Vísir - 01.06.1968, Page 2
SUNDLAUCIN í
LAUGARDAL
OPNUÐí DAG
Sundlaugarnar nýju i Laugardal svæðið með ljóskösturum frá þaki
verða formlega opnaðar kl. 3 í | yfir áhörfendapöllum.
dag með nokkurri athöfn. Forseti 1 Búnings- og fatageymslur undir
íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, áhorfendapöllum og viðbyggingum
mun flytja ávarp, en cinnig munu rúma um 1000 manns á klst.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri og Auk bað- og snyrtiherbergja eru
Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, for- 27 steypiböð, heit og köld utan-
maður íþröttaráðs flytja ávörp. , húss, 12 þeirra verða yfirbyggð,
Formaður Laugardalsnefndar, 38 ferm. vaölaug fyrir smábörn, 6
Úlfar Þórðarson, mun afhenda Snorralaugar, tvö útiloftböð,
mannvirkið. í lokin verður sund- kvenna og karla, með geislahitalögn
sýning og keppni. í gólfi og einnig er geislahitalögn
Sundlaugin er um 2000 ferm. að í stétt meðfram sundlaug.
flatarmáli, minnsta breidd 21 m., I I kjallara undir inngangi er
lengd 50 m., dýpt 0.80—1.71 m. og I gufubað ásamt tilheyrandi her-
8 keppnisbrautir fyrir alþjóða- ! bergjum.
sundmöt. Vatnsmagn laugarinnar! Steyptar stéttir eru um 2200
er ca. 2300 rúmm. Samtímis geta ferm. Grasfletir eru um 2300 ferm.
800—900 manns synt í lauginni. I Áhorfendapallar rúma um 2100
Vatnið er hreinsað með bandarisk- manns, þar af um 1800 í sætum.
um kísilgúrtækjum og klórblandað. 1 Þess skal getið, að frágangi á
Sundlaugin verður upplýst frá mannvirki þessu er ekki að fullu
öllum veggjum og sundlaugar- lokið.
Hin slæsilega nýja sundlaug í Laugardalnum mun mikið létta undir hjá sóldýrkendum og sund
görpum í sumar, þegar þrengsiin byrja á sundstöðum borgarinnar.
TÁNINGA-
SÍÐAN
Söngelskar blakkar meyjar
— Diana Ross og The Suipremes
Cupremes-söngtríóið er skip-
að þrem negrastúlkum, sem
sungiö hafa saman í sjö ár og
gera allt til þess að æfa vel
þau lög er þær syngja. Þessar
stúlkur, sem koma frá Detroit í
Bandarikjunum, heita Diana
Ross, Mary Wilson og Florens
Ballard. Þær hófu söngferil
sinn í kirkjukór allar þrjár.
Fyrstu níu hljómplötur þeirra
komust aldrei á vinsældalist-
ann. Svo kom sú tíunda: Það
lag kallaðist „Where Our Love
Go“. Var þetta lag í fyrsta sæti
á vinsældalistanum í fjórar
vikur.
Suprems hafa komið fram
í sjónvarpsþætti Steve Allen og '
hinum fræga hljómplötuþætti
Dick Clerk. Þá koma þær fram |
í næturklúbbum. Þeim líkar
betur aö koma fram i klúbbum ||
en á fjöldahljómleikum ungl-'
ingahljómsveita. „Skemmtiat-
riðin og söngur okkar eru meira í
æfð með það fyrir augum, að
yngri kynslóðin hafi gaman af“.
,Diana er sóló-söngvari okk-
ar. Við höfum söngferil okkar,
cins og allflestir byrjendur,
með því að syngja inn á reynslu
plötur, með hinu og þessu söng-
fólki, t. d. Marvin Gaye. I fyrstu |
sungum við mest „Rock and f
roll“. Annars álitum við, að
sálmamúsik okkar negranna
hafi haft djúp áhrif á okkur, en.|
það er músik, sem kemur frá'
hjartanu og hefur mikla hljóm- ii
fallsmöguleika. Við flytjum
söng okkar í þeim anda“.
Supremes eru mjög hrifnar af
Bítlunum og hafa sungið nokk-
ur lög eftir þá inn á hæggenga
hljómplötu.
Brezka hljómplötusamsteypan
„E.M.I." bauð Diönu Ro^ og
Supremes til Bretlands í Janú-
armánuði síðastl. f tilefni af
því hversu margar hljómplötur
þær hafa sungið inn á á þeirra
vegum. Veizluhóf var þar hald-
ið þeim til heiðurs, og var þang-
að boðið fjölda nafntogaðra
gesta, eins og vænta má.
Ný LP-plata
með Bítlunum væntanleg
Tnnan nokkurra daga hefjast
Bítlarnir handa við að leika
inn á sína tíundu „LP“-plötu.
Fyrir skömmu komu þeir John
Lennon og Paul McCartney til
Lundúna frá Indlandi þar sem
þeir, ásamt hinum Bítlalýðnum,
stunduðu andlegar hugleiðingar
hjá indverska læriföðurnum
landi, komu þeir með þrjátiu
nýjar tónsmíðar, og er hluta
þeirra ætlað að prýða umrædda
,,LP“-hljómplötu. John Lennon
sagði við heimkomuna: „Hinar
andlegu hugleiöingar stunduð-
um við átta tíma dag hvern, en
tómstundum okkar vörðum við
í að yrkja. Þetta var stórkost-
lega heppilegur staður til slíkra
starfa. Næstu daga munum við
leika inn á ,,LP“-plötu og auk
þess tveggja-laga plötu sem
kemur á markaðinn skömmu
síðar. Enn hefur ekki fyllilega
verið ákveðið. hvenær plöturnar
koma út, en það mun að likum
verða i júnl eða júlímánuði“.