Vísir


Vísir - 15.06.1968, Qupperneq 1

Vísir - 15.06.1968, Qupperneq 1
. ..jfo* . Brandt og Rusk hittast 58. árg. — Laugardagur 15. júnf 1968. t 130. tbl. Fríðrík sígur á Sigurlikur gegn Byrne og ætti þá að komast i 2-3sæti H Biðskákir á Fiske-mótinu voru tefldar f gær. Byrne tókst að vinna skák sína við Benóný. Skákin mun hafa verið jafntefli frá fræðilegu sjónarmiði, en Benóný valdi ekki réttu leiðina. Við það fluttist Bandaríkjamað- urinn í 2.-3. sæti með 7% vinn- ing, eftir ellefu umferðir. Skák Friðriks og Guðmundar fór enn í bið, og virðist hún jafntefiisleg, nema Guðmundur biii eitthvað. Friðrik hefur sigurlíkur í biö- skák sinni úr 12. umferð móts- ins gegn Byrne, sem lauk skömmu eftir miðnætti í nótt. Uhlmann vann Inga í gær, Ostojic vann Jó- hann, Benóný vann Andrés og Szabo vann Braga, Taimanov gerði jafntefli við Addison og Freysteinn við Vasjúkov. M-+ 10. síða. Utartrikisráðherrar Bandarikj- anna og Vestur-Þýzkalands, þeir Dean Rusk og Willy Brandt, munu koma saman til fundar hér í Reykjavfk, áður en fundur aðildarríkja NATO hefst hér í þessum mánuði. Munu þeir væntanlega bera sama bækur sinar viðvíkjandi dagskrá fundarins og ýmis vandamál, sem þá verða rædd nánar. Hafnaryfirvöld / Reykjavík og Hafnarfirði vilja bæði fá olíu- hreinsunarstöðina — Grundvellinum kippt undan Reykjavikurh'ófn ef st'óðin verður reist i Straumsvik — Rætt við hafnarstjóra Reykjavikur og Hafnarfjarðar II Skoðanir manr.a um staðsetningu hugsanlegrar olíuhreinsun- arstöðvar, sem reist yrði hér á landi ,eru mjög skiptar. Aðallega er deilt um tvo staði, þ. e. Straumsvík og Geldinganes, eða ein- hvern annan stað á áhrifasvæði Reykjavíkurhafnar. Allir eru á einu máli um, að stöðina yrði að reisa á þéttbýlissvæðinu hér suðvestanlands, þar sem neyzla á olíu og bensíni er mest. Eins og fram kom f Vísi í gær, er nú að komast skriður á undirbúning olíuhreinsunarstöðvar og þvf að vonum, að staósetning hennar sé nokkuð hugleidd. Rök þeirra, sem vilja reisa stöð- ina i Geldinganesi eru þau að þar hefur veriö skipulagt í aðalskipu- lagi Reykjavíkur olíuhöfn og al- mennt iðnaðarsvæði. Þar er nægj- aniegt landrými fyrir hendi og stutt á öfuðneyzlusvæðið. Þeir, s.Ti vilja reisa stöðina við Straumsv k benda hins vegar á það að ve> ið sé að gera þar höfn vegna álverksmiðjunnar, sem einnig mætti nota í samhandi við olíu- hreinsunarstöðina, ástæðuiaust sé, að gera nýia og dýra höfn fyrir olíuhreinsunarstöð í Geidinganesi. Oiíufélögin sjálf eru á báöum áttum, hvort væri heppiiegra, en þó telur a.m.k. eitt þeirra heppi- Iegra að reisa hana við Geldinga- nes, enda hafi miðstöð olíudreif- ingar verið hér i Reykjavík og um 90% af því olíumagni, sem flutt hefur verið til landsins verið flutt í gegnum Reykjavíkurhöfn. Hið opinbera hefur ekki tekið afstöðu til þess hvor staðurinn væri heppilegri eða vill ekki taka afstöðu til þess nú, en þó mun töluverður áhugi vera á Straumsvík hjá mörgum áhrifa- mönnum þar, þótt Geldinganes hafi einnig. sjna stuðningsmen Það eru fyrst ög fremst hafnar- yfirvöld í Reykjavík og Hafnarfiröi, sem hafa teki$ skellegga afstööu til þess hvor staðurinn sé heppi- legri en mikið er í húfi hjá báðum aðilum, að stöðinni verði valinn staður á áhrifasvæði viökomandi bæjarfélags. Vísir leitaði í gær til hafnarstjóra Reykjavíkur og Hafnarfjaröar til að heyra álit þeirra á staðsetningu stöðvarirmar. — Ég hef alveg ákveönar skoð- anir á því hvar stcjðin ætti að veröa, sagði Gunnar Guðmundsson, hafnarstjóri Reykjavíkur. Um 90% af öllu því olíumagni, sem flutt hefur verið til landsins hefur farið í gegnum Reykjayikurhöfn. Þetta hefur verið ríkissjóði algjörlega að kostnaöarlausu. Það væri því mjög hart, ef Hafnarfirði yrði á einu bretti úthlutað allri olíuafgreiðslu. argrundvelli undan Reykjavíkur- höfn. Tæplega 50% af öllu því vörumagni, sem farið hefur í gegnum höfnina hér, hefur verið olía, eða rúmlega 400 þús. lestir af um 1 milljón lesta. Um 30% af öllum vörugjöldum myndi hverfa úr tekjum hafnar- innar eða um 7 millj. kr. fyrir utan öll þjónustugjöid, eins og hafn- sögugjöld, lestargjöld o.s.frv. Það hefur alltaf verið gert ráð fyrir því að gerð yrði olíuhöfn á Geldinganesi, en samkvæmt aðal- skinulaginu verður þar iðnaðar- og hafnarsvæöi. Höfum við þegar unnið aö nokkrum undirbúningi vegna þess. riairia sig Straumsvik. Það er fyrst að sjá hvernig gengur með afgreiðslu ál- skipanna. Með því að úthluta Hafnarfirði olíuafgreiðsluna yrði alveg haft hausavíxl á hlutunum. Ef að því yrði, verður ekki hjá þvi komizt að láta Reykjavíkurhöfn fá þann hafnarstyrk, sem Hafnarfjarðar- höfn hefur notið. Við teljum, að enginn annar staður en Straumsvik komi til greina, sögðu þeir Kristinn Ó. Guðmundsspn, bæjarstjóri í Hafn.- ,ð’Tnyi«áii®}gjörlega"Mppa rekstr- Trftrisfog'Gunnar Agústsson, hafn arstjóri, þegar Vísir hafði samband við þá. Þar er verið aö gera nýja og glæsilega höfn vegna álverksmiðj- unnar. Kostnaður viö gerö hafnar- innar verður 250—60 milljónir króna, en sjálfsagt er og eðlilegt að nýta höfnina sem bezt. Aðstaða verður fyrir 50 — 60 þús. lesta skip að athafna sig í höfninni og þurfti ekkert að byggja við hana vegna hugsanlegrar olíuhreinsunarstöðvar a.m.k. ekki fyrst i stað. Nægjanlegt landrými er fyrir sunnan vikina, sem er að öllu leyti mjög heppilegt undir stöðina. i Landið er í eigu Hafnarfjarðar og ríkissjóðs og þvrfti ekki að kaupa Ég sé raunar ekki hvernig ætl- | landrými fyrir stöðina. unin er að láta stór olíuskip at- j >- 10. síða. Verkfall síldarsjómanna yfir- vofandi á miðnœtti 17. jiiní Svo sem kunnugt er, hafa sjó- mannafélögin boðað verkfall Fjögur lönd kaupa ir hærra verð en Verulegur hluti samningsmagnsins sild s'ó'.tuð á miðunum — Viðræður standa enn við Rússa Samningar hafa tekizt um sölu á saltsíld til nokkurra landa og er samningsverðið nokkru hærra en á undan- gengnu ári. — Samningaum- leitanir um sölu á síld til Sovétríkjanna standa hins vegar ennþá yfir, en Sovét- rfkin hafa flest undanfarin ár verið stærstu kaupendur ís- lenzkrar saltsíldar. Uar sem reiknað er með að síldin haldi sig allfjarri land- inu í sumar eins og í fyrra, verður að öllum likindum verulegt magn af síldinni saltað um borð í veiðiskip- um og móðurskipum á mið- síld fyr- í fyrra unum enda hafa margir út- gerðarmenn búið sig undir söltun um borð. Með tilliti til þessa hefur feng- izt heimild fyrir því í nýju samn ingunum að verulegur hluti af síldarsöltuninni verði síld sem söltuð kann að verða um borð í skipum á miðunum. Þarf ekki að raða þeirri síld í tunnur á venjulegan hátt heldur einungis jafna henni um leið og saltað er. 10. síðu síldarsjómanna frá miðnætti næstkomandi mánudags hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. Verkfall þetta mundi vænt anlega fljótt ná til landsins alls, utan ef til vill Vestfjarða og Austfjarða, þar sem við- búið er, að síldarsjómenn í Vestmannaeyjum muni boða til samúðarverkfalls. — Sáttafund- ur með deiluaðilum var haldinn í gærkvöldi en líkur á samning- um voru ekki of vænlegar, þeg- ar síðast fréttist. Helztu kröfur sjómanna eru þær, að þeir vilja fá inn í samninga síld- arsjómanna atriði, sem samiö var um síöastliðinn vetur várðandi kaup og kjör á bátaflotanum. Þetta mundi þýða, að hásetar, netamenn og matsveinar fengju 1100 krónur á mánuði í fatapeninga, en vélstjór- ar um 600 krónur. Ennfremur yrði örorkutrygging hækkuð um 200 þús und krónur. Þá vilja síldarsjómenn fá sumarleyfi ákveðin í samning- um sínum.. Það er alkunna, að verkföll hafa verið tíð hér að undanförnu og er skemmst að minnast langs verk- falls f vetur. Verkföll, sem lama þjóðarbúið um háannatímann, eru öllum almenningi að- sjálfsögðu hvimleið. Hins vegar hefur enn ekki fundizt nein sú leið önnur, er tryggi, hag beggja aðila í kjaradeilum, og munu verkföll þvi sem fyrr verða rikur þáttur í þjóðlífi okkar. Með þessu er að sjálfsögðu engin af- staða tekin í vinnudeilu þeirri, sem hér er um að ræða. „Vísir í í vikulokin" fylgir blaðinu i dag til áskrifenda

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.