Vísir - 26.06.1968, Page 3

Vísir - 26.06.1968, Page 3
VlSIR . Miðvikudagur 26. júní 1968. 3 T augardaginn 15. júní gekkst íslendingafélagið í New York fyrir hátiðarhöldum í til- efni þjóðhátíðardagsins. Fóru þau fram í litlum skemmtigarði aö Valhöll, skammt fyrir utan New York borg. Voru saman komnir um 500 manns, meöal annarra ísl. ferðamenn og náms- menn og íslendingar búsettir í New York ríki og nálægum ríkj um ásamt bandarískum mökum sínum og börnum. Formaöur íslendingafélagsins, Sigurður Helgason, forstjóri Loftleiöa i New York, setti há- tíðina, en síðan tók Geir Magn ússon, sölustjóri hjá Coldwater við stjórn hennar. Ýmislegt var til skemmtunar til dæmis reip tog milli drengja og stúlkna og síðan milli eiginmanna og kvenna. Einnig skemmti fólk sér við knattleiki og slíkt. Börn fóru I skrúðgöngu undir stjórn Skafta Ólafssonar og Jóhannes- ar Péturssonar, sem voru fengn ir að heiman til að leika fyrir dansi. Hátíðarsvæöið var skreytt fslenzkum og bandarísk um fánum. — Þá fór fram happ drætti, og var vinningurinn flug far til Islands og til baka. Fólk MYND 1: Hluti samkomugesta í Valhöll 17. júnf. MYND 2: Kvennaliðið í reiptoginu. Eftir áralanga veru utanlands hefur ísienzka karlþjóðin lært riddara- meniisku, — stúlkurnar unnu alla vega keppnina glæsilega. MYND 3: Suður viö Miðjarðarhafið safír- bláa var þjóðhátíðardagsins einn ig minnzt á verðuean hátt af sumarleyfisgestum héðan. Mynd in er af samkomugestum með fs- lenzka fánann. Myndin var tek in úti fyrir hótelinu, þar sem samkoman fór fram. skemmti sér hið bezta á sam- komunni. Suður á Mallorca voru margir íslendingar aö vanda og nú brá svo við að haldið var upp á þjóðhátíðina í fyrsta sinn, og bauð ferðaskrifstofan Sunna ferðafólki ásamt ferðaskrifstofu- og hótelfólki til fagnaöar f nýju hóteli við ströndina, Coral Playa en þar biðu uppdekkuð borð gestanna og þjónar gengu um og skenktu mönnum spánska þjóðardrykkinn Sangria. íslenzk ur og spánskur fáni prýddu veggina og Kristinn Hallsson ó perusöngvari var fenginn til að skemmta með söng, en Njöröur Njarðvík flutti minni íslands. Undirleikari með Kristni Halls- syni var píanóleikari frá sin- fóníuhljómsveit í Madrid og þótti hans hlutur fráþær ekki síður en Kristins. Að lokinni skemmtuninni f Coral Playa var haldið út úr borginni til gamals búgarðs, Son Amar, en þar var haldin mikil grísaveizla, auk þess sem sungið var og dansað. Kristinn Hallsson söng' m. a. fyrir alla gesti þessa skemmtilega staöar, en þeir voru yfir 700. Naut rödd Kristins sfn vél og fékk hann duglegt klaþp að íáunum. ' Kvöldið fyrir þjóðhátíðina sýndi spánska sjónvarpið klukkutíma kvikmynd frá ís- landi og vakti hún mikla hygli, a.m.k. bárust starfsmönn- um Sunnu meira en 20 spurnir þegar fyrir hádegi dag- inn eftir um Islandsferðir. «n LÁTIÐ OXKUR INNHEIMTA... í>ad 'sparat yður tlma og óbægindi INNHEIMT USKRIFSTOFAN Tjarnargótu 10 — III hæð —Vonarstrætismegm — Simi 13175 (3Hnur) wmmmmmmms^mmmmmmmBmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmrnmmmmmmísÆii^mmm^^._

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.