Vísir - 08.06.1968, Side 9
9
V í SIR . Laugardagur 8. júní 1968.
ÞORSTEINN THORARENSEN SKRIFAR:
TyjTanni verður tregt tungu að
hræra, þegar slíkir ofboðs-
viðburðir sem morðiö á Robert
Kennedy skella yfir. Maður
stendur skilningslaus og ráð-
þrota gegn því þegar moröið
verður að lokarökum í deilum
öfgafullrar hugsjóna- og hags-
munabaráttu. Því átakanlegra
verður þetta, þegar hugleitt er,
að hér hefur verið höggvið í
annað sinn í sama knérunn, og
þó þyrfti það ekki til. Tilhugs-
unin um eiginkonu og ellefu
saklaus böm, eitt þeirra ófætt,
önnur á viðkvæmasta aldri ætti
að verða nóg til að harmakvein
og söknuður brytist út víös veg-
ar um veröld.
En við skulum þó gæta að
því, að þessi atburður sem
grimmdarverk er ekkert einstakt
fyrirbæri á vorum tímum. Hvað
sem líður framförum, bætt-
um lífskjörum, auknu réttlæti
og virðingu fyrir mannréttind-
um, sem við nútímamenn þykj-
umst geta stært okkur af, þá er
það staðreynd að þessi öld er
sú blóðugasta sem yfir hefur
runnið. Hún hefur verið öld of-
beldis og manndrápa. En við
skulum jafnan hafa það í huga,
að okkur ferst ekki að hneyksl-
ast, því afbrotin eru ekki ein-
ungis sök þeirra einstaklinga,
sem verða þeir ógæfumenn að
fremja þau, heldur eru þau
með einhverjum hætti runnin
upp úr aldarandanum, þessum
takmarkalausu öfgum og of-
beldishneigð sem einkenna
tímabilið.
jþegar ég skrifa hér nokkurs
konar minningarorð um
Robert Kennedy og hugleiði
baráttu og hlutverk hans, er
mér ómögulegt að hræsna svo
að skrifa tómt lof um hann. Ég
hef margsinnis minnzt á hann
f vikulegum greinum mínum
hér í blaðinu og stundum látið
í ljósi andúð mína á ýmsu í
stefnu hans og baráttuaðferð-
um. Mér finnst að ég minnist
hans bezt með því að rifja
hreinskilnislega upp ýmsar
fyrri hugleiðingar, láti hugann
reika og geri mér grein fyrir
því, hvaða stöðu hann skipar f
ímynd okkar nútímafólks.
Ég myndi ekki telja það af-
farasælt, að sama persónu-
dýrkunin endurtaki sig á hon-
um eins og hreif veröld alla
eftir morð Johns forseta bróður
hans, þessir sefjunarstraumar
sem æddu um öll lönd, svo
menn sáu ekkert annað en hina
ímynduðu táknmynd, sem oft
var fjarri veruleikanum.
jpyrst verð ég að rifja það upp,
að ég lét í ljósi fyrr á þessu
ári andúð á því, að mér fannst
að Robert Kennedy notfærði
sér styrjöldina í Vietnam um of
til stjömmálalegs ávinnings.
Það var eins og hann sæti um
hverja breytingu á styrjöldinni
og þróun til hins verra til þess
að klekkja á Johnson forseta.
Og mér fannst erfitt að sjá hug-
sjónalegt samhengi í yfirlýsing-
um hans. Þó hann væri fyrir
löngu farinn að láta í ljósi
gagnrýni á styrjöldinni, lýsti
hann því yfir fram á þetta ár,
að hann styddi Johnson sem
áframhaldandi forsetaefni. Þetta
fannst mér ekki hægt að skilja
öðru vísi en svo, að hann væri
að hugsa um eigin framamögu-
leika í kosningum 1972. Meö
það í huga var praktískt að
styðja Johnson á þessu ári.
En svo kom það í Ijós, aöal-
lega í fyrstu framboðsbaráttu
Eugene McCarthys, að andstað-
an gegn Johnson innan hans
eigin flokks reyndist miklu öfl-
ugri en við hafði veriö búizt.
Þá braut Kennedy í blað og
herti stórkostlega á gagnrýninni
á stefnu Johnsons. Hann gerði
þetta einmitt þegar verst gegndi
i Tet-árás kommúnista, þegar
nauðsynlegt hefði verið að
stuðla aö sem mestri samein-
ingu og eindrægni og berjast
gegn sundrungunni sem leiddi
af brostnum vonum í þeim at-
burðum. Ég gat ekki túlkað
þessa afstöðu Kennedys öðru
vísi en að hann væri þar fyrst
og fremst að hugsa um eigin
hag, í niðurlægingu og ósigrum
var komið hans tækifæri til aö
breyta um áætlun, stefna ekki
að forsetaframboði 1972 heldur
1968.
það var þetta, sem mér fannst
erfiðast aö sætta mig við
í baráttuaöferð Roberts, en
sjálfsagt má líta þaö í ööru ljósi,
svo sem því, að nú loksins hafi
hann oröið endanlega sannfærö-
ur um að Johnson væri á rangri
braut. En jafnvel það virðist
ELDHUGINN
mér ekki sannfærandi, því að
þó útlitið í Tet-árásinni væri
ljótt til að byrja með og tjónið
sem árásarmennimir ollu heföi
orðið jífurlegt, þá æxlaðist þó
úr henni á endanum mesti hern-
aðarsigur Bandaríkjanna í allri
styrjöldinni, og atburðirnir,
höfðu einnig talsverð sálræn
áhrif þeim 1 hag meðal annars
í því, að almenningi i Vietnam
ofbauð hryllingsverk kommún-
ista t.d. í Hue og ennfremur
varð árásin í sömu borg til að
vekja skilning hinna „hlut-
lausu“ Búddhatrúarmanna á því,
að styrjöldin viö kommúnista
er barátta þjóðarinnar fyrir til-
vem sinni.
lVú gaf Robert Kennedy
skömmu síðar út sérstaka
bók um styrjöldina í Vietnam
og rætur hennar. Hún var mjög
vel skrifuð og margt í henni
sannfærandi. Ég gat ekki annaö
en verið sammála honum í
aðalatriðum á lýsingunni á
stjórnmálaspillingunni í Suður-
Vietnam og hinni vonlausu bar-
áttu fyrir að koma þar á jarö-
eignaskiptingu.
Þetta var auðvitað harkaleg
gagnrýni á þeim bandamönnum
sem Bandaríkjamenn hafa valið
sér í Suður-Vietnam og hefur
í fréttafrásögnum verið einblínt
á þaö, hve grátt Kennedy lék
þar Vietnam-stefnu Johnsons.
, En í bók hans standa einnig
þessi viðbótarorð: „Vissulega er
ógnaröld kommúnista ómann-
legri og hræðilegri en nokkuö
annáð í þessari styrjöld. Þeir
misþyrma og drepa ekki aðeins
þorpshöfðingja og heimavarn-
arliða, heldur kennara, hjúkr-
unarkonur, almenna borgara,
eiginkonur þeirra og börn til
þess að vekja skelfingu fyrir
sér. Þeir sem beita sér fyrir
styrjaldarþátttöku okkar hafa
óvefengjanlega rétt fyrir sér,
þegar þeir benda á siðferðislega
blindu þess fólks sem einungis
ákærir Bandaríkin en veigrar
sér við að viðurkenna að ógnar-
öld kommúnista viðgangist I
landinu. Engin siðferðisleg af-
sökun er til fyrir ofboðslegri
ógnaröld Vietkongs".
i~kg aftan við kaflann um til-
raunir til jarðeignaskipting-
ar í Suður-Vietnam bætti hann
þessum orðum:
„Stjórn Norður-Vietnam er
margfalt ofbeldiskenndari og
miskunnarlausari í aðgerðum
sínum en nokkur ríkisstjórn í
Suður-Vietnam hefur verið.
Áætlun Noröur-Vietnam um
landbúnaðarumbætur 1954—55
fól í sér nauðungareignarnám
og stofnun samyrkjubúa eftir
kínverskri fyrirmynd. Þegar
þær aðgerðir kveiktu almenna
smábændauppreisn var hún
miskunnarlaust brotin á bak
aftur af her Ho Chi-minhs og
yfir 100 þúsund manns létu líf-
iö. Nú sem stendur er ekkert
til í Noröur-Vietnam, sem getur
kallazt frelsi.“
JFjaö kemur mönnum kannski
á óvart, að þessi ummæli
skuli hafa staðið í bók Roberts
Kennedys, af því að hitt hefur
verið meira básúnað, þar sem
hann greinir á við Johnson for-
seta.
En eftir að hann hafði lýst
stjóm kommúnista þannig þá
kom það mér sannarlega líka á
óvart, að hann skyldi leggja til,
að Vietkong-hreyfingin yröi
viöurkennd sem samningsaðili
og fengi jafnvel aðild að stjóm
Suður-Vjetnam. Mér fannst
slík niðurstaða sýna kalt skiln-
ingsleysi á tilfinningum smá-
þjóðar og ekki þyrfti annað en
að draga samlíkingu við þræla-
stríðiö í Bandaríkjunum fyrir
einni öld. Hvenær heföi Abra-
ham Lincoln fallizt á það, að
taka Suðurríkjamenn þá upp í
stjórn sína?
Mér virtist aö Robert Kennedy
beitti of ódýrum aðferðum til
aö komast að þeirri niðurstöðu
í bók sinni. Þar gerði hann yfir-
höfuð aldrei ráð fyrir þvl, að
neitt herlið frá Norður-Vietnam
væri f suðurhluta landsins.
Hann nefndi þá alltaf Vietkong,
þó staðreyndin sé sú, að mikill
þorri \herliðsins þar er kominn
frá Hanoi. Hann fór líka víða
háðulegum orðum um frammi-
stöðu Bandaríkjahers án þess
að geta þess í hve erfiðri að-
stöðu hann berst, þar sem
kommúnistar hafa fríar leiöir
bakdyramegin inn í öll héruð
Iandsins etfir svokölluðum
hlutlausum landsvæðum. Og
mér virtist sú skilgreining hans
ekki hreinskilin, heldur áróðurs-
kennd, þegar hann talaði um
þaö, að um tvær leiðir væri að
velja, samningaleið eða hernað-
arleið, en að sjálfsögðu fer
þetta tvennt saman í flestum
styrjöldum, og oft opnast samn-
ingaleiðin ekki fyrr en hamrað
hefur verið á hernaðarleiöinni.
TJér hef ég nú einkum rætt
þau atriöi í stefnu Roberts
Kennedys, sem ég hef verið
andvígur, en hugleiðingum þess-
um um Vietnam-stríðið vil ég
þó Ijúka með að benda á það,
að Robert Kennedy vildi örugg-
lega ekki, að Bandaríkin hlypu
frá skuldbindingum sínum í
Vietnam, flyttu her sinn í burtu
og eftirlétu kommúnistum það.
Varði hann löngum kafla f bók
sinni til að sýna fram á að slík
uppgjöf væri ósæmileg og
háskaleg, friði og öryggi f
heiminum. Má líka minna á það
í þessu sambandi, að skömmu
áöur en Kennedy var myrtur,
sló í brýnu með honum og
McCarthy í kosningabaráttunni
f Kalifomiu út af þessu.
McCarthy vildi tafariausan
brottflutning herliðsins frá
Vietnam og sakaði Kennedy um
að halda fast við Vietnam-
stefnu Johnsons forseta!
það sem mér virðist Robert
Kennedy eigi skilið mest
lof og þakkir fyrir í stjórnmála-
ferli sínum er barátta hans í
kynþáttamálunum og f þágu
hinna fátækari. Hann var að
vfsu stundum sakaöur um það
af andstæðingunum, að þetta
væru kosningaveiðar, og því
var haldið fram að það væri
leikaraskapur einn, þegar þessi
auðmannssonur hélt inn í fá-
tækrahverfi og steig jafnvel
inn í hin aumustu hreysi til að
hughreysta hina vesælu og sýna
þeim samúð sína, eða þegar
hann klappaði og kjassaði
svertingjabömin. Ég held, að
þær ásakanir hafi veriö rangar,
því svo mikil hreinskilni og
góðvild geislaði út frá honum
á slfkum stundum, að ég get
ekki ímyndað mér að það hafi
verið uppgerð.
Kynþáttavandamál Banda-
ríkjanna eru lang risavaxnasta
,g ægilegasta þjóðfélagsvanda-
mál sem við er að stríða í öllum
hinum vestrænu rfkjum. Þar
liggur við ekki aðeins þjóðar-
sómi, að þau verði leyst hið
bráðasta, heldur veltur öll fram-
tíð og öryggi hins vestræna
heims á því. Þess vegna er það
sárgrætilegt, hve lftill skilningur
hefur ríkt á þeirri nauðsyn
heima í Bandaríkjunum, það hef-
ur sannarlega verið furðulegt
að koma þangað og kynnast
þeim ríkjandi viðhorfum meðal
hvítra manna þar, að það sé
eðlilegt ástand, að einn kyn-
þáttur hafi hlutverk þjónsins,
kolamokarans og sorphreinsar-
ans. Til skamms tíma hefur það
alls ekki komizt inn úr þykkri
höfuöskel hvítra manna þar, að
það sé yfirhöfuð neitt bogið við
það ástand, að litarháttur frem-
ur en eiginleikar skipti mönnum
niður f stéttir.
Nú er loksins að verða nokk-
ur breyting á þessu og þar eiga
þeir Kennedy-bræður, báðir
fallnir að jörðu fyrir morðingja-
kúlu, stærsta þáttinn í að vekja
þjóðina af þessum óhugnanlega
svefni andvaraleysis. Það má að
vísu benda á að Johnson forseta
hafi orðið meira ágengt f laga-
setningu og framkvæmd f
straumröstinni sem fylgdi ógn-
aratburðinum. í Dallas, en þaö
breytir því ekki, að það voru
fyrst og fremst þessir bræður.
sem hrundu fleytunni af stað.
13. síða