Vísir - 31.05.1968, Blaðsíða 8

Vísir - 31.05.1968, Blaðsíða 8
sa VÍSIR . Föstudagur 31. maí 1968. Ö VISIR Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétu.rsson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri . Bergþór Úlfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Sími 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuöi innanlands 1 lausasölu kr. 7.00 eintakiö Prentsmiðja Vísis — Edda hf. Mannslífið er dýrf \ velferðarþjóðfélagi, eins og er tiér á landi, hefur þjóðfélagið mikinn kostnað af uppvexti og menntun hvers einstaklings. En fáir vita, hve mikill þessi kostn- aður er í raun og veru. Dr. Jón Sigurðsson borgar- læknir skýrði nýlega frá því í viðtali við Vísi, að hver 18 ára unglingur hafi kostað þjóðfélagið nálægt þrem- ur milljónum króna að meðaltali. Þrjár milljónir króna á hvern ungling er geysileg fjárfesting. Og stundum er jafnvel talað um, að þessi fjárfesting nægi ekki til að halda hér við nútíma tækni- og menningarþjóðfélagi. Alla vega er nauðsyn- legt að gera sér grein fyrir þessu fjárhagslega dæmi, því að við það sjást ýmsir aðrir hlutir í nýju IjósL Það kemur t. d. í Ijós, hve dýrt það er fyrir íslenzka þjóðfélagið, ef það missir unga menn úr landi, ekki sízt ef það eru langskólagengnir menn. Maður með háskólapróf hefur kostað þjóðfélagið mun meira fé en meðaltalstalan þrjár milljónir gefur til kynna. Þetta bendir til þess, að þjóðfélagið verði að gera meira til að halda þessum verðmætu mönnum heima. En borgarlæknir var að ræða um mikilvægi heil- brigðismálanna, þegar hann nefndi þessar þrjár millj- ónir króna. Hann sagði: „Okkur hættir til að líta á heilbrigðismál eingöngu sem mannúðarmál og sem öryggismál fyrir ástvini okkar og sjálfa okkur, en það er eins og sjá má mjög mikilvægt fyrir efnahag þjóðarinnar, að þeim mannslífum sé þyrmt, sem bjarg- að verður, og að vinnufærir menn þurfi ekki að sitja auðum höndum vegna veikinda, ef komizt verður hjá bví. í því skyni má fórna talsverðu fé, þannig að það komi aftur með fullum vöxtum.“ Þessara staðreynda verða menn að minnast, þegar þeim vex í augum hinn mikli kostnaður við sjúkrahús og læknaþjónustu hér á landi. Undanfarin ár hefur óhemju fé verið varið til byggingar og útbúnaðar sjúkrahúsa og til að bæta aðstöðu lækna. Þessi þróun mun vafalaust halda áfram á næstu árum, eftir því sem fjárhagsgeta þjóðarinnar leyfir. Það má líta á þetta sem hagkvæma fjáffðstingu. En þessi mikli kostnaður beinir athyglinni að nauð- syn þess að gæta Leilsu manna, áður en hún bilar, og verjast slysum, áður en þau gerast. Um þetta sagði borgarlæknir, að það yrði að „kenna landsmönnum að ganga gegnum lífið, temja sér hollar lífsvenjur, þannig að þeir búi við góða heilsu í víðtækasta og bezta skilningi þess orðs.“ Er ekki of litlu fé varið til að hindra sjúkdóma og slys, koma fyrirfram í veg fyrir krabbamein, hjarta- og æðasjúkdóma og aðra nútímasjúkdóma, til um- ferðarfræðslu og almennrar fræðslu um slysahættu? Áhugamannafélög hafa' unnið stórvirki á mörgum þessum sviðum. Það starf þarf að efla sem mest. ■' -7 ttWfP&BK jlllMBlUMWWBW—WMBB———————— SPiALLAÐ m IÐNÞRÓUEIINA Ottó Schopka: Rannsóknir fyrir iðnaðinn J7in meginforsendan fyrir yí- vaxandi þjóðarframleiðslu í iönaöarþjóðfélögum nútímans er, að nægilegu fjármagni sé varið til rannsókna. Stórfelldar tækni- framfarir, sem þyggjast á rann- sóknum, hafa í för með sér sí- batnandi lífskjör alls almenn- ings. Hér á landi hafa verið byggð- ar upp tvær stofnanir, sem eiga að annast rannsóknir í þágu iðnaðarins. Þær eru Rannsóknar- stofnun iönaðarins og Rannsókn arstofnun byggingariðnaöarins. Hlutverk Rannsóknarstofnunar iðnaðarins eru rannsóknir til efl- ingar íslenzkum iðnaði og vegna nýjunga á sviði iðnaðar og rann- sóknir á nýtingu náttúruauö- Iinda landsins í þágu iðnaðar, en verkefni Rannsóknarstofn- unar byggingariðnaðarins eru rannsóknir í byggingatækni, prófanir á byggingarefnum og fleira þess háttar. Til þessara tveggja rannsókna- stofnana er variö nokkru fé, um 9 millj. kr. á fjárlögum yfir- standandi árs. Það liggur í aug- um uppi aö starfsemi rannsókna stofnana á íslandi hljóta að vera þröng takmörk sett, bæði vegna takmarkaðs fjármagns og vegna skorts á nægum læröum sérfræöingum. Þegar það bæt- ist við, að launakjör háskóla- menntaðra sérfræðinga hjá op- inberum stofnunum standast alls eggi samanburð við það, sem einkaaðilar bjóða, að ekki sé minnzt á það sem greitt er erlendis, er engin furöa þótt þessum stofnunum standi ekki margir færir starfskraftar til boða. Stofnanimar hafa því orð- ið að sérhæfa sig að fáum verk- efnum og því ber ekki að neita að ýmis þýðingarmikil svið hafa orðið útundan. En von er þó til, að með vaxandi fjármagni, tak- ist þeim að færa út starfsemi sína. Þegar rætt er um rannsóknir í þágu iðnaðarins á íslandi, er þó rétt að gera sér grein fyrir því, að svo fjármagnssnautt þjóð félag eins og Island getur aldrei vænzt þess aö verða sjálfu sér nóg um allar slíkar rannsóknir. Hér þarf að veita iðnfyrirtækj- um greiðan aðgang að upplýs- ingum um nýjustu hagnýtu vís- inda- og tækniframfarir erlendis og gera þeim kleift að færa sér þær í nyt. Víða erlendis eru starfandi tæknilegar upplýsinga- stofnanir, sem safna saman margháttuðum fróðleik um tækniframfarir i öllum greinum iðnaðar og miðla þeim, sem þang að leita. Slíka stofnun þyrfti að setja upp hér á landi og í nánu samstarfi við erlendar stofnan- ir ætti hún aö geta orðið íslenzk- um iðnfyrirtækjum ómetanleg stoð. Meö þessu fyrirkomulagi mundi einnig fjármagn, sem ann ars færi til frumrannsókna, verða miklu betur nýtt og ár- angurinn skilaði sér fyrr og bet- ur. Hugsanlegt væri að nota ein hverja af þeim stofnunum, sem nú þegar eru til í landinu, til þess að gegna þessu hlutverki og kemur þá fyrst til greina Iðn- aðarmálastofnun íslands, en hún rekur m. a. tæknibókasafn þar sem mikinn fróðleik er að finna um nýjungar í iðnaðinum. Gera þarf þeirri stofnun betur kleift að dreifa þeim þekkingarforða, sem hún býr yfir, til iðnfyrir- tækja og jafnframt að hvetja þau til þess að sækja þangað aukna kunnáttu. Leggja verður þó áherzlu á, að á ýmsum sviðum iðnaðar verður að stunda grundvallar- rannsóknir hér á landi og verja til þess verulegu fjármagni. Þetta á einkum við um þau svið, þar sem sérstakar aðstæö- ur ríkja hér á landi og erfitt er fyrir íslendinga aö sækja sér hagnýtan fróðleik til annarra landa. Þetta á t. d. við um bygg- ingariðnaðinn, hér þarf að gera rannsóknir í byggingartækni og byggingaraðferðum, reyna þarf hin margvíslegu byggingarefni, veðurþol þeirra o. fl., þar sem íslenzk veðrátta er ólík því sem gerist annars staðar og þaö er margreynt að þau efni, sem kunna að vera góð og hagnýt tii bygginga erlendis, koma oft að litlum notum hér á landi. Enn- fremur væri eðlilegt, að hin mikla fiskveiðiþjóð stundaði rannsóknir á sviði fiskveiöa og fiskiðnaðar og þá m. a. á geymlsu matvæla, og einnig á sviði fiskiskipasmíða og hins margvíslega tæknibúnaðar, sem til þeirra er notaður í dag. Auknar iðnaðarrannsóknir verða einn af hornsteinum vax- andi velmegunar á íslandi I framtlöinni. Verja þarf auknu fjármagni til rannsókna á næstu árum og gera þarf rannsókna- og tæknistofnunum iönaðarins kleift aö hafa hina færustu sér- fræðinga í sinni þjónustu. Meö því móti verður framfarasókn iðnaöarins I framtíðinni tryggö. Öffafiytur um starfsmanna- félag í Straumsvík Starfsmenn og forráðamenn ISAL vilja stofna eitt stéttarfélag fyrir alla starfsmenn fyrir- tækisins, en verkalýðsfélögin eru þvi andvig Allt er nú að snúast á annan endann suður í Straumsvík, vegna þess að stungið hefur ver- ið upp á því víð starfsmenn ÍSAL þar, að þeir stofnuðu með sér starfsmannafélag, sem kæmi fram sem eitt stéttarfélag gagnvart forráðamönnum ISAL. Frumkvæðið kom frá fram- kvæmdastjóra íslenzka álfélags- ins, Ragnari Halldórssyni en starfsfólkið hafði mikið rætt um það. Hann kallaði starfsfólk fé- lagsins á sinn fund fyrir skömmu og bað það að hugleiða hvort ráðlagt væri fyrir það að tryggja hagsmuni sína með stofn un slíks starfsmannafélags til þess að koma fram sem einn samræmdur aðili gagnvart for- ráðam. félagsins. — Nú er starfsfólkið í einum 20 verkalýðs félögum, sem gera almenna kjarasamninga við vinnuveitend- ur. Islcnzka álfélagið er þó ekki aöili að samtökum vinnuveit- enda og eru því hvorki verka- lýðsfélögin né félagið bundið þeim samningum, sem gerðir eru á þeim vettvangi. TTm 60 starfsstúlkur og hliðar- ^ verðir hafa boöað til verk- falls, sem á að hefjast 6. júní næstkomandi, hafi ekki samizt fyrir þann tíma. Ákveöið mun hafa veriö að boða til verkfalls- ins áður en spursmálið um starfs mannafélagið kom á daginn. — Það þarf ekki að fara i grafgötur með það, aö uppá- stunga mín gerir ráð fyrir stétt- arfélagi alira starfsmanna ISAL, sagði Ragnar Halldórsson, fram- kvæmdastjóri ISAL, þegar Vísir ræddi við hann í morgun. Við höfum velt þessu lengi fyrir okk- ur m. a. vegna þess að við er- um ekki í Vinnuveitendasam- bandi íslands. Þaö gerir það að verkum, að eitthvert hinna 20 verkalýðsfélaga, sem starfsfólk- ið er í, getur gert hjá okkur verkfall hvenær sem er, þar sem þau eru ekki bundin þeim heild- arsamningum, sem samtök verkalýðsfélaga og samtök vinnuveitenda gera sín á milli. Við viljum aö starfsfólk at- hugi það sjálft, hvað þvi sjálfu er fyrir beztu og bað ég það að hugleiða, hvort það hefði sjálft hag af því að stofna starfs- mannafélag, sem væri stéttarfé- lag allra starfsmanna félagsins. Ef þvi litist ekki á tillöguna væri það útrætt mál. Ég á erfitt meö að skilja allt þetta moldviðri um þetta mál, þar sem það er yfirlýst stefna forráðamanna verkalýðsfélag- anna, að verkamenn semji sjálf- ir um kjör sín og kaup. Hermann Guðmundsson, for-. maður Verkamannafélagsins Hlífar, viöurkennir raunar sjálf- ur, aö sérstakar aðstæöur gildi fyrir ISAL, þar sem hann hefur látið boða til verkfalla til að knýja fram aðra samninga en gilda milli verkalýðsfélaganna og Vinnuveitendasambandsins. Með því viðurkennir hann að semja verði sérstaklega við ISAL fyrir utan heildarsamningana. — Það heitir, að ISAL sé ekki í Vinnuveitendasambandinu, sagði Snorri Jónsson, fram- kvæmdastjóri Alþýöusambands íslands. Hitt er svo annað mál, hvaða samband er þar á milli. 10. síöa. iS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.