Vísir - 14.06.1968, Blaðsíða 5

Vísir - 14.06.1968, Blaðsíða 5
V í SIR . Föstudagur 14. júní 1968. —--------- ...............................K irffflBra'ÉrirtM Tveir stuttir en strangir megrunarkúrar $ 17itt algengasta umræðuefni kvenna i dag, er án efa holdarfarið og megrunarkúrarn- ir. Við opnum varla svo kvenna blað, að þar sé ekki að finna óteljandi leiðir til að grennast og þó að það sé ef til vill að bera í bakkafullan lækinn, þá ætkim við nú samt að birta hérna tvo stutta og stranga megrunarkúra, fyrir þær sem vilja líta dálítið betur út í bað- fötunum. Þess skal þó getið, að báðir þessir kúrar eru það strangir, að þeir eru ekki nema fyrir fullhraustar, ungar konur, sem ekki vinna erfiðisvinnu og helzt þurfa þær að geta tekið það fremur rólega dagana sem kúrinn stendur yfir. Auðvitað megið þið ekki gera ráð fyrir að halda þeirri þyngd til lengdar, sem þið náiö með þessum kúrum, nema með því að halda líka í við ykkur í mat eftir að kúrnum lýkur. Það er samt sem áður þægileg tilfinn- ing ef slíkur kúr heppnast, því þá hefur maður það á tilfinn- ingunni að maður sé sinn eigin herra í þessum efnum, en játi ekki matarlystina taka af stjórn ina. Sjálfsagt er að taka vítamín meðan á kúrnum stendur og úti vera, sund og hvers kyns íþróttir hjálpa ykkur ekki aðeins til aö léttast, heldur og að léttast fall ega. Líkaminn verður stæltari og vöðvarnir styrkjast, jafn- framt því að fitulagið hverfur. Léttizt um 4 kg. á einni viku. 1. og 2. dagur: Borðið yfir daginn eftirfarandi: 1 appelsínu 1 eggjaköku, 1 tómat, kaffi eða te án sykurs, 1 sneið af heil- hveitibrauði með osti, súrmjólk (1—2 diskar). 3. og 4. dagur: Borðið eftir- farandi: Súrmjólk (2 diskar) 2 tómata, 1 appelsínu, 1 eggja- köku meö einhverju grænmeti í, 2 sneiðar magurt kjöt, 1 disk þunna kjöt- eða grænmetis- súpu, 1 sneið af heilhveitibrauði með osti. 5., 6. og 7. dagur: Sama og 3. og 4. dag, en bætiö við (dag- lega) 1 skammti af grænmetis- salati (salat, hvítkál, epli, rófur, gulrætur og tómatar) og 1 grape fruit. I staöinn fyrir kjötiö má borða magran fisk. Léttizt um 2>/2 kg. á 3 dögum. ■tTann er strangur þessi kúr, og gætið þess vel að borða ekki óskaplega mikið fyrstu dag ana eftir aö kúrnum lýkur, því það er ekki aðeins óhollt fyrir magann, heldur er hætt viö að það taki þá aöra þrjá daga að fitna um 2 y2 kíló. Þessi kúr er það strangur, aö hann má alls ekki standa lengur yfir en í þrjá daga. Hins vegar er ágætt að halda áfram við sama mat- inn í nokkra daga í viðbót, en tvöfalda skammtinn og bæta við hráu grænmeti og kjötseyði eftir vild. Tii þess að léttast um 2l/2 kíló á þremur dögum megiö þið ekkert borða daglega annað en 1 pott af súrmjólk, 1 egg, saf- ann af tveimur stórum appelsín- um og ósykrað kaffi eða te. Að sjálfsögðu er ekki hægt aö á- byrgjast að allir léttist nákvæm lega jafnmikið. Mjög feitt fólk kemur til me" aö léttast um ein 3 kíló á þessum þremur dög- um, en fólk sem hins vegar er frekar grannt, jn vill einhverra hluta vegna verða ennþá grennra, léttist tæplega nema um 2 kg . Og ef þér viljiö fitna. Tj’ftir þessa tvo megrunarkúra ætlum við svo aö gefa hin- um fámenna ,en ekki síður á- hyggjufulla, hópi þeirra * sem eru of grannir, örfá heilræði. Þeir sem á annað borö eru mjög grannir eiga yfirleitt erfiðara með að fitna en þeir feitu að grennast. Ófáar stúlkur vilja helzt aldrei láta sjá sig á sund- bol því þeim finnst þær vera svo horaðar. ' Ef þið eruö meðal þeirra, er ykkur ráðlagt að reyna að breyta algerlega um mataræði. Aukið ekki sælgætisát, heldur borðið mikið af hollu brauði, hunangi, banönum og kartöfl- um. Reynið að sofa eins mikið og þið getið, það hefur ótrúlega mikið að segja. Vonandi geta svo sem flestir verið ánægðir með holdarfarið í baðfötunum I sumar. I B l'WTM FILMUR OG VÉLAR S.F. FILMUR OG VELAR S.F. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 SÍNII 20235 • BOX 995 1 HEIMSÖKNARTIMIÁ SJIÍKRAHÚSUM Elliheimiliö Grund. Alla daga ki. 2-4 og -0-7 Fæöingaheimili Reykjavíkir Alla daga kl. 3.30—4.30 og fyrir feður kl. 8—8.30 Fæðingardeild Landspítalans. Alla daga kl. 3—4 og 7.30—8. Farsóttarhúsiö jMla daga kl. 3.30—5 og 6.30—7. Kleppsspítalinn. AHa daga kl 3-4 og 6.30-7. Kópavogshælið. Eftir öádegiö daglega Hvítabandið. Alla daga frá kl. 3-4 oo 7-7.30 Landspftalinn kl. 15-16 og lí' 19.30. Borgarspftaiinn við Barónsstig, 14—15 og 19-19.30. Orðsending til útgerðarmanna síldveiðiskipo Þeir útgerðarmenn, sem ætla að salta síld um borð í veiðiskipum eða sérstökum móðurskip- um á komandi sfldarvertíð, þurfa samkvæmt lögum að sækja um söltunarleyfi til Síldarút- vegsnefndar. Umsækjendur þurfa að upplýsa eftirfarandi: 1. Nafn skips og skráningarstað. 2. Nafn og heimilisfang síldareftirlitsmanns, sem stjórna á söltuninni um borð. 3. Hvort ráðgert er að láta skipið sigla sjálft til lands með síld þá, sem söltuð kann að verða um borð eða hvort óskað er eftir að sérstök flutningaskip taki við síldinni á miðunum. Umsóknir sendist skrifstofu Síldarútvegs- nefndar í Reykjavík sem allra fyrst og eigi síðar en 20. þ. m. Sjávarútvegsmálaráðuneytið hefir með bréfi dags. 10. f. m. falið Síldarútvegsnefnd að framkvæma flutninga á sjósaltaðri sfld svo og framkvæmd annarra þeirra málefna er greinir í bráðabirgðalögum frá 10. f. m. og áliti 5 manna nefndar þeirrar, er skipuð var 20. febr- úar s.l. til að gera tillögur um hagnýtingu síld- ar á fjarlægum miðum. Er lagt fyrir Síldarút- vegsnefnd að fylgja að öllu leyti ákvæðum laganna og tillögum 5 manna nefndarinnar við framkvæmd málsins. Með tilliti til þessa, vill Síldarútvegsnefnd vekja athygli útgerðar- manna og annarra hlutaðeigandi aðila á því, að ógerlegt er að hefja undirbúning varðandi flutninga þá, sem gert er ráð fyrir í bráða- birgðalögunum og tillögum 5 manna nefndar- innar, fyrr en fyrir liggja upplýsingar frá út- gerðarmönnuin síldveiðiskipa um væntanlega þátttöku í söltun um borð í skipum ásamt upplýsingum um áætlaða flutningsþörf vegna þeirra veiðiskipa, sem ráðgert er að afhenda saltaða síld á fjarlægum miðum um borð í flutningaskip. Þá vill Síldarútvegsnefnd vekja athygli út- gerðarmanna og annarra hlutaðeigandi aðila á því, að skv. bráðabirgðalögunum er gert ráð fyrir, að útgerðarmönnum, sem kunna að flytja sjósaltaða síld frá f jarlægum veiðisvæð- um til íslenzkrar hafnar í veiðiskipum eða sérstökum móðurskipum, verði greiddur flutn ingastyrkur, er nemi sömu upphæð fyrir hverja tunnu og Síldarútvegsnefnd áætlar að kostnaður verði við flutning sjósaltaðrar síld- ar á vegum nefndarinnar, enda verði síldin viðurkennd sem markaðshæf vara við skoð- un og yfirtöku í landi. SÍLDARÚTVEGSNEFND.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.