Vísir - 13.06.1968, Page 1

Vísir - 13.06.1968, Page 1
EF' "f VISIR ísl. karlmenn fá ekki að sýsla með kvenréttindi — Fljótlega munu fram- 58. árg. — Fimmtudagur 13. júnf 1968. - 128. tbl. U ir'l 8IHÉfP — en norræn kvenréttindafélög eru jafnt fyrir karla og konur — einn karlmaður situr norræna kvenréttindafundinn á Þingvóllum • Fundur norrænna kvenrétt- indafélaga fer fram á Þingvöll- um um þessar mundir og sitja hann auk ísienzku fulltrúanna 23 konur frá Noröurlöndunum og einn sænskur heimspeking- ur, dr. Steen Berg. Tveir aðrir karlmenn komu hingað til lands ins í tilefni þessa fundar, og eru þeir báðir f samtökum nor- ræna kvenréttindafélaga, en þeir sitja fundinn ekki formlega. íslenzka kvenréttindafélagið er eina kvenréttindafélagið á Norðurlöndum, sem ekki leyfir inngöngu karlmanna, en á lands fundi Kvenréttindafélags Is- lands, sem haldinn var f Reykja vík nýlega, var borin fram til- laga um inngöngu karlmanna í félagið, en tillagan var felld. samkvæmt upplýsingum frú Láru Sigurbjörnsdóttir, for- manns félagsins. Fjölmörg erindi verða flutt á þessum norræna þingi, m. a. um endurskoðun sifjalagabálkanna, fjölskylduáætlanir, fæðingaror- lof og fleira. Fundinum lýkiy 16. júní. Flest dauiaslysin á drátt- arvélum verSa á börn »kvæmdir hefjast við að rífa [ gömlu sundlaugarnar og ► fylla þær upp. Áætlað er að [breikka Sundlaugaveginn og »verður þessi gamla Iaug að [ víkja og leysir hin glæsilega * sundlaug f Laugardal hana |af hólmi. Þeir eru ófáir sem i sakna lr.ugarinnar og minnast [gamalla tíma þaðan og þeirr >ar dýrðar að geta legið dá- ' lítinn tíma í heita karinu i þar. En laugin er Iöngu oröin 1 mjög fúin og gamaldags og i fullnægði vart kröfum tím- | ans. En gömlu laugina á sem , sagt að rífa og blessuð sé ’ minning hennar og undir það i taka umhugsunarlaust eflaust | flestir Reykvíkingar, þó sér- , staklega eldri kynslóðin. • Helmingur af þeim dauða- slysum, sem hafa orðið við land- búnaðarvélar undanfarin 10 ár, hafa orðið á undanförnum rúm- lega tveimur árum. Dauðaslys- in síðan 1958 eru 25, en 1966, 1967 og það sem af er þessu ári hafa þau orðið 12, sem sýn- ir að þeim fer uggvænlega fjölg- andi. 15 af þessum dauðaslysum hafa orðið á börnum og unglingum und ir 20 ára aldri. Þetta sýnir að börnum er miklu hættara við að slasast en fullorðnum, þegar þess- ar vélar eru annars vegar. Þarf það varla að koma neinum á óvart. Það er ekki einungis að þroski barna og unglinga er minni, held- ur hafa flest börn undir 14 ára aldri og jafnvel eldri, ekki líkam- legt afl til að stjórna dráttarvél- um. Þetta kemur fram í viðtali við Sigurð Ágústsson, framkvæmda- m->- 10. síða. Island í 9. sæti — eftir 6:14 tap gegn Hollandi íslenzka sveitin á olympíumót- inu í bridge vann stóra sigra i gær, en hún vann Mexíkó 20: -r-4 og Belgíu 20:0. Hins vegar tapaði hún fyrir HoIIandi 6: 14. Eftir það er staða efstu Ilða þessi: 1. ítalfa 273, 2. Kanada 262, 3. HoIIand 260, 4. Sviss 258, 5. Bandarikin 248. 6. Frakkland 237, 7. Sviþjóð 235, 8. Ástralía 234, 9. island 233, 10. Venezúela 208. i kvennaflokki hef- ur Suöur-Afríka forystu með 156 stig. Svfþjóð hefur 148 og Banda- rfkin 128. i dag spila islendingar við Berm uda, ísrael og Danmörku. KALSKEMMDIR EKKI EINS ÚT- BREIDDAR SÍÐAf! 1952 — Fregnir berast um alvarlegar kalskemmdir hvaðanæva að af landinu. — llla horfir fyrir fjóldamórgum bændum □ Búnaðarfélaginu eru nú óðum að berast fleiri fréttir um kalskemmdir um land allt. Á þessu stigi málsins er ekki hægt að fullyrða um hversu miklar skemmdirnar hafa orðið, en óhætt mun þó að full- yrða, að kalskemmdir hafa ekki verið eins útbreiddar Veðurguðir óhagstæðir forsetaefnum 9 Veðurguðirnir hafa verið lieldur betur andsnúnir forseta- efnunum þessa dagana, en stuðn ingsmenn beggja frambjóðend- anna hafa þurft að aflýsa áður auglýstum fundum vegna þess að frambjóðendurnir hafa orðið veðurtepptir fjarri þeim stöðum sem framboðsfundina átti að halda. Þetta gerist á versta tíma, því að nú rtendur undirbúningur forsetakosninganna sem hæst og báðir frambjóðendurnir leggja höfuðáherzlu á dreifbýlið. Seinna í mánuðinum munu þeir halda fund' i þéttbýli. Valur Valsson á skrifstofu stuðn ingsmanna dr. Gunnars Thorodd- sen skýrði frá því, að dr. Gunnar hefði nú ferðazt víða og haldið fundi, og hefði aðsókn og undirtekt ; ir verið eins og bezt er á kosið. : í gær ætlaði dr. Gunnar Thor- oddsen að halda fund á Horna- i firði, en þeim fundi varð að aflýsa, ! þvi að ekki var unnt að komast hangað vegna veðurs. 1 kvöld mun dr. Gunnar Thoroddsen koma á almennan fund á Akranesi svo og á , Siiðurnesjuni og um Suöurland. Þjóðkjör kemur út á morgun, og ungir stuðningsmenn dr. Gunnars halda fund í Háskólabíói í næstu vikq. Valur nefndi til marks um mótttökur þær, sem dr. Gunnar hefur hlotið, að fundurinn á Akur- eyri hefði verið einn sá fjölmenn- 10. síða. síðan 1952, sagði Jónas Jónsson, jarðræktarráðu- nautur Búnaðarfélagsins í viðtali við Vísi í morgun. — Okkur eru nú sífellt að berast fregnir af stöðum, sem við höfðum litlar á- hyggjur haft af áður. Allar nýjar fregnir, sem berast eru slæmar fregnir. Kalskemmdir í austanverðri N- ; Þingeyjarsýslu eru miklu verri en búizt var við. Sömu sögu er að segja um margar sveitir í Suður- Þingeyjarsýslu. 1 utanverðum Eyja- firði eru miklar skemmdir, en bænd ur þar eru orðnir svo vanir þeim að þeir eru hættir að kippa sér upp við það. I innanverðum Eyja- firði, fyrir innan Akureyri eru j hins vegar miklar skemmdir, sem ekki hafa verið áður. i Þá eru töluverðar kalskemmdir j i Skagafirði og A-Húnavatnssýslu. í V-Húnavatnssýslu hafa allir hrepjiar orðið mjög illa úti vegna I Kalskemmda, nema á austanverðu Vatnsnesi, sem hefur sloppið til- tölulega vel. Strandasýsla er mjög illa útleik in, en engar fregnir hafa borizt úr Barðastrandarsýslu og ísafajarð arsýslu. í Dalasýslu er ástandið víða mjög slæmt, sömuleiðis á Snæ fellsnesi, sérstaklega á sunnan- verðu nesinu. 1 uppsveitum Borgarfjarðarsýslu er ástandið víða slæmt sérstaklega í ofanverðum Norðurárdal. í mörgum sveitum sunnanlands hafa bændur orðið fyrir miklum búsifjum, t.d. í Þingvallasveit Ölfusi o.. uppsveitum sunnanlands. Fregnir hafa borizt af þvf að 10. síða. Ók á vinstra kanti og lenti í árekstri Fyrsti áreksturinn, sem beinlínis j stafaði af vinstri villu 1 hægri um ferðinni á Akureyri, varð í gær, þegar splunkunýjum bíl var ekið á röngum vegarhelmingi. Skemmd ir urðu ekki miklar, því að sá sem á móti kom, nam staðar og beið, en líklega hefur hinn ökumaðurinn verið blindaður af sterku sólarljós- inu, því að hann ók samt beint á hann. Síðustu viku hafa aðeins orðið þrír árekstrar, en sex ökumenn hafa verið stöðvaðir á of miklum hraða. Flestir voru þeir á 50 til 60 km hraða, en einn, sem stöðvaður var innan við bæinn, ók á 80 km á klukkustund.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.