Vísir - 01.06.1968, Page 5

Vísir - 01.06.1968, Page 5
5 VISIR . Laugardagur 1. júní 1968. Fiskimjöl til manneldis — Gestir á „Islendingar og hafið" fá að bragða á pylsum og kexi gerðu m.a. úr fiskimjöli jJZynningardagur Rannsókna- Jl stofnunar fiskiðnaðarins á sjmingunni „Islendingar og haf- ið“ var í gær og kynnti dr. Sig- urður Pétursson stofnunina á fundi með fréttamönnum í fyrrad. i Laugardalshöllinni Var fréttamönnum boðið að bragða á pylsum og kexi sem gert er meöal annars úr fiski mjöli og fá gestir sýningarinnar einnig að bragöa á þessum sér- kennilegu matvælum, sem hugs anlega geta bætt mjög úr eggja hvítuskortinum sem mikill hluti mannkynsins þjáist af. Á síðustu árum hefur mikill áhugi á fiskimjölsframleiðslu til manneldis vaknað í mörgum löndum. Hráefnið sem kemuT til greina hér á landi til slíkrar framleiðslu er: 1. Ferskur heil fiskur, svo sem sild og loðna. 2. Fiskúrgangur frá flökum o.fl. 3. Pressu'kökur úr síld, loðnu og karfaúrgangi. 4. Fiskimjöl ýmiss konar: Síldar- loönu og karfa- mjöl og þorskmjöl unnið án slógs. Gera veröur ráð fyrir því að til framleiðslu á fiskimjöli til manneldis yrði eingöngu notað ferskt hráefni eða pressukaka eða mjöl unnið úr fersku hrá- efni við skilyrði, sem hæfa mat- vælaframleiðslu. Aðalatriðin ið framleiðslu manneldismjöls er að losna við vatn og lýsi úr hráefninu. Ódýr asta leiðin til þess er að sjóða fiskinn og pressa eins og gert er í síldarverksmiðjunum. Þann ig má losna viö meginhluta vatns og lýsis úr hráefninu. Helmingur mannkyns þjáist af éggjahvítuskorti. Fiskimjöl til manneldis er nær eingöngu eggjahvíta. Það er talið munu geta bætt úr eggjahvítuskorti þróunarlandanna. Með því aö blanda manneldis- mjöli í ýmsar korntegundir, svo sem hveiti og hrísgrjón, er bætt i þær lífsnauðsynlegum eggja- hvítuefnum úr dýraríkinu. Jurta eggjahvíta er hins vegar nær- ingarfræðilega ekki fullkomin, þar sem hana skortir ýmsar lífs nauðsynlegar aminosýrur, sem eggjahvítuefnin eru byggö upp af. Tilraunir með það, aö blanda manneldismjöli i ýmsar fæðu- tegundir, sem almennt er neytt hafa sýnt, aö auðvelt er að baka brauð og kökur og búa til makkaroni og spaghetti úr hveitiblönduðu manneldismjöli. Ennfremur hafa súpur og ýmsir drykkir þar sem manneldismjöl kemur í staö mjólkurdufts eða kjötkrafts verið búnir til í sama tilgangi. *». Dr. Sigurður H. Pétursson skýrii út efnasamsetningu í hinu ljúffenga kexi og fiskpylsum. Uppskriftin af kexi því, sem hér er gefin er tekin eftir Dr. N.D. Sidwell, Bureau of Comm ercial Fisheries, College Park, Maryland, með smávægilegum breytingum. Kex með 10% manneldis- mjöli. Smjörliki 110 grömm. sykur 100 grömm. 1 egg 50 grömm rúml y2 dl vatn 60 gr. vanilla 4 gr. (rúml. y2 tesk) hveiti 200 gr. + 22 gr manneldismjöl salt 1 gr. (framan í tesk.) lyftiduft 7 gr. (rúml. y2 tesk.) Hveiti, sykur, salt, lyftiduft og manneldismjö! hrært vel saman. Smjörlíkið mulið út í og hnoðað saman við. Vætt f með vatninu og egginu og hrært vel saman og deigið hnoðað. Flatt út og mótað í smáar kexkökur Bakað viö 200-225"C Fiskpylsur Aðalhráefnið i fiskpylsum er afskurður og annað, sem til fell ur við snyrtingu og pökkun á fiskflökum i hraðfrystihúsun- um. Gott er að nota reyktar, 6- dýrar fisktegundir til bragð- auka. 1 pylsurnar fer og nokkuð af jurtaolíu svo og bindiefni og krydd. Hráefnið í fiskpylsur er all- miklu ódýrara en í kjötpylsur og má geta þess, að hæsti kostn aðarliðurinn við framleiðslu þeirra, fyrir utan vinnulaun, eru langamir utan um þær. Lögtök Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtuiin- ar f Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, upp- kveðnum 1. þ.m. verða lögtök átin fara fram fyrir ó- goldnum fyrirframgreiðslum opinberra gjaida, sam- kvæmt gjaldheimtuseðli 1967, sem féllu í gjalddaga 1. febrúar, 1. marz, 1. apríl, 1. maí, og 1. júní 1968. Gjöld- in eru þessi: Tekjuskattur, eignarskattur, námsbóka- gjald, kirkjugjald, kirkjugarðsgjald, slysatrygginga- gjald atvinnurekenda skv. 40 gr. alm. tryggingalaga, lífeyristryggingagjald atvinnurekenda skv. 28. gr. sömu laga, atvinnuleysistryggingagjald, alm. trygg- ingasjóðsgjald, tekjuútsvar, eignaútsvar, aðstöðugjald, sjúkrasamlagrgjald, iðnlánasjóðsgjald, launaskattur og iðnaöargjald. Lögtök til tryggingar fyrirframgreiðslum framan- greindra gjalda, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða hafin að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði tilskildar greiðslur ekki inntar af hendi innan þess tíma. Reykjavík, 1. júní 1968. Borgarfógetaembættið. Aðeins vika eftir þar til óseld þyrlupóstumslög verða eyðilögð. Hafið þér tryggt yður eintak? Umslögin fast í Frímerkjaverzlunum borgarinnar. Landssamband ísi. frímerkjasafnara. Frá Samvinnuskóianum Bifröst Umsóknir um Samvinnuskólann skulu hafa borizt fyrir 1. júní 1968. Inntökuskilyrði eru gagnfræðapróf eða landspróf og fylgi afrit af prófskírteini umsókninni. Umsóknir berist skrifstofu skólans, Sambandshúsinu við Sölv- h'lsgötu, Reykj'tvík, merktar: Samvinnuskól- inn, Bifröst — Fræðsludeild. Samvinnuskólinn Bifröst. SÖNGSKEMMTUN í HÁSKÓLAB'IÓI Finnski samkórinn HELSINGIN LAULU frá Helsingfors heldur söngskemmtun í Háskóla | bíói laugardaginn 1. júní kl. 16.00. . : Stjórnandi: Kauli Kallioniemi I Einscngvari: Enni Syrjálá Aðgöngumiðasala í bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og bókab. Lárusar Blöndal Skólavörðustíg og Vesturveri og við inngang- inn. BIFREIDAEIGENDUR ATHUGID! Bónstöð, bifreiðoþjémistQ LAUGAVEGI118 (ekið inn frá Rauðarárstíg). Veitir yður aðstöðu til að þvo og bóna bif- reið yðar, einnig tökum við að okkur þvott, hreinsun á sætum, toppum, hurðarspjöldum (leðurlíki). Bónum og ryksugum. SÍMI 21145. riUOAiMl

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.