Vísir - 15.06.1968, Page 5

Vísir - 15.06.1968, Page 5
V1SIR . Laugardagur 15. júnf 1968. 5 Dr. Þórir Kr. Þóróarson, prófessor: Morgunblaðið og ráðherra fundurinn í Háskólanum þann 8. og 9. júní s.l. birti Mbl. mjög undarlegar at- hugasemdir um afstöðu háskóia stúdenta til fyrirhugaðs ráð- herrafundar Atlantshafsbanda- lagsins. Vil ég ekki láta hjá líða að birta eftirfarandi. I leiðara blaðsins þ. 8. júní s.l. er því vísað á bug sem firru, að meirihluti stjórnar Stúdenta- félags Háskólans hefur amazt við umræddum fundi einungis vegna hinna víðtæku ráðstafana sem gerðar verða og meina stúd- entum aðgang að lestrarsölum þessa daga, rúmiega um einnar viku skeið, og er þeim rökum beitt, „að Háskóli íslands yrði ekki sérlega lífræn stofnun, ef þar ætti einungis að stunda lær- dómsstörf fyrir luktum dyrum. Háskóli okkar .. á að vera vettvangur fyrir umræður ... og um hann eiga að leika innlend- ir og erlendir menningarstraum- ar.“ Leiðarahöfundur Mbl. virðist harla ókunnugur stúdentum Há- skóla Islands. Kjaminn í hinni ágætu og jákvæðu gagnrýni, sem stúdentamir hafa beint að okkur, starfsmönnum Háskól- ans, er einmitt þessi: að starf Háskólans sé ekki nægilega líf- rænt, að þar sé ekki vettvangur fyrir umræður i nógu ríkum mæli, að um Háskólann leiki ekki innlendir og erlendir menn ingarstraumar. Þessar sömu ábendingar telur Ieiðarahöfundur nýlundu, nýtt sjónarmið, sem réttlætt geti andmæli hans gegn sjónarmið- um stúdentanna!! Stúdentamir sem og starfs- menn Háskólans hafa gert það að baráttumáli sínu, að kennslu hættir breytist til nýs horfs (en það kostar peninga m. a. til vél- ritunarþjónustu), að starf Há- skólans verði lífrænna, tengsl hans við erlenda vísinda- og menningarstrauma nánari og þýöing Háskólans meiri fyrir at- vinnulíf og menningarlíf þjóð- arinnar. Við háskólamenn, sem erum eindregnir fylgjendur þeirra sam taka, sem ráðherrarftir eru full- trúar fyrir, o viljum styðja þau, höfum ýmislegt til mál- anna að leggja um starf sam- takanna, t. d. starf vísindadeild- ar Atlantshafsbandalagsins. Æskilegt hefði verið, að ráð- herrafundurinn heföi verið hugs aður að einhverju leyti í sam- ræmi við orð leiðarahöf., séu þau skilin í bókstaflegum skilningi, þ.e. verið ætlaður sem „vettvang ur (fyrir Háskóla íslands) fyrir umræður um hræringar f þióð- lifinu“ og um þátt okkar Is- lendinga í þessum samtökum nágrannaþjóða okkar. Leiöarahöf. hrósar formanni Stúdentafélags Háskólans fyrir umburðarlyndi og góðan skiln- ing á vanda málsins, og er for- maður þess maklegur. Tel ég raunar auðsætt að allir þeir stúdentar, sem nám stunda nú í sumar, sýni í verki skilning sinn á þeim aðstæðum, sem orð- ið hafa vegna misskilnings, enda þótt þeir séu heldur óglaðir yf- ir röskun á högum sínum I próf- lestri, þegar allar taugar eru spenntar til hins ýtrasta. (Um misskilning þann, sem er kjarni málsins, mun ég ræða síðar). Eins og flestum er kunnugt, sem með breyttum starfsháttum Háskólans fylgjast, hefst haust- misseri oftast á prófum, og starfar því Háskólinn allt sum- arið, þ. e. a. s. allmargir nem- endur og allir fastir kennarar í einhverri mynd. Ég vil einnig taka undir þau orð leiðarahöf. Mbl. að samtök þjóða við norðanvert Atlantshaf hafa komið á valdajafnvægi í álfunni, sem hefur gert hana eitt af þeim fáu landsvæðum hnattarins, þar sem styrjöld hef- ur ekki geisað undanfarna ára- tugi. Sýndi fyrrverandi utan- ríkisráðherra Dana, Per Hækk- erup fram á þetta í merkri grein um NATO, sem birtist nýlega í Mbl. Einnig er vísindasamstarf ná- grannaþjóða okkar innan banda- lagsins mjög víðtækt, en þvi ættum við háskólamenn að gefa meiri gaum en áður. Hefur þaö aðallega verið á sviði raunvfs- inda, en nú er fyrirhugað að gera stórt átak um hugvfsindi einn- ig- Um gildi bandalags nágranna- þjóða okkar ræðir höfundur Reykjavíkurbréfa í Mbl. þann 9. júnf s.l., og er þar flest vel sagt. En einhvern veginn finnst mér lesa megi milli lfnanna mis- skilning á afstöðu stúdentanna til ráðherrafundarins. Finnst mér ómakleg sú ádrepa, sem stúdentar fá fyrir óánægju sína með röskun á högum, þótt hún sé óveruleg, er hún ekki til þæginda. Ámælin eru ekki borin fram beinum orðum, en sá er andi sfðustu kaflanna f Reykjavikur- bréfum umrasddan dág, að þar er blandað samán tveim gjör- óskyldum málum: ánnars vegar skiljánlfegúm faúgapirringi stúd- enta vegna röskunar á högum og hins vegar afstöðu stúdenta og starfsmanna Háskólans til Húsgögn — Útsala Seljum í dag og næstu daga lítið gölluð hús- gögn, hjónarúm, kommóður, sófaborð og fleira. — Opið á sunnudag. B.-Á.-HÚSGÖGN h/f Símar 10028 og 38555 Brautarholti 6 bandalags þjóöa við norðanvert Atlantshaf. Mér finnst raunar þessi mál- flutningur hættulegur málstað þeirra, sem eru eindregnir fylgj- endur hluttöku íslands « sam- tökum nágrannaþjóðanna, jafn ósanngjamt og það væri, ef stúdentar yrðu bornir sökum um slíka hugsanavillu. Þeir amast ekki við NATO-fundi heldur hverjum þeim fundi, sem krefst lokunar aðalbyggingar- innar vegna „(starfa) fyrir lukt- um dyrurn" sbr. orð leiðarahöf 8. júní s.l. í Mbl. Háskólamenn, jafnt hinir yngri, stúdentarnir, sem hinir eldri, kennararnir, eru allir fylgjandi því, að starfið innan veggja Háskólans verði lífrænna og standi í nánari tengslum við íslenzkt þjóðfelag og menningar strauma umheimsins (sbr. leið- ara Mbl. 8. júní), en það ætti öllum að vera Ijóst, að sú skoð un er jafnútbreidd og hún er röng, að prófessorar Háskólans eigi „sumarfrí" þann tíma árs. sem kennsla fer ekki fram. Þótt Háskólinn óski þess að sýna umræddum samtökum gistivináttu fer það ekki á milli mála, að algjör lokun aðal- byggingarinnar hefði nokkur ó- þægindi í för með sér fyrir all marga. Það er að þakka frumkvæði rektors og velvilja yfirvalda, að vinnuherbergi á efstu hæð norðurálmu verða mönnum op- in, og stúdentum verður séð fyrir hinni beztu lestraraðstöðu annars staðar. Ættu þvf allir að vera ánægðir. Og þekki ég háskólastúdenta illa, ef þeir bregðast ekki vel við og sýna samstarfsvilja sinn. En jafn 6- sanngjarnar eru allar hnevksl- anir í þeirra garð. Nær væri sanni, að íslenzkum yfivöldum hafi ekki verið til hlítar ljóst, hvað það hefðí í för með sér, að ráðherrafundur væri hér hald- inn. Hefur þessi leiði misskilning- ur komið róti á hugi manna innan sem utan Háskólans, eins og m.a. skrif Mbl. bera með sér. Færi bezt á þvf, að menn tækju þessum misskilningi sem orðnum hlut og sættust á það á báða bóga, að á móti hinum er- tendu gestum verði tekið eins og okkur íslendingum sæmir, enda hefur fyrr verið gengið úr rúmum á íslenzkum bæjum. Er ég þess fullviss, að stúi- entar munu ekki láta sitt eft- ir liggja, og mættu þeir fremur vænta sér hróss en hnútu frá aðstandendum Morgunblaðsins. Modelmyndir — Elcla ljósmyndir Fallegrar og smekklegar úrvals modelrayndir, teknar sérstak- lega fyrir MODELMYNDER, Man.iðarmodel Úrvals modelínyndlr JHodelmynðir 111 Modelmyndir 12 Original Allar handunnar af sérfræSingum Svnishorn o. fl. Kr. 25,oo. MODELM Y NDIR. F.O.Box 142, Hafiiarfjöröur. Birgðavörður Eldri reglusamur maður óskast til birgða- starfa nú þegar. Uppl. ekki gefnar í síma. HÓTEL HOLT Auglýsing UM UMFERÐ í REYKJAVÍK 17. JÚNÍ 1968. I. Leiðir að hátíðarsvæði I Laugardal. Ökumönnum er bent á að aka einhverja af þremur eftirtöldunVleiðum að hátíðar- svæðinu: 1. Frá Suðurlandsbraut norður Reykjaveg. 2. Frá Sundlaugavegi um Gullteig, Sigtún og inn á Reykjaveg. 3. Frá Laugarnesvegi um Sigtún inn á Reykjaveg. II. Bifreiðastæði. Ökumönnum er bent á eftirtalin bifreiða- stæði: 1. Bifreiðastæði milli íþróttaleikvangsins í Laugardal og nýju sundlaugarinnar. Ekið umstæðið frá Reykjavegi við Austurhlíð. 2. Bifreiðastæði við nýju sundlaugina. Ekið inn frá Sundlaugavegi. 3. Bifreiðastæði við Laugarnesskóla. Ekið inn frá Gullteig. 4. Bifreiðastæði við Laugalækjarskóla. Ekið Inn frá Sundlaugavegi. Er skorað á ökumenn að leggja bifreiðum vel og skipulega og gæta þess, að þær valdi ekki hættu eða óþægindum. III. Einstefnuakstursgötur, meðan hátíðarhöld í Laugardal standa yfir: 1. Reykjavegur til norðurs, frá Sigtúni að Sundlaugavegi. 2. Gullteigur til suðurs. • 3. Hraunteigur, Kirkjuteigur, Hofteigur og Laugateigar til vesturs frá Reykjavegi. IV. Vinstri beygja er bönnuð af Reykjavegi inn á Suðurlandsbraut. V. Götum, er liggja að hátíðarsvæði í mið- borginni verður lokað frá kl. 21.00 til kl. 01.00. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 15. júní 1968. Sigurjón Sigurðsson.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.