Vísir - 24.06.1968, Side 2

Vísir - 24.06.1968, Side 2
2 V1SIR . Mánudagur 24. júní 1968. Staðan í 1. deild í knattspyrnu Akureyri 3 2 10 5:1 5 Fram 3 12 0 7:5 4 Valur 3 111 5:5 3 Vestm.eyjar 2 10 1 5:5 2 KR 3 0 2 1 4:7 2 Keflavík 2 0 0 2 0:4 0 Markahæstu menn: Kári Árnason, IBA 4 Helgi Númason, Fram 4 Hermann Gunnarsson, Val 3 Haraldur Júliusson, iBV 2 ' Reynir Jónsson, Val 2 Ásgeir Elfasson, Fram 2 Slgmar Pálmason, IBV 2 Sfftasta sending á leikmann sem skorar mark: Einar Árnason, Fram 2 Reynir Jónsson, Val 2 Sigmar Pálmason, IBV 2 í 2. deild í knattspyrnu A-riftilL • FH—Þróttur 1—1. Haukar 3 2 1 0 7:3 5 FH 3 0 3 0 5:5 3 Víkingur 3 111 4:4 3 Þróttur 3 0 1 2 3:7 1 Markahæstlr i A-riðli: Jóhann Larsen, Haukum 3 Gunnar Gunnarsson, Vfking 2 örn Hallsteinsson, FH 2 Helgi Þorvaldsson, Þrótti 2 Hafliðl Pétursson, Vfking 2 Geir Hallsteinsson, FH 2 Herbert Kristinsson, Haukum 2 Staðan f B-rlðli: • ÍBl—Breiðablik 2:1 • IA—Selfoss 4:1, Akranes 2 2 0 0 10:1 4 Isafjörður 2 110 3:2 3 Selfoss 3 0 2 1 3:6 2 Breiðablik 3 0 1 2 2:9 1 Markahæstir í B-riðli: Hreinn Eliiðason, ÍA 2 , Matthfas Hallgrímsson, lA 2 t Hermann Nílsson, IBÍ 2 i 3. deild í knattspyrnu A-riðill. • HSH—Njarðvík 2:0. • Hrönn—Víðir 3:1. I HSH 4 4 0 0 14:5 8 Víðir 4 2 0 2 14:10 4 Hrönn 4 1 0 3 13:20 2 Njarðvfk 4 10 3 10:16 2 B-riðill: • Reynir—Stefnir 3:1. • KS—Völsungar 3:1. Reynir 2 2 0 0 4:1 4 I Siglufjörður 2 10 1 3:2 2 Völsungar 10 0 1 1:3 0 Stefnir 10 0 1 1:3 0 1 C-riðli (Austfjarðariðllnum) i er keppnl enn ekki hafin. METUNUM RIGNDI í LAUGARDAL ÞRETTÁN ÍSLANDSMET voru sett í 22 greinum á Sundmeistaramóti íslands um helgina. Ekki er nokkur vafi á að mótið er glæsilegasta sundmót, sem hér hefur verið haldið, því að auk metanna voru afrekin í sumum greinum góð, t. d. munaði aðeins sekúndubrotum í mörgum greinum. í nokkr- um greinum nálgast Ólympíulágmörkin óðfluga. Fyrra dag mótsins máttu fjögur gömul met víkja, en á- rangur f öðrum greinum var mjög nærri metum og er greini legt að í sumar má búast við fjölmörgum fréttum að nýjum Islandsmetum. Hæst af þessum metum ber af rek Guðmundar Gfslasonar f 200 m fjórsundi, hann bætti gamla metið um 1,7 sek í 2.22.9 sek, OL-lágmarkið, sem öllum þótti mjög strembið er 2.22.5 Guðmundur Þ. Harðarson varð annar á 2. 34.1 mfn. Sigrún Siggeirsdóttir bætti met sitt frá f fyrra um 2/10 úr sek f 1.18.0 og vann Hrafn- hildi Guðmundsdóttur, sem varð önnur á 1.20.4. Mikla athygli vakti kornung stúlka frá Sel- fossi, Erla Ingólfsdóttir, 14 ára gömul, hún synti á 1.23.4 og varö þriöja, skaut m.a. Matthildi Guðmundsdóttur og Hrafnhildi Kristjánsdóttur aftur fyrir sig. Hin tvö metin voru í boðsund unum og Ármannssveitir að verki í báðum tilvikum. Stúik- umar, Sigrún-Ellen-Hrafnhildur Kr og Matthiidur, syntu 4x100 metra skriðsund á 4.43.9, sem er mjög góður tfmi, gamla metið var 4.48.0 svo að framfarimar em miklar. Karlasveitin í 400 m fjórsundi synti á 4.39.7, bætti gamla metið um 9 sek. réttar. Sveitin er skipuð Guðm. Gfsla- syni (baksund), Leikni (bringu sund), Gunnari Kristjánssyni (flugsund) og Kára Geirlaugs- syni (skriðsund). Guðmundur Gfslason vann sinn meistaratitil þennan fyrra dag í 100 m skriðsundi, sem hann vann í skemmtilegu sundi á 58.5 (metið er 58.2), en á óvart kom Jón Edvardsson Ægi hann synti á 60.2, sfnum lang bezta tfma og varð á undan Gunnari Kristjánssyni og Finni Garðarssyni, sem gengu 60.6 og 61.1 en keppni þessara manna var æsispennandi . Leiknir Jónsson var mjög nærri metinu f 100 metra bringu sundi á 1.15.0 en metið er 1.14.9 Ellen Ingvadóttir vann 200 m bringusund á 3.02.0, en metið er 3.01.4, Matthildur og Ingibjörg Harðardóttir, Ægi urðu f 2. og 3. sæti og háðu harða baráttu, Matthildur fékk 3.10.5 og Ingi- björg 3.12.0 Aðeins sekúndubroti munaði á tíma Guðmundu Guðmunds- dótttur og mettfma hannar, hún synti á 5.17.4 eftir geysispenn- andi keppni við Hrafnhildi Guð mundsdóttur, sem varð að sjá af enn öðrum íslandsmeistara- titli þama, Hrafnhildur fékk 5.20.0, hennar langbezti tfmi f 400 metra skriðsundi og næst- bezta afrek íslendings í grein- inni. Guðmundur Þ. Harðarson sigr aði með yfirburðum f 200 metra baksundi og var aðeins 7 sek. frá meti Guðmundar Gíslason- ar f greininni á 2.37.7, en hann hlaut fyrir bikar, sem Albert Guðmundsson gaf. Kuldagjósturinn f gær hindraði sundfólkiö ekki f að setja ný íslandsmet. Sjö met voru sett til viðbótar þeim 6 sem þegar höfðu verið sett. Guðmundur Gíslason setti 4 Islandsmet á mótinu, þar af 3 í gær, og var að auki með boðssundssveit Ármanns, sem setti tvö Islands- met á mótinu. í gær vakti Guðmundur Gíslason mikla athygU fyrír að setja gott met í 100 m flug- sundinu á 1.02.7, bætti metið sitt um nærri sekúndu, — OL- lágmarkið er 1.02.0. Guðmund- ur varð einnig Islandsmeistari í 400 metra skriðsundi á 4.47.3 mín., en Guðmundur Þ. Harðar- son fékk 4.52.1 mín., en met Davíðs Valgarðssonar frá 1966 stendur enn óhaggað, 4.42.6. Guðm. setti og met f 200 m. skriðsundi í fyrsta spretti boð- sundsins, synti á 2.12.5 mín. Fylkir Ágústsson hirti enn met af Herði B. Finnssyni og nú fauk met Harðar f 200 m bringu- sundinu frá 1964, 2.42.1, — Fylkir synti á 2.41.4 og vann með yfirburðum. Er greinilegt að Fylkir er að ryðjast fram' f raðir beztu sundmanna Norð- urlandanna í bringusundi. Skal þess getið f leiðinni að rangt var meðfarið að met hans í 400 m bringusundi væri lakara en Evrópumet kvenna, hins vegar mun Evrópumet kvenna og Is- landsmet f 400 m skriðsundi vera svipað. Guðmundur Þ. Harðarsón vann 100 metra baksundið á 1.16.2 mfn„ en Sigmundur Stef- ánsson frá Selfossi varð arinar á 1.18.4. Ármann vann öruggán sigur f 4x200 metra skriösundi á 9.45.3 mfn., bætti metið sitt um 11 sekúndur! 1 kvennasundgreinum vakti af- rek Hrafnhildar Guðmundsdótt- ur í 200 metra fjórsundinu mikla athygli, hún bætti metið, sem Hrafnhildur Kristjánsdóttir átti um 5.3 sekúndur! Minna Leiknir ræðir hér við Hörð B. Finnsson, sem áður átti metin í bringusundunum. Á neðri myndinni er Hrafnhildur Krist- jánsdóttir úr Ármanni. mátti nú gagn gera. Metið er því núna 2.44.1 sek., sem er prýðis gott afrek, Sigrún Sig- geirsdóttir, sem varð önnur synti einnig á betri tíma en metiö var, 2.47.5. Hrafnhildur Kristjánsdóttir vann 100 metra skriðsundið á 1.06.9, en met Hrafnhildar Guö- mundsdóttur er frá 1964 og er 1.05.2 mín. Hrafnhildur . setti Islandsmet aftur á móti f 100 metra flugsundi, bætti eigið met úr 1.17.6 f 1.17.0. Ellen Ingva- dóttir úr Ármanni vann örugg- an sigur f 100 metra bringu- sundi á 1.25.0. Með Ármanns- stúlkunum vann hún enn einn Islandsmeistaratitilinn, í 4x100 metra fjórsundi, þar var síðasta íslandsmetið sett f gær, stúlk- umar syntu á 5.17.15 og bættu gamla metið um 6.6 sek. Þess skal að lokum getið að i-jtið var vel sótt báða dag- ana, það er segin saga að góður árangur f íþróttum er yfirleitt verðlaunaður með áhuga fólks- ins, — þetta er afstætt eins og flest annað. — jbp — Þróttur í 3. deild? Þróttur krækti í sitt fyrsta stig á Hafnarfjarðarvelli á föstudags- kvöld, gerði jafntefli við FH 1:1. Hafnarfjarðarliðin eru þvf enn án taps í 2. deild og veröa örugg- lega ofarlega í rlðlinum f ár, — annað hvort Haukar eða FH jafn yel í úrslitum. Haukar þó öilu lík- legri. Fíí notaðist við hapdknattleiks- menn sfna að miklu leýti eins og Haukar gera raunar líka og í liöi FH mátti sjá bræðurna Öm og Geir j og Einar Sigurðsson svo að ein- hverjir séu nefndir nefndir.. Þróttarliðið hefur verið i 1. deild með stuttum dvölum þó, má nú fara að gæta sín, — 3. deildin gap ir við liðinu þessa stundina, — eftir 3 leiki er það aðeins með 1 stig. Þróttur á nú eftir 3 leiki, alla á Melavellinum, gegn sömu aðilum þ.e. Hafnarfjarðarliðunum og Vik- ingi. Coco Colo keppnin ó morgun Á morgun kl. 17.30 hefst á velli G.R. við Grafarhr’*' Coca Cola keppnin 1968. Þetta er eitt af stór mótum sumarsins teiknar eru 72 holur alls á 4 dögum. þ.e. 25.. 26. 27., og 29 júni Keppni hefst á áð urnefndum tíma fyrstu 3 daganna Keppnin er opin öllum kylfina'jn innan G.S.I. OGREIDDIRI REIKNINGAR LATIÐ OKKUR INNHEIMTm t>oð sparar ybut t'ima og óbægindt INNHEIMTUSKRIFSTOFAN Tjarnargötu 10 — 111 hæó—Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3lmur)

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.