frá þvf að hann tók að keppa f sundi. Hann synti þá 100 metra flugsund á 1.02.5, sem er nýtt íslands- met. Hörkukeppni var 1 200 m baksundi kvenna, en þar kom Sigrún Siggeirsdóttir fyrst i mark á nýju íslandsmeti 2.44.1, Hrafnhildur Guðmundsd. varð önnur á 2.45.0, en gamla metið er 2.45.7, þannig að báðar syntu þær á betri tíma en metið var. Glæsilegum árangri náði Ellen Ingvadóttir, var aðeins 1/10 frá meti Hrafnhildar Guðmundsd. í 100 m bringusundinu, synti á 1.21.2. Er það bezta metið í kvennagreinum samkvæmt stiga töflunni. Ekki tókst Leikni Jónssyni að bæta met Harðar B. Finnssonar í þetta sinn en hann synti á 1.12.5 í 100 metra bringusund- inu, metið er 1.11.1. Tvö íslandsmet til viöbótar voru sett á mótinu, og sýnir þaö að sundíþróttin er í miklum uppgangi. Ármannsstúlkurnar settu met í 4x50 metra skrið- sundi á 2.06.2, en gamla met- ið var 2.10.5 og Ármannssveit setti met í 4x100 metra bringu sundi á 5.00.5, gamla metið 5.16.2. Millitlmar 1 sundinu voru góðir, Leiknir fékk 1.13.0 og Guðmundur Gíslason 1.13.2. M U N I Ð, 60 km hámarkshraða á Keflavíkur- vegi á leið á leik Keflavikur og I Schwartz-Welss á 'annan í hvita- EINAR BOLLASON — ákveðinn í sunnu. aö halda uppi merkinu með félög-1 um sinum í Þór á Akureyri, Hans Hiilsmann, miðvörður liösins. Merchel, markvörður Schwarz- Weiss. h Kracht miðherji. Þýzkir atvinnumenn leika ium i por a AKureyn. $-; m æ # ■ | ■ Einar Bollasoa ! Keflavík á 2 ' nvítasunnu ófram 0 I viðtali við Akureyrarblað- ið Dag skýrir Einar Bollason frá þeirri ákvörðun sinni að halda áfram að þjálfa körfuknattleiks menn á Akureyri og leika með þeim, en eins og kunnugt er náði hann ótrúlegum árangri á stuttum tima með körfuknatt- leiksmenn Þórs, sem urðu í 3. sæti á íslandsmóti 1. deildar. Segir í upphafi greinar Dags að sú saga hafi verið á kreiki í bænum „að KR-ingar legðu mik- nyrðra ið kapp á að ná Einari Bollasyni suður aftur“, og að alveg óvíst væri að hann yröi á Akureyri næsta vetur. í viðtalinu staðfestir Einar að hann muni í vetur starfa viö Gagn fræðaskólann á Akureyri og þjálfa flokka Þórs í körfuknattleik auk þess sem hann leikur með liðinu. Telur hann ólíklegt að sigrar vinnist á vetri kömanda gegn ,,stór veldunum ÍR og KR” — Akureyr inga’skorti hæð gegn þessum tveim liðum enn sem komið er. , • Vestur-þýzka knattspyrnu- liðið Schwarz-Weiss frá Essen er væntanlegt til íslands um næstu helgi í boði iþróttabanda- lags Keflavíkur. Liðið mun leika þrjá leiki hér á landi, hinn fyrsta við Keflvíkinga mánudaginn 3. júní (annan í hvítasunnu) kl. 4 e. h. f Keflavík. Annar leikur- inn verður svo við nýiiðana í I. déild þ. e. lið íþróttabandalags Vestmannaeyja sem fyrir nokkr um dögum sigraði ísiandshieist- arana Val í 1. deild. Fer sá leik- ur fram miðvikudaginn 5. júní í Keflavík. Þriðji og síðasti leik- ur Þjóðverjanna verður svo á Laugardaisvellinum föstudaginn 7. júní og leika þeir þá við úr- valslið landsliðsnefndar. Schwarz-Weiss er atvinnulið sem hefur náð ágætum árangri í Þýzka landi á undanförnum árum. Árið 1959 varð Schwarz-Weiss bikar- meistari Þýzkalands i knattspyrnu og f fyrra urðu þeir nr. 2 í „region- allikunni“. Leikmenn Schwarz-Weiss sem hingað koma eru 15 talsins en auk þess þjálfari og 4 fararitjórar, eða alls 20 manns. Leikmenn Schwarz-Weiss: Markverðir: Hermann Merchcl og Manfred Muller. Varnarleikmenn: Herbert Stoffmehl Horst Kracht Hans HUlsmann H.J. Launert. Rolf Bauerkamper. Tengiliðir: Heinz Ressemann Wol fgang Klein, Gerd Demmer, Heinz Redepennig. Framherjar: Hans Joachim Horst Grenda, Peter Wirsching, Manfred Kaufmann. Fararstjórar: Klaus Dieter Richt er, Willi Kaiser, Rudi Theilmann, Paul Saupke. Þjálfari liðsins er Host Witzler. Lið Keflvikinga. Lið I.B.K., sem leikur við Þjóö- verjanna á mánudag annan í hvíta- sunnu) kl. 4 e.h. verður þannig skipað: Kjartan Sigtryggsson, Ást- ráður Gunnarsson, Guðni Kjartans- son, Einar Magnússon, Sigurður Al- bertsson, Hjörtur Zakaríasson, Karl Hermannsson, Grétar Magn- ússon, Einar Gunnarsson, Magnús Torfason, Jón Ól. Jónsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.