Vísir - 08.06.1968, Blaðsíða 7
V * **
T
•• 9 í-
: i ''"o
7
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd 1 morgun
útlönd
Strangar öryggisráðstafanir vegna
morðsins á Robert Kennedy
| forsetaefni, var spuröur um það
| hvort stjórnmálamenn myndu
; veröa slegnir beyg vegna morðs-
ins á Kennedy og fara aö tilmælum
lögreglunnar:
— Samhandslögreglan biður stjórnmálamenn að forðast fjöldafundi
— Hæpið að þeim tilmælum verði sinnt
, Ríkis- og rannsóknarlögregla
Bandarikjanna hefir mælzt til þess
við keppinauta um að verða fyrir
vali sem forsetaefni svo og aðra
sem til greina kynnu að koma, að
forðast fjöldasamkomur og fundi
Þetta eru haröar kröfur, segir í
NTB-skeyti frá Washington, til
manna, sem eiga fylgi sitt undir
þvi komiö að ná til sem flestra
kjósenda.
Sérfræðingar í Washington segja
að framvegis verði farið eftir miklu
strangari reglum varðandi öryggi
vegna morðsins á Robert Kennedy.
Kosningabaráttan mun að veru-
legu leyti byggjast þann tíma sem
eftir er til forsetakjörsins í nóvem
ber á notkun útvarps og sjónvarps.
En þeir, sem gerst fylgjast með
á vettvangi stjórnmálanna, telja
mjög vafasamt að frambjóðendur
beygi sig fyrir áðurgreindum til-
mælum lögreglunnar, og hverfi
þannig af braut gamallar hefðar í
bandarísku stjórnmálalífi, aö fara
sem víðast til þess aö fara um
meðal kjósenda, ávarpa þá, vera í
miðjum hópnum, spjalla við menn
og þar fram eftir götunum.
Nelson Rockefeller, sem er áfram
einn af helztu keppinautum reblik
ana um að verða fyrir valinu sem
ALLT GENGUR
(hvar sem er og hvenœr sem er
- við leik og störf - úti og inni
og á góðra vina fundum -)
• ••£.................
BETUR MED COCA-COLA
drykkurinn sem hressir bezt, iéltir skapið
og gerir lífið ánægjulegra.
FRAMLEITT AF VERKSMI-ðJuNNI VÍT'ILFELL í UMHDÐl THE CQCA-CQLA EXPURT CDRPDRATIDN
„Ef viö sleppum aöstöðunni, sem
við höfum haft til að ná til fólks-
ins, er gengið úr greipum okkar
eitt hið mikilvægasta, sem við höf
um í þessu landi, nefnilega frelsið
til þess aö fara þangað, sem við
viijum fara, til þess að tala eins og
okkur býr í brjósti, að fá að vera
mitt á meðal fólksins f landinu. —
Þetta er ein mikilvægasta stoð lýð
ræöisins."
Pekingstjórnin sökuð um að
vilja áframhald Vietnam-
styrjaldarinnar
Blaðið Rauða stjarnan í Moskvu,
málgagn sovézka landvarnaráðu-
neytisins, heldur því fram, að Kin-
verska alþýðulýðveldið sé mótfallið
stjómmálalegri lausn Vietnamdeil-
unnar' — stjörnin í Peking vilji
áframhald styrjaldarinnar.
Höfundur greinarinnar um þetta
efni, M. Suturin, heldur því fram,
að það, sem Pekinpgstjórnin óttist
nú mest sé stjóMimálaleg lausn,
„Mao-klíkan fylgi þeirri stefnu, sem
beinist að heimsstyrjöld aiþýðunn-
ar“, og fylgi hliðstæðri stefnu og
afturhaldssömustu menn í Banda-
ríkjunum, sem einnig vilja áfram-
hald styrjaldarinnar og útfærslu
hennar. (NTB)
Margar greinar í svipaöa átt birt
ast að staðaldri f sovézkum blöðum
og tímaritum (m. a. í Kommunist)
og því haldiö fram, að mark Pek-
ingstjórnar sé að egna Bandarikin
og Sovétrfkin upp til kjamorku-
styrjaldar, svo að Kína nái heims-
yfirráðum.
Njósnir í Vnrsjó
í þógu Breta?
Pólskur verkfræöingur, sem starf
ar við hernaðarfyrirtæki, Adam
Kacmarzyk, hefir verið sakaður um
aö hafa látið í té upplýsingar varð-
andi varnir landsins, mönnum, í
Varsjá, sem hafa tengsl við brezku
upplýsingaþjónustuna (NTB).
Þakkarávarp
Vestfiröingafélagið í Reykjavík færir hérmeð,
einstaklingum, stofnunum og f rirtækjum al-
úðarþakkir, fyrir almennan velvilja og rausn-
arleg framlög, í sambandi við söfnun þá er
félagið gekkst fyrir, vegna sjóslysanna í Bol-
ungarvík og Súðavík á síðastliðnum vetri.
Söfnuninní er nú að ljúka og hafa félaginu
borizt kr. 581.000.00 Fimm hundruð áttatíu
og eitt þúsund krónur.
Stjórnin.
Frá Menntaskólanum
að Laugarvatni
Umsöknir um skólavist næsta vetur þurfa að
berast fyrir 1. júlí. Umsóknum skulu fylgja
landsprófsskírteini og skírnarvottorð.
Skólameistari.
LÆKNIR
óskast að Slysavarðstofu Reykjavíkur til
sumarafleysinga 2—3 mánuði.
Upplýsingar gefur yfirlæknir í sima 81200.
i
Reykjavík, 7/6 1968,
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur